Morgunblaðið - 06.07.1996, Side 39
I
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 6. JÚLÍ 1996 39
FRETTIR
Eðalvagnar og kassabílar á Árbæjarsafni
j Gönguferð í
samvinnu við
Landhelgis-
gæsluna
i HAFNARGÖNGUHÓPURINN
stendur fyrir gönguferð í samvinnu
við Landhelgisgæsluna laugardaginn
6. júlí til kynningar á sögu landhelg-
isgæslu við ísland.
Mæting er kl. 14 við Hafnarhúsið
að austanverðu. Við upphaf
göngunnar verður iitið inn á afmæl-
issýningu Landhelgisgæslunnar í
sýningarsal Hafnarhússins. Síðan
verður gengið þar sem strandlínan
lá fyrir hafnargerðina 1913-17 vest-
4 ur í Ánanaust að Seljavegi 32 þar
sem aðalstöðvar Landhelgisgæslunn-
| ar verða skoðaðar.
á Til baka verður gengið með höfn-
* inni en göngunni lýkur við Hafnarhús-
ið. Á leiðinni verður riflað upp í stuttu
máli ýmisiegt úr sögu gæslunnar á
Islandsmiðum. Allir velkomnir.
Námskeið í
J notkun gróð-
11 urkorta
HIÐ íslenska náttúrufræðifélag efnir
til námskeiðs í notkun gróðurkorta
laugardaginn 13. júlí kl. 13-18 í
Náttúrufræðistofnun Islands á
Hlemmi 3.
Þar verður kynnt gróðurkort og
gerð þeirra og síðan verður farið um
( nágrenni borgarinnar og skoðuð hag-
i nýt dæmi um kortlagningu gróðurs
og notkun kortanna. Leiðbeinendur
I verða gróðurkortamennirnir Guð-
mundur Guðjónsson, Ingvi Þorsteins-
son og Einar Gíslason.
Námskeiðið er ætiað almenningi
og ekki síður sérfræðingum sem vinna
að skipulagningu lands og verklegra
framkvæmda. Væntanlegir þátttak-
endur eru vinsamlegasþ beðnir um
að skrá sig á skrifstofu HIN á Hlemmi
( 3. Þátttaka er öllum heimil og kostar
Morgunblaðið/Sverrir
Ólafur Elfar Stefánsson, af-
greiðslumaður í Ótrúlegu
búðinni.
Allar vörur á
189 krónur
ALLAR vörur eru seldar á 189
krónur í verslun sem var opnuð á
Laugavegi 118 í gærmorgun.
Verslunin nefnist Ótrúlega búðin
1 og selur ýmsar gjafavörur, leik-
l föng, verkfæri, búsáhöld, hrein-
lætisvörur, silkiblóm, sælgæti og
fleira.
Að sögn Ólafs Elfars Stefáns-
sonar, afgreiðslumanns, var mikið
að gera í versluninni á opnun-
ardaginn. Hann segir að vöruteg-
undirnar séu alls um 2.500 og
aðallega sé keypt inn í Bandaríkj-
unum og Bretlandi.
Ólafur segir að Ótrúlega búðin
I hafi verið starfrækt í Þorpinu í
I Borgarkringlunni undanfarin tvö
ár við góðar undirtektir og verði
1 þar áfram, verslunin á Laugaveg-
inum sé viðbót.
FORNBÍLAKLÚBBUR íslands
verður með hinu árlegu fornbíla-
sýningu á Árbæjarsafni sunnu-
daginn 7. júlí frá kl. 13-17.
Þá verða sýndir ýmsir eðal-
vagnar og glæsikerrur í eigu
félagsmanna. Gestir geta fengið
Bítlabar á
Islandi
FYRSTI íslenski Bítlabarinn verð-
ur opnaður laugardaginn 6. júlí
kl. 14 í Austurstræti 6 þar sem
verður Bítlabar, kaffistofa, bítla-
verslun, bítlasafn, bítlamyndbönd
o.fl.
Verið er að skipuleggja Bítla-
landreisu þar sem reynt verður að
koma við á sem flestum stöðum
úti á landsbyggðinni. Þar verður
ýmislegt á pijónunum, s.s. Bítla-
spurningakeppni en það er í leið-
inni eins konar leit að bítlafræðing-
um landsins. í haust verður Bítla-
fræðispurningakeppni í beinni út-
sendingu á Rás 2. Safnað verður
32 bítlasérfræðingum sem munu
leiða saman hesta sína í útsláttar-
keppni.
far með International-vörubíl
frá árinu 1946 og kassabílar
verða á svæðinu fyrir yngri kyn-
slóðina. Að auki verður hand-
verk af ýmsu tagi kynnt í safn-
húsunum og leikið á píanó í
Suðurgötu 7.
