Morgunblaðið - 02.04.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 02.04.1996, Blaðsíða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ Boðahlein 15 - Hrafnista 85 fm endaraðhús - þjónustuíbúð nýkomið í einkasölu. Húsið er á svæðinu næst Hrafn- istu í Hafnarfirði. Stór stofa, svefnherbergi, eldhús, þvottahús og garðskáli. Allt í mjög góðu ástandi. Þjón- usta frá Hrafnistu. Ekkert áhvílandi. Laust strax. Árni Gunnlaugsson hrl., Austurgötu 10, sími 555 0764. 552 1150-552 1370 LÁRUS Þ. VALDIMARSS0N, framkvæmdastjori KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, lOGGiuuR FASTEIGNASAU Nýjar á söluskrá m.a. eigna: Góð íbúð á góðu verði Sólrík 3ja herb. íb. á 1. hæð, rúmir 80 fm, rétt við Sæviðarsund. Park- et. Tvennar svalir. Rúmgóð geymsla í kj. Vinsæll staður. Laus fljótl. Lítið sérbýli - skipti möguleg Vel byggt og vel með farið raðhús i suðurenda við Grundartanga, Mos. með 3ja herb. sólríkri íb. á 1. hæð. Langtímalán kr. 3,2 millj. Skipti möguleg. Vinsamlegast leitið nánari uppl. Einbýlishús - stór bílsk. - útsýni Glæsilegt steinhús, ein hæð, tæpir 160 fm. Stór og góður bílskúr, rúmir 40 fm. Stór ræktuð lóð á útsýnisstað við Vesturvang í Hafnar- firði. Tilboð óskast. Lækkað verð - lítil útborgun Nýleg og góð íbúð á 3. hæð og í risi, rúmir 104 fm við Hrísmóa, Gbæ. 40 ára húsnæðislán kr. 5,1 millj. Skammtímalán kr. 900 þús. geta fylgt. Vinsamlegast leitið nánari uppl. Lyftuhús - vesturborgin - hagkv. skipti Stór sólrík 4ra herb. ib., tæpir 120 fm, ofarlega í lyftuh. á vinsælum stað. 3 rúmg. svefnh. Frábært útsýni. Góð lán. Tilboð óskast. Fjársterkir kaupendur óska eftir 2ja-3ja herb. ib. í Vesturborginni, Hlíðum, Safamýri, nágr. 3ja-4ra herb. íb. í Hafnarf. með rúmg. bílsk. 2ja herb. íb. við Austurbrún eða nágr. íbúðum í Fossvogi, nýja miðbænum, Hlíðum og Smáíbúðahverfi. Rétt eign verður greidd við kaupsamning. Fjöldi traustra kaupenda. Margskonar eignaskipti möguleg. Vinsamlegast hafið samband. • • • Vekjum athygli á augl. okkar nk. fimmtud. Opið á iaugardögum kl. 10-14. ALMEMNA FASTEIGNASALAN HU6IVE6118 S. 552 115B-552 13711 10 frábær fyrirtæki 1. Hellugerð nálægt höfuðborginni, sem fram- leiðir hágæða vörur. Mikil verkefni framund- an næstu árin. Meðeign möguleg. 2. Listframleiðsla úr keramiki og leir. Enda- lausir möguleikar fyrir innanlandsmarkað og útflutning. Flytjanleg hvert sem er. Verð kr. 7 millj. 3. Sjálfsalar fyrir fjölmenna staði. Selja sæl- gæti og snakk. Gífurlegir tekjumöguleikar. Hentugir fyrir sælgætisinnflytjendur, líknar- eða íþróttafélög. 59 sjálfsalar til reiðu. 4. Eitt stöndugasta vélaverkstæði landsins til sölu. Endalaus verkefni. Rekið með hagnaði ár eftir ár. Góð tæki, gott húsnæði, næg vinna. Staðsett úti á landi. 5. Falleg og snyrtileg ísbúð til sölu. Selur einn- ig sælgæti. Góð staðsetning. Miklir tekju- möguleikar. Brjálaður tími framundan. Laus strax. 6. Einn þekkasti og besti söluturn borginarinn- ar til sölu. Miklar hliðartekjur. Góð staðsetn- ing. Mikil vinna sem skilar góðum tekjum. 7. Einn þekkasti og þesti skyndibitastaður borgarinnar. Öll tæki sem þarf. Stöðugar tekjur. Góð staðsetning. Verð kr. 6,5 millj. 8. Barnafataverslun með örugg og heimsþekkt barnaföt sem allar konur þekkja. Einkaum- boð fylgir. Gott verð fyrir þá sem fyrstir koma. 9. Myndbandaleiga í blússandi gangi. Leigir út um 200 spólur á dag. Staðsett í þéttbýlu íbúðahverfi og í verslunarmiðstöð. Verð aðeins kr. 2 millj. 