Morgunblaðið - 20.07.1996, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 20.07.1996, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ STÆRSTA SKEMMTISIGLIN6A- SKIP HEIMS, DESTIN KORT af siglingaleiðum Destiny á Karíbahafí. Glæsiskipið Destiny, sem hleypt verður af stokkunum í nóvember næstkomandi, verður stærsta skemmtiferðaskip sem siglt hefur á heimshöfunum. Sveinn Guðjónsson kynnti sé innviði skipsins og umsvif Carnival skipafélagsins, sem gerir skipið út. FULLKOMNASTA og fjöl- breyttasta frí, sem völ er á, vinsælustu skemmtisiglingar heimsins", auglýsir CARNIVAL skipafélagið, og virðist standa við það, eftir vinsældum þess að dæma. Margt bendir til að Camival hafi tryggt sér yfirburðastöðu í skemmtisiglingum heimsins með glæsilegum skipaflota sínum í Karí- bahafi, sem stækkar ár frá ári. Carnival skipafélagið rekur nú tólf glæsilega búin lúxusskip, sem flest láta úr höfn í Miami eða San Juan á Puerto Rico vikulega og sigla mismunandi leiðir milli eyja í Karí- bahafi, en auk þess eru í boði lengri siglingar, 11-16 daga gegnum Panamaskurðinn norður með strönd Mið-Ameríku til Los Angeles, viku Alaskasiglingar frá Vancouver á sumrin, og 11 daga siglingar frá Vancouver til Hawaii eyja. Ljósasta dæmið um vöxt og við- gang Camival skipafélagsins er hin mikla aukning skipaflotans, tvö ný risaskip á ári síðustu ár. INSPI- RITION, rúm 70 þúsund tonn, hóf siglingar í lok aprfl, en stærsta skip- inu verður hleypt af stokkunum inn- an skamms og hefur siglingar í byrj- un nóvember. Það hefur hlotið nafn- ið DESTINY og verður stærsta skemmtiferðaskip heimsins, 101 þúsund tonn, eða nærri þriðjungi stærra en Queen Elisabeth II. frá Cunard, sem kom við í Reykjavík á dögunum. Flaggskip skemmti- skipaflntans Destiny - „Örlögin“- verður afar glæsilega búið og flaggskip skemmtiskipaflotans með full- kominni aðstöðu bæði til hvíldar, slökunar og endurhæfingar, svo sem fjórum sundlaugum, sjö nudd- pottum, skokkbrautum, líkams- ræktarstöð, nudd-, snyrti- og hár- greiðslustofum. Tónlist af öllu tagi verður í boði, bæði klassísk dinner- tónlist, jazz og latnesk, afrísk-amer- ísk tónlist Karíbahafsins með sitt eggjandi hljóðfall, kvikmyndasalur, stærsta kasínó á hafi úti, píanóbarir, danssalur og tollfrjálsar verslanir. Næturklúbburinn Palladium með fullkomnum leiksviðsbúnaði, þar sem þrjár hæðir eru til lofts, er glæsilegt leikhús, þar sem fjölþjóða skemmtikraftar koma fram á sýn- ingum í Las Vegas stfl. I miðju skipsins er aðalsetustofan, Rotunda, atríumbyggð, þ.e. opin upp í gegnum níu þilför skipsins, glæsi- lega innréttuð með glerþjúp efst, svo að dagsbirtan kemst inn, en á kvöld- LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996 17 fögrum eyjum. Verðið á skemmti- siglingum hefur líka lækkað veru- lega frá því sem áður var, svo að nú geta fleiri en áður látið slíkan draum rætast. Heimsklúbbur Ingólfs og ferða- skrifstofan hans, Príma, fara með umboð á Islandi fyrir Carnival skipafélagið frá árinu 1994. Að sögn Ingólfs Guðbrandssonar for- stjóra er stöðug aukning í sölu með skipum Carnival, og nú um mitt ár var farþegafjöldinn orðinn tvöfald- ur frá síðasta ári. „Siglingar eru í tísku í heiminum í dag,“ segir Ingólfur. “Fólk er komið á bragðið. Margar pantanir hafa nú þegar borizt fyrir