Morgunblaðið - 20.07.1996, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Von á 5.000 manns á landsmót skáta 1996 sem er að hefjast á Úlfijótsvatni
Morgunblaðið/RAX
GUÐMUNDUR Jónsson, útvarpsstjóri Bergmáls, og Víking Ei-
ríksson, mótsstjóri, uppi í klifurturninum. Ulfljótsvatn í baksýn.
ÞORSTEINN Pétursson, betur þekktur undir nafninu Steini Pé,
félagsforingi skátafélagsins Klakks á Akureyri, kom hjólandi
yfir Kjöl og varð fyrstur til að tjalda á Úlfljótsvatni.
Á ÚLFUÓTS VATNI var allt að
verða klárt fyrir Landsmót skáta
þegar Morgunblaðsfólk leit þar
við í gærmorgun. Smiðir voru að
Ieggja síðustu hönd á tíu metra
háan klifur- og sigtum, þann eina
sinnar tegundar á Islandi. Krakk-
ar úr Vinnuskóla Reykjavíkur
vom í óða önn að slá, raka og
lagfæra stíga, og vatns- og raf-
magnslagnir voru komnar á sinn
stað. Undirbúningur mótsins hef-
ur staðið yfir lengi og mikill fjöldi
fólks komið að honum, flestir í
sjálfboðavinnu.
Þó að mótið verði ekki form-
lega sett fyrr en annað kvöld,
koma flestir skátamir í dag og
slá upp tjaldbúðum sinum. Fyrstu
rúturaar koma um kl. 11 og síðan
munu þær tínast á staðinn á hálf-
tímafresti - til að forðast um-
ferðaröngþveiti.
Á morgun koma svo enn fleiri
og áfram verður haldið með
tjaldbúðirnar, auk þess sem
mótsgestum gefst kostur á að
velja milli fjölmargra dagskrár-
atriða til að skrá sig í. Þetta
verður í fyrsta sinn sem tölvu-
búnaður er notaður við skrán-
ingar á landsmóti og mun það
að sögn Víkings Eiríkssonar
mótsstjóra auðvelda mjög alla
yfirsýn.
Þannig sé til dæmis hægt að
fylgjast með því að allir taki
þátt í einhverri dagskrá.
Dagskráin er fjölbreytt og
ættu allir skátar, stórir sem
smáir, að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi. Víkingalíf, vatna-
safarí, fjallamaraþon, fíkniefna-
fræðsla, flekasmíði, hellaskoðun,
hofbygging, hjálparsveitakynn-
ing, gróðursetning, sundferðir,
MÓTSHLIÐIÐ er nú komið á
sinn stað og minnir á heim
víkinganna.
HANN er hvorki meira né
minna en tíu metra hár, þessi
glæsilegi klifur- og sigturn.
silungsveiði - þannig mætti
lengi telja.
Séð verður fyrir því að skát-
arnir hafi nóg að bíta og brenna
og munu fimmtán manns verða
í fullu starfi allan tímann við
matarúthlutun. Öllum mat er
skipt niður í flokkseiningar fyrir
átta manna flokka og fer inni-
hald matarskammtanna nokkuð
eftir því í hvaða verkefnum
flokkurinn er hverju sinni.
Flokkur sem er á leið í göngu-
ferð fær samlokur og í þær má
t.d. bæta villtum kryddjurtum
sem á vegi manna verða á fjöll-
um. Þeir sem eru á matreiðslun-
ámskeiði fá t.d. lambakjöt til að
grilla eða moðsjóða. Fyrir þá
í fótspor víkinga
sem taka þátt í vatnasafaríi að
morgni er séð fyrir heitri máltíð
í hádegi til að hlýja mannskapn-
um eftir volk í vatninu. Skátum
gefst einnig möguleiki á að veiða
sér til matar, nánar tiltekið lax
sem komið verður með í kerjum
á mótssvæðið. Hann verður
veiddur með berum höndum og
matreiddur að hætti víkinga.
Hápunktur mótsins verður á
miðvikudaginn, en þá er Óðins-
dagur samkvæmt tímatali víking-
anna. Dagurinn verður tileinkað-
ur alþjóðiegu skátastarfi og
munu erlendir skátar kynna sín
þjóðlönd og skátastarfið þar og
islensku skátamir kynna sína
heimabyggð og sérkenni hennar.
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, kemur í opinbera
heimsókn síðdegis og spjallar við
skáta. Einnig verður í gangi fjöl-
breytt íþróttadagskrá, landnáms-
leikur og ýmsar uppákomur.
