Morgunblaðið - 02.04.1996, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 02.04.1996, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Kirkjan mót- mælir háði Nútímaleg uppfærsla Hans Neuenfels á II Trovatore eftir Giuseppe Verdi í Deutsche Oper Berlín hefur nú þegar vakið mikla at- hygli hér í Berlín sem og á landsvísu. Þar er helst að nefna almennt mikla hrifningu leikhúsgagnrýnenda sem og hörð mótmæli kaþólsku kirlq'unnar í Þýskalandi. Rósa Guð- rún Erlingsdóttir gluggaði í þýsku blöðin. GRUNNHUGMYND upp- færslunnar var að nota sögusviðið Spán til að kasta fram myndum af karlaveldi, kvennakúgun, ítökum kaþólsku kirkjunnar og ofsóknum á minnihlutahópum. Spánn sér um það sjálft að tryggja sér þá ímynd út á við sem að Neunfels og von der Thannen leika sér að í uppfærsl- unni. Nautaatið er t.d. notað sem myndgerving fyrir karlrembuna, kvenmaðurinp helgar líf sitt fóminni á sjálfri sér fyrir aðra, slgaunarnir eru notaðir sem fulltrúar allra kúg- aðra og ofsóttra minnihlutahópa og gert er létt grín að kirkjunni sem alltaf er viðstödd en samt ósnertan- leg I bakgrunni. Mótmæli kaþólsku kirkjunnar Kirkjunnar mönnum finnst hart að sér vegið með dónalegu og óvið- eigandi trúarbragðaháði. Hér er átt við senu þar sem aðalkvenpersónan Leonora gengur í klaustur eftir að hafa fengið fregnir um að Manrico ástin hennar hafi fallið í bardaga við menn greifans. Nunnur í skærlitum búningum fylla sviðið og varðmenn greifans halda á Jesú á krossinum inn á íjalirnar. Drottinn sjálfur ber kórónu sem blikkar eins og diskóljós og minnir óneitanlega á klisjukennd trúartákn suður-evrópskar kirkjur. Þegar sem hæst lætur í atriðinu stíg- ur Jesús af krossinum og biður bisk- upi upp í dans. í frétt í der Tagesspi- egel í gær er haft eftir kirkjunnar mönnum að óperan særi djúpt tilfinn- ingar trúaðs fólks og sé skömm fyr- ir listaímynd stærsta óperuhúss Ber- línarborgar. Gagnrýni helstu dagblaða Berlínar: Der Tagesspiegel Óperan er stór vinningur fyrir leik- húslíf borgarinnar segir í „der Tag- esspiegel". Gagnrýnandi segir æsing og mótmæli íhaldssamra áhorfenda svo yfirborðsleg að varla sé mark á takandi. Neuenfels þjarmar á engan hátt að tónlistinni heldur notar hann hana til að framkalla myndir sínar á snilldarlegan hátt. Kórinn er notað- ur skemmtilega sem stöðugur þátt- takandi sem alitaf er, jafnt og samfé- lagið sama hvað í skerst. Leikmynd von der Thannen er í bakgrunni nógu einföld til að leyfa stórbrotnum, litríkum búningum að njóta sín. Söngvarar í að- alhlutverkum fá al- mennt lof gagnrýn- enda en hann segir það miður að De- utsche Oper sjái sér ekki fært að manna aukahlutverkin betur. Kristján Jó- hannsson segir hann ná sér á strik fljótlega eftir frem- ur slaka byijun og að þessi mjúki te- nór muni eflaust sýna snilli sína í komandi sýningum. Berliner Zeitung „í lokin sauð upp úr í salnum“ byijar greinin í „Berliner Zeitung“. Kraftur myndanna, kórsins og hinnar framúrskarandi hljómsveitar ná að mörkum þess leyfislega. Von der Thannen gerir og absúrd hugmyndir Neuenfels að veruieika af glansandi snilld. Stykkið hefur náð tilgangi sín- um, því það geta fáir státað af slíkum viðbrögðum áhorfenda. Stjörnur kvöldsins voru að mati gagnrýnanda Violeta Urmana sem fór með