10. Kertaverksmiðja í góðu standi sem framleið- ir flestar gerðir af fallegum kertum. Getur verið hvar sem er á landinu. Verð kr. 5 millj. IJpplýsingar aðeins á skrifstofunni. rÁ7TÍTTT7I^T7?PyTTirT7l SUÐURVERI SIMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. Eitt blab fyrir alla! - kjarni máisins! FRÉTTIR Stöð 2 vann mál gegn fréttamönnum FÉLAGSDÓMUR hefur sýknað íslenska útvarpsfélagið af kröfum fréttamanna á fréttastofu Stöðvar 2, sem töldu sig eiga rétt á að krefj- ast samkvæmt vinnusamningi 8 yfirvinnutíma greiðslu félli frídagur samkvæmt vaktatöflu þeirra á stór- hátíðardag. Fréttamennirnir töldu fyrirtækinu óheimilt að ákveða að frídagar kæmu í stað greiðslu. í samningi aðilanna sagði að félli frídagur samkvæmt vaktatöflu á stórhátíðardag frá mánudegi til föstudags skyldi hann bættur með öðrum frídegi eða greiðslu 8 stunda í yfirvinnu. Fréttamennirnir sögðu venju hafa skapast um að greiða 8 tíma yfirvinnu lenti stórhátíðardag- ur á frídegi en fyrirtækið sagði að allur gangur hafi verið á hvort fréttamenn hafi fengið greitt eða fengið auka frídag. Frá og með skipulagsbreytingu á síðasta ár hafi starfsfólkið notið frídaga sinna. Ekki sýnt fram á venju Dómur Félagsdóms á föstudag féll fyrirtækinu í vil. í niðurstöðum dómsins segir að sá sem á kost á að fullnægja skyldu með tvennum hætti eigi val um hvorn háttinn hann kýs. Þessari niðurstöðu kunni gagnstæð venja að breyta. Fram- kvæmd sem hafi verð undantekn- ingalaus um árabil frá samnings- gerð og ætla megi að launagreið- andi hafi talið sér skylt að hlíta geti skapað launþega rétt og verði launagreiðandi þá bundinn af henni uns samningstímabili ljúki. Gegn andmælum Islenska útvarpsfélags- ins hafi Blaðamannafélag íslands, sem sótti málið fyrir hönd frétta- mannanna, ekki sýnt fram á að í vinnusambandi aðilanna hafi verið um slíka venju að ræða. Því var íslenska útvarpsfélagið sýknað af kröfunum. Urslit í hönnunarkeppm Istex Morgunblaðið/Árni Sæberg FRÁ verðlaunaafhendingunni f.v. Guðjón Kristinsson, framkvæmdasljóri ístex, Steinunn Bergsteins- dóttir, Finnur Ingólfsson iðnaðarráðherra, Halldóra Kristín Hjaltadóttir, Sigurlína Jóhanna Jóhann- esdóttir og Guðmundur Bjarnason landbúnaðarráðherra. í TILEFNI af 100 ára afmæli ullariðnaðar í Mosfellsbæ stóð ístex fyrir hönnunarsamkeppni um handprjón. Þátttaka í sam- keppninni var mun meiri en búist hafði verið við, því 377 hand- pijónaðar peysur frá 258 þátttak- endum voru sendar inn. Á sérstakri afmælissýningu ís- tex voru veitt verðlaun fyrir bestu hönnun sem dómnefnd hafði valið. Eftir að hafa skoðað allar peysurnar var dómnefndin sammála um að veita eftirtöldum aðilum verðlaun fyrir fram- úrskarandi hönnun: 1. verðlaun Kambsvegur Góð 2ja herb. 61 fm fb. á 2. hæð í fimm- býli á þessum vinsæla stað. Hús og sameign í góðu ástandi. Vestursv. Áhv. 1.4 millj. Verð 5,4 millj. 5462. Skaftahlíð Falleg 90 fm 3ja herb. kjlb. f góðu fjórbýli. Sérinng. Nýtt eldh., baðherb., parket o.fl. Áhv. 1,5 millj. Verð 6,6 millj. 5670. Álfheimar Mjög falleg 115 fm endaíb. á 2. hæð í nýviðg. fjölb. Mikið endurn. íb. m.a. nýtt eldh., parket o.fl. Þvottaherb. I íb. Skipti mögul. Verð 8,5 millj. 5681. Hrafnhólar - laus Góð 107 fm 4ra herb. ib. á 1. hæð ásamt 26 fm bllsk. Hús nýl. viðg. að utan. Lyklar á skrifst. Verð 7,5 millj. 