Morgunblaðið - 10.05.1996, Side 24
24 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1996
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Allsnægla-
borðið
LEIKRITIÐ Allsnægtaborðið eftir
Elísabetu Kristínu Jökulsdóttir
verður sýnt í Höfundasmiðju Borg-
arleikhússins laugardaginn 11. maí.
í kynningu segir: „Leikurinn er
um þá óvenjulegu
atburði sem' eiga
sér stað þegar
venjulegt fólk fer
út að borða á
venjulegum veit-
ingastað og er
þjónað af venju-
legum þjóni. Það
sérstaka við sýn-
inguna er að leikið
verður á mismunandi vegu eða al-
veg þangað til síðasti áhorfandinn
gefst upp.“
Leikarar eru Valgerður Dan, Sig-
urður Karlsson og Þröstur Leó
Gunnarsson.
Sýningin hefst kl. 16 og er að-
eins um eina sýningu að ræða.
Kristín Bryn-
dís sýnir í
Gerðubergi
KRISTÍN Bryndís Björndóttir
myndlistarkona kynnir verk sín í
Gerðubergi um
helgina 11.-12.
maí Bryndís hefur
um árabil stundað
nám í Myndlistar-
skóla Reykjavíkur
og er þetta hennar
fyrsta sýning.
Sýningin er
haldin í D-sal og
er hún í tengslum
við handavinnusýningu félagsstarfs
aldraðra í Gerðubergi.
Gospel-miðnæt-
urtónleikar í
Dómkirkjunni
GOSPELHÓPUR Söngsmiðjunnar,
eða Sönghópur móður jarðar eins
og hann kallar sig nú, einsöngvarar
og þriggja manna hljómsveit, heldur
miðnæturtónleika í Dómkirkjunni á
laugardagskvöld kl. 23.30. Stjórn-
andi hópsins er Esther Helga Guð-
mundsdóttir.
„Vegna fjölda áskorana mun hóp-
urinn halda þessa tónleika og velur
þennan sérstæða tónleikatíma dg
stað sem jákvætt og uppbyggjandi
innlegg í hringiðu helgarinnar,“ seg-
ir í kynningu.
Aðgangseyrir er 1.000 kr. Miða-
sala við innganginn.
GiiÖœunöm Rapi Gemóal
„Rétta orðalagið á þeim, sem hafa tílkynnt
ákvörðun sína um að bjóða sig fram til
forseta Lslands, er: „væntanlegur forseta-
framb jóðandi" samkvæmt Jóni Thors,
embættismanni dómsmálaráðuneytisins,
sem sér um þessi mát Enginn getur kallað
sig eingöngu forsetaframbjóðanda með
réttu fyrr en hann hefur sótt um það bréf-
lega til ráðuneytisins fyrir 24. maí nk. og
skilað hjálögðum listum 1.500-3.000
meðmælenda í réttum hlutföllum miðað
við landsfjórðunga og fengið um það
staðfestingu ráðuneytísins, en það verður
ekki endanlcga ljósl fyrr en í kringum 3.
júní nk. Ekki er vfst að allir þeir sem hafa
komið fram, standist þær kröfur. Það er
fyrst þá sem endanlega er Ijóst hverjir
niega með réttu kallast forsetafram-
bjóðendur og/eða forsetaefni."
Formbirtíng
Kristján Jónsson.
MYNDLIST
Sólon íslandus
MÁLVERK
Kristján Jónsson. Opið alla daga á
tíma veitingahússins til 12. maí. Að-
gangur ókeypis.
ÞAÐ hefur verið lenska um ára-
bil að mála stór málverk og jafn-
framt röð minni málverka í sömu
stærð og sýna þau þéttskipuð á
einhveijum endaveggnum. Jafn-
framt hefur akríltæknin þótt henta
vel við gerð slíkra mynda óhefts
málunarflæðis vegna þeirra eigin-
leika málningarinnar að þorna
fljótt, ennfremur að mála með ýms-
um litarefnum í blarid, helst vaxi
og emulusion.
Þetta er sú tækni sem virðist
vera ofan á í skólum víðs vegar um
Evrópu og menn virðast „in“ ef
þeir aðhyllast hana, því ferlið á víst
að vera eitthvað meira en gamla
málverkið, sem fræðingar hafa ver-
ið að bera til grafar um áratuga-
skeið, þótt andlátsfréttin sé nokkuð
orðurn aukin.
