Morgunblaðið - 20.07.1996, Side 15

Morgunblaðið - 20.07.1996, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1996 15 Breiðþotan sem splundraðist nálægt Long Island í Bandaríkjunum Leitað að svörtum köss- um með hátæknibúnaði ERLENT Reuter HARMUR var kveðinn að 5.000 manna bæjarfélagi, Montours- ville í Pensylvaníuríki, er TWA-þotan fórst því með henni voru 16 menntaskólanemar, kennari þeirra, kona hans og þrír foreldr- ar. Myndin var tekin við minningarathöfn í skólanum. New York, East Moriches. Reuter. VERSNANDI veður tafði í gær leit- ar- og björgunarstarf á þeim slóðum sem brak úr breiðþotu bandaríska flugfélagsins Trans World Airlines (TWA) er talið hafa fallið í sjóinn undan Long Island í New York á miðvikudagskvöld að staðartíma. Búist var við því að kafarar og sér- útbúin leitarskip bandaríska flotans gætu hafið leit í dag að flug- og hljóðritum þotunnar, svonefndum svörtum kössum, en vonir eru bundnar við að upplýsingar sem þeir geyma geti leitt i ljós hvað olli því að þotan splundraðist á flugi með þeim afleiðingum að allir 230, sem um borð voru, fórust. Sérfræðingar bandarískra flug- og samgönguyfirvalda og alríkis- lögreglunnar (FBI) hafa ekki fundið vísbendingar um það hvort sprengja hafi grandað þotunni, skömmu eftir flugtak frá Kennedy-flugvelli í New York. Hins vegar var stóru svæði á sjó og landi lokað almenningi vegna rannsóknarinnar svo sem gert er þegar um glæparannsókn er að ræða. Stjórnendur rannsókn- arinnar forðuðust þó að fullyrða nokkuð um að hugsanlega hefði sprengja grandað þotunni og sögðu ýmsar aðrar hugsanlegar orsakir, vélarbilanir eða annars konar bilan- ir, vera taldar koma til greina. Þot- an var í 13.700 feta hæð er hún splundraðist svo að eldhnöttur myndaðist á himni. Um 30 metra dýpi er á þeim slóðum sem brakið kom niður 14 km suður af Moriches- vík á Long Island, 112 km austur af New York-borg. Skjótur dauðdagi Charles Wetli, yfirmeinafræðing- ur Suffolk-sýslu, þess umdæmis sem þotan fórst í, hafði skoðað flest líkanna 104 sem fundist höfðu í gær. Hann sagðist draga þá ályktun að flestir hefðu beðið bana á svip- stundu af völdum gífurlegrar högg- bylgju sem fylgt hefði sprengingu. Vísbendingar hefðu fundist um að nokkur fórnarlamba slyssins hefðu drukknað. „Það þýðir þó ekki að þau hafi verið með meðvitund," sagði hann og bætti við að miklu fremur hefðu viðkomandi misst meðvitund af völdum sprengju- höggsins og fallsins í sjóinn. Wetli sagði að engin merki væru á líkun- um er bent gætu til þess að sprengja hefði sprungið í farþegaklefanum. Brunasár á nokkrum bentu til bruna af völdum þotueldsneytis líklega eftir að viðkomandi voru látnir. Af þeim sem fórust með TWA-þot- unni voru 169 bandarískir, 42 voru franskir, 11 ítalskir, tveir norskir, einn Spánvetji, Breti, Kínveiji, Port- úgali, Svíi og einn Þjóðveiji. Hátæknibúnaður til leitar Átta strandgæsluskip og 20 minni skip tóku þátt í leitar- og björgunarstarfi í gær en kaldi og stöku hryðjur gerðu þeim erfitt fyr- ir. Spáð var versnandi veðri á leitar- svæðinu. Búist var við því, að kaf- arasveit bandaríska flotans gæti ekki hafið leit að flugritum TWA- þotunnar fyrr en í dag. Sérstakur hátæknibúnaður var settur um borð í skip flotans í New Jersey í gær en þaðan er um 100 sjómílna sigl- ing á slysstað. Þegar flugritar koma í saltvatn fer í gang búnaður er sendir frá sér hljóðmerki sem