Morgunblaðið - 23.03.1996, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. MARZ 1996 9
FRÉTTIR
Borgarstjórn
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur
verður í Miðbæjarskólanum
SAMÞYKKT var að Fræðslumið-
stöð Reykjavíkur yrði til húsa í
Miðbæjarskólanum á fundi
borgarstjórnar á fimmtudags-
kvöld. Tillaga R-listans þess efnis
var afgreidd með átta atkvæðum
meirihlutans gegn sjö atkvæðum
minnihlutans eftir um sex klukku-
stunda umræður. Fræðslumiðstöð-
in er ný stofnun, sem mun þjóna
skólum í borginni eftir að grunn-
skólar hafa verið færðir frá ríki
til sveitarfélaga en þeir eru 29 í
Reykjavík.
Enginn ágreiningur er um að
stofna eigi Fræðslumiðstöðina og
eins er sátt um hvernig að því er
staðið. Sjálfstæðismenn í borgar-
stjórn hafa hins vegar gagnrýnt
harðlega að h'enni skuli fundinn
staður í Miðbæjarskólanum. Gagn-
rýna þeir að breyta eigi þessu
gamla skólahúsnæði í skrifstofu-
húsnæði og að Miðskólanum, sem
er einkaskóli, verði úthýst. Ljóst
sé að lítið sé af skólahúsnæði í
borginni á meðan nægt framboð
sé á skrifstofuhúsnæði. Erfitt yrði
fyrir Miðskólann að finna hentugt
húsnæði.
Meirihlutinn var öndverðrar
skoðunar og sagði mjög viðeigandi
fyrir þetta skólahús, sem verður
hundrað ára árið 1998, að þar
verði miðstöð skólastarfs í Reykja-
vík. Auk þess væri húsið í eigu
borgarinnar og því hagkvæmt að
nýta það í stað þess að fjárfesta
í nýju húsnæði fyrir Fræðslumið-
stöðina. Kom fram í máli borgar-
stjóra að sambúð Námsflokka
Reykjavíkur og Miðskólans, sem
er barnaskóli, hefði ekki gengið
vel og að Miðskólanum myndi
hafa verið sagt upp húsnæðinu
hvort sem Fræðslumiðstöðin hefði
farið þangað inn eða ekki. Náms-
flokkarnir munu áfram verða í
Miðbæjarskólanum. '
Óvenju fjölmennt var á áhorf-
endapöllum borgarstjórnar þetta
kvöld, en mest töldust þar vera
ellefu manns.
Miðskólinn verður að flytja úr Miðbæjarskólanum
Auglýst eftir skólahúsnæði
VIÐ flutning Fræðslumiðstöðvar
Reykjavík.ur í Miðbæjarskólann
verður Miðskólinn að flytja úr
Miðbæjarskólanum. Bragi Jóseps-
son, skólastjóri, segir að auglýst
verði eftir nýju skólahúsnæði fyr-
ir Miðskólann um helgina. Hann
er bjartsýnn á að hægt verði að
leysa húsnæðisvanda skólans.
Bragi sagði að auglýst yrði
eftir skólahúsnæði eða húsnæði
sem auðvelt yrði að laga að skóla-
starfi og tilheyrandi skólalóð.
Miðskólinn þyrfti 8 til 10 herbergi
og þar af þyrftu 5 herbergjanna
að vera fyrir almenna kennslu.
Akjósanlegast yrði ef hægt væri
að fá húsnæði miðsvæðis enda
sæktu nemendur skólann alls
staðar að af höfuðborgarsvæðinu.
Alls eru 70 nemendur á aldrinum
9 til 14 ára í Miðskólanum sem
er einkaskóli. Óskað verður eftir
húsnæði frá 1. júní næstkomandi.
Bragi sagðist vera bjartsýnn á
að hægt yrði að leysa húsnæði-
vanda skólans. „Við virðumst líka
eiga fleiri hauka í horni en við
héldum,“ sagði Bragi. „Mér
fannst það t.a.m. koma fram í sex
og hálfar klukkustundar umræð-
um í borgarstjórn," sagði hann
en játti því að auðvitað kæmi
röskunin sér illa fyrir starfsemi
skólans. Margir foreldrar hefðu
líka lýst yfir óánægju sinni með
að skólinn yrði fluttur úr Miðbæj-
arskólanum.
GULLSMIÐJA HELG
Laugavegi40. S: 56Í 66
í ár eba frábæra?
FARSÆLL FERÐAMAÐUR
• •
TVOFALDAR
VERÐGILDIÐ
í heimsreisum Ingólfs,
þar sem gæðin skipta máli
Hefur þú kynnt þér
nýja bæklinginn
UNDUR
HEIMSINS
1996
Nýjungar fyrir þig á
frábæru verði.
Pantabu á sértilbobi
núna - fyrir 22. mars.
Farseðlar um
ailan heim
Hvaö kostar flugiö?
Bangkok frákr. 69.100
Singapore frákr. 81.100
Hong Kong frá kr. 82.300
Manila frákr. 81.100
Peking frá kr. 79.800
Tokyo frá kr. 87.200
Sydney frá kr. 99.800
FERÐASKRI FSTOFAN
PRIMAr
D) HEIMSKLÚBBUR INGÓLFS
LOKSINS HAFA ISLENSKIR KARLMENN EIGNAST VEGLEGAN ÞJOÐBUNING
STOLT ISLENSKRA KARLA, AUGNAYNDIISLENSKRA KVENNA!
Hótíðarbúningurinn sem er skraddarasniðinn og saumaður g|||
eftir máli hverju sinni er einstök lífstiðareign. ^ -
Hann er unninn úr íslensku klæði frá Foldu á Akureyri.
Sannkallaður arfur til komandi k/nslóSa!
, r\ islensk fagmennska
Aj á íslenskum hátíðarbúningi!
HULDARAGNH EIÐUR
SIMI 464 3607 • FAX 464 3680
Skoðað fyrir heyrnariausa
Bílaskoðunarfyrirtækið Athugun
hf. í Sundahöfn bauð í samvinnu
við Félag heymarlausra upp á sér-
stakan skoðunardag fyrir bíla
heymarlausra í gær. Komið hafa
upp erfiðleikar í samskiptum
heymarlausra við bílaskoðunarfyr-
irtæki og afréðu stjómendur At-
hugunar að bjóða upp á þessa þjón-
ustu tii þess að koma til móts við
þennan hóp. Stefán Markússon
skoðaði bílinn fyrir Önnu Jónu Lár-
usdóttur, formann Félags heymar-
lausra, en Sigrún Edda Theódórs-
dóttir, táknmálstúlkur, aðstoðaði
þau við að skilja hvert annað.
Nýtt á íslandi
SPEMIUANDI
OPNUNARTILBOÐ
Frábært verð - aðeins kr. 4.900.-
Sendingarfcostnaður bætist við vöruverð
Pöntuiiarsími 567 5484
B.G.Á. HEILDVERSLUN
blabib
- kjarni málsins!
á samkvæm'is-f&rt'naöi
Leigjum draktir og hatta við öll taskifasri.
Frá kr. 4.000.
Opið mán.-fös. kl. 9-18 og lau. 10-14.
Fataleiga Garðabasjar
Garðatorgi 3, sími 565 6680.
Vindhanar á sumarbústaðinn
KRINGLUNNI
SlMI 581 1717
LAPAGAYO
fyrir börn
og unglinga