Tveir íslenskir víkingar elja
kappi við tvo af sterkustu mönn-
um heims og um kvöldið verður
slegið upp víkingadansleik.
Útvarpsstöðin Bergmál verður
starfrækt alla mótsdagana og er
henni ætlað að vera eins konar
bergmál af því sem fram fer á
mótinu, að sögn Guðmundar Jóns-
sonar, útvarpsstjóra, sem hefur
komið sér fyrir í litlum skúr með
öllum nauðsynlegustu tækjum til
útvarpsrekstrar. Megintilgangur
útvarpsstöðvarinnar er að miðla
upplýsingum til mótsgesta.
Einnig verður gefið út móts-
blað á hverjum degi og auk þess
verða starfandi 23 fréttaritarar
sem senda héraðsfréttablöðum i
sinni heimabyggð fréttir af
landsmótinu.
Formaður bæjarráðs
Hafnarfjarðar
Eðlilegt að
skipa und-
irnefndir
til ákveð-
inna verka
„FULLYRÐINGAR um valdníðslu
koma mjög á óvart, því sveitarfélög
skipa mjög oft undirnefndir til að
vinna að ákveðnum verkefnum.
Miklar framkvæmdir eru á döfinni
hjá Hafnaríjarðarhöfn og því var
talið eðlilegt að skipa þriggja manna
nefnd, sem gæti fengist við það verk-
efni og ekkert annað. Ég veit ekki
til þess að félagsmálaráðuneyti hafi
haft afskipti af slíkri nefndarskip-
an,“ sagði Valgerður Guðmunds-
dóttir, formaður bæjarráðs Hafnar-
fjarðar, í samtali við Morgunblaðið.
Eins og skýrt var frá í Morgun-
blaðinu í gær hafa bæjarfulltrúar
Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði,
þau Valgerður Sigurðardóttir og
Magnús Gunnarsson, kært til félags-
málaráðuneytis þá ákvörðun meiri-
hluta bæjarstjórnar að setja á fót
starfsnefnd, er fjalli um fram-
kvæmdamál Hafnarfjarðarhafnar.
Valgerður Sigurðardóttir, for-
maður hafnarstjórnar, kvaðst telja
skipun starfsnefndarinnar ólög-
mæta, þar sem hún æiti greinilega
að fara inn á starfsvið hafnarstjórn-
ar og sagði ákvörðun meirihluta
bæjarstjórnar virka sem hreina og
klára valdníðslu.
Tilnefningar hafnarsljórnar
samþykktar
Valgerður Guðmundsdóttir kvaðst
undrast þennan málatilbúnað. „Bæj-
arstjórn ákvað að skipa þessa undir-
nefnd hafnarstjórnar vegna óvenju
mikilla framkvæmda á næstunni.
Hafnarstjórn var falið að tilnefna tvo
nefndarmenn og voru tilnefningar
Valgerðar Sigurðardóttur, Sjálf-
stæðisflokki, og Eyjólfs Sæmunds-
sonar, Alþýðuflokki, samþykktar á
fundi bæjarstjórnar. Þá þótti eðlilegt
að bæjarráð skipaði þriðja nefndar-
manninn. Á fundi ráðsins á fimmtu-
dag var hins vegar samþykkt að
verða við tilmælum bæjarfulltrúa
SjálfstæGisflokksins um að fresta
þeirri tiinefningu og þar kom fram
að nefndarskipunin hefði verið kærð
til ráðuneytisins."
Valgerður kvaðst ekki þekkja
dæmi þess að félagsmálaráðuneytið
hefði afskipti af skipan undirnefnda
og vinnunefnda á vegum sveitarfé-
laganna, en það yrði að koma í ljós
hveiju ráðuneytið svaraði kærunni.
Jón B. G. Jónsson, yfirlæknir á Patreksfírði um yfírvinnugreiðslur
Fráleitar fullyrðingar
JÓN B. G. Jónsson, yfirlæknir á
Sjúkrahúsi Patreksfjarðar, segir það
alrangt, sem fullyrt var í Morgun-
blaðinu í gær, að dæmi væru um að
hann hafi fengið í einum mánuði
yfirvinnugreiðslur sem samsvari því
að hann hafí unnið yfírvinnu allan
sólarhringinn alla daga mánaðarins.
