Morgunblaðið - 12.03.1996, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
ÞRIÐJUDAGUR 12. MARZ 1996 19
Bandaríski gamanleikarinn George Burns látinn
Los Angeles. Reuter, The Daily Telegraph.
BANDARÍSKI gamanleikar-
inn George Burns lést á heim-
ili sínu á Beverly Hills í Los
Angeles á laugardag, tæpum
tveimur mánuðum eftir að
hann varð 100 ára gamall.
Bill Clinton, forseti Banda-
ríkjanna, minntist George
Burns sem „eins af mestu
skemmtikröftum allra tíma“.
„Tilfinning hans fyrir tíma-
setningu og hrífandi brosið
snertu hjarta og hláturtaugar
þriggja kynslóða," sagði for-
setinn. „Hann gerði okkur
kleift að sjá fyndnu hliðarnar
á erfiðustu timunum og hlæja
saman sem þjóð.“
Bandaríski gamanleikarinn
Jackie Mason lýsti Burns sem
„mesta gamanleikara allra
tíma“. Aðdáendur Burns
lögðu blóm við sljörnu hans á
gangstétt í Hollywood sem er
helguð frægustu leikurum
Bandaríkjanna.
Burns hafði átt við veikindi
að stríða frá árinu 1994, þegar
hann hrasaði í sturtu í íbúð
sinni í Las Vegas. Hann varð
að aflýsa skemmtun, sem
fyrirhuguð var í tilefni af tí-
ræðisafmælinu, og gat ekki
„Einn af mestu
skemmtikröftum
allra tíma“
Reuter
GEORGE Burns ásamt Ieikkonunni Ann Margret 25. febrúar
sl. þegar honum voru veitt heiðursverðlaun samtaka banda-
rískra kvikmyndaleikara.
haldið upp á afmælið vegna
flensu.
Elsti Óskarsverðlaunahafinn
Burns, sem varð 100 ára
gamall 20. janúar. Hann
kynntist eiginkonu sinni,
Gracie Allen, árið 1923 og
þau voru með vinsæla gaman-
þætti í útvarpi og sjónvarpi í
19 ár og léku í u.þ.b. tveimur
kvikmyndum á ári frá
1932-39. Árið 1976 varð hann
elsti maðurinn til að hljóta
Óskarsverðlaunin, þá áttræð-
ur, fyrir leik í aukahlutverki
í gamanmyndinni „The Sun-
shine Boys“ (Sólskinsdren-
girnir). Hann lék þar aldrað-
an gamanleikara. Síðar lék
hann m.a. guð í myndinni „Oh
God!“ og tveimur framhalds-
myndum.
Burns skrifaði einnig ýmsar
bækur, svo sem „Forskrift
Burns að hamingju" og
„Hundrað ár, hundrað sögur,“
sem var gefin út í tilefni af
tíræðisafmælinu. Burns var
þekktur fyrir að reykja stóra
vindla meðan hann reytti af
sér brandara og reykti enn
yfir tíu vindla á dag síðustu
árin.
Dini lofar
rannsókn
LAMBERTO Dini, forsætisráð-
herra Ítalíu, fullvissaði banda-
ríska ráðamenn í gær um það
að ítalar hygðust upplýsa það
hvemig Magied al-Molqi, sem
dæmdur var fyrir aðild að morð-
inu á Bandaríkjamanninum
Leon Klinghoffer þegar far-
þegaskipinu Achille Lauro var
rænt árið 1985, slapp úr fang-
elsi.
Molqi fékk tólf daga leyfi úr
fangelsi og átti að snúa aftur
28. febrúar. Til hans hefur ekki
spurst síðan.
Njósnahnöttur
nálgastjörðu
KÍNVERSKUR gervihnöttur,
sem ætlaður var til njósna, nálg-
aðist jörðu stjórnlaust í gær og
var gert ráð fyrir því að hann
myndi hrapa um klukkan hálf
átta í morgun. Að sögn breska
vamarmálaráðuneytisins var
talið að hann myndi hrapa í haf
einhvers staðar á suðurhveli
jarðar og sagt ósennilegt að
hann myndi valda tjóni.
Fastafulltrúi íslands hjá NATO
Gæsluliðinu er
treyst í Bosníu
ÞORSTEINN Ingólfsson sendiherra,
fastafulltrúi íslands hjá NATO, fór
ásamt öðmm fulltrúum NATO-ríkja
í Brussel í vettvangsferð til Sarajevo
síðastliðinn föstudag. Þorsteinn seg-
ir að enginn vefengi að friðargæzlul-
ið NATO, IFOR, hafi sinnt hlutverki
sínu með prýði og sé nú eini aðilinn,
sem heimamenn treysti. Á móti horfi
fólk hins vegar til IFOR að fram-
kvæma alls konar verkefni, sem séu
ekki í verkahring herliðsins, en eng-
inn annar hafi komið til að leysa þau.