leitar- tæki geta numið. Ekki höfðu slík hljóðmerki verið numin í gær. Gamlar þotur notaðar lengur og lengur Sérfræðingar á sviði flugmála segja að aldur flugvéla skipti sjaldn- ast máli þegar þær hafa farist, en TWA-slysið hefur orðið til þess að leiða athyglina að því, að eldri flug- vélar eru notaðar til farþegaflugs í auknum mæli. Að sögn Chris Partridge hjá ráðgjafafyrirtækinu Avmark, hafa vaxandi ferðalög haft þar áhrif á. Flugfélög hafi haft tilhneigingu til að framlengja fremur líf gamalla flugvéla en kaupa nýjar þotur eða mun yngri þar sem það sé fjárhagslega hag- kvæmara. Breiðþota TWA var 25 ára gömul og meðalaldur flugflota félagsins er sá hæsti í Bandaríkjun- um, eða 19,8 ár. Viðhald flugflota félagsins hefur hins vegar þótt til fyrirmyndar og það hefur verið orð- lagt fyrir öryggi. Búnað til sprengjuleitar vantar Þrátt fyrir sérstök fyrirmæli bandaríska þingsins í framhaldi af Lockerbie-slysinu 1988 og áralang- ar rannsóknir er fullkomin sprengjuleitartæki ekki að finna á flestum bandarískum flugvöllum. Búnað af því tagi er að finna í mörgum Evrópu- og Asíuríkjum og hann er nær allur bandarískur. Skuldinni skella framleiðendumir á bandarísku flugmálastjórnina (FAA) sem aðeins fékkst nýverið til að samþykkja, að gera mætti tilraunir með sprengjuleitarbúnað sem kostar um 60 milljónir króna, í því skyni að endurbæta hann enn frekar. Er hann í notkun einvörð- ungu á flugvöllunum í San Franc- isco og Atlanta. Radújev sakar leiðtoga Tsjetsjena um svik Klofningrir vegna v opnahléssamninga? Flóðin í Kína 716 hafa farist Peking. Reuter. FÓRNARLÖMB flóða í átta héruð- um um miðbik og í suðurhluta Kína eru nú orðin 716 og tvær milljónir manna hafa orðið að yfirgefa heim- ili sín, að því er kínverska innanrík- isráðuneytið greindi frá í gær. Nærri fjórar milljónir manna hafa einangrast af völdum flóðanna, 810 þúsund heimili hafa eyðilagst og hátt á þriðju milljón heimila skemmst, segir í yfirlýsingu frá ráðuneytinu, þar sem nákvæmlega er gerð grein fyrir náttúruhamförum í Kína á fyrra helmingi ársins. Alls hafa 1875 manns látist af völdum jarðskjálfta, hagléls, flóða og þurrka á þessu tímabili. Flóðin sem hófust um miðjan júní hafa valdið skemmdum á hátt í tíu milljónum hektara ræktaðs lands, og eyðilagðist uppskera af einni milljón hektara lands. I yfirlýsingu ráðuneytisins segir að tjón af völdum flóðanna nemi sem svarar 320 millj- örðum íslenskra króna. Moskvu. Reuter. SERGEJ Stepashín, sem stjómar starfi nefndar stjómvalda í Moskvu um málefni Tsjetsjníju, vísaði í gær á bug fullyrðingum skæmliðaforingj- ans Salmans Radújevs þess efnis að Tsjetsjenaleiðtoginn Dzhokar Dúdajev væri enn á lífi. „Ég ætla ekki að sveija við kóraninn en get sagt með 100% vissu að Dúdajev er ekki á lífi,“ sagði Stepashín. Hann sagðist ekki efast um að maðurinn, sem kynnti sig á frétta- mannafundi einhvers staðar í Tsjetsjníju á fímmtudag sem Radújev, væri skæmliðaforinginn en hann hafði þá ekki sést opinberlega í meira en þtjá mánuði. Var hann talinn fall- inn. Radújev, sem var nrjög breyttur í útliti, sagðist hafa særst af völdum leyniskyttu Rússa en leitað sér aðstoð- ar hjá lýtalækni í Þýskalandi. Skærul- iðaforinginn komst í heimsfréttimar í mars er hann og menn hans tóku hundmð rússneskra gísla í grannhér- aðinu Dagestan og vörðust dögum saman fjölmennu umsátursliði Rússa. Dúdajev er sagður hafa verið