Morgunblaðið - 06.07.1996, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 06.07.1996, Qupperneq 32
32 LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SIGRÍÐUR ÞÓRUNN GUNNARSDÓTTIR + Sigríður Þór- unn Gunnars- dóttir fæddist 20. ágúst 1901 á Litlu- Háeyri á Eyrar- bakka. Hún lést í Sjúkrahúsi Suður- lands á Selfossi 27. júní sl. Foreldrar hennar voru Gunn- ar Gunnarsson frá Torfastöðum í ^ Fljótshlíð og Þór- unn Björnsdóttir frá Móeiðarhvols- hjáleigu í Hvol- hreppi. Sigríður missti móður sína 10 daga göm- ul og var tekin í fóstur af hjón- unum Ingibjörgu Guðmunds- dóttur og Jóni Jónssyni í Norð- urkoti á Eyrarbakka og gengu þau henni í foreldra stað. Sig- ríður átti tvær hálfsystur sam- feðra, Guðbjörgu frá Lamba- læk í Fljótshlíð og Ingibjörgu sem bjó í Hafnarfirði, sem báð- ar eru látnar. Sigríður giftist 30. maí 1925 Marel Oddgeiri Þórarins- syni frá Nýjabæ á Eyrarbakka, f. 9. mars 1898, d. 11. jan. 1981, og hófu þau búskap í Ein- arshöfn og bjuggu þar alla tíð. Marel lést 11. janúar 1981 og bjó Sigríður ein í Einarshöfn þar til hún fluttist á Dvalarheimili aldr- aðra á Sólvöllum á Eyrarbakka. Börn þeirra: 1) Ingibjörg Jóna, f. 29. ágúst 1925, d. 8. nóvember 1994, maki Friðþjóf- ur Björnsson og eignuðust þau 5 börn, 2) Guðfinnur, f. 24. jan- úar 1927, d. 6. ágúst 1963, 3) Guðni, f. 30 september 1937, maki Jóna Ingvarsdóttir og eru börn þeirra fjögur. Útför Sigríðar fer fram frá Eyrarbakkakirkju í dag og hefst athöfnin kl. 14.00. Samferðafólk okkar á lífsleiðinni er misjafnt eins og gengur og er því mikið lán að kynnast og njóta návistar við gott fólk sem hefur góð áhrif á aðra, styrkir, bætir og kæt- ir. Þess naut ég af tengdamóður minni Sigríði Þórunni Gunnarsdótt- ur sem nú er látin tæplega 95 ára. Hún fæddist og ólst upp á Eyrar- bakka og bjó þar alla sína ævi. Að missa móður sína aðeins 10 daga gömul hlýtur að hafa haft áhrif á allt hennar líf, þó fósturforeldrar hennar hafi reynst henni vel, en það voru þau sæmdarhjón Ingibjörg Guðmundsdóttir og Jón Jónsson í Norðurkoti. Bar hún alltaf þakkar- hug til þeirra og hrósaði þeim. Á þeim árum sem Sigríður var að al- ast upp var mikið félagslíf á Eyrar- bakka og byijaði hún snemma að taka þátt í því, gekk í barnastúku og seinna í stúku fullorðinna og strax á unglingsárunum byijaði hún að taka þátt í sönglífinu þar, en hún var alla tíð söngvin og hafði fallega söngrödd. Veturna 1918 og 1919 er hún var 17 og 18 ára var hún á söngnámskeiðum hjá séra Ólafi í Arnarbæli. Voru þau haldin í samkomuhúsinu Fjölni og stóðu í tíu daga hvort og sungið fjórradd- að. Sagði hún mér að þau hafi stað- ið yfir frá kl. 10 á morgnana og fram að kvöldmat og var svo dans- að frá kl. 9-11 á hveiju kvöldi!. Til eru myndir af öllu fólkinu sem var á þessum námskeiðum. Eftir það tók hún mikinn þátt í sönglífinu og söng m.a. í kirkjukórnum undir stjórn Guðmundu Nielsen. Leikfélag Eyrarbakka var starf- andi á þessum árum og tók _hún þátt í starfi þess og lék m.a. Ástu í Da! í Skugga-Sveini Matthíasar Jochumsonar. Harald útilegumann t MAGNÚS SNORRASON frá Laxfossi, siðast bóndi f Árbæ, andaðist í Sjúkrahúsi Akraness fimmtudaginn 4. júlí 1996. Aðstandendur. Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR ÞÓRUNN GUNNARSDÓTTIR frá Einarshöfn (Prestshúsi), Eyrarbakka, síðast til heimilis á Sólvöllum, Dvalarheimili aldraðra á Eyrarbakka. verður jarðsungin frá Eyrarbakkakirkju í dag, laugardaginn 6. júlí, kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Dvalarheimili aldraðra á Eyrarbakka. Guðni Marelsson, Jóna Ingvarsdóttir, Friðþjófur Björnsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA S. ÍVARSDÓTTIR, Furugrund 66, Kópavogi, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánudaginn 8. júlí kl. 13.30. Þorvaldur Magnússon, Árni R. Þorvaldsson, Valgerður Sumarliðadóttir, Magnús S. Þorvaldsson, Þóra Ó. Þorgeirsdóttir, Halldór B. Þorvaldsson, Alda S. Ottósdóttir, Magnús í. Þorvaldsson, Kolbrún Haraldsdóttir, Guðni Þ. Þorvaldsson, Sigurlaug S. Pálsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. lék ungur maður, Marel Þórarins- son og þóttu þau myndarlegt par og líkt og með Ástu og Harald í leikritinu tókust þar með þeim ástir er leiddu til hjónabands þeirra Sig- ríðar og Marels 30. maí 1925. Þá var og starfandi Kvenfélag Eyrar- bakka sem hefur verið mjög virkt í áraraðir og starfaði hún mikið í því félagi og var gerð að heiðursfé- laga þess fyrir störf sín þar. Fyrstu 15 búskaparárin sagði hún að hefðu verið erfið, eins og var hjá flestöllum á þeim kreppu- árum. Hef ég fyrir satt að þá hafi dugnaður hennar til allra verka komið sér vel. Seinna þegar börnin voru farin og heimilisstörfin urðu léttari var hún ekkert að hægja á heldur tók til að pijóna vettlinga, sokka, peysur og fleira á börnin og barnabörnin og lopapeysur sem hún seldi og voru afköstin ótrúleg. Henni féll eiginlega aldrei verk úr hendi. Er mér ekki grunlaust um að dugnað sinn hafi hún erft frá móðurömmu sinni Jórunni Þórodds- dóttur ljósmóður sem kunn var fyr- ir farsæl ljósmóðurstörf og var haft á orði hve áræðin hún var á ferða- lögum á hestum til að sinna ljós- móðurstörfum. Mannkostir Sigríðar voru margir. Hún fór ekki á mis við ýmsa sjúkdóma og þurfti m.a. að gangast undir tvo stóra upp- skurði. Var hún oft sárþjáð en aldr- ei heyrðist hún kvarta og gekk til allra verka. Þar hefur mér alltaf fundist hún hafa sýnt sérstakan styrk. Hún hafði alltaf mikið yndi af góðum söng og kunni mikið af söngtextum, ljóðum og þulum enda minnið gott alveg fram til þess síð- asta. Og hennar léttu lund sem smitaði frá sér þekktu allir sem kynntust henni. Lítið dæmi um það er að þegar ég hitti stundum Sig- þór heitinn Guðjónsson í Ræsi h/f en hann ólst upp með þeim Sigríði og Marel á Bakkanum þá var hann að spyija hvernig þau hefðu það og spurði svo oft: „Hlær hún enn?“ Eftir að Marel eiginmaður hennar dó 1981 var hún ein í húsi þeirra þar til árið 1987 og fannst mér hún sýna þar dugnað og kjark að vera þar ein í 6 ár og vera kominn á níræðisaldur. Að vísu var Guðni sonur hennar alla tið i daglegu símasambandi við hana og hugsaði vel um hana. Þá, 1987 flutti hún að Sólvöllum, Dvalarheimili aldr- aðra á Eyrarbakka en hún hafði fylgst af áhuga með undirbúningi þess og beið með eftirvæntingu eft- ir að komast þangað og var ein af þeim sem fluttu inn fyrsta daginn sem það var tekið í notkun. Hafði hún mikla ánægju af að vera þar með fólki sem hún þekkti og þar leið henni vel, enda sómasamlega að öllu staðið þar. Sigríður var trú- uð kona og þau bæði hjónin og ræktuðu