Morgunblaðið - 28.04.1996, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. APRÍL 1996 15
LISTIR
Vortónleikar
Vörðukórsins
VÖRÐUKÓRINN í Ámessýslu
heldur vortónleika sína um þessar
mundir og verða hinir fyrstu í
Félagsheimilinu Árnesi, í dag
sunnudaginn 28. apríl kl. 21, síðan
í Hveragerðiskirkju 1. maí kl. 21
og í Leikskálum, Vík í Mýrdal,
sunnudaginn 5. maí kl. 15.
Á efnisskrá vortónleikanna eru
vor- og sumarlög og kórar úr vin-
sælum söngleikjum, t.d. May Fair
Lady, West Side Story, Porgy and
Bess og Show Boat.
Vörðukórinn er skipaður um 40
söngfélögum úr Hrunamanna-,
Gnúpverja-, Skeiðahreppi og Bisk-
upstungum. Einsöngvari með
kórnum er Loftur Erlingsson, barí-
ton og píanóleikari er Miklos
Dalmay. Stjórnandi kórsins er
Margrét Bóasdóttir.
Vörðukórinn,
Samkór Kópavogs í Digraneskirkju
SAMKÓR Kópavogs heldur ár-
lega vortónleika sína í Digranes-
kirkju þriðjudaginn 30. apríl kl.
20.30.
Á efnisskránni eru íslensk og
erlend lög, m.a. eftir Loft S.
Loftsson, Fjölni Stefánsson,
Friðrik Á. Friðriksson, Mikis
Theodorakis, A. Ponchielli og
G. Bizet. Einsöngvari með kórn-
um er Eiríkur Hreinn Helgason.
Píanóleikari er Katrín Sigurðar-
dóttir og stjórnandi kórsins er
Stefán Guðmundsson.
STYRKURTIL
TÓNLISTARNÁMS i
M.inningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat mun á
þessu ári veita tónlistarfólki styrk til framhaldsnáms
erlendis á næsta skólaári, 1996-1997.
Veittur verður einn styrkur að upphæð 500.000 kr.
Verður þetta fimmta úthlutun sjóðsins.
Umsóknir með upplýsingum um námsferil og fram-
tíðaráform sendist fyrir 15. maí nk. til formanns
sjóðsins:
Erlendar Einarssonar
Selvogsgrunni 27
104 Reykjavík
Umsóknmn fylgi hljóðritanir, raddskrár frumsaminna
verka og/eða önnnr gögn sem sýna hæfni umsœkjanda.
■BALENOl 14 SELDIR’
MEÐ: 86 hestafla 16 ventla vél • vökvastýri • veltistýri •
samlæsingum • rafdrifnum rúðuvindum • rafstýrðum
útispeglum • útvarpi/segulbandi með 4 hátölurum • upp-
hituðum framsætum • öryggisloftpúðum fyrir ökumann
og farþega í framsæti • styrktarbitum í hurðum • sam-
litum stuðurum. r'*n^,*i*-i'ii ^■>
Lreturou gert betn bilakaup?
ÞRE-
FÖLD
aukning í sölu
síðustu 3 mdnuðil
Vandaður 5-dyra BALENO fyrir aðeins 1.140.000,-kr.
4-dyra BALENO fólksbíll fyrir aðeins 1.265.000,- kr.
Gerðu samanburð
og taktu síðan
ákvörðun.
SUZUKI
Afl og öryggi
SUZUKI BÍLAR HF
Skeifunni 17, 108 Reykjavík.
Sími 568 51 00.