Morgunblaðið - 12.03.1996, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 12.03.1996, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1996 17 VIÐSKIPTI Hof sf. og Fóður- blandan hf. Tilboð kom- iðíSam- skipabréfin HOF hf., ■ eignarhaldsfélag Hag- kaups, og Fóðurblandan hf. fengu nýlega tilboð í hlutabréf sín í Sam- skipum miðað við gengið 1,3. Fóður- blandan á alls 100 milljónir að nafn- virði og Hof 40 milljónir í félaginu, en bréfín voru keypt á nafnvirði á sínum tíma. Þetta samsvarar um 15,5% af hlutafé félagsins. Hof sf. ákvað síðastliðið haust að selja 40 milljóna hlut sinn í Samskip- um og var þá einnig vitað að eigend- ur Fóðurblöndunnar hefðu hug á að selja sín bréf. í lok febrúar sögðu Gunnar Jóhannsson, stjórnarformað- ur Samskipa og fulltrúi Fóðurblönd- unnar og Jón Pálmason hjá Hofi, sig síðan úr stjórn félagsins. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins barst tilboð nýlega frá lög- fræðiskrifstofu Sigurmars K. Al- bertssonar. Tilboðinu hefur ekki ver- ið svarað og virðist bera mikið á milli aðila um verð bréfanna. Eftir því sem næst verður komist gera Hof og Fóðurblandan ráð fyrir mun hærra sölugengi en 1,3 eða nálægt 2,0. Ávöxtun þessarar fjárfestingar yrði engu að síður góð miðað við gengið 1,3 þar sem bréfin voru á sínum tíma keypt á genginu 1,0 auk þess sem Landsbankinn veitti lán fyrir 65% af kaupverðinu. -----♦ ♦ ♦---- Sameinaðir verktakar Greiða 230 milljóna arð tilhluthafa Á AÐALFUNDI Sameinaðra verktaka hf. 29. febrúar sl. var samþykkt að greiða hluthöfum 10% arð af markaðs- virði hlutabréfa. Samkvæmt yfirliti frá Landsbréfum var markaðsvirði bréf- anna rösklega 2,3 milljarðar um síð- ustu áramót og nema arðgreiðslur því um 230 milljónum. Bókfærður hagnaður Sameinaðra verktaka á sl. ári nam alls um 146 milljónum. Þar er annars vegar um að ræða hlutdeild í afkomu íslenskra aðalverktaka þar sem félagið á 32% hlutafjár. Hins vegar fær félagið vaxtatelgur af bankainnistæðum. Eigið fé var alls um 2.624 milljónir um áramótin og eiginfjárhlutfall 97%. Á aðalfundinum var samþykkt að láta kanna hvaða heimildir væru fyrir hendi hjá félaginu til útgáfu jöfnunar- hlutabréfa og gefa út bréf sem því næmi. -----» ♦ ♦----- GMískaða- bótamál við VW Riisselsheim. Reuter. GENERAL MOTORS í Bandaríkjun- um og deildin Adam Opel í Þýzka- landi segjast ætla í skaðabótamál gegn stjórn Volkswagens í Banda- ríkjunum og þar með hafa deilur fyrirtækjanna vegna meintra iðnað- amjósna VW færzt á nýtt stig. Þar sem lítið hefur miðað áfram í 34 mánaða málarekstri gegn VW í Þýzkalandi kveðst GM munu leita réttar síns í Bandaríkjunum og ákæra að auki Ferdinand Piech for- stjóra. GM höfðaði mál sitt fyrir dómstóli í Michigan 7. marz, nokkr- um dögum áður en málið hefði fyrnzt samkvæmt bandarískum lögum. Því er haldið fram að framleiðslu- stjóri VW, José Ignacio Lopez de Arriortua, og sjö aðrir fyrrverandi stjómendur hjá GM hafi stolið „miklu magni“ leyniskjala þegar þeir hófu störf hjá VW árið 1993. Einstakt tækifæri til að kynnast nýjum aðferðum, hugmyndum og . hfálpartækjum sem auðvelda þér að leysa sköpunargáfuna úr \ læðingi, skapa nýjar lausnir og landa spennandi tækifærum sem fært geta þér lykilinn að framtíð fyrirtækis þíns eða stofnunar. KVEIKTU A PERUNNI m Sköpun arðbærra hugmynda (CREATIVITY FOR SUCCESS AND PR0FIT) Námstefna með Marsh Fisher, frumkvöðli og framkvæmdastjóra IdeaFisher Systems Inc. I Bandaríkjunum. Haldin að