Morgunblaðið - 26.06.1996, Síða 40

Morgunblaðið - 26.06.1996, Síða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ MINNIIMGAR + Vilborg Guð- mundsdóttir var fædd í Sjávargötu í Garði í Gerðahreppi 26. júní 1920. Hún lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 16. júní síðastliðinn. For- eldrar hennar voru hjónin Guðmundur Einarsson sjómaður (f. 21. ág. 1894, d. 17. júlí 1972) og Ses- „ selja Jónsdóttir hús- móðir (f. 11. febr. 1893, d. 19. júlí 1986). Þau lýón eignuðust þijú börn en þau voru Jón húsgagnasmiður í Keflavík (f. 3. des. 1918, d. 15. nóv. 1966), Vilborg, sem hér er minnst, og Þórunn Sigríður húsmóðir í Reykjavík (f. 13. jan. 1927). Vil- borg ólst upp hjá foreldrum sín- um og stundaði síðan nám í Húsmæðraskóianum að Hall- ormsstað. Einnig starfaði hún þar við sumarhótelið. Hún kom að austan haustið 1940 og vann í Lyfjabúðinni Iðunni. í dag kveðjum við tengdamóður mína, Vilborgu Guðmundsdóttur. Þótt hún hafí aldrei verið heilsu- hraust eftir að ég kynntist henni, kom skyndilegt andlát hennar okk- ur á óvart og söknuðurinn er mikill. Ég kom í fyrsta sinn á heimili hennar árið 1973 ásamt nokkrum öðrum ungum tónlistarmönnum til að spila kammermúsík með dóttur hennar. Þá var okkur útlendingun- um vel tekið og augljóst að hún hafði ánægju af nærveru okkar, - þótt tungumálaörðugleikarnir væru gagnkvæmir. Gestrisnin tók af all- an vafa - við vorum greinilega velkomnir. Sex árum síðar þegar ég tók að venja komur mínar til hennar og eiginmanns hennar, Halldórs, í fylgd Sesselju dóttur þeirra fékk ég hlýjar móttökur frá byrjun. Aldrei var hægt að merkja annað en það væri fullkomlega eðlilegt Árið 1944 giftist hún eftirlifandi eig- inmanni sínum, Halldóri Guðjóns- syni kennara (f. 28. sept. 1912). Þau eignuðust þijár dæt- ur: a) Hildi (f. 15. mars 1946) kennara. Hennar maður er Örn Ingvarsson verkfræðingur. Eiga þau þrjú börn: Kristínu, Halldór og Ingvar; Kristín (f. 16. júlí 1966) er kennari og gift Ág- ústi Guðmundssyni rafeinda- virkja. Þau eiga synina Örn og Eyþór. b) Sesselju (f. 25. feb. 1951) víóluleikara. Hún er gift Daða Kolbeinssyni óbóleikara. Þau eiga tvö börn, Kolbein Tuma og Gunnhildi. c) Guðrúnu (f. 16. mars 1957) fóstru, sem er gift Magnúsi Gíslasyni reiknifræð- ingi. Þau eiga Gísla og Vilborgu. Vilborg verður jarðsungin frá Áskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. að dóttir þeirra væri í tygjum við útlending, sem bæði talaði bjagaða íslensku og fór í pils við hátíðleg tækifæri. Stuttu eftir að við Sessa hófum sambúð var hún rokin vetrarlangt til Þýskalands og ég sat vængbrot- inn eftir. Þá kom best í ljós hvern- ig Vilborg sá um sitt fólk. Ekki kom annað til greina en ég borðaði hjá þeim hjónum oft í viku, kæmi í kaffi hvenær sem ég vildi og auk þess krafðist hún þess að fá að sjá um þvottinn minn. Eftir nokkurra ára einyrkjabúskap þótti mér þetta óþarfa dekur, en svona var Vil- borg. Nú tilheyrði ég hennar fjöl- skyldu og fékk því að njóta um- hyggju hennar og hlýju. Seinna þegar börnin okkar fædd- ust var hún boðin og búin að að- stoða okkur við uppeldi þeirra; hún gætti Tuma fyrsta árið og þegar Gunnhildur fæddist fékk hún líka sinn skerf af ást og umhyggju ömmu sinnar. Vilborg sinnti sínu heimili af alúð, en stýrði líka barna- uppeldinu á heimilum dætra sinna - með áhuga og hlýju - án þess að við tækjum eftir því. Hún sá ekki sólina fyrir barnabörnunum sínum og taldi það sitt lán í lífinu að fá að hafa þau undir sínum verndarvæng. Þau vildu líka heim- sækja ömmu og afa í Hamrahlíð sem oftast, enda móttökurnar alltaf hlýjar, góðgæti snarlega borið á borð og einlægur áhugi þeirra á krökkunum auðfundinn. Vilborg