Morgunblaðið - 26.06.1996, Side 20
20 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Valdabar-
átta í Pasok
Aþenu. Reuter.
MIKIL valdabarátta á sér nú stað í
gríska sósíalistaflokknum (Pasok) í
kjölfar andláts Andreas Papandreou,
sem lést aðfaranótt sunnudagsins.
Papandreou sagði af sér embætti
forsætisráðherra vegna veikinda í
janúar en var áfram formaður flokks-
ins sem hann stofnaði árið 1974.
Hörð barátta er þegar hafin um
hver verði eftirmaður hans sem leið-
togi Pasok og er jafnvel talin hætta
á að flokkurinn klofni í átökunum.
Costas Simitis, sem tók við forsæt-
isráðherraembættinu af Papandreou,
hefur ákveðið forskot í baráttunni
en allt bendir til að Akis Tso-
hatzopoulos innanríkisráðherra
hyggist ekkert gefa eftir.
Hann varð á sínum tíma undir er
þingflokkur Pasok valdi nýjan for-
sætisráðherra.
Tsohatzopoulos starfaði mjög náið
með Papandreou og hyggst hann
reyna að sannfæra flokksmenn um
að hann sé rétti maðurinn til að halda
áfram starfi Papandreous. „Valdið
sem Papandreou hafði getur ekki og
má ekki vera í höndum eins manns.
Við þurfum tveggja manna forystu
þar sem skýr skil eru á milli ábyrgð-
arsviða," sagði hann við blaðamenn.
Vill ekki deila völdum
Simitis er hins vegar einn vinsæl-
asti stjómmálamaður Grikklands og
hefur lýst því yfir að hann hafi hug
á að verða flokksformaður jafnt sem
forsætisráðherra. Hefur hann hótað
því að segja frekar af sér en að deila
með sér völdum.
Sérstakt flokksþing verður haldið
um helgina þar sem að nýr flokks-
formaður verður kjörinn.
Papandreou verður borinn til graf-
ar í Aþenu í dag og verður flestum
opinberum skrifstofum lokað í land-
inu vegna þess. Um 80 ríki senda
fulltrúa til að vera viðstadda útförina
og búist er við að tugþúsundir
Grikkja muni fylgja honum til grafar.
Reuter.
STARFSMAÐUR kirkjugarðs tekur gröf Andreas Papandreou.
Karadzic
verði vikið
Pale, Vín. Reuter.
SLOBODAN Milosevic, forseti Serb-
íu, skipaði í gær Bosníu-Serbum að
setja svonefndan forseta lýðveldis-
ins, Radovan Karadzic af, ella
myndu þeir sæta refsiaðgerðum.
Vesturveldin hafa hótað að hefja á
ný efnahagsiegar þvinganir gegn
Serbíu-Svartfjallalandi ef Karadzic
verði ekki vikið frá.
Öryggis- og samvinnustofnun
Evrópu, ÖSE, ákvað í gær að kosn-
ingar skyldu fara fram í Bosníu 14.
september. Vesturveldin hafa krafist
þess að Karadzic verði ekki í fram-
boði og fari þegar frá vegna meintra
stríðsglæpa.
Vestrænir stjómarerindrekar í
Belgrad fögnuðu ákvörðun Milosevic
en sögðu að hörð valdabarátta geis-
aði í Pale, höfuðstað Bosníu-Serba,
vegna málsins.
Harðlínumenn á þinginu í Pale
sögðu skipun Milosevic vera svik.
„Við erum ekki reiðubúnir að láta
undan,“ sagði einn af embættis-
mönnum lýðveldisins. Bosníu-Serbar
eru mjög háðir Serbíu efnahagslega.
-----» » ♦-----
Tékkland
Ágreining-
ur um ráð-
herrastóla
Zjúganov segir fólk orð-
ið þreytt á árekstrum
Borís Jeltsín óttast að lítil
kjörsókn bjargi kommúnistum
Moskvu. Reuter.
