Morgunblaðið - 12.03.1996, Side 24

Morgunblaðið - 12.03.1996, Side 24
LISTIR 24 ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ Ballett í Óperunni LISTDANS íslcnska ópcran ÞRENNING Danshöfundar: David Hanratty Greenall, Hlíf Svavarsdóttir og Lára Stefánsdóttir. Tónlist: William Boyce, Þorkell Sigurbjörnsson, De- ad can dance. Dansarar: Birgitte Heide, Christy Lee Dunlap, David Hanratty Greenall, Eldar Valiev, Guðmundur Helgason, Jóhann Freyr Björgvinsson, Júlía Gold, Katrín Ingvadóttir, Lára Stefáns- dóttir, Lilia Valieva, Sigrún Guð- mundsdóttir. ÞRENNING er yfirskrift þriggja balletta, sem frumsýndir voru í Is- lensku óperunni föstudaginn 8. mars. Þar er heimili óperu á Islandi og auðvitað ætti heimili listdansins að vera þar lika. Hann er á hrakhól- um, sýnir hér í dag og þar á morg- un. Vissulega er of þröngt um dans- inn í Islensku óperunni Við núver- andi aðstæður, en það er bæði sjálf- sagt og eðlilegt að þessi tvö listform deili húsi. Þannig er það víðast hvar annars staðar og ekki að ósekju. Islenska óperan er að vísu ekki á hrakhólum, en þó að henni hafi oft tekist að sneiða hjá, eða réttara sagt leiða hjá sér þá erfiðleika sem þessi þröngt skorni stakkur bakar henni, verður auðvitað ekki unað við þessi þrengsli mikið lengur og varla er hægt að stofna til eðlilegrar sam- búða óperu og listdans fyrr en úr verður bætt. En hvorki ópera né listdans eiga að vera gestir - mismunandi vei- komnir - í annarra manna húsum. Þau eiga að deila eigin húsi - og húsið er til. Gamla bíóið við Ingólfs- stræti. Fyrst var því breytt í óperu- hús - nú þarf að breyta því í óperu- og listdanshús. Það er hægt og kost- ar margfalt minna en að koma upp þeirri aðstöðu sem þessar tvær list- greinar þarfnast í nýju húsi. Auk þess sem þetta er ekki umfangs- meiri aðgerð en svo að lafhægt væri að Ijúka henni fyrir árið 2000. Það væri nú ekki dónalegt að opna stækkað, breytt og bætt óperu- og listdanshús það ár sem Reykjavík verður ein af menningarborgum Evrópu. En víkjum þá aftur að „Þrenn- ingu“. Fyrsta verkið af þremur var „Tilbrigði" eftir David Hanratty Gre- enail, við tónlist eftir William Boyce. Það er mikið dansað í þessu verki, e.t.v. of mikið og of margir að verki. Þettá verk hæfði a.m.k. ekki sviðinu í íslensku óperunni vel og vera má að það tæki sig betur út annars stað- ar, þar sem betur andaði um það. Þetta er glaðlegt verk og haglega samið, en án innihalds eða sérstaks stíls. Þó verkið heyri ekki til tíðinda, var greinilegt að dansararnir höfðu gaman af að dansa það og það skipt- ir ekki litlu. Þeir spreyttu sig á alls konar sporum sem þeir verða að hafa gott vald á eigi þeir að rísa undir nafni og stóðust meira og minna prófið. Þetta er fyrsta dans- verk sem ég sé eftir David (ég veit hann hefur þegar samið nokkur) og ber mörg einkenni þess að höfundur hefur ekki enn fundið sér farveg, en er fyrst og fremst að setja saman spor - nokkurs konar stílæfingar - sem í besta falli verða honum gott veganesti til dýpri og markvissari átaka. En víst er um það að ef sá áhugi, kraftur og gleði sem geislar af honum á sviðinu fylgir honum líka utan sviðs, má vænta einhvers góðs af samvinnu dansara, nemenda og hans í framtíðinní. Annað verkið á dagskrá var „Af mönnum". Bæði Hlíf og þetta verk eru öllum sem eitthvað fýlgjast með á þessu sviði kunn - og það af góðu. „Af mönnum" er einkennilegt verk, frumstætt og fágað í senn, fagurt í Ijóðleika og öfugt, nútímalegt og goðsögulengt í bland. Heillandi