Það er ekki svo að maður hafi
hið minnsta við aðferðina að athuga
í eðli sínu, því allar aðferðir hljóta
að vera gildar sé útkoman gædd
rismiklum tjákrafti. Hins vegar hef-
ur rýnirinn af fenginni reynslu til-
hneigingu til að hafna fullkomlega
hvers konar múgsefjun í tækni- eða
vinnubrögðum, hvort heldur um er
að ræða hreint málverk „Peinture
pure“ eða fullkomlega hugmynda-
fræðilega list „Conceptual Art“, þar
sem heimspekin virðist oftlega mik-
ilvægari útfærslunni.
Það er ekki ýkja langt síðan
Kristján Jónsson sýndi síðast, sem
var í Hafnarhúsinu í febrúar fyrir
ári, og þá kom í minn hlut að rýna
í myndir hans. Þær byggðust öðru
fremur á myndheildum ritmáls, þótt
erfitt hafi verið að átta sig á hvort
hefði betur á myndfletinum ritmálið
eða málverkið.
í myndum sínum í Sólon ísland-
us, sem allar virðast nýjar af nál-
inni, hefur Kristján aftur á móti
tekið af skarið og nú er ritmálið í
bakgrunninum, þannig að ekki
velkist fyrir skoðandanum, að hér
er um að ræða málverk sem nýtur
stuðnings frá hrynjandi og blæ-
brigðum letursins.
Hins vegar heldur hann sig áfram
við hið óhefta flæði og óformlega
tjákraft á myndfletinum, þannig að
jafnvel hlutlæg form eins og húsa-
þyrping lýtur engum rökfræðileg-
um lögmálum í myndskipaninni,
heldur virkar sem uppfyliing eða
viðbót. Má segja að hér sé á ferð-
inni sérstakt afbrigði af því sem í
sjónlist hefur veruð skilgreint sem
„Behaviour Art“, en á þeim sértæku
forsendum að háttalagið eða atferl-
ið fer fram á dúknum sjálfum að
viðbættri innsetningu í tilfallandi
rými.
Listamaðurinn virðist á tímamót-
um og þótt þessi sýning komi manni
á engan hátt í opna skjöldu, vísa
hinar stærri frekar til skýrari mynd-
hugsunar en á fyrri sýningu, eink-
um vil ég nefna „Manifesto" og
„Landslag" (Sáttmáli IV)...
Bragi Asgeirsson
KVENNAKOR Hafnarfjarðar.
Kvenna-
kór Hafn-
arfjarðar
KVENNAKÓR Hafnarfjarðar-
kirkju heldur fyrstu sjálfstæðu
tónleikana í Víðistaðakirkju
sunnudaginn 12. maí kl. 17.
Kórinn var stofnaður 26. apríl
1955. Kórinn kom fyrst fram með
kór eldri Þrasta og Samkór
Oddakirkju í fyrravor.
í upphafi þessa starfsár fjölg-
aði verulega í kórnum og eru
kórfélagar nú rúmlega 50 tals-
ins. Á söngskránni er blanda af
íslenskum og erlendum lögum.
Stjórnandi kórsins er Halldór
Óskarsson og undirleikari Hörð-
ur Bragason.
Kvennakór Hafnarfjarðar
mun ennfremur taka þátt í tón-
leikum með fimm öðrum kórum
á Laugalandi í Holtum laugar-
daginn 18. maí.
KVIKMYNDIR
Rcgnboginn
ENDURREISN „RESTOR-
ATION“ ★ ★ ★
Leiksljóri: Michael Hoffman. Handrit: Rup-
ert Walters eftir sögu Rose Tremain. Kvik-
myndataka: Oliver Stapleton. Tónlist: James
Newton Howard. Aðalhlutverk: Robert
Downey, Sam Neill, David Thewlis, Polly
Walker, Meg Ryan, Ian McKelIen, Hugh
Grant. Miramax. 1995.
KARL II Englandskóngur var
maður upplýsingarinnar og stóð
fyrir mikilli endurreisn vísinda og
lista á seinni helmingi sautjándu
aldar eftir skeið stöðnunar og aftur-
halds Cromwells. Með Karli blésu
ferskir vindar frumlegrar hugsunar,
vísindalegrar sköpunar og listrænn-
ar endurreisnar um England.
Mitt í þeim suðupotti öllum miss-
ir læknirinn Robert Merivel, aðal-
persónan í nýjustu mynd Michael
Hoffmans, Endurreisn, tökin á til-
verunni eins og það mundi orðað í
dag. Myndin byggir á samnefndri
sögu Rose Tremain og Hoffman sér
í henni ýmsar hliðstæður við það
nýaldarskeið sem við nú lifum.
