Morgunblaðið - 10.05.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 10.05.1996, Blaðsíða 18
18 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1996 URVERINU ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Formaður LIU vildi láta auglýsa síldveiðileyfin á ný FJÖLDI íslenskra síldveiðiskipa er nú að veiðum í Síldarsmugxinni. Veiðar máttu hefjast þar á miðnætti í gær og skv. upplýsingum frá Tilkynningaskyldunni var 41 síldveiðiskip búið að tilkynna sig úr höfn í gærkvöld. Utilokað að fresta upphafi veiðanna „MÍNIR menn eru að rífast út af síldarkvótanum út um allt land,“ segir Kristján Ragnarsson, formaður Landsambands íslenskra útvegs- manna, en það sem aðallega orkar tvímælis, að hans sögn, er að ekki skyldi hafa verið auglýst eftir um- sóknum upp á nýtt í ljósi breyttra forsendna. Nú eigi ekki að leyfa skipum að sækja frjálst í síldina, eins og gert hafi verið ráð fyrir þeg- ar auglýst var eftir umsóknum, held- ur hafi nú verið úthlutað aflahá- marki á hvert skip, sem breyti ýmsu. „Menn sóttu um leyfi á grund- velli auglýsingar, sem sagði að veið- ar yrðu fijálsar upp að 190 þús. tonnum og afganginum, 54 þús. tonnum, skipt á skip. Það, sem fældi minni skipin frá því að sækja um, var að þurfa að standa í samkeppni við stærri skipin við að ná aflanum úr sjó á sem stystum tíma. Nú telja útgerðarmenn smærri skipa að þeim hafi ekkert gefist kostur á að sækja um þetta á grundvelli nýrra for- sendna. Þetta er rétt metið,“ segir formaður LÍU. Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs- ráðherra, sagði að ný auglýsing hefði þýtt að fresta hefði þurft síldarvert- íð. „Það voru engin tök á því og öll rök fyrir því að láta þær umsóknir, sem komnar voru, standa. Það var algjörlega útilokað að fresta upphafi veiðanna sem ný auglýsing hefði að sjálfstöðu leitt til.“ Karfinn hagkvæmari Kristján segir að í öðru lagi væri umdeilanlegt að síldarkvótanum hefði að hluta til verið úthlutað til togara, en átta þúsund tonn yoru tekin frá fyrir nítján togara. Óvíst er þó enn hvort þeir munu halda í Síldarsmuguna, en þegar síðast fréttist var enginn togari lagður af stað enda fiestir á karfaveiðum á Reykjaneshrygg. Þeir togarar, sem ætla að nýta kvótann, þurfa að stað- festa það við ráðuneytið fyrir 20. maí og hefja veiðar fyrir 5. júní. Síldarkvótinn verður ekki framselj- anlegur þannig að ef skip eða togar- ar koma ekki til með að nýta það aflahámark, sem kemur til skiptana, verður því endurúthlutað til þeirra nótaveiðiskipa, sem þegar hafa sótt um leyfi og fengið kvóta, að sögn ráðherra. Formaður LÍÚ hefur enga trú á því að togaramir nýti sér síldarkvót- ann þar sem þær veiðar væru ekki með neinum hætti hagkvæmar fyrir þá. Togararnir væru á karfaveiðum á Reykjaneshrygg með góðum ár- angri og gæfu þær veiðar tvímæla- laust meira af sér en síldveiðarnar. „Eg tel það hinsvegar hafa verið Togaraflotinn vill fá að veiða á meðan von er um mest verðmæti fullkomlega eðlilegt af hálfu ráðu- neytisins að gefa togurunum kost á að nýta sér hluta kvótans. Það kem- ur þá í ljós hvort þeir hafi raunveru- legan áhuga eða ekki. Ég tel að síld- veiðarnar henti þeim alls ekki, held- ur sé þetta fyrst og fremst verkefni fyrir nótaveiðiskipin, segir Kristján." Óeðlileg vinnubrögð Ingvar Hólmgeirsson, skipstjóri á Sigþóri ÞH 100, tekur í sama streng og Kristján varðandi það að gefa mönnum kost á að sækja um að nýju í ljósi breyttra aðstæðna. Ekki var sótt um síldarkvóta fyrir Sigþór ÞH, en að sögn Ingvars hefði það skilyrð- islaust verið gert ef fyrir hefði legið aflahámark á skip, eins og nú er stað- reynd. „Við hefðum hiklaust sótt um leyfi til síldveiða á þeim forsendum, sem nú liggja fyrir, og ég er viss um að svo er um fleiri. Þetta eru mjög óeðlileg vinnubrögð af hálfu ráðherra og ekki fallin til að auka trúverðug- leika. Forsendurnar eru allt aðrar en lagðar voru upp í byijun.