Scandic Hótel Loftleiðum, miðvikudaginn 20. mars 1996 frá kl. 9:00 til 16:00. Sköpunargáfan hefur áhrif á árangur stjórnenda. Ef stjórn- endur virkja sköpunargáfuna með réttum aðferðum er ekki aðeins hægt að auka fjölda hugmynda heldur einnig gæði þeirra til að skapa arðbærar lausnir. Góðar hugmyndir og þau bylgjuáhrif, sem þær valda, hafa áhrif á starf þitt, heilsu, velgengni og umhverfi. Það er í raun ekkert sem getur tryggt þér betri framtíð en hæfileikinn að vera skap- andi. Stjórnendur, sem virkja sköpunargáfu sína og þann mann- auð sem fólginn er í hæfileikum samstarfsfólks og undirmanna, eiga meiri velgengni að fagna en aðrir. Árið 1970 þróaði Marsh Fisher hugmyndina að því sem átti eftir að verða stærsta fasteignasölufyrirtæki í heiminum, Century 21. Marsh Fisher seldi sinn hlut árið 1977 og hefur síðan þá fjárfest fyrir meira en 4 milljónir dollara (hátt f 300 milljónir króna) og haft yfir 200 manns við rannsóknir á því hvernig við hugsum og að finna svör við spurningunni: Hvernig er hægt að virkja sköpunargáfuna á réttan hátt og hvernig er hægt að nýta sér þá orku sem liggur óbeisluð í huga okkar? Uppgötvun þeirra um undirstöðuatriði hugsunar og eðli hugmyndasköpunar hefur síðan verið staðfest af sjálfstæðum rannsóknum við John Hopkinsháskóla. Árið 1988 stofnaði Marsh Fisher fyrirtækið IdeaFisher Systems Inc. sem er hugbúnaðarfyrirtæki í Irvine í Kaliforniu. Á grunni áðurnefndra rannsókna hefur fyrirtækið þróað IdeaFisher hug- búnaðinn sem fengið hefur frábæra dóma og verið seldur í rúmlega 500 þúsund eintökum víða um heim. Virkjun sköpunargáfunnar getur skapað þér forskot í sam- keppni, hvort heldur sem finna þarf nafn á nýja vöru, þróa áætlanir og framtíðarsýn fyrirtækis eða stofnunar, skipuleggja almannatengslaherferðir, hjálpa til að leysa vandamál og breyta og meta.lausnir. Á þessari námstefnu mun Marsh Fisher fjalla um eðli sköpunargáfunnar og kynna hvernig stjórnendur geta virkjað hana með nýjum og bættum aðferðum. Einnig mun hann kynna IdeaFisher hugbúnaðinn, sem er innifalinn í námstefnugjaldinu, og sýna notkun hans. Á námstefnunni gefst því tækifæri til að kynna sér nýtt verklag til að glíma við krefjandi úrlausnarefni nútímastjórnunarumhverfis, auka fjölda og gæði nýrra hugmynda og hvernig stjórnendur geta leyst sköpunargáfu sína úr læðingi og beitt til þess sér- hæfðum hugbúnaði til að skapa arðbærar hugmyndir og lausnir á knýjandi viðfangsefnum. AFSLÁTTARTILBOÐ til fyrirtækja og stofnana Qi < Ef þrír eru skráðir frá sama fyrirtæki eða stofnun O i I fær fjórði þátttakandinn fría skráningu. ■Jii Ef sjö eru skráðir frá sama fyrirtæki eða stofnun " *fá þrír þátttakendur til viðbótar fría skráningu. Idcalishcr PRO ,'i'he Ultirnate Writin^ c\- Uornmiinieíitioii Tooís for liusincss Protessionais Innifalið í námstefnugjaldi: Bókin IdeaFisher eftir Marsh Fisher og IdeaFisher Pro tölvuforritið (þú getur valið á milli Mac eða PC). Með forritinu fylgir notendahandbók sem jafnframt er kennsluhandbók. Að auki fylgir viðbótarefni til notkunar með forritinu - sérhæfðir pakkar fyrir hugmyndavinnu á sviði stefnumótunar og þróunar nýrrar vöru og/eða þjónustu. Einnig er innifalið morgunkaffi, hádegisverður og síðdegiskaffi. Verð: Kr. 42.400. Verð fyrir aðila Stjórnunarfélagsins: Kr. 25.415. Skráning er hafin Tryggðu þér þátttöku Skráningarsími: 562-1066 Stjórnunarfélðg íslands mtfpmMf&i* - kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.