Morgunblaðið - 26.06.1996, Side 30

Morgunblaðið - 26.06.1996, Side 30
30 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ1996 31 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. BREYTINGAR A LÁNAMARKAÐI IRAUN hafa orðið gífurlegar breytingar á innlendum lánamarkaði á undanförnum misserum. Það er liðin tíð, að forstöðumenn lánastofnana sitji sem eins konar skömmtunarstjórar á fjármagni. Þess í stað auglýsa lánastofnanir eftir lántakendum og bjóða betri kjör, lengri lánstíma og lægri vexti, ef góðar tryggingar eru fyrir hendi eins og sjá má m.a. á síðum Morgun- blaðsins. Þetta er ekki breyting heldur bylting. Óhætt er að fullyrða, að þetta er í fyrsta skipti á lýðveldistímanum, sem svo er komið, að fjármagn er ekki skammtað á íslandi heldur stendur þeim til boða, sem hafa trygging- ar og sannanlega möguleika á að standa við skuldbind- ingar. Með þessari byltingu, sem hefur orðið á nokkrum síðustu misserum má segja, að eitt síðasta vígi skömmt- unarkerfisins sé fallið. í stað skömmtunar, sem oft og kannski oftast byggðist á persónulegum eða póli- tískum tengslum gilda nú lögmál hins fijálsa markað- ar á lánamarkaðnum. Fjármálastofnanir keppa nú jafnt um innlánsfé sem útlán. Skömmtunarkerfið á fjármálamarkaðnum átti áreið- anlega þátt í að beina fjármagni í óarðbærar fjárfest- ingar. Það kerfi gat gengið á meðan vextir voru nei- kvæðir og óðaverðbólgan greiddi lánin upp en sparifjár- eigendur sátu eftir með sárt ennið. Verðtrygging og háir raunvextir kipptu fótunum undan þessu kerfi og áttu umtalsverðan þátt í gjaldþrotum undanfarinna ára og miklum útlánatöpum bankanna. Lögmál hins fijálsa markaðar ríkja nú á fjármagns- markaðnum. Skömmtunarkerfið hefur að vísu skotið upp kollinum á nýjum sviðum, svo sem í úthlutun kvóta til fiskiskipa og sjónvarpsrása til sjónvarpsstöðva, svo að dæmi séu nefnd. Markaðskerfið á eftir að bijóta þessi skömmtunarkerfi niður eins og hin fyrri. EINANGRUN BRETA ÞAÐ VÆRI hæpið að kalla þá niðurstöðu er náðist í kúariðudeilunni við upphaf leiðtogafundar Evr- ópusambandsríkjanna um helgina sigur fyrir málstað Breta. Ákveðið var að aflétta banninu í áföngum en engar tímasetningar nefndar í því sambandi. Þriðju ríki geta sótt um það til framkvæmdastjórnarinnar að fá að flytja inn breskt nautakjöt og verða slíkar beiðnir af- greiddar í samráði við vísindamenn. Það má gera ráð fyrir, að það taki langan tíma þar til útflutningur á bresku nautakjöti hefst á ný og enn lengri tíma áður en eftirspurn verður eftir því á almenn- um neytendamarkaði. Deila þessi hefur haft alvarleg áhrif á stöðu breskra nautabænda en ekki síður á stöðu Breta innan Evr- ópu. Frá því í maí hafa bresk stjórnvöld fylgt þeirri stefnu að trufla starfsemi ESB og stöðva ákvarðanir í öllum málum þar sem þær verða að vera samhljóða. Engin dæmi eru um jafnróttækar aðgerðir í sam- starfi aðildarríkjanna síðustu þijá áratugi. Þrátt fyrir það hafa Bretar ekki náð fram kröfum sínum. Bresku stjórninni hefur hins vegar tekist að einangra Breta í Evrópusamstarfinu og æsa upp bresku þjóðina gegn vinaþjóðum sínum á meginlandinu. Ihaldsflokkurinn virðist staðráðinn í að láta næstu kosningar snúast um Evrópumálin þó svo að það gæti klofið flokkinn, skipt þjóðinni í tvær fylkingar og rekið fleig milli Bret- lands og annarra Evrópuríkja. Áður en kúariðudeilan kom upp voru háværar