Morgunblaðið - 20.07.1996, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 20.07.1996, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1996 9 FRÉTTIR Fæ ðingarheimili hugsan- lega breytt í sjúkrahótel INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigð- isráðherra segir að fyrr eða síðar verði komið á fót sjúkrahóteli við Landsspítalann í Reykjavík. Heppi- legt húsnæði sé fyrir hendi þar sem er Fæðingarheimili Reykjavíkur við Þorfmnsgötu. Viðræður fara nú fram milli stjórnar Ríkisspítalanna og Reykjavíkurborgar um framtíð Fæðingarheimilisins. Könnun sem Landlæknisembætt- ið lét gera í fyrra bendir til þess að rúmlega 20% sjúklinga á spítöl- um gætu nýtt sér þjónustu sjúkra- hótela. Heilbrigðisráðherra telur hagkvæmast að hafa slíkt hótel í tengslum við stór sjúkrahús og þá helst á höfuðborgarsvæðinu. Hún vill þó ekki útiloka stórar sjúkra- stofnanir á landsbyggðinni. Góð reynsla Fulltrúar stærstu sjúkrahúsa landsins kynntu í vikunni skýrslu um kynnisferð sem farin var til Sviþjóðar og Danmerkur til að kynnast rekstri sjúkrahótela. Þetta fyrirkomulag hefur rutt sér mjög til rúms í Evrópu síðastliðin tíu ár, sérstaklega í Svíþjóð og Bretlandi. í Bandaríkjunum hafa sjúkrahótel þekkst í tuttugu ár. Niðurstöður ferðalanganna voru mjög jákvæðar. Kostnaður við dvöl á sjúkrahóteli Yestnorrænir þingmenn Pólitísk hlutfalls- kosning ÁRSFUNDUR Vestnorræna þing- mannasambandsins var haldinn í Vestmannaeyjum fyrir skömmu og stóð í þijá daga, en um 20 þingmenn frá íslandi, Grænlandi og Færeyjum sitja í ráðinu. Löndin skiptast á formennsku og lét Árni Johnsen alþingismaður af formennsku fyrir íslands hönd en við tók Lisbeth Petersen lögþingsmaður og borgarstjóri í Þórshöfn. Varafor- menn eru Jonathan Motzfeldt, lands- þingsmaður og fyrrverandi forsætis- ráðherra Grænlands, og Árni Jo- hnsen, en þeir eru formenn deildanna í hvoru landi fyrir sig. Aðalverkefni ársfundarins voru skipulagsbreytingar í þá veru að framvegis verði kosið pólitískri hlut- fallskosningu í Vestnorræna ráðið, alls 6 þingmenn frá hverju landi, en hingað til hefur verið einn fulltrúi frá hveijum flokki nema í Færeyjum þar sem smáflokkarnir eru margir og Færeyingar hafa sjálfir takmark- að fjöldann. Tillögurnar um breyt- ingarnar eru sendar þjóðþingum landanna til staðfestingar og jafn- framt var það samþykkt á ársfundin- um í Eyjum að fá fastan starfsmann í tengslum við skrifstofu Norður- landaráðs og endurskoða starfsregl- ur ráðsins. Á ársfundinum í Eyjum komu m.a. fram tillögur frá Árna Johnsen um Vestnorrænan handverksskóla í Hveragerði, tillaga frá Ástu Ragn- heiði Jóhannesdóttur, Rannveigu Guðmundsdóttur og Kristínu Ást- geirsdóttur um nýja Vestnorræna kvennaráðstefnu en slík ráðstefna var haldin á Egilsstöðum fyrir nokkrum árum. Þá kom fram tillaga frá Svavari Gestssyni um að gera yrði úttekt á efnahagsstöðu Vest- norrænu landanna þriggja með tilliti til nálægra landa. Fyrir íslands hönd sitja í ráðinu: Árni Johnsen formaður, Isólfur Gylfi Pálmason, Svavar Gestsson, Rann- veig Guðmundsdóttir, Kristín Ást- geirsdóttir og Ásta Ragnheiður Jó- hannesdóttir varaformaður. Morgunblaðið/Sverrir RÆTT er um að Fæðingarheimili Reykjavíkur verði gert að sjúkrahóteli í tengslum við Landsspitalann. Morgunblaðið/Ásdís Ásgeirsdóttir HÓTEL Lind við Rauðarárstíg er bæði með venjulegan hótelrekstur og sjúkrahótel. nemur frá fjórðungi til helmings kostnaðar af spítalavist. Sjúklingar virðast vera sáttir við fýrirkomulag- ið. í þjónustukönnunum sem gerðar hafa verið við sjúkrahótel í Lundi í Svíþjóð hafa 98-100% hótelgesta lýst yfir ánægju sinni með aðbúnað- inn. Besta raun hefur gefið að hafa hótelin í næsta nágrenni við spítal- ana til þess að skammt sé í alla neyðarþjónustu, en þó aðskilin frá sj úkrahúsbyggingunum. Sjúkrahótel hefur um hríð verið rekið við Rauðarárstíg á vegum Rauða krossins. Það er með nokkuð öðru fyrirkomulagi en það sem skýrsluhöfundar leggja nú til. Þeir töldu þó að reynslan af Rauða krosshótelinu væri góð og hentaði vel fyrir ákveðinn hóp sjúklinga. tJtsala 15% aukaafsláttur af blússum og buxum f cz FESS Opið vlrka daga I v neðst viö kl. 9-18, Dunhaga, laugardaga * \ sími 562 2230 kl. 10-14. j TJLn lÍBllHninmll íJraaágqr Laugavegi 58, simi 551 3311. Full búð af nýjum töskum Mikið úrval í Ijósum litum Sjón er sögu ríkari _ ^ . _ Oi Núna munar 5 krónum... sksSSB ORKAN Þ A Ð M U N A R U M M I N N A ! ísland er meira en nafnið eitt Aukin og endurbætt útgáfa með sérstakri leiðsögn um Reykjavík, en óbreytt verð kr. 2.980,- ÍIíslenskaJI' BÓKAÚTGÁFAN Síðumúla 11 • Simi 581 3999 Fróðleikur - Ferðagleði - Fararheill 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.