var alltaf til taks fyrir okkur ef á þurfti að halda; núna síðast í febrúar fluttu þau Halldór á Hólavallagötuna í þijár vikur meðan við hjónin vorum erlendis. Þá blómstruðu börnin og blómin tóku vaxtarkipp. Hún var óendan- lega dugleg að hvetja til góðra verka og hrósa fyrir það sem vel var gert. Það hefur haft sín góðu áhrif á barnabörnin, sem kepptust um að gera henni allt til hæfis. Hún var gjafmild og reyndar svo örlát að okkur þótti oft nóg um. Vilborg hafði ánægju af tónlist og sótti tónleika seinni árin og fylgdist með öllu okkar starfi af miklum áhuga. Hún las líka mikið, sérstaklega ævisögur og ljóð og hafði gaman af að spá í þjóðmálin. Við skemmtum okkur við að kljást um forsetaframbjóðendurna; hún vissi hvern hún ætlaði að kjósa, sama hvað við myndum gera og tók mig ekki of hátíðlega þegar ég gerði grín að öllu saman. Vilborgu vil ég sérstaklega þakka elskulegheit við aldraða móður mína frá Skotlandi, sem oft hefur heimsótt okkur og ævinlega verið látin finna að hún væri hjart- anlega velkomin í Hamrahlíð, þótt hún talaði ekki íslensku og Vilborg litla ensku. Einhvern veginn skildu þær hvor aðra á samblandi af dönsku, íslensku og ensku, því að þær áttu sameiginleg áhugamál: barnabörnin, tónlist og trú á það góða í veröldinni. Þótt ekkert land jafnaðist á við Island í augum Vilborgar hafði hún gaman af að ferðast til útlanda. Mér finnst gott að minnast þess að þegar við fórum öll saman til Skotlands fyrir nokkrum árum og síðan til Danmerkur síðastliðið sumar var sólskin hvem einasta dag í báðum ferðunum. Þær voru hlýjar og bjartar eins og allar minn- ingar mínar um Vilborgu tengda- móður mína. Daði Kolbeinsson. Mér er það minnisstætt hve Vil- borg tók mér strax hlýlega og nota- lega þegar ég sem stráklingur renndi hýru auga til elstu dóttur- innar og tók að venja komur mínar á heimili þeirra hjóna Halldórs og Vilborgar. Eins og hendi væri veif- að var ég orðinn einn af fjölskyld- unni. Við Hildur byijuðum búskap okkar í einu herbergi hjá þeim í Hamrahlíð 11. Elsta dóttur okkar, Kristín, ólst að miklu leyti upp hjá afa og ömmu fram til 11 ára aldurs. Vilborg var heimavinnandi hús- móðir. Fjölskyldan átti hug hennar allan. Umhyggja hennar við dætur, tengdasyni, barnabörn og barna- barnabörn var einstök. Heimili þeirra hjóna var yndislegur friðar- staður, svo ólíkt þreyttu og tæt- ingslegu fjölskyldulífi í dag, þar sem báðir foreldrar vinna langan vinnudag utan heimilis. í veikind- um móður sinnar tók Vilborg hana til sín og annaðist hana í 30 ár. Þau Vilborg og Halldór bjuggu á menningarheimili, hún hafði yndi af tónlist og ljóðum og hann sí- grúskandi í fræðibókum. Ef ein- hvers staðar er að fínna grasrót íslensks menningarsamfélags þá er það í heimilislífi eins og þessu. Vilborg var listakokkur og bak- ari. Ekki var haldin nein sú veisla í fjölskyldunni að hún ætti ekki megnið af kökunum. Ósjaldan höf- um við notið veislumáltíðar hjá henni og enginn matur kemst nær hjarta mínu en fiskibollurnar henn- ar. Því verður ekki með orðum lýst hve óvænt fráfall Vilborgar tekur okkur öll sárt. Sérstaklega biðjum við góðan Guð að styrkja og styðja hann Halldór. __ Orn Ingvarsson. í bernskuminningunni er alltaf gott veður vegna þess að þannig viljum við hafa það. Við andlát Dúu frænku leita minningar heillar ævi á og alls staðar er hún nálæg, blíð og elskuleg, hvort sem setið er undir vegg suður í Garði hjá afa og ömmu í gamla daga eða haldið upp á viðburð í faðmi fjölskyldunn- ar nú í vor. í hugann kemur fram mynd Dúu frænku þar sem hún spyr þá sem hún nefndi jafnan elsku frændur sína hvernig þeim gangi og hvernig þeim líði . En ólíkt veðrinu í æsku sem fegra