4703. Austurbær - Kóp. Neðri sérh. sem er 136 fm + bilsk. fb. I mjög góðu lagi. 4 svefnherb. Arinn I stofu. Skipti mögul. á minni eígn. Áhv. 2.5 millj. Verð 9,8 millj. 1633. Berjarimi - parh. Snoturt parh, á tveímur hæðum ca 180 fm með stórum innb. bllsk. 3-4 svefn- herb. Áhv. 4,1 milij. Verð 12,5 millj. 1897. Kögursel Mjög gott 135 fm parh. á tveimur hæðum ásamt 24 fm bllsk. 3 rúmg. svefnherb. Vandaðar innr. Góð suðurverönd. Áhv. 5.5 míllj. Verð 12,3 millj. 5725. rf ÁSBYRGI if Suóurlcindibruut 54 •tt toralan, 10t ».yW|owlh. •imi 568*2444, fox: 568*2446. 377 peysur bárust 120.000 kr. hlaut Halldóra Kristín Hjaltadóttir, Tunguvegi 2, Sel- fossi, 2. verðlaun 100.000 kr. hlaut Steinunn Bergsteinsdóttir, Vogaseli 7, Reykjavík og 3. verð- laun 80.000 kr. hlaut Sigurlína Jóhanna Jóhannesdóttir, Snart- arstöðum 2, Kópaskeri. Dómnefndin vildi gjarnan veita ÚTSENDING Sjónvarpsins á þætti Spaugstofunnar, Enn ein stöðin, tafðist um einar áttatíu mínútur á laugardagskvöld sökum seinkunar á eftirvinnslu þáttarins, að sögn Svein- björns I. Baldvinssonar dagskrár- stjóra innlendrar dagskrárdeildar stofnunarinnar. Sveinbjörn segir að upptökur á Enn einni stöðinni hafi ekki dregist til muna, en hins vegar hafi verið misreiknað hversu langan tíma tæki að setja þáttinn saman og ljúka hljóð- vinnslu. Má kalla óafsakanlegt „Þessir þættir eru ávallt unnir mjög hratt í samræmi við eðli þeirra, en þeir eiga ekki að vera svona hrað- soðnir. Þetta er það sem kalla má óafsakanlegt, því að vitaskuld á fag- maður eins og upptökustjóri að sjá þegar hann er með efnið í höndun- um, hvaða kröfur hann geti gert í eftirvinnslunni. Hann hefur ætlað sér um of í þeim efnum og það er leitt fyrir alla að lenda í þessum drætti," segir Sveinbjörn. Hann segir að málið verði tekið fyrir á fundi í dag þar sem fjallað er um útsendingu liðinnar viku og dagskrá þeirrar næstu, auk þess sem fjölda annarra þátttakenda verð- laun fyrir góða hönnun. ístex mun kaupa um 20 hugmyndir til viðbót- ar verðlaunapeysunum á 25.000 kr. hverja. Til greina kemur að kaupa fleiri hugmyndir siðar. Dómnefnd var skipuð eftirtöld- um aðilum: Eggert Jóhannsson, feldskeri, Gerður Hjörleifsdóttir, Islenskum heimilisiðnaði, Védís Jónsóttir, hönnuður ístex, Esther Wood, hönnuður hjá JCA-Reyn- olds í Bandaríkjunum, og Heather Patterson, forstjóri S.R. Kertzer, umboðsmaður ístex í Kanada. farið verði yfir það með upptöku- stjóra hvort gera þurfi breytingar á skipulagi við vinnsluferli þáttarins. Enn ein stöðin verður á dagskrá Sjónvarpsins til loka maí og teygir sig þannig fram í sumardagskrána, en vetrardagskránni lýkur síðasta vetrardag að öllum jafnaði. Olafur Ragnar með mest fylgi ÓLAFUR Ragnar Grímsson nýtur fylgis 40% þeirra sem afstöðu taka fyrir forsetakosningarnar í sumar skv. skoðanakönnun Gallups sem sagt var frá í Ríkisútvarpinu. Guðrún Pétursdóttir hefur fylgi 23%, Guðrún Agnarsdóttir 13% og Davíð Oddsson og Pálmi Matthíasson mældust með 4% fylgi hvor. Rúmlega helmingur aðspurðra í könnuninni hafði ekki gert upp hug sinn. Þrisvar sinnum fleiri nefna nú Ólaf Ragnar en í seinustu könnun Gallup fyrir mánuði en flestir nefndu þá Guðrúnu Pétursdóttur. Tafir á Enn einni stöðinni Eftirvinnsla of tímafrek
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.