Morgunblaðið - 06.07.1996, Side 20

Morgunblaðið - 06.07.1996, Side 20
20 LAUGARDAGUR 7 JÚLÍ 1996 I OKUFERÐ UM REYKJAVÍK Á ROLLS-ROYCE EÐALVAGNI Alvsg VIKU IM MORGUNBLAÐIÐ tilfínning Til skamms tíma var það bara fjarlægur draumur að aka um götur Reykjavíkur á Rolls-Royce með einkennisklæddum bílstjóra. Nú er öldin önnur og Sveinn Morgunblaðið/Arni Sæberg HJALTI Garðarsson, eini sérhæfði „chauffeur" á landinu, undir stýri á hinum glæsilega eðalvagni. Andlegur sársauki GYLFI ÁSMUNDSSON SÁLFRÆÐINGUR FJALLAR UM FURDUR SÁLARLÍFSINS Spurning: í pistli þínum nýlega heldur þú því fram að sársauki eigi sér alltaf líkamlegar orsakir, þótt upplifun hans sé sálraen. Getur ekki verið að sársauki eigi sér eingöngu sálrænar orsakir? Hvað með sársaukann eða sár- indin, sem stafa af sviknum lof- orðum, vonbrigðum í ástamálum eða þegar vegið er að æru manns? Svar: Petta er góð athugasemd og vel þess virði að skoða hana betur. Við tölum um að okkur sámi, jafnvel að við séum særð djúpu sári, þótt engin áþreifanleg merki séu um það. Missir og sorg valda okkur miklum sársauka og vinslit, ærumeiðingar og niður- læging geta valdið okkur sárum svo stórum að aldrei grói um heiit. Er þetta aðeins líkingamál, orð yfir vanlíðan sem eiga ekkert skylt við sársauka í eiginlegri merkingu? Stundum má það ef- laust til sanns vegar færa, en oft- ar en ekki er þetta túlkun á ein- hverri vondri og óþægilegri til- finningu, sem jafnvel leitar út í líkamlegum sársauka. Fólk sem haldið er kvíða og þunglyndi fær oft líkamleg ein- kenni og festist gjarnan í þeim, þannig að þau verða eins konar vöm við því að horfast í augu við það sem að baki býr, hinn sál- Sársauki ræna vanda. Skyndileg hræðsla kemur oft fram í líkamlegum ein- kennum. Við „fáum í magann" eða „fyrir hjartað“. Sorg er gott dæmi um andleg- an sársauka. Engu að síður kem- ur hann alltaf á einhvem hátt fram í líkamanum. Þess era mörg dæmi að menn hreinlega deyi úr sorg. Það er ekki óalgengt, að gamalt fólk sem missir maka sinn, deyi skömmu síðar, þótt lík- amsástand þess gefi ekki tilefni til þess. Lífið hefur misst tilgang sinn, og við það hverfur lífslöng- unin og bæði líkami og sál gefast upp. Ef til vill er eitt besta dæmið um andlegan sársauka, þegar karlinn fær hríðarverki meðan kona hans er að fæða. Þetta er að vísu ekki algengt en þó vel þekkt fyrirbæri. Hér má segja að orð- takið „að finna til með einhverj- um“ komi fram í bókstaflegri merkingu. Samúðin getur ekki orðið öllu sterkari. í samúð með þeim sem þjást eða syrgja er ein- nig fólginn andlegur sársauki. Ef um raunverulega samúð er að ræða þá finnum við til með þeim. Þegar allt kemur til alls er and- legur sársauki jafn raunveraleg- ur og hinn sem á sér áþreifanleg- ar orsakir. En andlegur sársauki tengist alltaf líkamsástandinu á einhvern hátt og flestir sjá betur samhengið á milli sársaukans og líkamlegra orsaka hans fremur en að skoða þau sálrænu öfl sem hafa áhrif á líkamann. Sál og lík- ami era tvær hliðar á manninum, samofin í allri okkar reynslu og verða ekki aðskilin. • Lesendur Morgunblaðsins geta spurt sálfræðinginn um það sem þeim liggur á hjarta, tekið er á móti spurningum á virkum dögum milli klukkan 10 og 17 í síma 569 1100 og bréfum eða símbréfum merkt: Vikulok, Fax 5691222. Guðjónsson lét drauminn rætast með að- stoð Signrðar S. Bjarnasonar, eiganda ---------^ ------—.......... ........... Hasso-Island bílaleigunnar, og Hjalta Garðarssonar, sem hefur sérhæft sig í akstri eðalvagna. 