radd- ir innan ESB um að bíða með niðurstöðu á ríkjaráð- stefnunni þar til þingkosningar hefðu farið fram í Bretlandi. Eftir átök síðustu vikna má fastlega gera ráð fyrir að takmarkað tillit verði tekið til breskra sjónarmiða á ráðstefnunni og að Bretar eigi erfitt með að hafa áhrif á þróun ESB á næstu árum. PRESTASTEFNA Vona að ákvörð- un um starfslok stuðli að friði Olafur Skúlason biskup Islands segir í yfirlitsræðu sinni að hann muni láta af störfum eftir hálft annað ár OLAFUR Skúlason, biskup íslands, sagði í yfirlits- ræðu sinni við setningu prestastefnu að í kirkju- starfinu væri yfirleitt, og sem betur fer um landið allt, komið til móts við þarfir íbúanna eins og vera bæri, en þó hefði napur vindur gnauðað og sumir þess vegna fundið sig á ber- angri fjarri kirkjulegri vernd og hlífð. „Ég ætla ekki að rifja upp átök liðinna mánaða, svo fersk eru þau enn í huga, aðeins lýsa því hér yfir á prestastefnu svo sem ég hef iðulega gjört, að það hefur verið mér þyngri raun en orð fá túlkað, að vegna ásak- ana á mig hafa sóknarbörn horfið frá söfnuði sínum með því að segja skilið við þjóðkirkjuna. Að vísu eru aðrar ástæður líka tilgreindar, en það fer ekki milli mála, að ásakanir á hendur biskupi og óvægin umfjöllun svo meir líkist árásum en hlutlægri skoð- un, er í efstu rim skýringa á því hvers vegna fólk hefur snúið baki við kirkj- unni og söfnuði sínum. Það er ekki unnt að loka augum fyrir því að ýmis átök hafa gert boðunina tor- tryggilega," sagði Olafur. Hann sagði að senn yrði fagnað þúsund ára kirkjustarfi á Islandi, og spyija bæri þeirrar spurningar hvern- ig best mætti standa að verki svo að kynslóðir næsta árþúsunds fengju notið, og væri það verkefni presta- stefnunnar í ár. „En friður um fólk og friður í kirkj- unni er oft á tíðum forsenda þess að einhverju miði. Árið tvö þúsund á að hafa mikinn viðmiðunarþunga fyrir kirkjuna í heild sinni og íslenska þjóð, rétt eins og það hefur líka áhrif í sögu einstaklinga. Fæðingarár mitt til dæmis veldur því að ég gæti ekki verið í þjónustu kirkjunnar þetta stóra ár, og að öðru jöfnu mundi ég láta af embætti ári fyrr. Það sjá allir að ekki væri gott fyrir nýjan biskup að koma að hátíðahöldunum án þess að hafa hönd í bagga með undirbúningi og nokkrum aðdraganda. Ég hef því ákveðið að sækja um lausn frá emb- ætti mínu áður en aldursmörk gera skylt. Ég hyggst gegna embætti mínu í hálft annað ár enn, bæði til þess að geta sinnt ýmsum málum hér heima sem og á vegum Lúterska heimssambandsins, þar sem mér hef- ur verið falin nokkur ábyrgð, en þing þess verður haldið næsta sumar á fimmtíu ára afmæli samtakanna, auk þess sem fyrirhugaður er fundur nor- rænna biskupa að ári. Þá efa ég það heldur ekki að það mundi ekki farsælt að efna til bisk- upskosninga núna ofan í þá umræðu sem hefur verið undanfarið. Það skal líka viðurkennt að ásakanimar á hendur mér og ótrúlega neikvæð umfjöllun í sumum fjölmiðlum hefur haft sín áhrif. Þótti mér það sláandi dæmi um ástandið og stöðu mína að ekki virðist einu sinni hægt að und- irbúa forsetakosningar án þess að nafn mitt sé dregið inn í umræðuna með lítt þægilegum hætti. Vona ég að þessi ákvörðun mín um starfslok stuðli að friði innan vébanda kirkjunnar og utan hennar einnig. I þeim tilgangi fyrst og fremst er þetta skref stigið. Hef ég hugsað þetta nokkra hríð, en ætlaði ekki að tilkynna