felld- ur með flugskeyti í apríl en lengi hafa verið á kreiki sögur um það meðal almennings í Kákasushéraðinu að hann hafí særst illa en lifað af. Er hann var jarðsettur gerðu samheij- ar hans það með mikilli leynd á stað sem ekki hefur verið skýrt frá. Rússar áhyggjufullir Radújev hvatti til allshetjarstríðs gegn Rússum. Hann sakaði arftaka Dúdajevs, Zelímkhan Jandaríev, um svik við þjóð Tsjetsjena en Jandarbíev samdi um vopnahlé við Borís Jeltsín Rússlandsforseta skömmu fyrir for- setakosningar. Hvort sem Dúdajev lifir er klofningurinn í röðum Tsjetsj- ena ekki góð tíðindi fyrir Rússa sem verða ef til vill að búa sig undir hryðjuverk og gíslatöku af hálfu þeirra uppreisnarmanna sem enga samninga vilja en heimta sjálfstæði héraðsins tafarlaust. Stepashín sagði að Radújev og ann- ar þekktur skæruliðaforingi, Shamíl Basújev, hlýddu ekki skipunum forystu Tsjetsjena og væri um að ræða eitt erfíðasta málið í friðarviðleitninni. Hörð átök hafa blossað upp á ný í Tsjetsjníju eftir forsetakosningarn- ar og mannfall verið mikið. Dúman, neðri deild þings Rússlands, hvatti í gær Jeltsín til að stöðva þegar í stað allan hernað í héraðinu og bjóða leið- togum uppreisnarmanna til viðræðna við æðstu embættismenn í Moskvu. Læri hol- lensku ALLIR útlendingar frá löndum utan Evrópusambandsins sem vilja setjast að í Hollandi þurfa að læra hollensku, að sögn talsmanns hollenskra stjórn- valda. Innflytjendum er einnig skylt að sitja námskeið í fé- lagsaðlögun og fá leiðbeining- ar um atvinnumöguleika, að viðlagri sekt sem nemur um 250.000 krónum, og sviptingu félagslegra réttinda. Andrés hætt- ir í flotanum ANDRÉS Bretaprins hyggst hætta hermennsku innan þriggja ára, að því er breska varnar- málaráðnu- neytið greindi frá í gær. Fyrr á þessu ári skildi Andrés við konu sína, hertoga- ynjuna af York, Söru Ferguson. Hann er nú þyrluflugstjóri í flotanum. Bjartsýnn á sameiningu JIMMY CARTER, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sagði á fimmtudag að aukin stjórn- málasamskipti Norður-Kóreu við önnur ríki gæfu tilefni til bjartsýni á að Norður- og Suð- ur-Kórea gæti orðið eitt ríki á ný. Sagði Carter að samræður n-kóreskra og bandarískra stjórnarerindreka muni „bera ríkulegan ávöxt.“ I lífshættu vegna eitrunar TVÖ börn eru í lífshættu vegna matareitrunarinnar, sem upp kom í skólaeldhúsum í Japan í byijun vikunnar. Nærri 6.000 börn hafa veikst, flest eftir að hafa borðað hrá- an ál en einnig veiktust all- mörg börn sem snæddu reykt svínakjöt. Bakterían sem sýk- ingunni veldur, kallast 0-157 og er ristilbaktería. Morðingi Moros næst ÍTALINN Germano Maccari, sem fyrr í vikunni var dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á Aldo Moro, forsætisráðherra Ítalíu, árið 1978, var handtek- inn í gær. Áfrýi Maccari dóm- inum má hann ganga laus samkvæmt lögum en óttast var að hann myndi flýja. Hlutverk Dí- önu mikilvægt JOHN MAJOR, forsætisráð- herra Bretlands, sagði á finnntudag að Díana prinsessa myndi halda áfram að gegna mikilvægu hlutverki á opinber- um vettvangi, þrátt fyrir að hún væri skilin við Karl prins og hefði ekki lengur konung- legan titil. Sagði Major að Díana heyrði til konungsijöl- skyldunni og svo yrði áfram, og því væri ekki annars að vænta en að hún myndi halda áfram að taka þátt í opinberu lífi í Bretlandi. Andrés prins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.