„Þær fullyrðingar sem fram koma
í Morgunblaðinu um launagreiðslur
til mín eru alrangar og ekki blaðinu
sæmandi. Með þeim er vegið alvar-
lega að mannorði mínu, sem hlýtur
að kalla á viðbrögð af minni hálfu.
Að meðaltali eru yfírvinnutímar mín-
ir 15-30 í mánuði. Það hefur að sjálf-
sögðu komið fyrir að þeir hafí verið
fleiri sérstaklega þegar ég var eini
læknirinn á svæðinu. En fullyrðingar
um að ég hafí fengið yfírvinnu-
greiðslur sem samsvara því að ég
hafí unnið yfirvinnu allan sólarhring-
inn alla daga mánaðarins eru fráleit-
ar,“ sagði Jón.
Jón sagði að hann, eins og fjöl-
margir læknar á litlum sjúkrahúsum
á landsbyggðinni, væri ráðinn til
starfa af heilbrigðisráðuneytinu í
fullt starf sem heilsugæslulæknir og
hálft starf sem sjúkrahúslæknir.
Hluti af starfínu væri að sinna bak-
vöktum og í samræmi við ráðningar-
samninginn væri hann á bakvöktum
bæði sem heilsugæslulæknir og
sjúkrahúslæknir. Bakvaktagreiðslur
væru ekki það sama og yfirvinnu-
greiðslur, sem sæist best á því að
greiddar væru margfalt hærri upp-
hæðir fyrir yfírvinnu en greiddar
væru fyrir bakvaktir.
„Þetta fyrirkomulag tíðkast um
allt land og er í samræmi við ráðning-
arsamning sem heilbrigðisráðuneytið
hefur gert við mig. Ráðuneytið hefði
að sjálfsögðu getað neitað því að ráða
mig í 150% starf, en það gerði það
ekki, heldur réði mig í 150% starf og
greiðir mér laun í samræmi við kjara-
samninga. Hér er því ekkert sem
þarf að fela og á engan hátt staðið
óeðlilega að málum,“ sagði Jón.
Jón sagði ennfremur rangt að
hann hefði fengið greidda dagpen-
inga. Hann fengi greidda fæðispen-
inga í samræmi við reglur sem um
það gilda. Dregið hefði verið úr
greiðslu fæðispeninga til sín, en þær
hefðu ekki verið afnumdar eins og
fullyrt væri í frétt Morgunblaðsins.
Ath. ritst.
Fullyrðing Morgunblaðsins um
launagreiðslur til yfírlæknisins
byggjast á skýrslu, sem Sigfús Jóns-
son hefur tekið saman fyrir heilbrigð-
isráðuneytið, um rekstur Sjúkrahúss-
ins á Patreksfírði. Morgunblaðið leit-
aði samdægurs eftir viðhorfum yfir-
læknisins, sem birtust í sömu grein
og í beinu framhaldi af fyrmefndri
fullyrðingu. Það kann að vera álita-
efni hvort rétt sé að umreikna bak-
vaktir yfir í yfírvinnugreiðslur.
Ljósleiðara-
skreyting
hjá OLÍS
ÁTTATÍU metra löng Ijósleiðara-
skreyting var sett upp á nýrri bens-
ínstöð OLÍS í vikunni. Að sögn
Jóhannesar Tryggvasonar fram-
kvæmdastjóra Þríkants, sem sér
um sölu á velti- og ljósleiðaraskilt-
um, er þetta nýjung í auglýsinga-
tækni. Ljósleiðarinn er frá Banda-
ríkjunum og leiðir ljós en ekki
rafmagn, eins og hefðbundin neon-
skilti gera. Af þeim sökum er Ijós-
leiðarinn helmingi spameytnari á
rafmagn og hættuminni svo hægt
er að hafa hann innandyra. Ijós-
leiðarinn er samsettur af köplum
úr plasti sem breyta um lit eftir
því Ijósi sem sent er. Hver Ijóspípa
er um þrír sentimetrar í þvermál,
sem hægt er að móta og beygja
að vild. Bensínstöð OLIS á Sæ-
braut mun vera fyrsta bensínstöðin
í Evrópu sem fær Ijósleiðara.
Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg
THOMAS Möller, fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs
OLÍS, Einar Ólafsson, for-
stöðumaður söludeildar
OLIS, Jóhannes Tryggvason
framkvæmdastjóri Þríkants,
og Hafsteinn Guðmundsson,
forstöðumaður fram-
kvæmdadeildar OLÍS, settu
upp ljósleiðarakapal á bens-
ínstöð OLÍS við Sæbraut í
fyrrakvöld.