“ Ekki nógu frjóir Dagbjartur Einarsson hjá Fiska- nesi í Grindavík, segist fyrst og fremst vera feginn út frá því sjónar- miði að búið sé að semja um skipt- ingu síldarinnar milli þjóðanna fjög- urra. Sjálfsagt megi þó deila um allt, bæði samninginn og úthlutun- ina. Nýmæli sé að miða við rúmtölu skipa í úthlutun aflamarks. Honum sýndist að skv. því fengi Grindvík- ingur GK minna til sín heldur en ef miðað væri við burðargetu, eins og tíðkast hefði hingað til. „Sumir bát- ar eru t.d. að fá meiri kvóta en við þó þeir séu með minni burðargetu en stærri í rúmmetrum.“ Grindvíkingur hélt á miðin sl. þriðjudag ásamt fjölmörgum öðrum síldveiðiskipum, en íslensk skip máttu hefja veiðar í Síldarsmugunni á miðnætti í gær. Dagbjartur sagði að Fiskanes yrði aðeins með Grind- víking á síldveiðum að þessu sinni. Hægt hefði svo sem verið að sækja um leyfi fyrir þijá báta til viðbótar, Gauk, Geirfugl og Skarf, sem allt væru gamlir síldveiðibátar, „en við vorum bara ekki nógu fijóirtii þess.“ Verðlaus veiðitími Sigurbjörn Svavarsson, útgerðar- stjóri hjá Granda, segist hafa verið þeirrar skoðunar að síldveiðarnar hefðu átt að vera fijálsar, éins og aðrar veiðar hefðu verið á meðan verið væri að skapa einhveija veiði- reynslu. „Atta þúsund tonn fyrir togarana finnst mér frekar lágt aflamark í ljósi þess að um er að ræða þann hluta kvótáns, sem gæti orðið verðmætastur. Ætli verðmæti frystrar síldar sé ekki um það bil fjórum sinnum meira heldur en fæst úr afurðum í bræðslu sem var meginröksemd ráðherra fyrir því að auka verðmæti síldarinnar með því að hún færi sem mest til mann- eldis. Það á að takmarka það við átta þúsund tonn.“ Sigurbjörn telur jafnframt óeðli- legt að setja þau mörk að togararn- ir þurfi að hefja veiðar eigi síðar en 5. júní til að missa ekki af kvótanum. „Ef verið er að úthluta togurum ákveðnum tonnafjölda, ætti það ekki að skipta nokkru máli á hvaða tíma það magn er veitt. Það á auðvitað að leyfa mönn- um að veiða síldina á þeim tíma, sem von er um mest verðmæti." Sigurbjörn sagði að togarahópur- inn myndi fara á fund ráðherra á næstunni til að fá tímamörkunum frestað eða þau felld niður. Það gengi ekki alveg upp í hugum manna að á sama tíma og ráðherra talaði um að auka verðmæti síldar- innar væru veiðar togaranna skil- yrtar verðlausum tíma. „Síldin er ekki hæf til manneldis á þessum tíma og því er í raun verið að úti- loka okkur frá veiðunum ef þessi tími er óumbreytanlegur." Úthluta til annarra Þorsteinn Pálsson sagðist ekki enn hafa fengið erindi þessa efnis til sín, en hann myndi meta það þegar að því kæmi. „Þessi tímatak- mörk á togarana voru auðvitað sett með hliðsjón af því að ef togararnir ætla sér ekki að hagnýta kvótann, þá þarf auðvitað að úthluta þessum afla til annarra og þá þeirra, sem þegar hafa sótt um leyfi.“ Grandi sótti um leyfi fyrir þrjá frystitogara, Þerney, Örfirisey og Snorra Sturluson. Öll eru þau á karfaveiðum á Reykjaneshrygg eins og er. Sigurbjörn segir að skipin hafi í gegnum tíðina verið að hætta í úthafskarfanum um mánaðamótin júní/júlí því þá gangi karfinn svo langt suður eftir og orðin lítil veiði í honum. Þá myndi það henta ágæt- lega fyrir skipin þijú að fara í Síldarsmuguna enda væri síldin þá fyrst komin í það ástand að hægt væri að frysta hana til manneldis. Samningar í Miðausturlöndum Peres treystir Assad Jerúsalem. Reuter. SHIMON Peres, forsætisráðherra ísrael, sagðist í gær sannfærður um að Hafez al-Assad Sýrlandsforseta væri komulög er hann gerði. Fréttastofan Itim sagði forsætis- ráðherrann hafa látið þessi ummæli falla á fundi með gagnfræðiskóla- nemendum. Minnti Peres á að fyrir 23 árum hefði Assad fallist á bráðabirgðasam- komulag og staðið við það þrátt fyr- ir að það fæli í sér að ísraelar réðu yfir Gólan-hæðum. „Það er mjög erfitt að ná samkomulagi við Assad, en ef maður nær samkomulagi þá stendur hann við það,“ sagði Peres og tók jafnframt fram að ekki væri hægt að semja um frið án þess að gera málamiðlanir um landssvæði. Helsti andstæðingur Peresar í kosningunum, Benjamin Netanyahu, leiðtogi