trú sína vel og var hjóna- band þeirra farsælt alla tíð og fannst mér að Marel mætti eigin- lega aldrei af henni sjá. Þann skugga bar á líf þeirra árið 1963 að sonur þeirra Guðfinnur sem var vélstjóri á síldarbáti drukknaði og var það þeim og okkur öllum mikið áfall. Þar fór drengur góður langt um aldur fram aðeins 36 ára. Ég og mín fjölskylda eigum Sigríði mikið að þakka fyrir alla þá hjálp sem hún veitti okkur. Og alltaf voru sömu móttökurnar þegar við komum í heimsókn á Bakkann, hún alltaf brosandi og kát og veislumat- ur alltaf á borðum. Og hún var mér það góð tengdamóðir að ég hefði ekki getað kosið mér hana betri. Nú á kveðjustund flyt ég henni einlægar þakkir og bið henni allrar Guðsblessunar. Með okkur sem stóðu henni næst lifir minningin um góða konu. Friðþjófur Björnsson. Mig langar í fáum orðum að minnast minnar elskulegu tengda- móður, Sigríðar Þ. Gunnarsdóttur, sem andaðist 27. júní síðastliðinn. Margar góðar minningar á ég sem ekki verða tíundaðar hér. Eitt stendur þó ofarlega í huga mér, er ég dvaldi hjá þeim Sigríði og Marel í eitt ár, þá 18 ára göniul, fyrst í 3 mánuði áður en ég átti fyrsta barnið og þar til dóttir okkar varð 9 mánaða. Ávallt var Sigríður tilbúin að hjálpa mér með litlu telpuna, leið- beina mér og kenna á alla lund. Þetta og svo margt annað vil ég þakka og bið góðan Guð að geyma tengdamóður mína í nýjum heimi. Jóna Ingvarsdóttir. Nú legg ég aupn aftur ó, Guð, þinn náðarkraftur mér yfir vaki í nótt. Með þessum orðum kveð ég þig, elsku amma mín. Hafðu þökk fyrir allt. Nú hefur þú hitt ástvini þína aftur og ég trúi því að nú líði þér vel, þó að ég geti ekki verið við jarðarförina þína, þá verður hugur minn hjá þér. Elsku pabbi, mamma og Fiffó og þið öll. Guð blessi ykkur. Kær kveðja. Ingunn. Hún amma á Eyrarbakka er dá- in. Við erum þess fullviss að hún mun eiga góða heimvon þar sem hún er komin nú og við samgleðj- umst þeim sem taka á móti henni þar. Amma Sigríður hefði orðið 95 ára nú í ágúst. Hún bar aldurinn vel og lét engann bilbug á sér finna þrátt fyrir erfið veikindi undir það síðasta. Þannig var hún reyndar allt sitt Iíf, aldrei var kvartað yfir hlutunum, heldur gengið í öll verk af samviskusemi og elju. Þau afi lifðu aldeilis tímana tvenna. Má segja að jafn miklar þjóðfélags- breytingar hafi ekki átt sér stað á íslandi, eins og á þessari öld. Þeirra lífsbarátta var hörð eins og svo margra aldamótabarna, en dugnað- ur þeirra og ósérhlífni fleytti þeim áfram, þó oft áraði illa. Þá munaði miklu að hafa sterka og ákveðna konu á heimilinu. Og það var hún amma. Aldrei féll henni verk úr hendi og gekk að þeim öllum með gleði. Hún var reyndar þekkt fyrir sína léttu lund og smitandi hlátur. Oft hefur hún þó eflaust verið þreytt og þá sérstaklega í fótunum.en hún glímdi við erfið fótamein í mörg ár. En ekki var barlómurinn í henni, hún sagðist þakka í staðinn fyrir að hafa heilar hendur, - og svo hló hún. Já hún hafði góða nálægð hún amma og við sem áttum því láni að fagna að vera hjá þeim á Eyrar- bakka um skemmri eða lengri tíma erum ríkari eftir. Það var lærdóms- ríkt að fylgjast með hjónabandi þeirra. Þau voru mjög samheldin og máttu vart hvort af öðru sjá, og aldrei féll styggðaryrði á milli þeirra. Það var mikil mildi í þeirra hjónabandi. Og nú eru