Morgunblaðið - 10.05.1996, Síða 44
44 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
9£LL !í//LTUKAORAr I
/U f££ÐiO/S£>A0OK_‘
Grettir
Tommi og Jenni
Ljóska
Smáfólk
V 'xux-xú i-x'.
ii .ý
rI UiAS HAVIN6 THE
BE5TTIME 0F Mf
UFE! I U)A5 y
HAVIN6 FON!
r MOU) CAN VOU
MAVE FUN IN A
PIACE UIMERE
D065 AREN'T
w ALLOWED? J
NOU) LOOK UiMAT
YOU DIDIY0U60T
ME KICKED OUT OF
THESWEETHEART8ALL!
Sjáðu nú hvað þú gerð- Ég hef aldrei í lífinu skemmt mér eins vel!
ir! Þú lést sparka mér Ég skemmti mér svo vel! Hvernig geturðu
út af paraballinu! skemmt þér á stað þar sem hundar eru ekki
leyfðir?
BREF
ITL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: )auga@mbl.is
Miðbæjarskólinn
Frá Helgu Þórðardóttur:
6. MAÍ fór ég gangandi í seinustu
kennslustundina hjá Námsflokk-
um Reykjavíkur þetta árið og virði
fyrir mér þetta virðulega gamla
menntasetur og greipti það í huga
mér eins og það er og var, því á
morgun er það orðið of seint. Það
verður slys.
Miðbæjarskólinn var barnaskól-
inn minn og ég á svo margar
yndislegar minningar frá þeim
tíma. Þar var valinn maður í hveiju
rúmi, starfsfólkið allt; skólastjóri,
kennarar, umsjónarmenn og ræst-
ingakonur var úrvals fólk sem
vakti yfir velferð barnanna. Húsið
var upphaflega vel hannað sem
skólahús, þarna var teiknistofa,
söngstofa, landafræðistofa og
stofur fyrir matreiðslu og handa-
vinnu drengja og stúlkna og ekki
má gleyma rúmgóðum leikfimi-
sal. Gott er að eiga góðs að minn-
ast.
Ennþá stendur þetta gamla hús
fyrir sínu. Þar iðar allt af lífi.
Námsfólk frá öllum hverfum borg-
arinnar sækir þangað nám. Skól-
inn stendur miðsvæðis í hjarta
borgarinnar rétt hjá Lækjartorgi
sem er áningarstaður flestra
strætisvagna og því auðvelt um
vik fyrir nemendur að sækja skól-
ann hvar svo sem þeir eiga heima
í Reykjavík. Auk þess má sjá fólk
af ýmsum þjóðernum sem þangað
kemur til að læra íslensku og
kynnast háttum og siðum þess
lands sem þeir hafa gert að sínu.
Þarna er kennt allt sem hugur og
löngun hvers og eins stendur til
fyrir mjög sanngjarnt verð. Þarna
eru úrvals kennarar og frábær
skólstjóri og enn er vakað yfir
velferð nemenda. Er hægt að
hugsa sér betra hlutskipti fyrir
gamalt og veglegt skólahús sem
stendur á einum fallegasta stað
við Tjörnina og geymir verðmætan
þátt í skólasögu Islendinga?
Nei, nú skal vísvitandi verða
slys. Það vantar skristofuhúsnæði,
segja hinir háu herrar eða á ég
að segja hinar háu konur sem við
Reykvíkingar höfum kosið yfir
okkur til að stjórna borginni okkar
með slíkri lágkúru? Köld eru
kvennaráð. Það vill nú svo til að
í Reykjavík er nóg til af ónotuðu
skrifstofuhúsnæði sem hentar
ágætlega og ekki þarf að kosta
miklu til.
Nú skal taka 70 milljónir úr
vösum skattborgara til þess að
breyta gamla skólanum okkar í
gleðisnauðar lífvana skrifstofur.
Lítilla sanda ,
lítilla sæva.
Lítil eru geð guma.
HELGA ÞÓRÐARDÓTTIR,
Fálkagötu 14, Reykjavík.
Skammtímavistun
og sumardvöl fatl-
aðra að Gufuskálum
Frá Magnúsi Stefánssyni:
SUNNUDAGINN 5. maí sl.
kynnti Þroskahjálp á Vesturlandi
starfsemi sína og aðstöðu fyrir
skammtímavistun og sumardvöl
fatlaðra barna að Gufuskálum í
Snæfellsbæ. Sú aðstaða sem um
er að ræða er í einu af þeim
íbúðarhúsum sem notuð voru
meðan loranstöð var rekin á
staðnum, en hefur staðið í nokk-
urn tíma ónotað.
Það var ánægjulegt að verða
vitni að því hve kærkomin þessi
aðstaða er fyrir börnin og fjöl-
skyldur þeirra, þar sem mjög mik-
il þörf hefur verið fyrir slíka starf-
semi á Vesturlandi og þá ekki
hvað síst á Snæfellsnesi. Mörg
undanfarin ár hefur slík starfsemi
verið rekin að Holti í Borgarfirði,
en hefur ekki annað allri þeirri
þörf sem fyrir hendi er í kjördæm-
inu. Það er því full ástæða til
þess að óska öllum þeim er málið
varðar innilega til hamingju með
þann mikla áfanga í uppbyggingu
á aðstöðu og starfsemi í þágu
fatlaðra barna og fjölskyldna
þeirra sem hér um ræðir.
Það er einnig ánægjulegt hve
bæjarstjórn Snæfellsbæjar hefur
tekið vel og myndarlega á þessu
máli, með því að stuðla að því að
hluti þeirra mannvirkja sem nú
standa ónotuð að Gufuskálum séu
nýtt á þennan hátt. Þá má einnig
nefna hið jákvæða hugarfar og
viðhorf fólks og líknarfélaga til
starfsemi Þroskahjálpar sem
kemur fram í fjölmörgum gjöfum
á alls kyns hlutum sem nýtast
starfseminni að Gufuskálum.
Allt þetta sýnir hve mikilvægt
það er að búa fötluðum og fjöl-
skyldum þeirra sem mesta og
besta aðstöðu, þörfin er víða til
staðar og því eiga þeir sem þess
eiga nokkurn kost að leggja hönd
á plóginn í þessa þágu. Starfsem-
in að Gufuskálum ber vitni um
dugnað og velvilja viðkomandi
aðila í verki og eru ítrekaðar ham-
ingjuóskir til allra hlutaðeigandi
í þessu tilefni.
MAGNÚS STEFÁNSSON,
alþingismaður Framsóknarflokksins í
Vesturlandskjördæmi.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í
upplý8ingasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu það-
an, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu
efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.