GENNADÍ Zjúganov, forsetaefni
kommúnista í Rússlandi, hélt blaða-
mannafund í gær og sagðist sann-
færður um sigur í síðari umferð
kosninganna 3. júlí. Hann vísaði því
á bug að allur vindur væri úr fram-
boðinu og fullyrti að tillaga sín um
þjóðstjórn og sættir myndi höfða til
almennings. „Ég tel að fólk sé orðið
þreytt á árekstrum og það muni
styðja þann sem varpar fram hug-
mynd um samstöðu," sagði Zjúg-
anov.
Tillagan er eina frumkvæði Zjúg-
anovs í kosningabaráttunni frá því
í fyrri umferð forsetakjörsins 16.
júní. Kommúnistar hafa áður stung-
ið upp á þjóðstjórn og umbótasinnar
sögðu að um venjulega kosninga-
brellu væri að ræða, sennilega vegna
lélegrar stöðu Zjúganovs í könnun-
um.
Hann kynnti þjóðstjórnarhug-
myndir sínar á mánudag og vilja
kommúnistar stofna sérstakt ráð þar
sem áhrifum verði skipt milli þriggja
hópa á þingi; þeirra, liðsmanna Bor-
ís Jeltsíns forseta og í síðasta hópn-
um verði fulltrúar annarra afla auk
manna utan þings. Þrír þeirra sem
Zjúganov vill að sitji í ráðinu vísuðu
hugmyndinni þegar á bug, meðal
þeirra var Júrí Lúzhkov, borgarstjóri
í Moskvu en hann styður Jeltsín.
Sagði hann að helst minnti tillagan
á stjórnmálaráðið, sem var valda-
mesta stofnun Sovétríkjanna gömlu.
Fréttafulltrúi Jeltsíns forseta,
Sergej Medvedev, sagði að ekki
væri gert ráð fyrir stofnun af þessu
tagi, skipaðri mönnum sem ekki
hefði verið kosnir til starfans og
með óljóst valdsvið, í stjórnar-
skránni.
Zjúganov, sem er 52 ára, lét taka
af sér myndir í gær í blaki og virt-
ist þannig ætla að hressa upp á
ímynd sína í baráttunni við hinn 65
ára gamla Jeltsín. Forsetinn er oft
sýndur leika tennis af miklum krafti
en hann hefur fengið nokkur hjarta-
áfall og átt við ýmiss konar aðra
vanheilsu að stríða, auk þess sem
hann þykir vínhneigðari en góðu
hófi gegnir. Undanfarna mánuði
hefur Jeltsín á hinn bóginn virst
eflast með hveijum degi og engan
bilbug er á honum að finna.
Vaxandi kosningaleiði
Forsetinn er mun öflugri en Zjúg-
anov í skoðanakönnunum en þær
hafa oft brugðist í Rússiandi. Jeltsín
hlaut rúm 35% í fyrri umferðinni,
Zjúganov 32%, kjörsóknin var tæp
70%. Aðstoðarmenn forsetans vara
menn nú ákaft við því að sofna á
verðinum og segja að fari kjörsókn
undir 60% í seinni umferðinni geti
Zjúganov sigrað.
Stuðningsmenn kommúnista eru
að meðaltali mun eldri en Jeltsíns
og iíklegri til að mæta á kjörstað,
léleg kjörsókn og sinnuleysi gætu
því reynst forsetanum skeinuhætt.
Lúzhkov borgarstjóri birti opið bréf
til Moskvubúa í dagblaði á mánudag.
„Allt er hljótt, kyrrlátt: Við sitjum,
horfum á frambjóðendur í sjónvarpi
og ákveðum hvort við viljum í raun
fara í þriðja sinn á kjörstað, hvort
það væri betra að fara út í sveit,“
sagði í bréfinu og borgarstjórinn
varaði fólk við afleiðingum þess að
kjósa ekki. „En örlög Rússlands eru
undir þessu komin .. annaðhvort
verður uppiausn og harðstjórn eða
von“.
Prag. Reuter.
LEIÐTOGUM þriggja stjórnmála-
flokka mistókst í gær að mynda
nýja ríkisstjórn í Tékklandi en þá
kom nýkjörið þing saman í fyrsta
sinn. Þeir sögðust þó vongóðir um
að ná saman fyrr en seinna en mál-
ið strandar á ágreiningi um skipt-
ingu ráðuneyta.