verk! Ekki hef ég hugmynd um hvað dans- höfundurinn var að hugsa þegar hann samdi þetta verk, en það skipt- ir engu máli. Hitt skiptir öllu máli að það leynir sér ekki að hann hugs- aði mikið og það gerði ég líka þegar ég horfði á það, bæði nú og áður. En ég hugsaði ekki neitt ákveðið eða markvisst. Datt hitt og þetta í hug. T.d. vinna, samábyrgð, einangrun, helgiathafnir, þráin eftir sameiningu sem aldrei er möguleg, grimmd, af- skiptaleysi, einmanaleiki sem ekki verður rofinn þrátt fyrir vilja og löngun. En ástin og gleðin voru ekki á staðnum, í hæsta lagi brá öðru hvoru fyrir örlítilli kímni af kald- hæðnislegum toga. Allt þetta og margt fleira kom í minn huga, hvað kom í annarra veit ég auðvitað ekk- ert um. ÖIlu máli skiptir að hugsan- irnar vakna, ímyndunaraflið fer í gang og maður breytist úr áhorf- anda í þátttakanda. Ekki má gleyma þætti Þorkels Sigurbjörnssonar. Ég treysti mér ekki til að segja neitt um það, hvemig þessi tónlist stæði ein og sér, til þess skortir mig þekk- ingu, en á þessum stað með þessu verki er hún frábær og Hlíf kann líka að nýta hana. Það verður að segjast eins og er að mér fannst „gamli dansflokkur- inn“ gera þessu verki betri skil, en sá „nýi“. Þetta verk undirstrikaði nefnilega styrkleika þess „garnla". túlkun, stíltilfinningu og tilfinninga- lega ögun, sem eru aftur á móti veik- leikar þess „nýja“. Auk þess vantaði nokkuð upp á nákvæmni og samstill- ingu. En það er einmitt af átökum við svona verk, full af stíl og inni- haldi - þó órætt sé - sem Islenski dansflokkurinn hlýtur að vaxa. Þá er komið að henni Láru Stef- ánsdóttur. Hún ætlaði ekki að gera það endasleppt! Síðastliðinn áratug hefur hún sem dansari og listamaður vaxið af vegsemd hverri og sannaði það með dansi sínum í „Af mönn- um“, en svo Iætur hún sig ekki muna um að sveifla fram verkinu „Hjartsláttur" sem fullkomnaði „Þrenninguna“. Nú verð ég að segja að það gildir það sama um dansverk Láru og Davids, ég hef ekki séð heil verk eftir hana fyrr - einungis dansa og hreyfingar á leiksýningum. „Hjartsláttur" er langt frá því að vera gallalaust og þroskað verk, en það leynir sér ekki að Lára ber ftjó- korn góðs danshöfundar í sér, frum- leika, stílfinningu og „músíkalitet", hugmyndaflug og kunnáttu, auk þess sem henni virðist liggja eitthvað á hjarta. Hún nýtur þess vel í þessu dansverki að þekkja dansárana út og inn og kann að notfæra sér styrk- leika þeirra. Sigrún Guðmundsdóttir og Jóhann Freyr Björgvinsson eru fallegt par og klæða hvert annað. Hún er að sönnu betri og þroskaðri en hann, sem er ekkert skrítið, hún er búin að vera miklu lengur við leistann, en hann er sannarlega á góðri leið. Fer stöðugt fram og hef- ur flest það til að bera sem góðan dansara .prýðir, sérstaklega fallegar línur, léttur og fimur. Auk þess að hlú að honum tæknilega, þarf hann fyrst og fremst að takast á við kröfu- hörð verkefni túlkunarlega séð, en þar liggur veikleiki hans enn sem komið er. En þar má lína greina framför. Nærvera hans á sviðinu er miklu opnari og sterkari en hún var. En það var Lára sem var stjarna kvöldsins. Nú þarf að fóstra hana vel. Ef það verður gert, er mikils af henni að vænta og verður spenn- andi að fylgjast með henni. Vonandi jafnspennandi og að fylgjast með ferli hennar sem dansara. Velkomin og til hamingju Lára. Smá aðfinnslur í lokin. Enn er sama umkvörtunin um skort á um- búnaði, þ.e. engin leikmynd og tón- list flutt af bandi. Þessi fátækrastíl má ekki verða hlutskipti íslenska