næsta ár, t.d. stór hóp- ur, sem vill sigla með Destiny um mitt næsta ár. Hin frábæru kjör, sem okkur hefur tekizt að útvega, hafa líka ýtt undir og kynnt þennan ferðamáta, þar sem um allt að helmings afslátt hefur verið að ræða á siglingunni, og svo njótum við líka sérfargjalda á flugfargjöld- um, sem einnig sparar farþeganum útgjöld. Nú vita margir af reynsl- unni, hvað lífið um borð er skemmtilegt og möguleikarnir óþrjótandi að njóta lífsins." FJörið ag gleðin ráða ríkjum PENTHOUSE svítan á efsta þilfari. FJÖRUGT næturlíf er einkennandi fyrir siglingarnar. Sumir fá sér snúning, aðrir bregða sér í spilavítið. MIKIÐ er lagt upp úr glæsilegum kvöldmáltíðum og hér er teikning af Universe matsalnum, einum af þremur stórum veislusölum skipsins. in geta gestir horft á stjömur himins og jarðar úr sætum sínum. Þrír stór- ir veislusalir eru um borð og veiting- ar ekki af verri endanum, matseld i höndum færustu matreiðslumeist- ara, og fullt fæði innifalið með allt að fimm máltíðum á dag. Siglingar í tísku Vinsældir skemmtisiglinga fara sívaxandi, eins og sjá má af umsvif- um Carnival skipafélagsins. Fleiri og fleiri líta svo á að með góðri skemmtisiglingu rætist draumurinn um fullkomið frí við bestu aðstæð- ur, þar sem allt er innan seilingar, þar sem gististaðurinn færist um set með gestinum og aldrei þarf að pakka niður, fyrr en farið er frá borði. Karíbahafið er langvin- sælasta svæði fyrir skemmtisigling- ar í heiminum, en því veldur bæði gott loftslag og fjölbreytt mannlíf á Til skamms tíma hefur sú skoðun verið ríkjandi að skemmtisiglingar væru aðeins fyrir aldrað, ríkt fólk og lífið um borð væri eins og á elli- heimili. En því fer fjarri á skipum Carnival, þar sem fjörið og gleðin ráða ríkjum. Markaðskannanir í Bandaríkjunum staðfesta líka að ungt fólk sækir í síauknum mæli í skemmtisiglingar Carnival skipafé- lagsins, enda eru skipin sérstaklega smíðuð með afþreyingu og skemmt- analíf í huga, svo sem fjörugt næt- urlífið um borð ber vott um. Hins vegar getur fólk jafnframt notið kyrrðar og hvfldar og ekki síst úti- vistar við einstök skilyrði. I samanburði við dvöl á lúxushót- elum og fæði á góðum matsölustöð- um eru siglingar Carnival ódýrar, eða allt frá 100 dollurum að meðal- tali á dag með öllu innifóldu nema drykkjum, eða svipað og góð máltíð á bestu veitingastöðum á Islandi. Að sögn Ingólfs Guðbrandssonar er algengt að fólk lengi dvöl sína og bæti til dæmis viku við eftir sigl- ingu, annað hvort í Flórída eða á eynni Dóminíkana í Karíbahafi, sem er undurfögur, og verðlag þar er sérlega hagstætt, dvöl á góðum gististað með öllu inniföldu, mat, drykkjum og skemmtun fyrir um 50 dollara á dag. Heimahöfn Destiny verður Mi- ami, og þaðan mun skipið sigla vikulega frá nóvemberbyrjun, til skiptis eystri og vestari siglingaleið um Karíbahafið. skipið er um 300 metrar að lengd, farþegaþilför eru níu, rúm fyrir 2642 farþega um borð og í áhöfninni eru 1000 manns. Læknar og hjúkrunarlið eru um borð og sjúkrastofa, ef eitthvað skyldi bera útaf með heilsu far- þega, og allur öryggisútbúnaður er eftir ströngustu reglum. Vafalaust mun marga íslendinga fýsa að taka sér far með þessum glæsilega far- kosti. — Carnlvnl Dcstiny ■ ■■■ ■■ x—■* f*

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.