hlut- verk Azucena og Amanda Halgrim- son sem Leonora. Karisöngvararnir féllu I skuggann en gerðu hlutverk- um sínum fyllileg skil. Berliner Morigenpost Áhorfendur fagna söngvurum á heimsmælikvarða gífurlega að sýn- KRISTJÁN Jóhannsson í hlutverki sínu í II Trovatore. ingu lokinni og hluti salarins púar á Neuenfels. Kristján Jóhannsson er tenór sem veit að hann getur látið í sér heyra en það nægði honum í þetta skiptið, frammistaða hans samt sem áður glæsileg segir í „Berliner Morgenpost" Paolo Coni segir gagn- rýnandi fórna sönggleði sinni fyrir leik á fötluðum óöruggum aðals- manni. Það er unun að hlusta á söng Amöndu Halgrimson og Violetta Urmana gerir hlutverki sínu góð skil. BZ Í „Boulevard" blaðinu BZ er haft eftir Kristjáni Jóhannssyni að allt pú, fuss og svei sé af hinu góða. „í gamla daga var púað á Verdi og Wagner, það er venjan". í þessu ágæta blaði er einnig haft eftir forsvarsmanni óperunnar að allt hneyksli auki söl- una... “ og Verdi mun sjá til þess að fólk lætur sjá sig hvort sem er. Fyrirmæli dagsins Leiðbeiningar EFTIR ANDREAS SLOMINSKI Nýjar bækur Vötn þín og vængur eftir Matthías Johannessen STILLTU hnakkinn á hjólinu snúi upp og pressaðu svo á þínu þannig að hnakknefið því sítrónur. 9 Fyrirmælasýning í samvinnu við Kjarvalsstaði og Dagsljós Tregafull tónaljóð Á HÁSKÓLATÓNLEIKUM í Norræna húsinu miðvikudag- inn 3. apríl flytja Gunnar Kvaran sellóleikari og Selma Guðmundsdóttir píanóleikari verk eftir Maria Theresia von Paradis, Franz Schubert, Ju- les Massenet, Sergei Rac- hmaninoff og Gabriel Fauré. I kynningu segir: „Efnis- skráin myndar samhverfu. Hún hefst á Sicilienne Mariu Theresiu von Paradis og end- ar á Sicilienne Fauré. Annað lagið og það næst síðasta eiga það sameiginlegt að vera sönglög, þar sem nóttin og tálsýn draumsins eru við- fangsefnið. Þriðja lagið og það þriðja síðasta eru hvort- tveggja harmljóð án orða. Á milli þeirra liggur svo hin þekkta og fagra Vocalise Rachmaninoffs. Sammerkt eiga öll lögin á efnisskránni að vera tregafull og innhverf tónaljóð þótt blærinn sé ólíkur milli laganna inn- byrðis.“ Tónleikamir eru um hálftíma að lengd og hefjast kl. 12.30. Gunnar Kvaran hóf barnungur tónlistarnám. Helstu kennarar hans voru dr. Heinz Edelstein og Einar Vigfússon. Að námi loknu hér heima stundaði hann nám við Tón- listarháskólann í Kaup- mannahöfn hjá Erling Blöndal Bengtson. Hann var aðstoðarkennari Eriings um sex ára skeið við sama skóla. Um nokkurra ára skeið hef- ur Gunnari boðist að taka þátt í þekktum tónlistarhá- tíðum í Bandaríkjunum, bæði sem kennari og sem flytjandi. Gunnar er deiidar- stjóri strengjadeildar Tón- listarskólans í Reykjavík og kennir þar sellóleik og kam- mertónlist. Selma Guðmundsdóttir hóf tónlistamám á ísafirði en stundaði síðan nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og lauk þaðan einleikara- prófi undir handleiðslu Árna Kristjánssonar píanóleikara. Selma hefur haldið fjölda einleikstónleika hér heima og erlend- is auk þess að leika einleik með hljómsveit og kammertónlist. Selma starfar nú meðfram tónleikahaldi sem píanókennari við Tónlistarskól- ann í Reykjavík. Handhöfum stúdentaskírteina er boðinn ókeypis aðgangur, en að- gangseyrir fyrir aðra er 300 kr. Gunnar Kvaran Selma