Morgunblaðið - 20.07.1996, Síða 11

Morgunblaðið - 20.07.1996, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1996 11 AKUREYRI LAIMDIÐ Deiliskipulag í Krossanesi samþykkt í hafnarstjórn Fyrirtækjum á svæðinu tryggð lóðarstækkun HAFNARSTJÓRN Akureyrar hefur samþykkt deiliskipulag í Krossa- nesi, en það var unnið var af Finni Birgissyni, arkitekt. Svæðið sem um ræðir afmarkast til vesturs af fyrir- hugaðri legu Krossanesbrautar. Það tekur yfir allt land austan brautar- innar frá Jötunaheimavík, norður að túnum í Ytra-Krossanesi. Á síðasta ári var landfylling norð- an Krossaness afmörkuð með grjót- garði og gerður nýr 80 metra langur viðlegukantur til norðurs frá enda eidri bryggju í Krossanesi. Nú er unnið að því að fylla upp innan garðsins og verður hin nýja fylling um 4,7 hektarar. Fyrirtækjum sem þegar eru á Krossanessvæðinu hefur verið tryggð lóðarstækkun, en jafn- framt verða um 2,3 hektarar lausir fyrir nýja starfsemi á svæðinu. Frekari samvinna olíufélaganna Fyrirtækin í Krossanesi eru Fóð- urverksmiðjan Laxá, Krossanes- verksmiðjan, Sementsverksmiðja ríkisins, Skeljungur og Olíudreifing hf., sem er nýtt fyrirtæki í eigu Olís hf. og Olíufélagsins hf. í skipulaginu er tekið frá svæði fyrir olíubirgða- stöðvar eða aðra hafnsækna starf- semi, sem teygir sig nokkuð til norð- urs frá núverandi lóðum olíufélag- anna en er að stærstum hluta vest- ast og nyrst á fyllingunni. Olíudreif- ingarstarfsemi Olíufélagsins er nú á Oddeyri en miðað er við að hún flytj- ist í Krossanes innan 10-12 ára. I framhaldinu er gert ráð fyrir frekari samvinnu allra olíufélaganna á svæðinu, t.d. varðandi olíutanka og átöppunaraðstöðu. Laxá hf. mun fá verulega aukið lóðarrými til norðurs og austurs en einnig lítillega til vesturs. Þarna geta alls verið til ráðstöfunar um 11.000 fm utan við núverandi lóð Láxár. I greinargerð með skipulagst- illögunni kemur fram að á þessu stigi sé ekki tekin afstaða til þess hversu miklum hluta þessa lands skuli ráðstafað til fyrirtækisins, þar sem þarfir þess séu enn í mótum. Væntanleg „Suðurgata" mun skerða nokkuð núverandi lóð Krossaness hf. og skera hana í sund- ur. Á móti kemur að gert er ráð fyrir að fyrirtækið fái um 1.800 fm lóðarstækkun í áttina að nýja hafn- arbakkanum og að síðar geti lóð þess stækkað enn til austurs og suð- urs um 6.200 fm á landfyllingum innan marka deiliskipulagsins. HAFNARSTJÓRN Akureyrar hefur samþykkt deiliskipulag í Krossanesi sem unnið er af Finni Birgissyni arkitekt. Þýskur stúlknakór heldur tónleika VÍÐFRÆGUR stúlknakór frá Frankfurt í Þýskalandi, Sing-und Spielkreis, er á ferðalagi hér á landi um þessar mundir. Kórinn heldur tvenna tónleika norðanlands, í Húsavíkurkirkju á morgun, sunnudaginn 21. júlí, kl. 17 og í Akureyrarkirkju þriðjudags- kvöldið 23. júlí kl. 20.30. Kórinn hefur ferðast víða um heim og eru á efnisskránni lög frá öllum heimshornum. Gönguferð um Oddeyrina GÖNGUFERÐ verður um Oddeyr- ina á Akureyri á morgun, sunnu- daginn 21. júlí og hefst hún kl. 14. Ferðin er á vegum Minjasafnsins á Akureyri og verður leiðsögumaður með í för. Lagt verður af stað frá Gránufélagshúsunum við Strand- götu og gengið um elsta hluta Eyr- arinnar. Ekkert þátttökugjald. Söngvökur eru í Minjasafnskirkj- unni öll þriðjudags- og fimmtudags- kvöld frá kl 20 til 22 þar sem þau Ragnheiður Ólafsfdóttir og Þórar- inn Hjartarson flytja sýnishorn úr íslenskri tónlistarsögu. MESSUR AKUREYRARKIRKJA: Guðs- þjónusta verður á morgun, sunnudaginn, 21. júlí kl. 11. Karel Paukert leikur á orgel. Hann leikur einnig á sumartón- leikum á Norðurlandi sem verða í kirkjunni kl. 17 á morgun. GLERÁRKIRKJA: Guðsþjón- usta verður í kirkjunni kl. 21 annað kvöld. Sr. Hannes Örn Blandon þjónar. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Samkoma í umsjá ungs fólks kl. 20.30 í kvöld, laugardagskvöld. Safnaðarsamkoma kl. 11 á morgun, sunnudag. Vakningar- samkoma kl. 20 sama dag. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í kvöld, laugardagskvöld kl. 20 og á morgun, sunnudag kl. 11. Gamalt skútu- ankeri kom í snurvoðina Skagaströnd - Snurvoðarbáturinn Guðrún Jóns- dóttir fékk nýlega óvenjulegan feng í veiðarfær- in þegar báturinn var að veiðum á gömlu skipa- legunni fyrir utan höfnina á Skagaströnd. Stærð- ar ankeri kom upp með voðinni og voru þeir á Guðrúnu í basli við að ná því innfyrir. Ankerið er greinilega búið að liggja í sjónum lengi því það er farið að láta á sjá. Gamlir sjó- menn telja að ankerið sé af skútu og þykjast þeir sjá það af því hvernig það -er í laginu. Skipveijarnir á Guðrúnu færðu Vilhjálmi Skaftasyni hafnarverði ankerið að gjöf og stefnir hann að því að koma því fyrir á hafnarsvæðinu. Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir BÆJARSTJÓRAR Egilsstaða og Runavík Kommuna ásamt bæjarfulltrúum Runavík og mökum. Mikil ræktun á söndunum Suðursveit - Heyskapur er nú á síðasta snúningi hér í sveit. Spretta hefur verið góð, svo og tíð lengst af. Gífurleg sandarækt hefir átt sér stað á undanförnum árum, og er nú svo komið að meginþorri hey- fengs er af henni. Flestir rúlla heyinu, en einn og einn heldur tryggð við gömlu bindivélina að hluta. Vonandi lenda þær vélar ekki á byggða- safni innan tíðar. Myndin er tekin af heyskap á Kálfafellsaurum, þar sem skár- arnir eru tæplega kílómetra lang- ir. Eins gott að sofna ekki undir stýri! Yinabæja- tengslin styrkjast Egilsstöðum - Bæjarfulltrúar ásamt bæjarstjóra Runavík Kommuna í Færeyjum heim- sóttu Egilsstaði nýlega en Runavík og Egilsstaðir eru vinabæir og hafa verið í slíku samstarfi í 5 ár. Helgi Halldórs- son bæjarstjóri Egilsstaða segir samstarfið hafa verið gott, m.a. hafi knattspyrnudeild Iþrótta- félagsins Hattar farið í heim- sókn til Runavíkur og dvalið þar í 5 daga. Helgi segir Runavík skarta jólatré frá Egilsstöðum um hver jól, en annars hafi sam- skiptin verið mest bréfleiðis og með heimsóknum bæjarfull- trúa. Núna sé hins vegar verið að ræða livað megi gera til þess að efla samskiptin og að fleiri geti notið þeirra á beinan hátt. Jakop Lamhauge bæjar- stjóri Runavík Kommuna var ánægður með heimsóknina en hann var að heimsækja Egils- staði í fyrsta sinn. Hann segir mikilvægt að efla samskipti í íþróttum og menningarleg tengsl milli bæjanna þannig að börn og ungt fólk séu þátttak- endur. Ekta teppi á Legra verði en gervimottur! arsala Sértilboð á stórum teppum: Pakistan Jaldar 266x 187 áður 52.800 Nú 24.800 Pakistan Keshan 284x186 Mvr 149.800 Nú 79.800 Pakistan Bochara 310 x 218 aður 129.800 Nú 69.800 Afghan Balutch Extra ca 90 x 130 áður 10-15.800 Nú 7.800 Antik rússtiesk Yomud 332 x 215 áður 489.000 Nú 199.800 Persnesk Keshan 217 x 136, áður 139.000 Nú 69.800 Asamt mörgnm óðrum frábarum tilboðum HÓTEL REYKJAVÍK Sigtúni í dag taugard. 20. júlí kl. 11-17 og á morgun sunnud. 21. júlf kl. 12-19 (siðastl dagurlnn) Vísa - Euro - raðgreíðslur Aiísturlenska teppasalan hf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.