Morgunblaðið - 20.07.1996, Síða 31

Morgunblaðið - 20.07.1996, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JÚLÍ 1996 31 FRÉTTIR Yfirlýsing frá formanni Félags járniðnaðarmanna Fullyrðingar um launa- skrið standa óhaggaðar Launaþróun hjá málmiðnaðarmönnum 1995 MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Erni Friðrikssyni fyrir hönd Félags járniðnaðarmanna: „VEGNA fullyrðinga Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoðarfram- kvæmdastjóra VSÍ í Morgunblað- inu í gær, föstudag 19. júlí, um launakjör og kjarabaráttu málm- iðnaðarmanna, telur Félag járn- iðnaðarmanna mikilvægt að stað- reyndir þessarar umræðu verði dregnar fram í dagsljósið. Hannes sakar formann Félags járniðnaðarmanna um að spilla fyrir árangri samningaviðræðna í Hvalfjarðargöngum með þvi að dreifa röngum upplýsingum um launaþróun í þeim tilgangi að valda ólgu á vinnumarkaðnum og reyna þannig að knýja á um launa- skrið. Upplýsingar þær sem formaður Félags járniðnaðarmanna hefur um verulegt launaskrið í málmiðn- aði eru komnar frá Kjararann- sóknarnefnd, þar sem Hannes á sæti fyrir hönd VSÍ. Launakannanir Kjararannsókn- arnefndar sýna að allt árið 1995 hafa laun í málmiðnaði verið að hækka. Þær staðfesta trúverðug- leika nýjustu könnunarinnar. Hannes dregur sérstaklega í efa að nýjustu upplýsingar Kjararann- sóknarnefndar um laun í málmiðn- aði séu réttar. Þær ná yfir síðasta ársfjórðung 1995. Þessar tölur eru byggðar á minna úrtaki en venju- lega, en samt álíka stóru og hjá trésmiðum og bifvélavirkjum. Engu að síður staðfesta þessar tölur þá þróun sem fram kemur í þremur undangengnum könnun- um Kjararannsóknarnefndar árið 1995. Tilraun Hannesar til að rugla óskyldum hlutum inn í launa- greiðslurnar faila um sig sjálfar. Hann segir að inni í launatölunum séu, auk bónusgreiðslna, verk- færagjald, fæðispeningar, fata- peningar o.fl. Þetta breytir ekki niðurstöðinni, því málmiðnaðar- menn fá ekki greitt verkfæragjald, fatapeninga eða fæðispeninga, að undanskildum blikksmiðum, sem fá greitt verkfæragjald. Hannes sakar Félag járniðn- aðarmanna um að ýta undir ólgu með því að gefa rangar upplýs- ingar um laun málmiðnaðar- manna. Staðreyndin er sú að ein- göngu er vitnað til upplýsinga Kjararannsóknarnefndar og þær framreiknaðar með 3% hækkun sem kom til framkvæmda um síð- ustu áramót. Þessar ósönnu og alvarlegu ásakanir Hannesar falla um sjálfar sig þegar kannanir Kjararannsóknarnefndar eru skoðaðar í samhengi fyrir árið 1995. Til viðbótar er vert að geta þess að þó Kjararannsóknarnefnd hafi ekki gert launakannanir á árinu 1996, þá hefur þessi launaþróun haldið áfram í málmiðnaðinum. Sem betur fer virðist lokið sam- dráttartímabili launastöðvunar og atvinnuleysis í málmiðnaði. Eftir- spurn eftir málmiðnaðarmönnum er mikil og fer vaxandi. Fullyrðingar Hannesar um það að iðnaðarmenn við Hvalfjarðar- göng komi til viðræðna um launa- kjör á grunni rangra upplýsinga um laun sín eru einnig út í hött. Þar stranda samningar einfaldlega á því að vinnuveitendur bjóða kjör sem mundu þýða launalækkun fyrir hluta viðsemjenda þeirra. Þetta hafa starfsmenn staðfest. Öðru vísi mér áður brá, kynni einhver að segja um þær hnútur sem hér er kastað að Félagi járn- iðnaðarmanna. Til skamms tíma kepptust vinnuveitendur við að segja