Morgunblaðið - 26.06.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1996 13
FORSETAKJÖR ’96
Ólafur Ragnar Grímsson á fundi í Granda
Pétur Kr. Hafstein kynnti sjónarmið sín víða
Málskotsréttur ofar-
Forseti á ekki að vera
lega í huga kjósenda
pólitískur áttaviti
ÓLA.FUR Ragnar Grímsson forsetafram-
bjóðandi heimsótti starfsfólk fiskvinnslufyr-
irtækisins Granda í Reykjavík sl. mánudag
ásamt konu sinni, Guðrúnu Katrínu Þor-
bergsdóttur.
Olafur Ragnar sagði m.a. í ávarpi að í
stjórnskipan lýðveldisins væri málum tví-
mælalaust skipað á þann veg að forsetinn
væri einn af máttarstólpum lýðræðisins.
Forsetinn hefði samkvæmt stjórnarskránni
mikilvægan rétt til að vísa málum til þjóð-
arinnar ef hann teldi þau vera það afdrifa-
rík að þjóðin ætti að hafa um þau síðasta
orðið. Olafur sagðist skynja að málskots-
rétturinn væri ofarlega í huga kjósenda og
hann tók fram að ef aðild að ESB kæmi
til umræðu teldi hann að efna ætti til þjóðar-
atkvæðagreiðslu.
Sagði Ólafur að það væri í sívaxandi
mæli verkefni forsetans að tryggja hags-
muni og orðstýr íslendinga á alþjóðavett-
vangi. Það væri að hans dómi tvímælalaus
verkskylda forseta að taka þátt í að efla
atvinnulífið, bæta lífskjörin og auka tekj-
urnar af útflutningsatvinnuvegunum, þann-
ig að unnt væri að auka kaupmáttinn, stytta
vinnuvikuna og efla framlög til velferðar-
mála.
Forseti sé virkur þátt-
takandi í þjóðlífinu
Ólafur Ragnar sagði ennfremur að það
væri mikilvægt að forseti íslands væri virk-
ur þátttakandi í þjóðlífinu, en ekki fjarlæg-
ur embættismaður á Bessastöðum. Hann
sagði að vegna þeirra miklu samgöngubóta
sem átt hefðu sér stað á síðustu áratugum
gæti forsetinn brugðið sér hvert á land sem
er í dagstund eða hluta úr degi, ef íbúar
teldu mikilvægt að hafa hann sér við hlið.
Ólafur sagði það skoðun sína að forsetinn
ætti að vera viðstaddur ýmiss konar kapp-
leiki og íþróttaviðburði og lýsti furðu sinni
á því að sumum þætti það ekki sæma forset-
anum að sækja slíkar samkomur.
Mikilvægt fyrir íslendinga
að eiga tónlistarhús
Eftir að forsetaframbjóðandinn hafði lok-
ið máli sínu gafst starfsmönnum Granda
kostur á að leggja fyrir hann spurningar.
Aðspurður hvort hann hyggðist beita sér
fyrir byggingu tónlistarhúss sagði Ólafur
Ragnar að það gæti verið mikilvægt fyrir
íslendinga að eiga hús af þessu tagi, sem
hægt væri að nýta í margvíslegum til-
gangi. Hann sagðist telja að nú þegar lokið
væri byggingu Þjóðarbókhlöðunnar og end-
urbótum á Þjóðleikhúsinu og Þjóðminjasafn-
inu væri bygging tónlistarhúss ef til vill
næst á dagskrá. Ekki urðu spurningarnar
fleiri að þessu sinni því starfsmenn þurftu
að hverfa aftur til vinnu sinnar að loknu
hádegishléi.
PÉTUR Kr. Hafstein forsetaframbjóðandi
heimsótti fyrirtæki og stofnanir í Reykjavík,
Garðabæ og Keflavík í gærdag ásamt Ingu
Ástu konu sinni. Komu þau hjón meðal ann-
ars við í mötuneyti Heklu hf. í hádeginu þar
sem Pétur gerði starfsmönnum grein fyrir
áherslum sínum í kosningabaráttunni og
svaraði spurningum viðstaddra.
