Morgunblaðið - 02.04.1996, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 02.04.1996, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Umsátur í Montana heldur áfram FULLTRÚUM bandarísku al- ríkislögreglunnar (FBI) hefur enn ekki tekist að semja við um 25 vopnaða menn sem halda til á búgarði í austur- hluta Montana-ríkis og helt umsátur lögreglunnar því áfram í gær. Foringi samtak- anna, sem kallast Frjálsir menn, gaf sig fram á heimili sínu á laugardag og hafa þá þrír leiðtogar samtakanna ver- ið handteknir. Samtökin og einstaklinga rí þeim eru sakað- ir um margs konar svikastarf- semi. Leggur FBI áherslu á að semja við mennina á bú- garðinum, sem eru taldir vopn- aðir, svo ekki þurfi að koma til blóðugs uppgjörs á borð við það er lagt var til atlögu gegn sértrúarsöfnuði í Waco í Texas fyrir þremur árum. Fangar rísa upp í Argent- ínu og Brasilíu EITT þúsund fangar náðu á sunnudag á sitt vald fangelsi fyrir einhveija harðsvírðustu glæpamenn Argentínu og tóku 15 gísla, þar á meðal einn dómara. Uppreisnin í Sierra Chica-fangelsinu hefur leitt til uppþota í þremur öðrum fang- eslum í landinu. Á fímmtudag tóku fangar fangelsis í Brasil- íu 23 manns í gíslingu, þar á meðal nokkra dómara og fang- elsisstjórann, en slepptu sex á sunnudag. Forsprakki fang- anna í Brasilíu, Leonardo Rodrigues Pareja, sást leika knattspyrnu fyrir utan fang- elsisálmuna, sem fangamir lögðu undir sig. Hann er kunn- ur í Brasilíu eftir að hafa farið um landið með ránum og grip- deildum í 40 daga samfleytt á síðasta ári með lögregluna á hælunum. Móðir Teresa brýtur sig MÓÐIR Teresa hrasaði á sunnudagskvöld með þeim af- leiðingum að vinstra viðbein brotnaði, að sögn sjúkrahúss í Kalkútta á Indlandi. Heilsað- ist henni vel í gær en gat þó ekki verið viðstödd er flugvél kom með 50 tonn af iyfjum og lækningavörum til borgar- innar f gær. Verða þau notuð í heilsugæslustöðvum sem reknar eru fyrir tilstuðlan stofnunar sem kennd er við hinn 85 ára gamla Nóbelsverð- launahafa. Teikning að sprengju frá Peking BANDARÍSKIR njósnarar fundu teikningu að kjarnorku- sprengju í farangri Abduls Qadeers Khan, helsta kjam- orkuvísindamanns Pakistans, í byijun síðasta áratugar. Að sögn Washington Post er bandaríska leyniþjónustan sannfærð um að hann hafí verið að koma með hana frá Peking þar sem honum hafi verið afhent teikningin. Vildi að Thatcher hætti á toppnum London. Reuter. THATCHER-fjölskyldan á valdatímum ,járnfrúarinnar“. Niðri sitja Margaret, Carole og Mark og Denis stendur að baki konu sinni. DENIS Thatcher, eiginmaður Marg- aret Thatcher, var fyrstur til að hvetja konu sína til að segja af sér þegar farið var að sækja að henni í embætti forsætisráðherra og for- ystu breska íhaldsflokksins, en þeirri valdabaráttu lauk með afsögn „járnfrúarinnar" eftir ellefu ár við völd. Þetta kemur fram í nýrri bók eftir dóttur þeirra, Carole Thatcher, sem segir einnig að Margaret Thatc- her hafi verið köld og fjarlæg móðir. í kafla úr bókinni, sem birtist í dagblaðinu Daily Mail í gær, segir að Denis Thatcher hafi tekið Peter Morrison, aðstoðarmann Thatcher, afsíðis og grátbeðið hann um að gera „allt sem þú getur til að teija hana á“ að hætta að beijast. „Honum var umfram allt umhug- að um að hún yrði ekki niðurlægð," skrifar Carole. „Hann elskaði hana jafnvel meira en nokkru sinni áður í sambandi þeirra og hann gat ekki horft upp á að henni yrði eitthvað til miska gert.