Morgunblaðið - 04.07.1996, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B/C
149. TBL. 84. ÁRG. FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Um 67% kjörsókn í seinni umferð f or setakosninganna í Rússlandi
Orugg forysta Jeltsíns
eftir stórsigra í austri
Forsetinn hafði
14% forskot á
frambjóðanda
kommúnista
þegar helmingur
atkvæða hafði
verið talinn -
Bill Clinton seg-
ir kosningarnar
sigur lýðræðisins
í Rússlandi
Moskvu. Reutcr.
KOSNINGASPÁR, sem birtar voru
undir miðnætti í gærkvöldi, bentu til
þess að Borís Jeltsín Rússlandsfor-
seti myndi bera sigur úr býtum í
seinni umferð forsetakosninganna
sem fram fóru í Rússlandi í gær.
Samkvæmt tölum sem birtar voru
kl. 23 þegar um 65% atkvæða höfðu
verið talin var Jeltsín með 54,55%
atkvæða, Gennadí Zjúganov, fram-
bjóðandi kommúnista, með 39,44%
en 5,09% voru andvíg báðum. Kjör-
sókn var áætluð rúm 67% en menn
Jeltsíns höfðu óttast mjög afleiðingar
þess ef hún næði ekki 60%. Bill Clin-
ton Bandaríkjaforseti sagði í gær-
kvöldi að forsetakosningarnar í
Rússlandi væru „sigur fyrir lýðræð-
ið“. Þær sýndu hversu langt pólitísk-
ar umbætur síðustu fimm ára hefðu
borið Rússa og að kosningarnar
væru sögulegur áfangi eftir að Rúss-
ar hefðu um aldir verið undir stjórn
keisara og lotið kúgun kommúnis-
mans.
Þótt úrslit lægju ekki fyrir ríkti
fögnuður í herbúðum Jeltsíns og
skáluðu stuðningsmenn forsetans í
kampavíni. Fulltrúar kommúnista
voru þungir á svip í sjónvarpsvið-
tölum en lögðu áherslu á að úrslitin
yrðu virt.
Búist var við að forskot forsetans
myndi minnka nokkuð er tölur tækju
að berast úr „Rauða beltinu" svo-
nefnda, landbúnaðar- og iðnaðar-
svæðum í mið- og suðurhluta Rúss-
Reuter
BORÍS Jeltsín kaus ekki í úthverfi Moskvu eins og búist hafði verið við, heldur í þorpi einu skammt frá höfuðborginni. Þar voru einung-
is viðstaddir opinberir ljósmyndarar og myndatökumenn og var myndefninu dreift skömmu síðar, eftir að það hafði verið klippt. - Starfs-
kona kjörsljórnar færir kjörkassa til svo hin 86 ára gamla Pelageja Sjúravleva eigi hægara um vik að koma kjörseðlinum á sinn stað.
lands sem eru sterkustu vígi komm-
únista. Til mótvægis við það var
bent á að enn væru ótalin atkvæði
í stærstu borgum landsins í vestur-
hlutanum þar sem Jeltsín forseti
nýtur yfirburðafylgis.
Yfir 105 milljónir manna voru á
kjörskrá í 89 héruðum og var talið
að allt að 70 milljónir manna hefðu
gengið að kjörborði. í fyrri umferð
kosninganna var kjörsókn um 70%
en fréttaskýrendur höfðu bent á að
hún þyrfti minnst að vera 60% í síð-
ari umferðinni til að forsetinn gæti
talist öruggur um endurkjör.
- Fyrstu tölur í gær bentu til þess
að forsetinn fengi 52% atkvæða á
móti 41% Zjúganovs en að um 6%
kjósenda vildu hvorugan. Sérstakur
reitur var á kjörseðlinum fyrir þá sem
vildu láta óánægju sína í ljós með
þeim hætti. Á meðal þeirra sem nýttu
sér þann möguleika, voru Míkaíl
Gorbatsjov, fyrrverandi leiðtogi Sov-
étríkjanna, og þjóðernissinninn Vlad-
imír Zhírínovskíj.
Ánægja hjá NATO og ESB
Hjá Atlantshafsbandalaginu og
Evrópusambandinu vörpuðu menn
öndinni léttar í gærkvöldi og lýstu
embættismenn hjá hvoru tveggja
yfir ánægju með það að allt benti
til sigurs Jeltsíns. Hann væri „þekkt
stærð“ og endurkjör hans þýddi að
litlar breytingar yrðu á samskiptun-
um við Rússa, sem væri af hinu góða.
Svo virðist sem kjósendur hafi
ekki látið fréttir af bágu heilsufari
forsetans hafa áhrif á sig enda var
þeim lítt sinnt bæði í einkafjölmiðlum
og hinum ríkisreknu. Jeltsín kaus í
litlu þorpi skammt frá Moskvu og
voru einungis viðstaddir opinberir
ljósmyndarar og myndatökumenn.
Virtist forsetinn stífur í hreyfingum
en þó mun betur á sig kominn en í
sjónvarpsávarpi sem sýnt var á
mánudag.