I ávarpi kynnti Pétur hugmyndir sínar um
hlutverk forseta og stöðu í þjóðlífinu og lagði
áherslu á að forseti beitti áhrifum sínum af
yfirvegun, hlutleysi og dómgreind. Pétur
sagði línur greinilega að skýrast í afstöðu
frambjóðenda nú skömmu fyrir kosningar og
lýsti þeirri skoðun að forseti ætti ekki að
leggja pólitískt mat á hvort væri að myndast
„bil milli þings og þjóðar" eins og Ólafur
Ragnar Grímsson hefði á orði. Forseti ætti
ekki að vera pólitískur áttaviti eða að nýta
málskotsréttinn eftir pólitískum geðþótta.
Þá sagði Pétur kosningabaráttan væri póli-
tískari en góðu hófi gegndi, sem skýrðist af
framboði tveggja stjórnmálamanna, annar
hverra hefði lengi tekið þátt í orrahríð stjórn-
málanna.
Pétur lagði áherslu á að forseti sýndi gott
fordæmi og veitti leiðsögn. Við hæfi væri að
hann léti sig varða ýmis þjóðfélagsmál. Hann
ætti alls ekki að vera skoðanalaus en jafn-
framt að gæta þess að standa utan við flokks-
pólitískar deilur. Nefndi hann sérstaklega
mannréttindi, umhverfismál og fíkniefna-
vandann, sem hann hefði kynnst af eigin
raun í embætti.
Einn fundarmanna spurði Pétur hvers
vegna hann teldi að kjósendur ættu að greiða
honum atkvæði sitt. í svari sínu lagði hann
frekari áherslu á viðhorf sitt til hlutverks
forsetans í þjóðlífinu og aðhalds í rekstri
embættisins, sem enginn annar frambjóðenda
boðaði. Þá sagði Pétur framboð sitt ekki
sprottið af pólitískum rótum og að forseti
ætti að rækta sambandið við þjóðina utan
hátíðis- og tyllidaga.
Pétur var einnig spurður um álit sitt á
skoðanakönnunum og framgangi fjölmiðla í
kosningabaráttunni. Sagði hann að svo virt-
ist sem sumir legðu meira kapp á að hanka
frambjóðendur á einhveiju eða að finna á
þeim snögga bletti. Vissulega þyrftu fram-
bjóðendur að sætta sig við opinskáa umfjöll-
un og að líf þeirra væri sem opin bók en
umræðan þyrfti að vera málefnaleg.
Hvað skoðanakannanir áhrærir sagði Pétur
þær sjálfsagðar til upplýsingar en einnig að
þær gætu verið skoðanamyndandi og kvað
vanta reglur um meðferð þeirra. Til dæmis
mætti setja reglur um að kannanir væru
ekki birtar síðasta dag fyrir kjördag og dag-
inn sem kosning færi fram.
Pétur var loks spurður að því hvort búast
mætti við hestasteini við Bessastaði næði
hann kjöri svo menn gætu komið ríðandi að
forsetabústaðnum. Svaraði Pétur þá að von-
andi yrðu þeir fleiri en einn og að í hans
forsetatíð yrðu hross í túninu að Bessastöð-
um. '
m Koma spariskírteinin þín til innlausnar 1. júlí og 10. júlí 1996?
Tökum við skipt Ú i spariskx iútboð ti hádegi í Irteinum fyrir Ikl. 12 dag.
Ráðgjafar VÍB og um land allt vt áframhaldar \ verðhréfafulltrúar íslandsbanka ?ita þér aðstoð við að tryggja idi öryggi og góða ávöxtun. éerið velkomin.
FORYSTA í FJÁRMÁÍ 1 8
VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. ^ • Aðili að Verðbréfaþingi íslands • Kirkjusandi, 155 Reykjavík. Sími 560-8900. Myndsendir: 560-8910.