“ Michael Heseltine, núverandi að- stoðarforsætisráðherra, bauð Marg- aret Thatcher byrginn í nóvember 1990. Thatcher fékk atkvæði 204 þingmanna flokksins í leiðtogakjöri, en áskorandinn 152. Samkvæmt reglum flokksins var það ekki nógu stór sigur og frekar en að fara fram í aðra atkvæðagreiðslu ákvað hún að draga sig í hlé og styðja John Major, þáverandi fjármálaráðherra, sem bar sigur úr býtum. Carole Thatcher segir að móðir sín hafi sýnt fjölskyldunni litla ástúð og ávallt látið stjórnmálin ganga fyrir. Hún kveðst hafa verið hálf- hrædd við móður sína. „Þegar ég var barn fór ég aldrei upp í rúm foreldra minna,“ skrifar Carole Thatcher. „Það var ekki ýtt undir það að sýna ástúð á almanna- færi. Mamma gerði allt á harðaspani svo að hún kæmist í vinnuna. Hún vildi vera gagntekin af vinnunni og það var hún.“ Hún segir að móðir sín hafi látið til sín taka á heimilinu, en aldrei með^ hlýju. „Ég var hrædd við hana þegar ég var barn og síðar var ég oft meðvituð um að þegar ég var að tala við hana var hún með hugann við annað,“ segir Carole. „Ég hugg- aði sjálfa mig oft með því að hugsa sem svo: „Carole, ef til vill er ástæð- an allur þvættingurinn, sem þú læt- ur út úr þér“.“ Denis og Margaret Thatcher eiga tvö börn, tvíburana Carole og Mark. Carole kveðst alltaf hafa þjáðst af vanmetakennd gagnvart bróður sín- um, sem hafi verið eftirlæti móður sinnar og sé enn. Henni finnst hún enn ekki standa jafnfætis Mark, sem sé kvæntur fallegri konu, eigi tvö börn og hallir um allan heim. Carole Thatcher er einhleyp. Reuter LEIÐTOGAR Evrópusambandsríkjanna stilltu sér upp fyrir „fjölskyldumynd" á þaki ráðstefnumiðstöðvarinnar í Torino þar sem ríkjaráðstefnan er haldin. í byggingunni voru áður til húsa verksmiðjur Fiat-fyrirtækisins. Leiðtogar Evrópusambandsins og ríkjanna ræða atvinnumálin Áætlun um Atvinnuleysið vandamál en lausnir vandfundnar Brussel. Reuter. ATVINNULEYSI hefur undanfarið verið hvað efst á baugi þegar leið- togar Evrópusambandsins koma saman til fundar. Leiðtogafundur- inn í Torino, sem markaði upphaf ríkjaráðstefnunnar, var þar engin undantekning. Atvinnuleysi er nú að meðaltali 11% í ESB og hafa leiðtogamir átt erfítt með að koma sér saman um hvað beri að gera og hver beri að standa undir kostn- aðinum þrátt fyrir hástemmdar yf- irlýsingar þegar þeir koma saman. „Það að hægt sé að grípa til aðgerða gegn atvinnuleysi á vett- vangi alþjóðlegra samtaka er fyrst og fremst hugmynd sem hentar að setja fram upp á almenningsálitið,“ segir Daniel Gros hjá Evrópurann- sóknamiðstöðinni í Bmssel og margir aðrir em honum sammála. Baráttan gegn atvinnuleysi var eitt helsta umræðuefni fundarins um helgina og vora skoðanir mjög skiptar milli ríkja um hvað bæri að gera. Sum ríki, þeirra á meðal Sví- þjóð, vilja að sérstökum kafla um vinnumál verði bætt við Maastricht- samkomulagið. Þó að nokkur ríki hafí tekið undir þessa kröfu Svía vom Bretar og Þjóðveijar henni algjörlega andvígir. Byggist andstaða Þjóðveija á því að slíkt gæti lagt stein í götu áform- anna