fyrr en síðar vegna tvö þús- und ára hátíðahaldana. En aðstæður breytast með umfjöllun, svo að ég kýs að greina frá þessu nú og hef Ein fjölmennasta prestastefna sem haldin hefur veríð hófst í gær með messu í Dómkirkjunni en setningarathöfn var í Digra- neskirkju að viðstöddum forseta íslands, Vigdísi Finnbogadóttur, og Þorsteini Pálssyni kirkjumálaráðherra. í ræðu sem biskup íslands, hr. Ólafur Skúlason, flutti við setningarathöfnina lýsti hann því yfír að hann hefði ákveðið að sækja um lausn frá emb- ætti áður en aldursmörk gerðu skylt og sagð- ist hann ætla að gegna embættinu í hálft annaðárenn,eðatilársloka 1997. tilkynnt kirkjumálaráðherra þessa ákvörðun mína,“ sagði Olafur. Aukin umfjöllun um kynferðislega áreitni Ólafur sagði fjölmiðlaöld setja mik- inn svip á samfélagið og móta það meir en menn kærðu sig um að viður- kenna. Hinn gagnrýni fjölmiðill væri nauðsynlegur, en á honum hvíldi mik- il ábyrgð. Sagði hann kirkjuna og kirkjunnar þjóna hafa orðið fyrir barðinu á þeirri tilhneigingu fjölmiðla að hafa meiri áhuga á að ala á spennu og benda á átök en að upplýsa. „Ég er ekki að afsaka, hvorki mig né aðra, með þessu þar sem við eigum oft sök á því að vindar hefjast og blása næstum því ailt um koll, en vegna þessa ættum við að sýna meiri varkárni en títt er gætt,“ sagði hann. Ólafur sagði að annað atriði sem einnig gjörbreytti stöðu prestsins væri aukin umfjöllun um kynferðis- lega áreitni og skýrari meðvitund um það i hveiju hún felst. „Það fer ekki milli mála að kyn- ferðisleg valdbeiting eða áreitni er eitthvert það ógeðfelldasta og ógeðs- legásta sem þjakar mannlegt samfé- lag. Kynferðisleg misnotkun barna veldur líka öllu heilbrigðu fólki mikl- um áhyggjum, enda vitum við að misnotkun bams, sérstaklega af nán- um ættingja eða þeim sem það hefur borið traust til, hefur áhrif allt lífið morgunuiauiu/ ovemr PRESTAR ganga hempuklæddir frá Menntaskólanum í Reykjavík til messu í Dómkirkjunni í gærmorgun þegar prestastefna hófst. og mótar títt afstöðu til fólks af gagn- stæðu kyni auk þess sem það mótar veruleikatúikun þess alla ævi. Kirkjunni ber því að koma slíku fólki til aðstoðar. Kirkjunni ber að sinna því ekki síður en þeim öðrum sem eiga við vandamál að stríða. Og vitaskuld eru ekki þjónar kirkjunnar undanskildir ábyrgð misstígi þeir sig á þessu vandrataða einstigi. Þessi mál eiga að hljóta umfjöllun án þess að vera borin á torg allt frá fyrstu stundu. Enda er vonlaust að unnt sé að græða, bæta og sætta eftir að fjölmiðlar hafa blásið og farið ham- förum. Og því má kirkjan heldur ekki gleyma, því mega prestar heldur ekki gleyma, að sá sem ásakaður kann að vera þjáist líka og getur liðið svo fyrir að líf verður aldrei samt aftur. Ékki aðeins hjá viðkomandi, heldur líka fjölskyldunni allri og vinahópi. Enda hefur yfirleitt verið gætt nafn- leyndar. Það hefur fram til þessa verið forðast að birta myndir þegar svona mál koma upp af tillitssemi við fjölskylduna og jafnvel þótt sekt sé sönnuð og viðurkennd. En vitanlega eru til undantekningar á slíkri var- færni eins og við ættum að hafa orð- ið vör við þessa síðustu mánuði,“ sagði Ólafur. Alvarleg og djúpstæð átök Þorsteinn Pálsson kirkjumálaráð- herra sagði í ávarpi sem hann flutti við setningu prestastefnu að erfiður vetur væri að baki og þjóðkirkja ís- lands hefði sennilega ekki á siðari árum gengið í