þarf í huganum er endurminningin um Dúu frænku tær, hún var góð kona. Þær móðir okkar og Dúa frænka voru óvenju samrýndar systur og féll aldrei skuggi á nær daglegt samband þeirra alla ævi. Ekki vit- um við hvort þeim varð nokkru sinni sundurorða svo teljandi væri, hitt er víst að aldrei gekk sól til viðar á minnsta ósætti þeirra á milli. Dúa var eldri og fór að búa í Reykjavík þegar Tóta, móðir okk- ar, var rétt um fermingu. Hún steig síðar fyrstu skref sín í höfuðstaðn- um undir verndarvæng eldri systur sinnar er hún bjó veturlangt hjá þeim Dúu og Halldóri, fyrst á Ei- ríksgötu og síðar í Hamrahlíð 11. Þangað komum við bræður oft gegnum árin, því svo nánar sem systurnar voru varð samgangur fjölskyldnanna eðlilega mikill. Jól voru haldin sameiginlega, á að- fangadagskvöld var farið í Hamra- hlíð en á jóladag var komið saman á heimili okkar, enda bjó amma Sesselja lengst af á vetrum hjá Dúu og Halldóri og afi kom í bæinn um hátíðir. Sennilega var það í upp- hafi kveikjan að sameiginlegu jóla- haldi, en siðurinn hefur haldist alla tíð. Tilefnin að hittast hafa orðið mörg og engin tilviljun að dætur Dúu og Halldórs hafa jafnan verið okkur bræðrum sem systur fremur en frænkur. Fyrir allt þetta og miklu meira en kemst á blað í stuttu máli viljum við þakka Dúu frænku okkar að leiðarlokum. Yfír minningu hennar er mikil heiðríkja. Við sendum Halldóri, Hildi, Sesselju og Guð- rúnu og fjölskyldum einlægar sam- úðarkveðjur í sorg þeirra. Blessuð sé minning Vilborgar Guðmunds- dóttur. Hafliði, Guðmundur og Ingólfur. VILBORG GUÐMUNDSDÓTTIR + Sveinn Þórarinn Sigurðsson var fæddur á Steinum undir Eyjafjöllum hinn 23. nóvember 1905. Hann lést á Sjúkrahúsi Vest- mannaeyja 11. júní siðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Jónína Sigur- björg Jónsdóttir húsmóðir, f. 8. maí 1884, d. 16. nóvem- ber 1963, og Sigurð- ur Bergsson bóndi, f. 19. nóvember ^ 1880, d. 27. ágúst 1943. Systkini Sveins voru Tómas Eiías Sig- urðsson, f. 30. mars 1914, d. 26. janúar 1994 og Elínborg Dagm- ar Sigurðardóttir, f. 6. septem- ber 1915, d. 9. júlí 1991 Hinn 27. maí 1948 kvæntist Sveinn eftirlifandi eiginkonu sinni Guðrúnu Helgu Gísladótt- ur, frá Lambhaga á Rangárvöllum, f. 28. desember 1915. Börn þeirra: 1) Gisli Leifur Skúlason, sonur Helgu, fóstur- sonur Sveins, f. 20. desember 1944, fórst með vélbátnum Skuld 10. júlí 1980. 2) Jónina Sigur- björg, f. 1949. 3) Þóranna, f. 1950, maki Haraldur Magnússon, f. 1953, þau eiga fimm börn. 4) Valgerður, f. 1951, maki Björn Eyberg As- björnsson, f. 1951, þau eiga fjög- ur börn. 5) Sigurður, f. 1956, maki Hrönn Agústsdóttir, f. 1954, þeirra börn eru þijú. Utför Sveins fór fram í kyrr- þey frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum 21. júní síðastlið- inn. Mig langar til að kveðja kæran tengdaföður minn með nokkrum fátæklegum orðum. Þegar ég kom fyrst á heimili tengdaforeldra minna fyrir um tuttugu árum, var eftirvæntingin vissulega kvíða- blandin, eins og oft er þegar maður er að hitta einhvern í fyrsta skipti. En sá kvíði hvarf eins og dögg fyr- ir sólu, því Sveinn og Helga tóku á móti mér eins og þau hefðu þekkt mig alla ævi. Þar upphófst vinátta sem aldrei hefur borið skugga á. Sveinn flutti til Vestmannaeyja árið 1911, þá sex ára gamall, ásamt foreldrum sínum. Að lokinni hefð- bundinni skólagöngu þess tíma fór hann að draga björg í bú og vann hin ýmsu störf, var í kaupavinnu og stundaði sjó. Sveinn var bílstjóri á Bílastöð Vestmannaeyja um tíu ára skeið, vann hjá ísfélagi Vest- mannaeyja fram að eldgosinu í Heimaey og eftir það hjá Vest- mannaeyjabæ til sjötíu og sex ára aldurs. Sveinn og Helga giftu sig 1948, hann var þá