Fræðsludag-
skrá á Þing-
völlum
BOÐIÐ verður upp á fræðsludag-
skrá nú um helgina á Þingvöllum.
Á laugardag verður farið í göngu-
ferð meðfram vatnsbakka Þing-
vallavatns. Hugað verður að líf-
ríki, gróðri og búsetu við vatnið
að fornu og nýju. Gönguferðin
hefst við bílastæði við Lambhaga
kl. 13.30 og tekur um 3 klst.
„Á sunnudag kl. 13 verður
brugðið á leik með börnum í
Vatnskoti. Jafnframt stendur til
að skoða náttúruna og lita með
vatnslitum. Að vanda verður guðs-
þjónusta í Þingvallakirkju og að
messu lokinni verður rölt um
Laugardaginn 6. júlí geta
krakkar hins vegar kynnt sér
þarfasta þjóninn og farið á hest-
bak frá kl. 14-15 auk þess sem
börnum verður þá líka sýnd leik-
fangasýning safnsins og farið i
gamla leiki.
næsta nágrenni Þingvallabæjar og
hinn forna þingstað. Fræðsludag-
skrá þjóðgarðsins er ókeypis og
öllum opin,“ segir í tilkynningu frá
þjóðgarðinum.
Franskir
gestir
SENDINEFND frá franska þjóð-
þinginu dvelst hér á landi dagana
4.-14. júlí í boði Alþingis.
Tilefni heimsóknarinnar er að
efla vináttutengsl Alþingis og
franska þjóðþingsins og endur-
gjalda heimsókn sendinefndar Al-
þingis í maí 1994. í frönsku sendi-
nefndinni eru þingmennirnir Ge-
orges Colombier, Gérard Jeffray,
Roland Nungesser og Rémy Auc-
hedé.
Stjórn Félags
tónskálda og
textahöfunda
leiðrétt
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá þeim
er stóðu að framboði Guðrúnar Pét-
ursdóttur:
„Stjórn Félags tónskálda og texta-
höfunda hefur séð ástæðu til að
senda frá sér yfirlýsingu þar sem
bent er á að aðeins einn frambjóð-
andi til forsetakjörs hafi notað ís-
lenska tónlist í útvarps- og sjón-
varpsauglýsingum. Auglýsingastof-
an Hvíta húsið og Hugsjón sem sáu
um gerð sjónvarpsauglýsinga fyrir
forsetaframbjóðandann Guðrúnu
Pétursdóttur sjá ástæðu til að leið-
rétta þennan misskilning. Við gerð
þeirrar sjónvarpsauglýsinga var ein-
göngu notuð íslensk tónlist „ísland
er það lag“ eftir Björgvin Guð-
mundsson í útsetningu Vilhjálms
Guðjónssonar. Varla er hægt að
gerast „íslenskari" í lagavali."
LEIÐRÉTT
Tvær línur féllu niður
Tvær línur féllu niður í formála
minningargreina .um Ingibjörgu
Árnadóttur á blaðsíðu 31 í Morgun-
blaðinu í gær, föstudag. Réttur er
kaflinn, sem línurnar féllu úr, svona:
„Árið 1922 giftist Ingibjörg Krist-
jáni Franklín Gíslasyni vélsmið. Þau
eignuðust fjögur börn. Þau eru:
l)Árni, f. 1923, d. 1985, forstjóri.
Hann var kvæntur Iðunni Heiðberg
og áttu þau þtjú börn. 2) Gísli, f.
1924, tæknifulltrúi, kvæntur Ernu
Guðmundsdóttur. Þau eiga þijú
börn. 3) Valdimar, f. 1925, d. 1984,
vélsmiður. Hann eignaðist þtjá syni
með fyrri konu sinni, Grímu Thor-
oddsen, og þtjú börn með seinni
konu sinni, Sólveigu Guðmundsdótt-
ur. 4) Þuríður, f. 1928. Hún á son
með Víkingi H. Arnórssyni og tvo
syni með Júlíusi M. Magnús. Barna-
barnabörn Ingibjargar eru 25 tals-
ins.“ Hlutaðeigendur eru innilega
beðnir afsökunar á þessum mistök-
unt.