dansflokksins öllu lengur. Þó að ljósahönnuðurinn Jóhann Bjarni Pálmason gerði sitt besta til að lífga upp á útlitið með ljósabreytingum og skreytingum á bakgrunni, dugir það ekki til. En það er alveg óþarfi - þó að tónlist sé flutt af bandi - að geta ekki um hljóðfæraleikara né stjórnanda, hvorki tóniistar né upptöku. Eins er búningahönnuðar ekki getið, nema Sigrúnar Úlfsdótt- ur sem á heiðurinn af búningunum í „Af mönnum“, en þeir eru óvenju- legir bæði hvað varðar liti og línur - frumlegir og fallegir. Það sama verður ekki sagt um búningana í „Hjartslætti". Skelfing fannst mér þeir óklæðilegir, a.m.k. fyrir neðan mitti. Fölblátt silki, sem var engin hreyfing í og tók illa við ljósi - auk þess sem það kipraði á öllum saum- um, þannig að hvorki hönnun (höf. óþekktur) né útfærsla var til sóma. En kvöldið var í heild ánægjulegt - miklu ánægjulegra heldur en í Borgarleikhúsinu í haust - fyrst og fremst var Hlíf og Láru fyrri að þakka og þá er bara að bíða eftir að ný „þrenning" sjái dagsins ljós, þ.e. að Nanna Ólafsdóttir bætist í hópinn, en von er á nýju verki eftir hana og Siguijón Jóhannsson á lista- hátíð í vor. Eitthvað að hlakka til! Þórhildur Þorleifsdóttir 248 VINNINGAR Auk þess eru dregnar út þrjár utanlandsferðir fyrir tvo á hverjum miðvikudegi í mars. Aðeins dregið úr greiddum miðum. Fylgstu með í Sjónvarpinu! Þú vinnur hvernig sem á það er litið! Vinningar að verðmætf 35 miKjónir yið drögum ÍT\ I lirii I I -'föf % Því fyrr sem greitt er 9119 1 9 91 þess meiri möguleikar. alla miðvikudaga í mars. Y*. atv: Happdrætti Slysavarnarfélags Íslands Ljóðatón- leikar í Sel- fosskirkju GUÐRÚN Edda Gunnarsdóttir mezzo-sópran og Iwona Jagla píanóleikari halda tónleika í Selfosskirkju í kvöld kl. 20.30. Á efnisskrá eru lög eftir Pál ísólfsson, Markús Kristjáns- son og Jórunni Viðar, ásamt lögum eftir Hildigunni Rún- arsdóttur. Þá flytja þær kunn lög eftir franska tónskáldið Gabriel Fauré og þýska tónskáidið Richard Strauss. Síðan flytja þær verk sem ekki hafa verið flutt hér á landi fyrr. Þar ber fyrst að nefna dramatískt verk eftir franska tónskáldið Caplet, samið við bæn eftir prestinn Lacordaire. Þar á eftir flytja þær fjögur sönglög eftir landa hans Jacques Ibert en hann samdi einungis átta sönglög á löng- um ferli. Að lokum verða flutt lög eftir John Musto við Ijóðatexta Langston Hughes. Guðrún Edda lauk masters- prófi í söng frá New England Conservatory of Music í Bos- ton árið 1992. Iwona Jagla lauk masters- og einleikaraprófi í píanóleik frá Tónlistarakademíu Gdansk í Póllandi 1983. Hefur hún undanfarin ár kennt við Söng- skólann í Reykjavík. Aukatónleik- ar með Kvennakórn- um og Agli DAGANA 4. og 6. mars síðast- liðinn hélt Kvennakór Reykja- víkur ásamt Léttsveitinni, Agli Ólafssyni og hljómsveit Aðal- heiðar Þorsteinsdóttur þrenna gospeltónleika fyrir fullu húsi í Loftkastalanum. Vegna fjölda áskorana verða þessir tónleikar, sem báru heitið „Ég trúi á ljós“, endurteknir miðvikudaginn 13. mars. Haldnir verða tvenn- ir tónleikar og hefjast þeir fyrri kl. 20 og hinir seinni kl. 22. Miðar verða seldir við inn- ganginn og hjá kórfélögum. Háskólatón- leikar falla niður TRIO Björns Thoroddsen ásamt Agli Ólafssyni sem koma áttu fram á Háskólatón- leikum í Norræna húsinu á morgun miðvikudag kl. 13.30 falla niður. Tónleikarnir verða auglýstir síðar. FYRIR WINDOWS 95 KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 - Sími 568 8055

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.