Hann gerir ferðlag Merivel um „ljós
og skugga“ síns tíma að persónu-
legu ferðalagi til þroska og sjálfsvit-
undar. í meðförum Hoffmans verð-
ur Merivel að persónugervingi þess
breytingaskeiðs í sögunni sem hann
upplifir og mótar loks úr honum
mann sem finnur köllun sína og þar'
með tenginguna við tímann. Annað-
hvort taka menn þátt í framþróun-
inni eða glatast.
Hoffman segir þessa sögu af
skemmtilegum myndugleik og hef-
ur jafnsterk tök á hinum léttleik-
andi, kómíska blæ fyrri hlutans og
alvarleik og myrkum drunga seinni
hlutans. Falleg myndataka Olivers
Stapleton dregur nákvæmlega fram
endursköpun tímabilsins sem hefur
tekist með mestum ágætum hvað
varðar leikmyndir og búninga. Og
Hoffman hefur fengið til liðs við
sig úrvalshóp leikara. Robert Down-
ey er læknirinn ungi er kóngur
notar sem peð í framhjáhaldsklækj-
um sínum og mætir örlögum sínum
opinmynntur með augun uppglennt
í vantrú. Sam Neill er frábærlega
röggsamur sem hinn upplýsti ein-
valdur, David Thewlis er hin hreina
sál og samviska Merivel, Ian
McKellen er spakvitur þjónn hans,
Meg Ryan kemur á óvart sem
bamsmóðir Merivel og loks dregur
Hugh Grant upp skemmtilega
skopfígúru sem smeðjulegur list-
málari.
Tónlist James Newton Howard
eykur áhrifamátt myndarinnar með
þungum stíganda sínum og það er
sjaldnast dauður punktur í upp-
færslu Hoffmans enda hefur hann
úr að moða skrautlegu safni per-
sóna og röð spennandi og ógnvekj-
andi atburða eins og pláguna miklu
og eldsvoða sem lagði London í
rúst. Allt þjónar það tilgangi á
þroskabraut Merivel til hins upp-
lýsta manns, braut sem Hoffman
vill meina að við séum enn að feta
okkur eftir.
Arnaldur Indriðason
Yorsýning
Kvöldskóla
Kópavogs
FYRSTA vorsýning Kvöldskóla
Kópavogs verður haldin helgina 11.
og 12. mai kl. 13-18 í húsnæði
skólans í Snælandsskóla við Furu-
grund, sem liggur neðan Nýbýla-
vegar.
Á þessari sýningu verður mest-
megnis sýnd vinna og afrakstur lið-
innar vorannar hjá hug- og hand-
íðahópum, en tungumálaáföngum
lauk um páska. „Ætlunin er að slík
sýning verði árviss viðburður, en
hér er að finna margs konar kjör-
gripi sem menn hafa upphugsað og
útfært undir leiðsögn kennara
sinna“, segir í kynningu. Það sem
er til sýnis nú er af ýmsu tagi, svo
sem bókband, bútasaumur, letur-
gerð, leirmótun, silkimálun, tré-
smíði, útskurður, uppeldi tijá-
plantna og vatnslitamálun.
----»-♦■+---
ErkiTíð ’96
Á TÓNLEIKUM Caput hópsins í
kvöld kl. 20 verður á efnisskránni
Impromtu (1989) fyrir klarinettu
og strengjasveit eftir Aldo Clem-
enti, Grand Duo Concertante III:
Opnar dyr (1995) fyrir flautu, selló
og tónband (frumflutningur á ís-
landi) eftir Alta Heimi Sveinsson,
Tongues Enrobed (1995) fyrir
bassaflautu, gítar, píanó, slagverk,
fiðlu og selló eftir Lars Graugaard.
Á söngtónleikunum Út úr haus
sem haldnir verða á laugardag kl.
16.15 verða flutt einsöngslög eftir
Hjálmar H. Ragnarsson, Atla Heimi
Sveinsson, Gunnar Reyni Sveins-
son, Hildigunni Rúnarsdóttur og
Jón Leifs. Píanóleikari Steinunn
Birna Ragnarsdóttir.
Sönghópur undir stjórn Egils
Gunnarssonar flytur lög eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson, Gunnar Reyni
Sveinsson, Hjálmar H. Ragnarsson,
Gísla Magnússon, Hildigunni Rún-
arsdóttur og Egil Gunnarsson.
----» ♦ ♦---
Síðasta sýning-
arhelgi Krist-
jáns á Sóloni
MÁLVERKASÝNINGU Kristjáns
Jónssonar í Galleríi Sólon íslandus
lýkur á sunnudaginn.
Alls eru 15 verk á sýningunni,
sem listamaðurinn málaði sérstak-
lega með sýningarsal Sólons í huga.