Rangt símanúmer
í frétt í Morgunblaðinu í gær um
unglinga sem aflita á sér hárið var
ranglega farið með símanúmer Eitr-
unarupplýsingarstöðvarinnar. Síma-
númer stöðvarinnar er 525111. Beð-
ist er velvirðingar á mistökunum.
ERU ÞEIR AÐ FA’ANN?
Kalt en gott
í Vopnafirði
YFIRLEITT er ekki annað að heyra
en að talsverður lax sé í íslenskum
laxveiðiám og veiðin hafi verið
glettilega góð þegar að er gáð að
skilyrði allra síðustu daga hafa
verið erfið um land allt, kuldi fyrir
norðan og þurrkur og þverrandi
vatn fyrir sunnan og vestan. Vika
er síðan að Hofsá í Vopnafirði var
opnuð og hefur veiðin þar gengið
ágætlega, sérstaklega í bytjun.
„Það veiddust tíu laxar fyrsta
daginn. Það er allt annað en í fyrra,
þá kom einn fyrsta daginn og það
tók hálfan mánuð að fylla fyrstu
síðuna í veiðibókinni," sagði Anna
Rósa Magnúsdóttir, þjónn í veiði-
húsinu Arhvammi við Hofsá, í
gærdag. Alls sagði Anna Rósa
kornna 59 laxa á land, flestir væru
12-14 pund og þeir stærstu allt
að 17 pund. Aðeins einn smálax
hefur komið á land. „Neðsta svæð-
ið er lakast og fiskur virðist ganga
hratt á efsta svæðið. Þar sjá menn
mest af honum, en hann tekur illa.
Menn eru að velta því fyrir sér
hvort að þetta séu heimtur úr
seiðasleppingum fyrir ofan fossinn
þarna efra. Hann er ekki laxgeng-
ur,“ bætti Anna við. Flestir laxarn-
ir hafa veiðst á spón og devon, en
í dag koma enskir veiðimenn og
er þá allt agn annað en fluga bann-
að. Maðkur er bannaður í Hofsá
sem endranær.
Kuldi hamlar í Selá
1 gærdag voru komnir 43 laxar
úr Selá. Opnunin á dögunum var
með líflegasta móti, en kuldi að
undanförnu hefur hamlar veiðum
og laxinn hefur tekið grannt og
illa að sögn Rafns Hafnfjörð sem
Morgunblaðið/Runólfur
SPÁNVERJINN Paco
Traspuesto með 21,5 punda
hænginn sem hann veiddi í
Langá í vikunni.
hafði nýjar fréttir úr Selá á tak-
teinum. Efra svæði Selár hefur enn
ekki verið opnað, en lax hefur sést
og veiðst á öllu neðra svæðinu.
Er að sögn Rafns talsvert. af ftski
og góðs að vænta þegar hlýnar.
Norðurá yfir 600 fiska
„Það voru komnir 605 laxar á
land í morgun úr Norðurá og áin
er full af fiski. Hins vegar hefur
hoilið sem nú er að veiðum ekki
aflað í samræmi við fiskmagnið,
því skilyrði hafa verið slæm, áin
er minnkandi og mjög hvasst og
kalt í veðri með miklu sólskini,"
sagði Bergur Steingrímsson, fram-
kvæmdastjóri SVFR, í gærdag.
Miklar smálaxagöngur hafa verið
að undanförnu og lax á veiðast
jafnt efst sem neðst í ánni.
Selurinn dauður ...
Góð veiði hefur verið i Hítará
allra síðustu daga, í vikulokin voru
komnir 25 laxar á land og „haugur
af bleikju“ eins og það var orðað
vestur á Mýrum. Það bar til tíðinda
í vikunni, að selurinn sem plagað
hefur laxa, bleikjur og ekki síst
veiðimenn í Hítará frá því að áin
var opnuð, var skotinn í Skipahyl,
en hann er mjög neðarlega í ánni.
Laxarnir hafa bæði verið stórir og
smáir, en hermt er að bleikjan sé
afar væn. Hópur sem var við ána
á dögunum fékk góða bleikjuveiði
auk nokkurra laxa og var meðal-
þyngdin 3,5 pund.