Guðmundsdóttir VÖTN þín og vængur nefnist ný ljóðabók eftir Matthías Johann- essen. þetta er sautj- ánda ljóðabók Matthí- asar, en sú fyrsta Borgin hló, kom út 1958. Eftir Matthías hef- ur komið út fjöldi ann- arra bóka: smásögur, leikrit, ritgerðir, sam- talsbækur og ævisög- ur. í fyrra kom út eft- ir hann smásagna- safnið Hvíldarlaus ferð inní drauminn og bækumar Spunnið um Stalln og Fjötrar okk- ar og takmörk. „Vötn þín og vængur er meðal stærstu og veigamestu ljóðabóka Matthíasar Johann- essen og sú bók hans sem sýnir einna best helstu yrkisefni hans og listræn tök“, segir í kynningu forlagsins. Bókin skiptist í átta flokka sem nefnast Um vindheim víðan, Hugmynd okkar um jörð, Inní enn einn draum, Vötn þín og vængur, Huldunnar rísandi dagur, „Hið eilífa þroskar djúpin sín“, í nærveru tímans og Kumpánlegt oln- bogaskot. Útgefandi er Hörpuútgáfan. Kápumynd er eftir Rax. Oddi sá um prentvinnslu. Bók- in er 175 síður og kostar 2.980 kr. Matthías Johannessen Aukasýning ákveðin vegna góðrar aðsóknar STÚDENTALEIKHÚSIÐ hefur sökuin mikillar aðsóknar ákveðið að hafa aukasýningu í kvöld á verðlaunaverkum úr leikritasam- keppni SL, Hausverki skaparans og Elektru. Leikþættirnir eru eftir Gauta Sigþórsson og Stefán Vilbergsson, en leikstjóri er Björn Ingi Hilmars- son og nefnist sýningin Sjá það birtir til. Verkin voru valin til sýningar að undangenginni leikþáttasam- keppni á vegum Stúdentaleikhúss- ins sl. haust, en þetta er í annað sinn sem slík samkeppni er haldin á vegum leikhússins og stefnt er að því að hún verði árviss viðburð- ur. Sjá það birtir til er sýnt í Mögu- leikhúsinu við Hlemm og hefst sýningin klukkan 20.30 í kvöld eins og áður sagði. Sýning á íslenskum postulíns- brúðum CAMILLA ehf. mun halda sýn- ingu á hluta af brúðum sínum í Ráðhúskaffi Ráðhúsinu við Tjörnina dagana 2.-14. apríl. F\rirtækið Camilla ehf. var stofnað í september síðastliðn- um. Eigendur Camillu ehf. eru Anna Ragna Alexandersdóttir, Sigríður Þorgeirsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir, Alda Steingrímsdóttir og Bergljót Sigfúsdóttir. Markmið fyrirtækisins er meðal annars hönnun á postu- línsbrúðum í íslenskum þjóð- búningum fyrir söfn og einka- safnara innan sem utanlands. Brúðurnar eru um 75 cm á hæð og er hver brúða ákveðin persóna úr íslandssögunni, eða úr þekktum skáldsögum. Hver brúða hefur sitt númer, sem grafið er í bak hennar, og er framleidd í 100 eintökum. Camilla ehf. hefur einnig hafið framleiðslu á smærri brúðum í þjóðbúningum barna og vík- ingafötum. Þær munu verða fáanlegar I verslunum hér á landi innan skamms. ÍSLENSKU postulíns- brúðurnar. Sýning ívars og Magda- lenu fram- lengd VEGNA góðrar aðsóknar hef- ur verið ákveðið að framlengja sýningu Ivars Török og Mágdalenu M. Hermanns í Gallerí Horninu, Hafnarstræti 15 til miðvikudagsins 3. apríl. Galleríið er opið alla daga, einnig mánudaga, frá kl. 11 til 23.30. Laugardaginn 6. apríl kl. 17 opnar Sigríður Gísladóttir sýningu á málverkum. EITT verka Sólveigar. Páskasýning í Þrastar- lundi SÓLVEIG Eggerz Pétursdóttir opnar páskasýningu í Þrastar- lundi á skírdag, 4. apríl. Á sýningunni verða 22 vatnslitamyndir, flestar mál- aðar á undanförnum mánuð- um.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.