gegnum jafnmiklar raunir. „Á undanförnum mánuðum hafa átt sér stað mjög alvarleg og djúp- stæð átök innan þjóðkirkjunnar. Þau hafa öðru fremur snúist um ávirðing- ar sem bornar hafa verið á biskup landsins og deilur milli prests og safn- aðarstjórnar í Langholtssókn. Ýmsir eru þó þeirrar skoðunar að hér sé fyrst og fremst um kennileiti að ræða og hin raunverulegu átök séu bæði dýpri og víðfeðmari. En á það legg ég ekki dóm. Hefur ekki viljað draga ríkisvaldið inn í málefnin Vandinn sem þjóðkirkjumenn standa frammi fyrir er hins vegar að þessi átök hafa veikt kirkjuna. Því verður seint trúað að það sé raunveru- legur vilji manna eða tilgangur. En hvað sem því líður hljóta menn nú að velta fyrir sér hvemig Ieiðin til nýrrar framtíðar verður best vörðuð svo takast megi að styrkja og efla kirkjuna á ný. Það er verkefni dags- ins. Og gleymum því ekki að kjölfest- an er traust þrátt fyrir ágjöfma," sagði Þorsteinn. Hann sagði menn hafa eðlilega velt því fyrir sér hvert eigi að vera hlutverk ríkisvaldsins þegar þjóð- kirkja landsins ætti við slíkan vanda að stríða sem raun hefði borið vitni á síðustu mánuðum. Ýmsir hefðu lát- ið að því liggja að rétt væri og eðli- legt að ráðuneyti kirkjumála blandaði sér í einstök deiluefni og reyndi að hafa áhrif með beinum fyrirmælum eða stjórnvaldsaðgerðum af öðru tagi. „í samræmi við lög landsins og grundvallarviðhorf sjálfs mín varð- andi stöðu kirkjunnar í þjóðfélaginu hef ég ekki viljað draga ríkisvaldið inn í þessi málefni. Fyrir því liggja mjög veigamikil rök. Fyrst og fremst er á það að líta í þessu sambandi að bregðist kirkjan því hlutverki að vera sinnar eigin gæfu smiður hljóta að vakna upp fjölmargar spurningar um gildi hennar og hlutverk. Stjómvalds- fyrirmæli úr ráðuneyti geta aldrei komið í stað þess sáttmála sem allt kirkjulegt starf hlýtur að vera reist á,“ sagði hann. Þorsteinn sagði að hann þættist vita að með þeirri ákvörðun sem Ólaf- ur Skúlason biskup hefði nú tilkynnt um að láta af embætti eftir hálft annað ár vildi hann hafa forystu um að sá friður skapist innan kirkjunnar sem nauðsynlegur er. „Það er von mín að aðrir fylgi þar á eftir þannig að erfiðleikarnir verði ekki meiri en orðnir eru. Þá getur verið framundan nýtt farsældartímabil í starfi kirkj- unnar og samskiptum ríkis og kirkju," sagði Þorsteinn Pálsson. * Oþolandi áburður réð ákvörðuninni ÓLAFUR Skúlason, biskup ís- lands, sagði í samtali við Morgun- blaðið að ákvörðun sín um að Iáta af embætti eftir hálft annað ár væri tekin að vandlega athuguðu máli og ekki sársaukalaust. Hann hefði hugsað sér að gegna emb- ættinu a.m.k. út árið 1998, en hann teldi að ekki hefði fengist friður með öðrum hætti. Ólafur sagði að í fyrradag hefðu komið saman á óformlegum fundi 20-30 trúnaðarmenn innan kirkjunnar þar sem hugmynd hans um að láta af embætti hefði verið rædd, og fyrstu viðbrögð þeirra hefðu verið að þetta kæmi ekki til mála. „Þegar þeir skoðuðu þetta frek- ar og mín sjónarmið voru flutt á þennan fund, en ég vildi ekki sitja hann sjálfur, þá gengust þeir inn á það margir hveijir með miklum semingi og vildu ekki að ég til- nefndi ákveðinn tíma. En mér þótti að ef ég segði ekki einhver tímamörk þá myndu menn segja að þetta væri bara út í loftið og að ég meinti ekkert með þessu,“ sagði Ólafur. Þijú mál hafa valdið boðaföllum Hann sagði að þrjú mál hefðu