fjörutíu og tveggja ára en Helga þrjátíu og tveggja. Helga átti fyrir soninn Gísla Leif þá fjög- urra ára og tók Sveinn honum sem sínum eigin syni og reyndist honum alla tíð vel. Fyrstu búskaparárin bjuggu þau að Efra-Hvoli hjá for- eldrum Sveins, en síðan flutti fjöl- skyldan á Brekastíg 31, þar sem þau hafa búið alla tíð síðan. Sveinn var orðinn sjötugur þegar við kynntumst, en þau fjörutíu og fímm ár sem á milli okkar voru, voru ekki nein hindrun í okkar sam- skiptum. Við gátum rætt um heima og geima og ekki minnist ég þess að okkur hafi orðið sundurorða. Sveinn var mikill fjölskyldumað- ur og barnabömin og barnabarna- börnin áttu hug hans allan og alltaf virtist honum líða best þegar hann var umkringdur fjölskyldu sinni, enda sóttu börnin mikið til afa og ömmu á Brekó, eins og við kölluðum þau. Árið 1980 gerðist sá hörmulegi atburður að Gísli Leifur, fórst með vélbátnum Skuld og tók sá atburður mikið á tengdaforeldra mína sem og fjölskylduna alla. Sveinn var svo gæfusamur að geta eytt elliárunum á heimili sínu með konu sinni allt fram á síðasta dag. Hann las mikið og horfði á sjónvarp, enda sjón og heyrn hvort tveggja í góðu lagi. Ég vil að lokum þakka Sveini allar góðu stundirnar og vináttuna sem aldrei bar skugga á. Elsku Helga mín, missir þinn er mestur, en ég veit að minningin um góðan eiginmann og föður gerir missinn léttbærari. Far í friði, kæri vinur. Við sökn- um þín öll. Björn Eyberg Ásbjörnsson. Elsku afi minn er dáin og ég á eftir að sakna hans mikið en ég er þakklát fyrir allar þær góðu minn- ingar sem ég á um hann. Fyrstu árin mín ólst ég upp á Brekó hjá afa og ömmu og hefur mér alltaf þótt ákaflega gott að vera þar. Afi átti skúffu sem var í miklu uppáhaldi hjá barnabörnunum vegna þess að hún framleiddi græn- an Tópas að því er ég hélt og gaf afi leyfi til þess að fara í skúffuna. Mér þótti alltaf svo vænt um þegar afi kallaði mig Björkina sína og það var hvergi betra að sofa en í holunni minni hjá afa og ömmu. Það kom aldrei fyrir að maður kæmi að læstu húsi á Brekó, þó amma væri ekki heima var afa allt- af hægt að finna einhvers staðar í húsinu. Ef hann var ekki í sófanum inni í stofu þá var hann annað hvort að lesa inni í litla herbergi eða sat með kaffibolla í eldhúsinu við gluggann. Þegar úti var sól og blíða sat hann úti bak við hús. Það verður skrýtið að geta ekki fundið afa á stöðunum sínum á Brekó. Og elsku amma, missir þinn er mikill og bið ég góðan Guð að gefa þér styrk í sorg þinni. Ég trúi á Guð, þó titri hjartað veika og tárin blindi augna minna ljós, ég trúi, þótt mér trúin finnist reika og titra líkt og stormi slegin rós, ég trúi, því að allt er annars farið og ekkert, sem er mitt, er lengur til, og lífið sjálft er orðið eins og skarið, svo ég sé varla handa minna skil. Ég trúi á Guð. Ég trúði alla stund, og tár min hafa drukkið Herrans ljós og vökvað aftur hjartans liljulund, svo lifa skyldi þó hin bezta rós. Já, þó mér sífellt svíði dreyrug und, skal sál mín óma fram að dauðans ós; „Ég trúi“. Þó mig nísti tár og tregi, ég trúi á Guð og lifi, þó ég deyi. (M. Joch.) Ég mun lifa með minningunni um þann besta afa sem ég gat hugsað mér. Helga Björk. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski- legt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínu- bil og hæfilega llnuleng — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, SVEINN GUÐMUNDUR ÁKI KRAGH fyrrverandi stöðvarstóri, andaðist á dvalarheimili aldraðra í Seljahlíð, Reykjavík, mánudag- inn 24. júní. Sigríður Kragh, Þorsteinn Ingi Kragh, Ellen Ingvadóttir, barna- og barnabarnabörn. SVEINN ÞORARINN SIGUÐSSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.