Fastafulltrúunum sextán var ekið
um Sarajevo í brynvörðum bflum.
Þorsteinn segir það hafa verið slá-
andi að litast um í borginni. Til
dæmis hafi ekki verið óskaddað hús
að sjá í hverfum nálægt flugvellin-
um.
Fastafulltrúarnir áttu fundi í
Sarajevo með herstjórn IFOR og
með fulltrúa Evrópusambandsins,
Carl Bildt, sem hefur yfirumsjón
með uppbyggingarstarfinu í Bos-
níu. „Það er almennt mat manna
að IFOR hafi þrátt fyrir allt tekizt
mjög vel að framkvæma sína að-
gerð. Herliðið er eina aflið, sem
fólk treystir á eins og sakir standa.
Hernaðarlega hliðin á friðarsamn-
ingunum hafa staðizt og ekki er
lagt til atlögu við IFOR,“ segir
Þorsteinn. „Hins vegar er geysilega
brýn þörf á að koma í gang því
endurreisnarstarfi, sem alþjóða-
stofnanir eru að undirbúa. Þar vant-
ar því miður heilmikið upp á.“
Þorsteinn segir ljóst að fé skorti
til uppbyggingarstarfsins. Þannig
hafi verið greinilegt af máli Carls
Bildt að sú starfsemi, sem hann eigi
að stjórna, þurfi miklu meiri stuðn-
ing en nú sé kominn á. „Því betur,
sem tekst til að koma starfsemi
annarra alþjóðastofnana, sem marg-
ar eru komnar á staðinn og eru að
byggja sig upp til sinna verka, þeim
mun meiri líkur eru á að jafnvægi
komist á og íbúamir sjái einhverja
vonarglætu," segir Þorsteinn.
Atlantshafsbandalagið hefur ver-
ið gagnrýnt fyrir að taka ekki að
sér lögregluhlutverk í Sarajevo.
Þorsteinn segir að lögreglusveitir
heimamanna séu til staðar, en að-
eins brot af hinu alþjóðlega lögregl-
uliði sé komið til borgarinnar. „Afl-
ið hjá alþjóðlega lögregluliðinu er
langt frá því að vera nægilegt. Hitt
er svo annað mál að það er talið
mjög óæskilegt að setja hermenn í
almenna löggæzlu á götum borgar-
innar. Það er hreinlega ekki það
hlutverk, sem þeir eru þjálfaðir til,“
segir Þorsteinn.
Kvartað undan 777
New York. The Daily Telegraph.
BANDARÍSKA flugfélagið United
Airlines hefur sent mjög alvarlegar
athugasemdir til Boeing-verksmiðj-
anna um áreiðanleika nýju 777-þot-
unnar. Skýrði dagblaðið Wall Street
Journal frá þessu en aðfinnslurnar
eru mikið áfall og álitshnekkir fyrir
verksmiðjurnar.
í bréfinu segir meðal annars,
að United hafi orðið fyrir miklum
vonbrigðum með reynsluna af 777-
þotunni sl. fimm mánuði. Segist
Joseph O’Gorman, yfirmaður flug-
rekstrarsvið United, vera mjög
áhyggjufullur vegna þessa og hvet-
ur til, að Boeing og United sjái til
þess saman, að vandamálin verði
leyst.
„Athugasemdir frá flugmönnum,
ferðir, sem hafa fallið niður, og sá
tími, sem dregist hefur frá notkun
vélanna, er meiri en við verði un-
að,“ sagði O’Gorman í bréfinu.
Talsmaður Boeing staðfesti, að
bréfið hefði borist en lagði áherslu
á, að um væri að ræða einangruð
vandamál, sem hefðu engin áhrif á
öryggi vélanna.
$ SUZUKI
---y///.-----------
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17-108 Reykjavík - sími: 568 5100
SUZUKI- afl og öryggi
Þægindi, öryggi og kraftur
Einstaklega vandaður
og vel búinn fjölskyldubíll
Aflmikil 16 ventla vél/86 hestöfl • vökvastýri •
veltistýri • samlæsingar • rafdrifnar rúðuvindur •
rafstýrðir útispeglar • rúmgóð farangursgeymsla
• einstaklega rúmgott og hljóðlátt farþegarými •
útvarp/segulband 4 hátalarar • upphituð framsæti
Öryggisbúnaður í sérflokki
2 öryggisloftpúðar (airbags) • hliðarárekstrarvörn •
hæðarstilling á öryggisbeltum • krumpsvæði framan
og aftan • rafstýrð hæðarstilling á framljósum