Kosningar fóru vel fram
Alþjóðlegir eftirlitsmenn sögðu
kosningarnar hafa farið vel fram.
Kosningastjóri Zjúganovs, Valentín
Kuptsov, tók undir þessi orð, þrátt
fyrir að hann segði nokkur einstök
dæmi um að illa hefði verið staðið
að kjöri. Sagði hann kommúnista
myndu taka úrslitunum með ró, hver
sem þau yrðu. Háttsettur félagi í
kommúnistaflokknum gerði í gær-
kvöldi lítið úr yfirvofandi tapi Zjúg-
anovs, sagði að kommúnistar myndu
reka öfluga stjórnarandstöðu sem
enginn valdhafi gæti horft framhjá.
A meðal þeirra staða þar sem
brotalöm var á framkvæmd kosning-
anna var Tsjetsjníja. Áttu erlendir
fréttamenn til dæmis auðvelt með
að greiða atkvæði, starfsmenn kjör-
staða afhentu þeim kjörseðil orða-
laust eftir að þeir höfðu sýnt skilríki
sem sýndu afar greinilega að þar
væru útlendir menn á ferð.
Kváðust nokkrir fréttamannanna
hafa greitt atkvæði oftar en einu
sinni en í öll skiptin ógilt atkvæðið
með einum hætti eða öðrum til þess
að hafa ekki áhrif á úrslit forseta-
kjörsins. Heimamenn gátu kosið oft-
ar en einu sinni með því að fara
milli kjörstaða og rita nafn sitt á lista
yfir „viðbótarkjósendur".
Útiloka ekki
kommúnista í sljórn
Fylgismenn Jeltsíns útilokuðu í
gær samsteypustjóm með kommún-
istum, sem ráða lögum og lofum á
þinginu, héldi forsetinn velli í kosn-
ingunum. Þeir sögðu hins vegar vel
mögulegt að einstaka flokksmenn
fengju sæti í ríkisstjórninni, rétt eins
og aðrir þingmenn, enda væru
mannabreytingar í stjórninni nauð-
synlegar.
Bjóða stuðning fyrir sljórnarsetu
Ankara. Reuter.
SÁ flokkur, sem er yst á hægri
vængnum í tyrkneskum stjómmál-
um, hefur sett ríkisstjóm heittrúar-
manna og Sannleiksstígsins það skil-
yrði fyrir stuðningi sínum að flokk-
urinn fái aðild að stjóminni. Búist
er við að greidd verði atkvæði um
traustsyfirlýsingu við stjómina í
byijun næstu viku en allt að þrjátíu
þingmenn Sannleiksstígsins hafa
Stefnuskrá Erbakans hliðholl Vestur-
löndum og markaðsöflum
hótað að sitja hjá við þá atkvæða-
greiðslu.
Enginn friður hefur verið í flokki
Tansu Ciller, Sannleiksstígnum, frá
því að hún ákvað að ganga til stjórn-
arsamstarfs við Velferðarflokk heit-
trúarmanna og hafa sjö þingmenn
sagt sig úr flokki hennar. Stjórnin
hefur aðeins tíu sæta meirihluta á
þingi og hefur því leitað stuðnings
Sameiningarflokksins, sem er yst á
hægri vængnum.
Necmettin Erbakan, nýskipaður
forsætisráðherra landsins, kynnti í
gær stefnuskrá stjómar sinnar. í
ræðu sem Erbakan hélt í þinginu lagði
hann áherslu á baráttuna við verð-
bólgu og nauðsyn þess að auka hag-
vöxt. Þá sagði hann að stefna bæri
að aukinni einkavæðingu, niðurskurði
á opinberum útgjöldum og góðum
tengslum Tyrkja við Vesturlönd.
Bildt fundar með
Milosevic
Karadzic
býður sig
ekki fram
Belgrad, Sanijevo. Reuter.
CARL Bildt, sem stýrir alþjóð-
legu uppbyggingarstarfi í Bos-
níu, átti í gær fund með
Slobodan Milosevic, forseta
Serbíu, þar sem þeir ræddu
kosningar í september og með
hvaða hætti skilyrði, sem sett
eru í friðarsamkomulaginu um
Bosníu, séu uppfyllt. Neitaði
Bildt að ræða við blaðamenn
að fundi afloknum.
Serbneska fréttastofan
SRNA fullyrti í gær að Rado-
van Karadzic, forseti Bosníu-
Serba, hefði ákveðið að fara
ekki fram í kosningunum sem
haldnar verða í september,
þrátt fyrir að flokksmenn hans
hafi þrýst mjög á um það.
Bosnfu-Serbar meina
fmnskum sérfræðingum að-
gang að líkamsleifum múslima
við borgina Srebrenica. Tals-
menn Sameinuðu þjóðanna
segja Bosníu-Serba hafa sagst
styðja rannsóknina en nú sé
annað uppi á teningnum. Þeir
hafí ekki gefið leyfi fyrir rann-
sókninni og neiti að tryggja
öryggi sérfræðinganna.
■ Nýjar refsiaðgerðir/22