Morgunblaðið - 04.07.1996, Síða 23

Morgunblaðið - 04.07.1996, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ ____________________________________FIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1996 23 ERLEIMT Efasemdir magnast um heilsu forsetans Borís Jeltsín Rússlandsforseti virtist stífur í hreyfíngum er hann mætti á kjörstað í gærmorgun og óstaðfestar heimildir hermdu að veikindi hans kynnu að vera alvarlegri en haldið hefði verið fram. Moskvu. Rcuter. BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands, greiddi atkvæði í kosningunum í gærmorgun en gekk ekki á kjörfund í úthverfi Moskvu þar sem safnast höfðu saman ljósmyndarar og frétta- menn. Þess í stað nýtti forsetinn sér kosningaréttinn í þorpi einu skammt frá höfuðborginni. Þar voru einungis viðstaddir opinberir ljósmyndarar og myndatökumenn og var því myndefni dreift skömmu síðar eftir að það hafði verið klippt. Búist hafði verið við því að Jeltsín gengi á kjörfund í einu af glæsileg- ustu hverfum Moskvu þar sem fyrir- fólk heldur gjarnan til og hafði múg- ur og margmenni komið þar saman til að sjá forsetann og mynda en hann hefur ekki sést opinberlega í tæpa viku. Pjölmiðlamenn höfðu ver- ið fluttir í fjórum rútum á kjörstað en eftir tveggja klukkustunda bið var síðan frá því skýrt að Jeltsín hefði kosið í þorpinu Barvíkha, skammt frá Moskvu þar sem er að fínna fjölda stjórnarbygginga. Engin skýring var gefín á því hvers vegna forsetinn hefði haldið sig ijarri höfuðborginni. Ákall til kjósenda Skömmu síðar dreifðu yfirvöld í Kreml sjónvarpsmyndum hvar sást er forsetinn mætti á kjörstað, af- henti vegabréf sitt og fékk kjörseð- ilinn í hendur. Forsetinn brosti og flutti síðan stutt ávarp þar sem hann hvatti rússnesku þjóðina til að nýta sér kosningaréttinn. Hann þótti skýr- mæltur þó svo nokkur orð virtust vefjast fyrir honum. „Allir, bókstaf- lega allir, verða að mæta á kjörstað. Gerið skyldu ykkar!“ sagði forsetinn. Góð kjörsókn var talin geta tryggt sigur Jeltsíns en hún var um 70% í fyrri umferð forsetakosninganna, sem fram fór 16. fyrra mánaðar. Jeltsín skýrði þá ákvörðun sína að kjósa ekki í höfuðborginni með því að hann hefði nú þegar í ár varið rúmlega tvöfalt meiri tíma til að ræða við fjölmiðla en ráð hefði verið fyrir gert. Virtist hressari Forsetinn virtist stífur og til þess var tekið að hann hefði hreyft vinstri Reuter BORÍS Jeltsín greiðir atkvæði í Barvíkha, skammt frá Moskvu þar sem komið hafði verið upp kjörstað fyrir hann. Einungis voru viðstaddir op- inberir ljósmyndarar. handlegg sinn með einkennilegum hætti. Glott var á vörum forsetans og hann rétti upp aðra höndina sem er sködduð frá því er handsprengja sprakk í henni er Jeltsín var barn að aldri. Vakti þetta athygli því Jelts- ín hefur heldur þótt reyna að leyna því að hann er maður örkumla. Síðar var dreift lengra myndskeiði sem tekið var frá öðru sjónarhomi og virtist forsetinn þá mun léttari í hreyfingum. Jeltsín þótti almennt líta mun betur út en á sjónvarpsupptöku þeirri sem dreift var á mánudag. Þar þótti forsetinn einna helst minna á múmíu, virtist lífvana og stífur sem eikardrumbur, og kviknuðu miklar vangaveltur, einkum á Vesturlöndum, um að hann hefði á ný veikst alvar- lega en Jeltsín þurfti tvívegis að taka sér leyfi vegna hjartveiki í fyrra. Talsmenn og undirsátar forsetans héldu uppteknum hætti í gær og lýstu yfir því að ekkert alvarlegt amaði að Jeltsín. Hann hefði kvefast illa og þjáðist af þreytu. Þótti ýmsum fréttaskýrendum það tæpast undrun- arefni miðað við þá stífu og krefj- andi dagskrá sem einkenndi kosn- ingabaráttu hans síðustu vikurnar en Jeltsín er 65 ára og harðfullorðinn maður á rússneskan mælikvarða. Veikindin alvarleg? Bandaríska dagblaðið The Wash- ington Post kvaðst í gær hafa fyrir því heimildir að Jeltsín hefði um síð- ustu helgi dvalist á hyíldarheimili í ríkiseigu og hefði fjölskylda hans ein fengið aðgang að forsetanum. Eng- inn af aðstoðarmönnum hans hefði fengið að ræða við Jeltsín að undan- skilinni dóttur hans, Tatjönu Díjatsj- enko, sem unnið hefur að endurkjöri föður síns. Sögðu heimildarmenn blaðsins, sem kröfðust nafnleyndar, að veikindi forsetans virtust alvar- legri en haldið hefði verið fram af hálfu yfírvalda í Kremi. Reuter Zjúganov sigurviss FORSETAEFNI kommúnista, Gennadí Zjúganov, veifar til stuðningsmanna sinna í gær eftir að hafa greitt atkvæði í Moskvu. Hann sagði að Vesturlandabúar ættu ekki að óttast sig „og það gera þeir reyndar ekki“. Hann myndi ekki hrófla við því sem vei hefði tekist og þeir sem hefðu staðið sig vel myndu halda störf- um sinum. „Við skiljum nauðsyn þess að sækja fram, hverfa ekki til fortíðar... Ég býst við sigri“. Frambjóðandinn sagði það verða „forvitnilegt" að sjá hvern- ig Borís Jeltsín liti út þegar hann kæmi á kjörstað en forsetinn hef- ur verið við bága heilsu und- anfarna viku. Hét Zjúganov því að næði hann völdum myndi hann sjá til þess að sérfræðinganefnd gæfi reglulega skýrslu um heilsufar æðstu ráðamanna til að koma í veg fyrir sögusagnir. Athygli hefur vakið hve Zjúg- anov hefur reynt að breyta ímynd sinni síðustu daga, hann klæðist nú vönduðum jakkafötum, leggur áherslu á að sýna hve vel hann sé á sig kominn, er af- slappaður og brosir blítt við fréttamönnum. Laguna. 5 dyra fólksbíll og skutbíll. Laguna. Fyrir þá sem kunna að meta glæsileika., fágun og gæði Staðalbúnáðurinn er ríkulegur : • 2.0 1 vél me<5 beinni innspýtingu. • 115 hestöfl. • hækkanlegt bflstjórasæti með stillanlegum stuðningi við mjóhrygg. • strekkjari á öryggisbeltum. • öryggisbitar í hurðum. • rafdrifnar rúður. • fjarstýrðar samlæsingar með þjófavöm. • útvarp og kassettutæki með fjarstýringu og 6 hátölurum. • þokuljós að aftan og framan. • höfuðpúðar í aftursæti. • kortaljós við framsæti. • litað gler. Listinn yfir staðalbúnaðinn er lengri og enn er ótalinn sá aukabúnaður sem hægt er að fá til viðbótar. Laguna kostar aðeins £rá 1.798.000 kr. RENAULT FER Á KOSTUM ÁRMÚLA 13 SlMI: 568 1200 BEINNSlMI: 553 1236

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.