valdið þeim boðaföllum sem orðið hefðu innan kirkjunnar. Þar væri um að ræða svokölluð Seltjarnar- nes-, Hveragerðis- og Langholts- mál, en alls staðar hefði hann stað- ið að þessum málum innan ramma laga og kirkjulegrar hefðar. Ekk- ert af þessu hefði hins vegar orð- ið til að hrekja hann úr embætti, heldur hefði hinn gjörsamlega óþolandi áburður, sem hann hefði orðið fyrir, orðið til þess að hann hefði tekið ákvörðun um að láta af embætti að átján mánuðum liðnum. „Maður sem verður fyrir þeim ásökunum, sem ég hef mátt líða undir núna í hálft ár, hann er ekki samur maður. Ég hef lent í því að þurfa að kvíða fyrir hverj- um fréttatíma útvarps og sjón- varps og ég hef staðið mig að því að bíða eftir blöðum með skelf- ingu, ekki bara DV heldur Morg- unblaðinu stundum líka. Þetta gengur ekki, og þetta hefur geng- ið nærri mínu fólki. Ég á tvö börn í útlöndum og það hefur ekkert skort á það að það hefur verið settur á alnetið allskonar áburður um föður þeirra, og blöðin og fréttatilkynningar hafa verið nægjanlegar. Þannig að auðvitað er það þetta sem fyrst og fremst veldur þessu,“ sagði Ólafur. V andi blasir við Nefnd, sem samdi frum- varp um stöðu stjórn og starfshætti þjóðkirkj- unnar, hefur endurskoð- að ákvæði þess um stöðu biskups íslands. Breyt- ingamar vora kynntar og ræddar á presta- stefnu. Gréta Ingþórs- dóttir fylgdist með. Sr. Sigurður Sigurðarson Sr. Bolli Gústavsson Dr. Gunnar Krisljánsson FRUMVARP um stöðu, stjórn og starfshætti kirkjunnar var til umræðu á kirkjuþingi í gær. Dr. Gunnar Krist- jánsson, formaður nefndar þeirrar er samdi frumvarpið, gerði grein fyrir endurskoðun þess en biskup kallaði nefndina saman og fól henni að vinna samkvæmt samþykkt fulltrúaráðs- fundar Prestafélags íslands 15. apríl sl. um að endurskoðuð yrðu „ákvæði frumvarpsins um embætti biskups íslands I ljósi þess vanda sem biskups- þjónustan hefði staðið frammi fyrir á liðnum vikum,“ eins og sagði í álykt- un fundarins. Framsögu fluttu einnig vígslubiskuparnir sr. Bolli Kristjáns- son og sr. Sigurður Sigurðarson og á eftir voru umræður um frumvarpið. Dr. Gunnar Kristjánsson sagði að nefndin hefði orðið ásátt um megin- stefnu um yfirstjórn kirkjunnar sem viki talsvert frá lagafrumvarpinu sem kirkjuþing samþykkti sl. haust. Hann tók sérstaklega fram að nefndin hefði ekki lokið störfum heldur aðeins lagt meginlínur og stefnt væri að því að koma þeim í endanlegt form fyrir kirkjuþing í haust. Kirkjuþing kjósi sér forseta úr röðum leikmanna Ein meginbreytingin í tillögum nefndarinnar lýtur að kirkjuþingi og forsæti þess. Nefndin leggur til að sjálfstæði kirkjuþings verði aukið og það kjósi sér forseta úr röðum leik- manna, sem kalli þingið saman árlega og oftar ef þurfa þykir. í frumvarpinu var gert ráð fyrir að biskup væri for- seti kirkjuþings. Óbreytt er að biskup kallar saman prestastefnu og er for- seti kirkjuráðs. Gunnar sagði nefndarmenn að ein- um undanskildum sammála um að kirkjuþing kjósi sér sérstaka þriggja manna framkvæmdanefnd sem ætlað sé að undirbúa störf kirkjuþings, fylgjast með störfum fastanefnda og hafa eftirlit með framvindu mála sem afgreidd eru á kirkjuþingi. Hann seg- ir um grundvallarstefnubreytingu í skipulagi kirkjunnar að ræða sem komi til með að hafa veruleg áhrif í tvær áttir; annars vegar að efla lýð- ræði í stjórn kirkjunnar en hins vegar séu völd