1JÁLFSAGT hafa margir lalið þann draum í brjósti að ' komast í þá aðstöðu að láta aka sér um í Rolls-Royce eðalvagni með einkennisklæddum bílstjóra. Flestir hafa þó orðið að láta sér nægja að upplifa slíka dagdrauma í gegnum kvikmyndir og sjónvarp, en nú hafa opnast leiðir til að finna reykinn af réttunum með því að leigja sér Rolls-Royce með ein- kennisklæddum' bílstjóra og öllu saman. Það er Hasso-ísland bíla- leigan, í samvinnu við limousine- þjónustuna Eðalvagna, sem býður þessa þjónustu. Rollsinn var fluttur inn til landsins nú í vor fyrir til- stuðlan Sigurðar S. Bjarnasonar og Hasso Schutzendorf, sem reka sam- an Hasso-ísland bílaleiguna í Hafn- arfirði. Sérhæfður Binhabílstjúri Það var óneitanlega sérkennileg tilfinning að stíga upp í Rolls-Royce eðalvagninn með aðstoð bflstjórans, Hjalta Garðarssonar, sem viðhafði alla þá tilburði sem tíðkast þegar þjóðhöfðingjar eiga í hlut. Það er nefnilega ekki sama hvernig hurðin er opnuð, hvar bílstjórinn stendur á meðan farþeginn stígur inn og hvemig hurðinni er lokað á eftir honum. SIR Sigurður S. Bjarnason lætur fara vel um sig í nautsleðurklæddu aftursæt- inu og Hjalti einbeitir sér að akstrinum. Erlendis þyk- ir afar þýð- ingarmikið að bílstjórar hafi þá sérhæf- ingu sem tal- in er nauðsyn- leg til starfans. Hjalti kann greinilega sitt fag enda hefur hann sótt námskeið í New York þar sem þessir þættir eru kenndir og auk þess ýmislegt fleira, sem nauðsynlegt er talið að bflstjórar tileinki sér, þegar ekið er með þýðingarmikla farþega, eða VIP fólk, eins og það er kallað á fagmálinu. Þar á meðal eru ýmis ör- yggisatriði og hvernig bflstjóra beri að haga sér í neyðartilfellum. Eitt er að hafa ávallt tilbúna varaleið, ef eitthvað óvænt kemur upp á þeirri leið sem ákveðin hefur verið. Þrátt fyrir þessa sérmenntun Hjalta í akstri með fyrirfólk hafa íslenskir embættismenn, sem njóta þeirra fríðinda að hafa einkabflstjóra, ekki séð ástæðu til að ráða hann í þjón- ustu sína. „Það virðist vera vænlegra til að komast að sem einkabílstjóri hér á landi að vera í skyldleika við við- komandi embættismann og gildir þá einu hvort menn eru menntaðir rafvirkjar, trésmiðir eða búfræð- ingar, eins og dæmin sanna,“ segir Hjalti. „Erlendis þykir það hins vegar afar þýðingarmikið að bíl- stjórar hafi þá sérhæfingu sem talin er nauðsynleg til starfans, að minnsta kosti á meðal þeiira sem bera virðingu íyrir starfi sínu og gera sér grein fyrir mikilvægi þess. En kannski stafar áhugaleysi ís- lenski-a embættismanna í þessum efnum af virðingarleysi fyrir starfi sínu.“ Ekki spurt um árgerð Við ökum sem leið liggur niður í miðbæ. Hvarvetna vekur bifreiðin mikla athygli og menn snúa sér við til að horfa á eftir þessu fyrirfólki enda Islendingar óvanir því að sjá ósvikinn Rolls á götunum með upp- áklæddum einkabflstjóra. Og þegar við mætum langferðabiíreið, fullri I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.