Morgunblaðið - 23.03.1996, Page 22

Morgunblaðið - 23.03.1996, Page 22
MORGUNBLAÐIÐ 22 LAUGARDAGUR 23. MARZ 1996 A HESTBAKI MEÐ EINARI BOLLASYNi una mmm mmM Hestamennskan snýst aðallega um að sópa kemba, segir Einar Bollason, en eftir reiðtúr með honum komst Sveinn Guðjónsson að raun um að hún býður upp á margt fleira og er að mörgu leyti heill ævin- týraheimur út af fyrir sig. VEGURINN framundan frá sjónarhóli knapans. Til að fullkomna myndina hleypur tíkin Mirra með í vegarkantinum. W AHLAÐINU, innan um hrossin, var hópur Kvennaskólanema og upp úr honum miðjum gnæfði Einar Bollason, vörpulegur maður, þéttur á velli og ekki síður í lund. Hann var að afhenda krökkunum „diplomu“ þar sem skjalfest var að viðkomandi hefði lokið reiðtúr með Ishestum. „ Það hefur færst mjög í vöxt á undanför- num árum að framhaldsskólanemar komi hin- gað til að komast á hestbak," segir Einar. „Hestamennskan nýtur sívaxandi vinsælda og við gefum fólki kost á að njóta hennar án þess að þurfa að leggja út í þann kostnað sem því fylgir að kaupa og fóðra hest. Hingað kemui' fólk úr öllum stéttum þjóðfélagsins á laug- ardögum og sunnudögum og ríðm- út og sendi- herrar erlendra ríkja hafa komið og haft gaman af. Heilu fjölskyldurnar koma til að upplifa ævintýraheim hestamennskunnar, jafnvel fólk sem aldrei hefur stigið á hestbak, og í slíkum tOvikum kennum við einfaldlega fólkinu tökin á reiðmennskunni.“ Kx/ensemi Séra Jáns „Þetta er Séra Jón,“ segir Alexandra Klonawski, Kvennaskólanemi. „Hann er hesturinn minn,“ bætir hún við og tekur utan um hálsinn á klámum, sem tekur þessum atlotum stúlkunnar með stóískri ró. „Séra Jón er ákaflega kvensamur," segir Einar og glottir, „enda fá bara konur að ríða honum.“ Kvennaskólanemarnir eru á förum og Einar gengur inn í hest- hús og fer að sópa gólf. „Hesta- Þau eru súr, sagði refurinn Gytfi Ásmundsson sálfræðingur fjallar um furður sálarlífsins NOKKRIR lesendur hafa óskað eftir að fræðast meira um vamarhættina, sem drepið hefur verið á í íyrri pistlum. Sáleflisfræðin, sem runnin er frá Sigmund Freud, gerir ráð fyrir því að sálarlífið sé orka, sem birtist í ýmsum myndum í per- sónuleika mannsins. Uppspretta orkunnar liggur í frumstæðum hvötum, sem leita útrásar. Raunvemleikinn og siðaboðorð samfélagsins leyfa ekki beina útrás til að fullnægja hinum frum- stæðu hvötum, svo að umbreyting verður að eiga sér stað. Göfgun er aðferð sjálfsins til að umbreyta hinni frumstæðu hvatrænu orku í siðferðislega og þjóðfélagslega viðurkennt form. Kynhvötinni, eða lífshvötinni, eins og Freud nefndi hana síðar, leyfist ekki taumlaus útrás hvar og hvenær sem er, en hún er drifkraftur allra skapandi athafna og við göfgun fær hún framrás í breyttri mynd, t.d. í listum og bókmenntum. Göfgun frumhvatanna er þó á mismunandi stigiog er ekki alltaf jafn vel dulbúin. Árásarhvötinni leyfist þannig tiltölulega bein útrás í sumum íþróttum, eins og t.d. hnefaleikum eða hjá áhorf- endum að knattspyrnuleik, en hún verður samt að lúta ákveðnum leikreglum. I sumum tilvikum er óhindruð frumstæð útrás þó bein- línis eðlileg og holl, t.d. kynmök elskenda í einrúmi eða skefjalaus reiði til að verja sjálfsmynd sína og æru eða ofbeldi í baráttu fyrir lífi sínu. Ef kenndir, eins og reiði, ótti eða löngun, fá ekki útrás sem samræmast þeim kröfum, sem við sjálf og annað fólk gerir til okkar, er gripið til einhverra vamarhát- ta. Varnarhættirnir eru ófullkom- in og oftast tímabundin lausn og til þess fallnir að blekkja sjálfan sig. En þeir gegna þó mikilvægu hlutverki við að komast af í hörðum heimi og halda sjálfs- virðingu sinni, ef þeir ganga ekki út í öfgar.Vörnin byrjar venjulega með bælingu eða afneitun. Oþægi- legri kennd er vikið brott úr meðvitundinni. Við viljum