Morgunblaðið - 02.04.1996, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
ÞRIÐJUDAGUR 2. APRÍL 1996 27
Sparnaður í steinsteypu,
segir Jón Rúnar
Sveinsson, er harla
óvænlegur valkostur.
Sú þróun gerir „sparnað í stein-
steypu" harla óvænlegan valkost.
Lítum á dæmi: Pjöiskylda kaupir
íbúð sem kostar 8 milljónir króna.
Hún tekur 70% húsbréfalán til 40
ára, að fjárhæð 5,6 milljónir. Eftir
því sem greitt er af láninu, eykst
eignarhlutur fjölskyldunnar, þar til
lánið er að fullu greitt eftir 40 ár
og íbúðin orðin skuldlaus eign henn-
ar. Reikna verður með árlegri verð-
rýrnun, hér er farið varlega í sakirn-
ar og aðeins gert ráð fyrir 0,5%
árlegri fyrningu.
í ljós kemur, að eignaaukningin
er ótrúlega hæg. Sé athugað hve
mikið viðkomandi fjölskylda þyrfti
að spara til þess að ná sömu eigna-
stöðu með því að leggja fyrir á spari-
reikningi, sem ber 5% raunvexti,
kemur fram enn ótrúlegri tala: Eft-
ir 10 ár er eignaaukningin einungis
kr. 172 þús. Til að safna sömu fjár-
hæð á sama tíma á sparireikning
þarf ekki að leggja til hliðar nema
13.600 kr. á ári. Eftir 20 ár er eigna-
aukningin enn ekki nema kr. 712
þús. Sparnaðarkrafan til þess að ná
sömu eignastöðu er aðeins 21.500
kr. á ári. Eignaaukningin er örari á
seinni hluta lánstímans, eftir 40 ár
er hún orðin alls 4 milljónir króna.
Til að ná sömu eignastöðu á spari-
reikningi þarf þó ekki að leggja til
hliðar nema 33.100 kr. árlega, eða
minna en 3.000 kr. á mánuði.
Húsnæðistillögur ungra
sjálfstæðismanna
Samband ungra sjálfstæðis-
manna lagði nýlega fram nokkuð
snöggsoðnar tillögur í húsnæðismál-
um, þar sem uppistaðan er sem fyrr
sjálfseignarstefna og enn meiri
sjálfseignarstefna. Ekki er minnst á
svo augljóst stefnuatriði eins og
aðgerðir til þess að efla hinn fijálsa
leigumarkað, eins og t.d. hægri
flokkar í Bretlandi og Þýskalandi
hafa lagt mikla áherslu á. í Þýska-
landi hefur þetta verið hluti hinnar
„félagslegu markaðsstefnu" sem
Erhard og Adenauer voru höfundar
að. Félagslegar íbúðir í Þýskalandi
eru að stórum hluta leiguíbúðir í
eigu einstaklinga og einkaaðila.
Meðan félagslegt lán hvílir á íbúð-
inni, verður að leigja hana fólki
undir tilteknum tekjumörkum, en
þegar lánið er greitt upp, falla þær
kvaðir úr gildi. í Bretlandi hefur
stefna íhaldsflokksins að undan-
förnu mjög beinst að því að efla
frjálsan leigumarkað, svo hann geti
í auknum mæli tekið við hlutverki
félagsíbúðakerfis sveitarfélaganna.
Þetta er ekki síst til komið eftir
hrun séreignarmarkaðarins í upp-
hafi þessa áratugar, sú bitra reynsla
ásamt vaxandi vantrú ungs fólks á
eignastefnunni og óvissa á ótrygg-
um vinnumarkaði hefur stóraukið
eftirspurn eftir leiguhúsnæði á
fijálsum markaði.
Tillögur SUS um jafnan og
ótekjutengdan skattaafslátt fyrir
alla íbúðaeigendur eru reyndar eng-
in ný hugmynd. Er þeim virkilega
ekki ljóst, að nauðalíkt kerfi var við
lýði á árunum 1987 til 1993 og hét
þá „húsnæðisbætur"? Þó nafnið sé
annað, var um nær algera hliðstæðu
að ræða; hver skattgreiðandi átti
rétt á föstum árlegum húsnæðisbót-
um sem komu til lækkunar skatta
viðkomandi.
Það er mergur málsins að „flöt“
niðurgreiðsla, eins og beinn skatta-
afsláttur eða fastar og jafnar hús-
næðisbætur, án tillits til stærðar
húsnæðisins eða tekna íbúðarkaup-
andans, hittir mjög illa í mark sem
húsnæðispólitísk aðgerð. Öll þróun
undanfarinna ára í vestrænum
löndum hefur legið frá slíkum að-
gerðum og í stað þeirra hafa kom-
ið tekjumörk og tekjutengingar.