um peningalegan samruna Evrópusambandsríkj ann a. Umframfjármagn í framkvæmdir? Jacques Santer, forseti fram- kvæmdastjórnarinnar, vill aftur á móti nýta umframfjármagn úr sjóð- um sambandsins til verklegra fram- kvæmda við vega- og járnbrauta- kerfí. Þessu em margar ríkisstjóm- ir andvlgar og krefjast að ónýttu íjármagni verið skilað til aðildar- ríkjanna. Sérfræðingar benda margir á að það torveldi sameiginlega stefnu- mótun gagnvart atvinnuleysi að slík stefnumótun taki ekki tillit til hversu ólíkar aðstæðar eru í ein- staka aðildarríkjum. Þó að almennt séu flestir orðnir sammála um að vandann megi ekki síst rekja til hversu ósveigjanlegir vinnumarkaðir Evrópu em og hárra launatengda gjalda þá hljóti lausn- irnar að verða ólíkar I hveiju ríki fyrir sig. „Það er einungis hægt að ná samstöðu milli launþega og vinnu- veitenda á vettvangi einstakra ríkja,“ segir Jiirgen Pfister, yfir- hagfræðingur hjá Commerzbank í Frankfurt. „Þetta kemur ekki Evr- ópusambandinu eða fundum leið- toga stærstu iðnríkja heims við.“ Atvinnumálin rædd í Lille Fjármála- og vinnumálaráðherr- ar G7-hópsins, samtaka sjö stærstu iðnríkja heims, komu í gær saman í Lille í Frakklandi til að ræða at- vinnumál. í Evrópu er mikil andstaða við það að breyta vinnumarkaðnum í átt að því fijálslyndí er ríkir í Bandaríkjunum og Bretlandi þar sem megináherslan er á hreyfan- leika vinnuafls en félagslegt öryggi er í lágmarki. Efnahagsmálaráðherra Þýska- lands, Gunther Rexrodt, er í þeim hópi. Hann sagði í gær nauðsynlegt að auka sveigjanleika á vinnumark- aðnum en ekki sé hægt að taka upp bandarískt kerfi í Þýskalandi þar sem vinnuveitendur geti ráðið og rekið starfsfólk að vild. Jacques Chirac Frakklandsfor- seti, sem verður fundarstjóri á fund- inum í Lille, sagði að Evrópusam- bandið ætti að móta einhvers konar millileið í þessum efnum. Það setti nokkurn svip á fundinn að einungis einn fjármálaráðherra, sá franski, mætti til fundarins. aðildar- viðræður óhögguð Torino. Reuter. ÍTALIR greindu ríkisstjómum ríkja í Austur-Evrópu, sem sótt hafa um aðild að Evrópusambandinu, frá því um helgina að sambandið hygðist standa við tímaáætlun aðildarvið- ræður að ríkjaráðstefnunni lokinni. Gert er ráð fyrir því að ríkjaráð- stefnan, sem hófst í Tórínó á Ítalíu á föstudag, muni standa í um eitt ár en á henni er tekist á um innri uppbyggingu ESB í ljósi breyttra aðstæðna og fjölgunar aðildarríkja. Susanna Agnelli, utanríkisráð- herra Ítalíu, átti á laugardag fund með fulltrúum þeirra ellefu ríkja, sem sótt hafa um aðild að ESB. ítalskur embættismaður sagði að fundinum loknum að Agnelli hefði tilkynnt þessum ríkjum að þó að þau ættu ekki aðild nú væri aðild á næsta leiti. ítalir em nú í forystu ráðherraráðs ESB og stjórnuðu upp- hafi ríkjaráðstefnunnar. Þegar hefur verið sagt að aðildar- viðræður við Möltu og Kýpur hefjist ekki síðar en sex mánuðum eftir að ríkjaráðstefnunni lýkur. Þá hefur ríkisstjórnum Póllands, Tékklands, Ungveijalands, Búlgar- íu, Rúmeníu, Slóvakíu, Eistlandi, Lettlands og Litháens verið sagt að viðræður geti hafist þegar ríkin eru talin tilbúin undir aðild. Búist er við að Slóvenía muni brátt bætast í þann hóp.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.