ekki af henni vita, hún gleymist, en lifir áfram í sálrænni spennu. Einhver algengasti varnarhátt- ur sem sjá má í daglegu lífi fólks er réttlæting, þ.e. að gefa góða ástæðu fyrir gilda. Fyrst afneitum við kenndinni, én finnum síðan einhverja góða ástæðu til þess að gera það trúverðugt. í dæmisögum Esóps er þessi saga: Refur stalst inn í víngarð um uppskerutímann til þess að gæða sér á sólbökuðum vínberjunum. En þau héngu svo hátt uppi, að hann náði þeim ekki. Hann tók unclir sig hvert stökkið á fætur öðru, en allt kom fyrir ekki. Loksins snautaði hann í burtu og sagði um leið og hann fór: „Þetta gerir ekkert til, þau eru súr.“ Með þessu hélt refurinn sjálfsvirðingu sinni, þrátt fyrir mistök sín. Það var engin ástæða til að reyna frekar við berin fyrst þau voru súr. Við sjáum ótal dæmi um réttlætingu af þessu tagi. Bamið langar til að leika sér méð hinum krökkunum í sandkassa- num, en er alltaf haldið utan við. Að lokum fer það sína leið: „Mig langar ekkert að vera með, þau eru svo vitlaus." Maður nokkur hefur lengi gert sér vonir um að vera teldnn í Rotary-klúbbinn, en án árangurs. Úrkula vonar lýsir hann yfir: „Aldrei mundi ég taka þátt í svona klíkustarfsemi." Oft beitum við réttlætingu til þess að fresta eða komast hjá því að gera eitthvað sem veldur okkur kvíða eða öðmm óþægindum. Nemandi hefur tekið frá tvær klukkustundir á dag til þess að lesa undir mikilvægt próf. Þegar þar að kemur finnur hann sér ástæðu til þess að komast hjá því: Hann þarf að heimsækja vin sinn á sjúkrahúsið á þessum tíma. Hann þarf að. fara út að hlaupa eða fara í sund til að halda sér í formi, svo að hann sé betur undir lesturinn búinn. Hann þarf nauðsynlega að þvo bílinn, það gengur ekki lengur hv&ð hann er óhreinn. Hann verður að skila bók á bókasafnið áður en hann fær sekt. Allar þessar ástæður gætu hugsanlega verið bæði góðar og gildar, en ef hann finnur sér al- drei tíma til að lesa undir prófið em þær vafalaust réttlætingar í því skyni að komast hjá því að takast á við kvíðvænlegt verkefni. Oft er það nægilegt að „gleyma “ að gera eitthvað sem við kvíðum eða óttumst. Við getum „gleymt" að fara til tannlæknisins á tilskil- dum tíma. En jafnvel þótt við munum það er hægur vandi að finna sér góða afsökun fyrir því að fara ekki, eins og maðurinn sem þurfti alltaf að mæta á „mikil- vægum" fundi á sama tíma. Stundum fáum við líka sektar- kennd yfir þvi að sinna ekki þvi sem við teljum innst inni siðferði- léga skyldu okkar. Vinur þinn biður þig um fimmtíu þúsund króna lán, en þú neitar vegna þess að þú óttast að hann borgi þér ekki til baka. Seinna fer sektarkenndin að naga þig. „Kannski hefði ég átt að lána hon- um peningana. Hvert skyldi hann leita núna? Hann gæti misst íbúðina sína ef hann borgar ekki af láninu. Hvers konar vinur er ég eiginlega?" Það togast á an- nars vegar óttinn við að missa peningana og hins vegar sektin yfir því að bregðast vini þínum. Ef þú kýst að standa fast á því að lána honum ekki peningana þarftu á réttlætingum að halda: „Maður á aldrei að lána vinum sínum peninga. Það er vísasti vegurinn til að spilla vináttunni." Eða þú kynnir að hugsa: „Ég vil gjarnan treysta fólki, en hverjum er treystandi á þessum síðustu og verstu tímum.“ Þú segir við konu þína: „Mig langaði til að lána Pétri fimmtíu þúsundin sem hann bað mig um, en hefði hann lánað mér? Eg efast um það.“ Allar þessar vangaveltur eru sennilegar réttlætingar íyrir þá tilfinningu, að þú hafir brugðist vini þínum. • Lesendur Morgunblaðsins geta spurt sálfrœðinginn utn þnð sem þeim tíggur á hjnrta. Tekið er á móti spurningum á virkum dögum mitíi klukknn 10 og 17 í síma 569 1100 og bréfum eða sfmbréfum merkt: Vikulok, Fax 5691222.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.