biskups afmörkuð og skil- greind með skýrari hætti en nú. Gunnar sagði nefndarmenn sam- mála um það nýmæli að kirkjuþing kysi í fastanefndir sem störfuðu ekki aðeins meðan þingið situr, eins og nú er, heldur væri þeim ætlað að starfa allt árið og undirbúa mál und- ir næsta kirkjuþing auk þess sem þeim væri ætlað að vinna úr málum frá kirkjuþingi á undan. Gunnar sagði nefndina sammálá um að leikmenn yrðu í greinilegum meirihluta á þinginu en þess í stað yrði leikmannastefna aflögð. Gunnar sagði nefndina ætla kirkju- ráði að verulegu leyti sama hlutverk og það hefði nú. Auk þess að það væri framkvæmdaaðili kirkjuþings gerði nefndin ráð fyrir að kirkjuráð yrði áfrýjunaraðili vegna almennra stjórnsýsluákvarðana lægra settra stjórnvalda kirkjunnar. Þá gerði nefndin ráð fyrir að kirkjuráð kysi stjórnir jöfnunarsjóðs og kristnisjóðs og sagði Gunnar það breytingu frá lagafrumvarpinu í haust. Gunnar gerði grein fyrir hlutverki biskups og sagði hann hafa nóg verk- efni. Óráðlegt væri að hlaða meiri ábyrgð og fleiri verkefnum á biskup en hann gæti með góðu móti sinnt. Hann sagði að skipulag kirkjunnar hlyti að taka mið af þörfum sam- tímans og þótt biskupsembættið væri rótfest í gömlum hefðum þá hlyti það einnig að taka breytingum með breyttum tímum. Á tímum vald- dreifingar væri hvorki viðeigandi né trúverðugt að allir þræðir valdsins innan kirkjunnar séu i höndum bisk- ups. Á hinn bóginn væri það heldur enginn ávinningur að gera biskups- embættið valdalaust. Gunnar fjallaði ekki um presta- stefnu enda hefði nefndin ekki fjallað um hlutverk hennar á fundum sínum í sumar. Áfrýjunarnefnd úrskurði um ágreiningsefni Gunnar sagði að í frumvarpinu frá sl. hausti væri gert ráð fyrir að aga- og ágreiningsmál væru á verkefna- sviði biskups íslands. Hann sagði nefndina hafa lagt þær meginlínur að biskup ætti að geta komið að aga- og ágreiningsmálum innan kirkjunnar sem sáttasemjari og sálusorgari, bæði presta og leikmanna. I samræmi við þetta hefði nefndin endurunnið og útfært betur hugmyndir sínar sem hún setti fram í fyrra. Þær gerðu ráð fyrir þremur stigum í lausn ágrein- ingsmála: Fyrst kæmu slík mál til kasta biskups, síðan gæti hann vísað þeim til úrskurðamefndar sem starf- aði á vegum embættisins en loks gæti hver málsaðila sem er vísað málinu til áfrýjunarnefndar sem skip- uð væri þremur löglærðum mönnum með réttindi til að vera hæstaréttar- dómarar auk tveggja annarra sem þeir kysu til starfa með sér hveiju sinni. Áfrýjunarnefnd væri ætlað að fella endanlega úrskurði í þeim mál- um sem til hennar væri skotið sem málsaðilum bæri að hlíta. Gunnar sagði hér um veruleg ný- mæli að ræða sem veittu áfrýjunar- nefnd heimild til að beita ákveðnum viðurlögum sem öllum bæri að hlíta sem hlut ættu að máli og lögmæltum kirkjuyfirvöldum væri lögð sú skylda á herðar að framfylgja endanlegum úrskurði. Annað nýmæli sagði Gunnar vera þá hugmynd nefndarinnar að setja á stofn kenningarnefnd þangað sem skjóta mætti ágreiningi um kenning- arleg efni. Vandinn blasir við í lokaorðum sínum rifjaði Gunnar upp af hvaða tilefni nefndin hefði verið kölluð saman: „ ... að endur- skoða ákvæði frumvarpsins um emb- ætti biskups íslands í ljósi þess vanda sem biskupsþjónustan hefur staðið frammi fyrir á liðnum vikum.