Likud-bandaiagsins, sagði á miðvikudag að hann teldi mögulegt treystandi til að standa við þau sam- að semja við Assad án þess að láta Gólanhæðir af hendi. Hamas mótmæla Hamas, samtök heittrúaðra pa- lestínskra múslima, mótmæltu í gær ákvörðun Bandaríkjamanna á mið- vikudag um að framselja einn helsta leiðtoga samtakanna til Israels. Bandarískur dómari kvað upp þann úrskurð að nægilegar sannanir hefðu verið lagðar fram um að Abu Marz- ak, sem verið hefur í haldi í New York, „ætti aðild að samsærinu er gengur undir nafninu Hamas". I yfirlýsingu Hamas segir að þessi ákvörðun hafi verið tekin til að að- stoða Peres í kosningabaráttunni og að gripið verði til hefndaraðgerða. Bandarískur nýnasisti fyrir þýska dómstóla Hamborg;. Reuter. RETTARHOLD hófust í Hamborg í gær yfir bandaríska nýnasista- foringjanum Gary Lauck. Honum er gefið að sök að hafa kynt und- ir kynþátta- hatri með því að senda hægri öfgaáróður til Þýskalands. Það tók sak- sóknara eina og hálfa klukku- stund að lesa ákærurnar á hendur Lauck. Þær eru í 38 lið- um og varða dreifingu Iím- miða, merkja og lesefnis, sem beinist gegn gyðingum og hampar málstað nýnasista. Þýska rannsóknarlögreglan segir að Lauck hafi í tvo áratugi nýtt sér bandarisk málfrelsislög til að koma bönnuðum nýnasista- áróðri á framfæri í Þýskalandi og hafi verið orðinn stærsti dreif- ingaraðili slíks efnis í landinu. Hans-Otto Sieg, veijandi Laucks, krafðist þess þegar í upp- hafi réttarhaldanna að málinu yrði vísað frá vegna þess að fram- sal skjólstæðings hans frá Dan- mörku, þar sem hann var hand- tekinn í mars, hefði verið byggt á öðrum forsendum en fram kæmu í ákæruskjali. Um 50 andstæðingar nýnasista gengu fyrir utan réttarsalinn með spjöld, sem meðal annars var á ritað „Gleymum ekki! Fyrirgefum ekki!“ Allsherj arverk- falli aflýst Helsinki. Reuter. STÆRSTU stéttarfélög Finnlands aflýstu í gær allsheijarverkfalli eftir að Martti Ahtisaari, forseti landsins, miðlaði málum. Verkfallið átti að standa í dag og hefði atvinnustarf- semi í Finnlandi lamast. Tvö helstu stéttarfélög Finnlands samþykktu nýjar tillögur fimm flokka samsteypustjórnar landsins. Þessar tillögur tengjast áformuðum breytingum á reglum um atvinnu- leysisbótakerfi Finnlands. Einnig var hætt við aðrar fyrir- hugaðar aðgerðir og í yfirlýsingu frá finnska flugfélaginu Finnair sagði að nú væri tryggt að samgöngur myndu ekki raskast. Boðað var til verkfallsins vegna áforma um að skera niður atvinnu- leysisbætur. Talið er að það hefði kostað finnskan efnahag fimm millj- arða íslenskra króna. Stjórnin kom meðal annars til móts við stéttarfélögin með því að heita fólki á aldrinum 20 til 24 ára starfsmenntun með tryggingu fyrir atvinnu og lofa að láta atvinnurek- endur standa undir stærri hluta kostnaðar af atvinnuleysi, en þeir gera nú. í sænska dagblaðinu Göteborgs- Posten sagði að stjórninni hefði tek- ist að ná samkomulagi við forystu stéttarfélanna án þess að slá af fyrir- huguðum sparnaði. 7.800 á skrá vegna stjórnmálastarfs UM 7.800 Norðmenn eru enn á skrá norsku leyniþjónustunnar vegna pólitískrar starfsemi sinn- ar. Kemur þetta fram í skýrslu Lund-nefndarinnar um eftirlit leyniþjónustunnar með.einstakl- ingum. Samkvæmt skýrslunni er í 6.821 tilviki um að ræða félaga í komm- únistaflokki maóista, APK, eða fólk sem hefur haft afskipti af samtökunum, t.d. með því að skrifa undir yfirlýsingar af ein- hveiju tagi. Samkvæmt þeim reglum sem leyniþjónustan á að starfa eftir þá gefur þátttaka í löglegu póli- tísku starfi ekki tilefni til sér- stakrar skráningar. Einnig eru á annað hundrað hægriöfgamenn á skrá leyniþjón- ustunnar og um fjórtán hundruð félagar í gamla kommúnista- flokknum, NKP. Af þeim ellefu þúsund einstakl- ingum, sem til eru skrár um hjá leyniþjónustunni er einungis í 550 tilvikum um að ræða ólöglega pólitíska starfsemi. Frá árinu 1986 hafa aðeins 100 einstaklingar verið teknir á skrá vegna pólitískrar starfsemi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.