Vaclav Klaus forsætisráðherra og
leiðtogi Borgaralega lýðræðisflokks-
ins (ODS) freistar þess að halda
völdum með minnihlutastjórn sömu
flokka og skipuðu fráfarandi stjórn
en hún missti þingmeirihluta í kosn-
ingum fyrir þremur vikum.
Klaus hafði einsett sér að ljúka
stjórnarmynduninni fyrir þingsetn-
ingar en það mistókst.
Jan Kalvoda, leiðtogi Lýðræðis-
sambandsins (ODA), sagðist bjart-
sýnn í gær á að stjórnarmyndun
tækist. Þeir Josef Lux, leiðtogi
Kristilegra demókrata, hafa Iagst
gegn því að flokkur Klaus fái meiri-
hluta ráðherra en þeir hafa sakað
hann um yfirgang í fyrra samstarfi
í krafti ráðherrameirihluta.
>
i
i
i
i
Gagnrýna Bandaríkin
vegna þróunaraðstoðar
Bonn. Reuter.
ÞJOÐVERJAR gagnrýndu í gær
Bandaríkin og önnur ríki er eiga
aðild að samtökum sjö helstu iðn-
ríkja heims (G7) og sögðu að ríkin
yrðu að axla byrðar vegna þróunar-
aðstoðar jafnt ef auka ætti stuðning
við fátækari ríki heims.
Fundur G7-ríkjanna hefst í Lyon
í Frakklandi í dag og sagði háttsett-
ur þýskur embættismaður í gær að
Þjóðveijar teldu það gagnrýnisvert
að nokkur iðnríkjanna ættu ógreidd
framlög til fjölþjóðlegra hjálpar-
samtaka.
Embættismaðurinn, sem vildi
ekki láta nafns síns getið, sagði
þýsk stjórnvöld andvíg hugmyndum
Frakka um að selja hluta af gull-
forða Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til
að aðstoða fátækustu þróunarríkin.
Skynsamlegra væri að auka fram-
lög frá iðnríkjunum.
Gagnrýndi hann Bandaríkin sér-
staklega og sagði þau skulda alþjóð-
legum peningastofnunum 1,5 millj-
arð dollara (rúma 100 milljarða
króna) í framlög. „Starfið á vett-
vangi sjö stærstu iðnríkja heims
gæti orðið undir miklum þrýstingi
ef við skiptum ekki byrðunum á
milli okkar á sanngjaman hátt,“
sagði hann. „Það felst ósamræmi í
því að telja sig vera forysturíki
heims en standa ekki við skuldbind-
ingar sínar.“
Embættismaðurinn lagði mikla
áherslu á að G7-hópurinn, sem
Bandaríkin, Japan, Þýskaland,
Frakkland, Bretland, Ítalía og
Kanada eiga aðild að, væru samtök
þar sem öll ríki væru jafnrétthá og
unnið væri samkvæmt þeirri reglu
að samstaða yrði að nást um mál.
Því gætu Þjóðveijar einungis
gagnrýnt Bandaríkin og beitt þau
þrýstingi.
Greiða minna en Japan
Samkvæmt nýjustu tölum Efna-
hags- og framfarastofnunarinanr
(OECD) veita Bandaríkin helmingi
minna til þróunaraðstoðar en Japan
og minna en bæði Frakkland og
Þýskaland.
Embættismaðurinn sagði mörg
rík iðnríki hafa dregið úr framlög-
um sínum á síðustu árum á sama
tíma og Þjóðverjar hefðu staðið við
allar sínar skuldbindingar þrátt fyr-
ir að hafa jafnframt orðið að taka
á sig kostnaðinn við sameiningu
Keutcr
FRANSKUR hermaður og varðhundur við bygginguna þar sem
leiðtogar sjö helstu iðnríkja heims koma saman til fundar i dag.
I
í
I
I
Þýskalands og enduruppbyggingu
austurhlutan.
Þá hefðu Þjóðveijar veitt miklu
ljármagni til uppbyggingar í Aust-
ur-Evrópu og fyrrum Sovétríkjun-
um.
Taldi hann ljóst að í auknum
mæli yrði að leita eftir stuðningi
frá ríkjum utan G7-hópsins, þar
sem að þau ríki serh nú greiddu
hvað mest til þróunarmála gætu
ekki aukið framlög sín verulega.
I
I