þau komin saman aftur Sigga og Marel í Prestshúsi. Það verður einkennilegt að geta ekki lengur skotist austur á Bakka í heimsókn til ömmu, en minningin um góða konu mun lifa í hjörtum okkar. Hafðu þökk fyrir allt og allt elsku amma og megi Guð vera hjá þér. Sigríður, Kristjana, Gunnar, Björn og Sverrir og fjölskyldur. Núna er hún langamma mín sofnuð svefninum langa. Svefnin- um sem hún var búin að þrá svo lengi. Það er skrýtið að hugsa til þess hún amma á Eyró skuli vera dáin, því hún var fastur punktur í tilverunni og vorum við orðin sann- færð um að hún yrði eilíf og biði manns með fallega brosið sitt á Bakkanum. Elsku amma mig langar að þakka þér fyrir allt og kveðja þig með þessum orðum: „Harmið mig ekki með tárum, þó ég sé lát- inn. Hugsið ekki um dauðann með harmi og ótta. Ég er svo nærri að hvert ykkar tár snertir mig og kvelur, en þegar þér hlæið og syngið með glöðum hug, lyftist sál mín upp í mót til ljóssins. Verið glöð og þakklát fyrir allt sem lífið gefur og ég, þótt látin sé, tek þátt í gleði ykkar yfir lífinu." (Ók. höf.) Ingibjörg Ingólfsdóttir. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Megi minningin um hana langömmu mína lifa í huga okkar allra. Hlín. Enn hefur almættinu bæst góður liðsmaður, því í dag verður kvödd frá Eyrarbakkakirkju mikil heiðurs- kona, Sigríður Þ. Gunnarsdóttir. Ekki er það ætlun mín að rekja lífs- hlaup þessarar öldruðu vinkonu minnar. Amma á Eyrarbakka, en svo var hún kölluð jafnt af skyldum sem óskyldum var lagleg kona, lág- vaxin og grönn. Hún hafði ódrep- andi elju til allra verka hvort var að pijóna, taka slátur eða við kart- öflurnar á haustin. Alltaf fór hún fyrst á fætur eftir erfiðan dag, búin að fylla borðið með dýrindis bakkelsi, létt og kát og eitt er víst að jafn hláturmilda konu hefi ég aldrei þekkt. En hún varð líka fyrir stórum áföllum í lífinu. Þessar raun- ir stóð hún af sér með ótrúlegum dugnaði og reisn. Hún var trúuð kona og óhrædd við að deyja. Henni þótti jafnvel ranglátt þegar aðrir voru teknir framyfir hana, en sagði svo, „ráðum við annars nokkru, ætli það nokkuð“. Við fjölskyldan í Glæsibæ 14 þökkum allar þær góðu stundir sem við áttum saman ýmist hér eða austur á Bakka, ósk- um henni góðrar ferðar og góðrar heimkomu. Viðar Óskarsson. Elsku amma. Okkur langar til að þakka þér fyrir allar góðu stund- irnar sem við áttum saman. Snert hörpu mína, himinborna dís, svo hlusti englar guðs í paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. Ur furutré sem fann ég út við sjó ég fugla skar og líka úr smiðjumó. í huganum til himins oft ég svíf og hlýt að geta sungið í þá líf. Þeir geta sumir siglt á læk og tjörn og sumir verða alltaf lítil böm. En sólin gyllir sund og bláan fjörð og sameinar með töfrum loft og jörð. Ég heyri’í fyrska viltan vængjaþyt. Um varpann leikur draumsins perluglit. Snert hörpu mína himinborna dís, og hlustið englar guðs í paradís. (Davíð Stefánsson) Elsku amma, langamma. Guð veri með þér, hvíldu í friði. Þínar Jóna Kolbrún, Tinna og Björk. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og amma, HULDA JÓNSDÓTTIR, Langageröi 70, lést í Landspítalanum að kvöldi 3. júlí. Kr. Arnór Kristjánsson, Kristján A. Kristjánsson, S. Margrét Kristjánsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.