Bretland undir stjórn Thatchers og
Majors er mjög gott dæmi um þetta.
Þar eru tekjutengdar húsaleigu-
bætur orðnar eitt helsta tæki
stjórnvalda í húsnæðismálum, sam-
tímis því sem verið er að draga úr
skattfríðindum þeirra sem búa í
eigin húsnæði.
Húsnæðisniðurgreiðslur hér á
landi eru nú um 5 milljarðar á ári,
ríflega 1% af landsframleiðslu, sem
er nálægt meðaltali hinna þróaðri
þjóða. Með tekjutengingu vaxta-
bótakerfisins og ekki síst eftir til-
komu húsaleigubóta á sl. ári er það
orðið staðreynd, að slíkar niður-
greiðslur eru mun réttlátari hér en
víða annars staðar. Það væri að
mínu mati mjög óskynsamlegt að
hverfa frá slíkum tengingum, þrátt
fyrir að þær auki jaðarsköttun, og
taka upp kerfi með flötum skattaaf-
slætti.
Höfundur er félagsfræðingur.
HOMELITE
Reykjavfk: Ármúla 11 - Slmi 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - Simi 461-1070
Góð fermingnrjyjöf
sem leffjfurjyrunn ud farsœlum fjúrhujj
öndvcgisbréf: Öndvegisbréf eru verðbréfasjóöur sem fjárfestir eingöngu í ríkis-
tryggðum verðbréflun, s.s. spariskírteinum. Öndvegisbréf hafa gefið
7,77% raunávöxtun á ári sl. 5 ár.
íslandsbréf:
Helstu kostir íslandsbréfa eru stöðugleiki í ávöxtun, góð eignadreifing
og hagstæð innlausnarkjör. Islandsbréf henta vel ungu fólki, sem getur
þurft að nýta peningana með stuttum fýrin'ara t.d. vegna skólagöngu.
íslenski
fjá rsjóðu ri n n:
íslenski fjársjóðurinn er hlutabréfasjóður sem fjárfestir í íslenskunr
fyrirtækjum. Islenski fjársjóðurinn er spennandi kostur fyrir ungt
fólk sem vill stíga fyrstu skrefin til fjárfestingar í íslensku atvinnulífi.
3
Þú færð bréfið afhent í fallegri möppu.
iMndsbríf styrkja
jaftiittjijafrœðslu
wmsíimm /jejjn vimuefnaueyslu
Hafðu samband við
ráðgjafa Landsbréfa eða
umboðsmenn í öllunr
útibúum Landsbankans.
^ LANDSBRÉF HF.
iH
NDSBRAUT
108 REYKJAVÍ
Saumakonun - frábær lausn
arft þú að koma skipulagi á tvinna-
keflin - þá er þetta lausnin!
Standur fyrir 48 kefli kr. 3.100.-
Standur fyrir 70 kefli kr. 4.100.-
Standur fyrir 120 kefli kr. 5.900.-
Sendingarkostnaður bætist við vöruverð
Pöntunarsími 567 5484
B.G.Á.
EILDVERSLUN
VILT ÞÚ LÁTA
INNHEIMTUAÐGERÐIRNAR
GANGA HRATT FYRIR SIG ?
Innheimtur s/f leggja áherslu á
faglega, hraða og góða þjónustu.
Ef þú leitar lögfræðilegra innheimtuaögeröa áttu rétt á aö fá:
HRAÐA ÞJÓNUSTU
Hraðar innheimtuaðgerðir geta gert útslagið um hvort skuldin
innheimtist og það aö ná peningunum sem fyrst inn í veltuna
getur verið áhrifavaldur á arðsemi fyrirtækis þíns.
GREIÐAN AÐGANG AÐ UPPLÝSINGUM
Þú verður að geta fengið upplýsingar um gang og stöðu mála
á fyrirhafnarlausan hátt þegar þér hentar.
GÓÐAR SKILAGREINAR
Forsenda þess að þú getir hatt nákvæmt eftirlit með
útistandandi kröfum og uppgjöri þeirra eru góðar
skilagreinar.
REGLULEGT UPPGJÖR
Þú átt rétt á að fá peningana þína tafarlaust eftir að greiðsla
hefur farið fram.
Ef þú eða fyrirtæki þitt þarf á lögfræðilegum innheimtuaö-
gerðum aö halda skattu gera kröfur. Haföu samband við
Einar Gaut Steingrímsson hdl. á skrifstofu okkar
og fáöu nánari upplýsingar um þjónustuna.
INNHEIMTUR SF
Eiðistorgi 13, 170 Seltjarnarnesi, sími 561 0077, fax 562 3484.
I sambandi vib neytendur
frá morgni til kvölds!
- kjarni málsins!