“ Hann sagði að sá vandi hefði ekki verið skilgreindur sérstaklega á fundum nefndarinnar, enda hefði henni ekki verið falið að gera það. „Vandinn blasir við, þótt hann hafi ekki enn verið skilgreindur fræðilega," sagði Gunnar. Hann sagði að ætti vandi kirkjunn- ar á undanförnum mánuðum að ein- hverju leyti rætur sínar í úrræðaleysi hennar þegar um væri að ræða aga- og ágreiningsmál þá teldi hann að nefndin hefði sett fram tillögur sem leystu slík mál. „Það er þó aðeins einn hluti málsins. Skipulagið sjálft er annað mál; það þarf að losna úr álögum liðins tíma og taka mið af hugsun sem er löngu runnin þjóðinni í merg og bein, það er deiling á valdi þar sem hinir bestu eru kallaðir til ábyrgðar," sagði Gunnar. Biskupar verði þrír Sr. Bolli Gústavsson kynnti þá skoðun sína að ástæða væri til að** ræða um breytta stjórn kirkjunnar sem fælist jafnvel m.a. í því að emb- ætti biskups íslands yrði lagt niður og landinu skipt í þrjú stifti, Reykja- víkur-, Skálholts- og Hólastifti. Hann sagðist ekki halda þeirri skoðun fram að sinni að hverfa til hinnar upphaf- legu tveggja stifta skipunar af þeirri ástæðu að sú breyting næði sennilega seint fram að ganga. Hins vegar yrði mun auðveldara að koma á þriggja biskupa fyrirkomulagi eins og skipan mála væri nú. Sr. Bolli sagði þriggja biskupa kerfi væntanlega leiða til þeirrar róttæku breytingar að prestastefna legðist af í þeirri mynd sem nú er þegar öllum prestum væri stefnt saman árlega. Hvert stifti héldi þá sjálfstæða presta- stefnu að jafnaði, en með vissu ára- bili yrði að líkindum efnt til lands- stefnu presta. Raunar þætti tals- mönnum áhrifamikils kirkjuþings draga úr nauðsyn allsheijarstefnu allra presta í landinu. Sr. Bolli sagði eðlilegast að tengsl þjóðkirkjunnar við útlönd yrðu fyrst og fremst um biskupsstofu í Reykja- vík en þátttaka biskupanna í stjóm- unarstörfum yrði jöfn og þeir skiptu með sér ábyrgð og álagi ineð því já- kvæða aðhaldi og þeim heilbrigðá ' metnaði sem því fylgdi. Þannig yrði kjarni þeirrar nefndar eða ráðs bisk- upanna sem öllum aga og siðferðis- brotum starfsmanna íslensku þjóð- kirkjunnar yrði vísað til úrskurðar. Mikil vanþekking á málefnum kirkjunnar Sr. Sigurður Sigurðarson sagði í máli sínu m.a. mikið starf framundan í kirkjunni í mótun kirkjuréttar. í umræðu um málefni kirkjunnar sagði hann oft opinberast mikla vanþekk- ingu á skipan kirkjunnar og þeim rétti sem prestar teldu að þar yrði að ríkja. Þessi vanþekking fyndist víða, allt til Alþingis, eins og í ljós hefði komið í umræðunni um ráðning- arkjör presta þegar rætt var um frum- varpið um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins. í slíkri vanþekkingu fælist áminning til prófastanna en þó fyrst og fremst til biskupanna. Hitt málið sem væri áminning í sömu veru væri hinn mikli vandi embættis bisk- ups íslands nú undanfarið. Sigurður sagðist fullyrða að sá vandi væri að verulegu leyti skipulagsvandi. „Hann varð svo mikill sem raun bar vitni vegna þess að við gerðum okkur ekki grein fyrir stöðu embættis biskups Islands í kirkjuskipaninni fyrr en reyndi á það með nýju móti. Það hef- ur ekki verið skilgreint og mótað í samræmi við breyttar aðstæður," sagði sr. Sigurður. Hann sagði emb- ætti biskups íslands standa á ber- angri vegna þess að það vantaði ofan á það einvaldskonunginn og um leið formlegt kollegialt samhengi við aðra biskupa og prestana sjálfa. s

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.