að laun væru of há, á meðan launþegar sögðu þau of lág. Sú sérkenfiilega staða er nú komin upp að fulltrúi vinnuveitenda keppist við að telja mönnum trú um að laun málmiðnaðarmanna séu lægri en fram kemur í frétta- bréfi Kjararannsóknarnefndar - þar sem þessi sami fulltrúi vinnu- Veitenda gefur út þessar upplýs- ingar. I þessu tilfelii verður Vinnuveit- endasambandið þó að sætta sig við að lögmál markaðarins um framboð og eftirspurn, sem vænt- anlega eru vel þekkt á þeirri skrif- stofu, hafa einfaldlega orðið til þess að þrýsta upp launum í málm- iðnaði. Þau hafa að öllum líkindum hækkað frá því Kjararannsóknar- nefnd gerði sína síðustu könnun í árslok 1995. Meðfylgjandi eru upplýsingar úr fréttabréfum Kjararannsóknar- nefndar sem staðfesta þá launa- þróun sem átt hefur sér stað í málmiðnaði." Launabreytingar hjá málmiðnaðarmönnum á höfuðborgarsvæðinu árið 1995 skv. fréttabréfum Kjara- rannsóknanefndar Greitt tímakaup í dagvinnu Vinnustundir Hreint Neðri Meðaltal Efri Meðal Greidd dagv. Heildar á viku tímakaup fjórðungur dagvinnu fjórðungur tímakaup laun á mán. mánaðarlaun 1. ársfj. 1995 51,6 602 kr. 552 kr. 608 kr. 668 kr. 724 kr. 105.400 kr. 161.900 kr. 2. ársfj. 1995 52 622 kr. 571 kr. 630 kr. 711 kr. 746 kr. 109.200 kr. 167.990 kr. 3. ársfj. 1995 49,3 648 kr. 570 kr. 679 kr. 736 kr. 783 kr. 114.500 kr. 167.200 kr. 4. ársfj. 1995* 52 666 kr. 599 kr. 684 kr. 754 kr. 812 kr. 118.600 kr. 183.000 kr. Með 3% hækkun 1. janúar 1996 686 kr. 617 kr. 705 kr. 777 kr. 836 kr. 122.158 kr. 188.490 kr. * Nýjasta könnun Kjararannsóknamefndar Fjöldi vinnustunda að baki upplýsingunum á hveijum tima 1. ársfj. 1995 76.000 2. ársQ. 1995 60.000 3. ársfj. 1995 41.000 4. ársQ. 1995 30.000 Miðsumarhátíð á Selfossi AÐALDAGSKRÁ miðsumarhátíð- arinnar á Selfossi er í dag, laugar- dag, og hefst klukkan 10.00 með tjaldmarkaði í tveimur stórum tjöld- um í Tryggvagarði við Austurveg, en leiktæki fyrir börn verða í Tryggvagarði. Klukkan 11.00 hefst firmakeppni í kassabílaralli Guðnabakarís. Skemmtiskokk Adidas hefst klukkan 12.00 og kl. 13 fara sérútbúnir bíl- ar, sportbílar, mótorhjól og fleiri far- artæki í eigu Selfyssinga hringferð um bæinn. Um kl. 13.30 verða veitt- ar viðurkenningar í kassabílarallinu og einnig viðurkenningar fyrir falleg- ustu einkagarðana á Selfossi svo og fyrir fyrirtækjalóðir. Klukkan 14 eru tónleikar í Tryggvagarði með Bítla- vinafélaginu, Emilíönu Torrini, Rad- íusbræðrum, Reggae on Ice, Skíta- móral og Vinum vors og blóma. í tilefni dagsins verður grillað um allan bæ, og oks verður Bylgjuball í Inghól en Bylgjan verður með beinar útsendingar frá Selfossi. í verslunum og veitingahúsum eru síðan sumartil- boð af ýmsu tagi og frítt er á tjald- svæði á Selfossi um helgina og frítt í sund í dag. LEIÐRÉTT Rangt nafn RANGT var farið með nafn Jó- hanns Ögmundar Oddssonar í frétt frá aðalfundi Kvenfélagsins Hringsins, sem birtist í blaðinu sl. fimmtudag. Greint var því að fé- lagið hefði þegið gjöf frá Minning- arsjóði Sigríðar Halldórsdóttur og Jóhanns Ögm. Oddssonar að upp- hæð 500 þúsund krónur. Morgunblaðið biðst velvirðingar á mistökunum. Gömul vinnubrögð kynnt í Sjóminjasafninu SUNNUDAGINN 21. júlí verða gömlu vinnubrögðin kynnt í Sjó- minjasafni íslands, Hafnarfirði, frá kl. 13—17, en þá sýna tveir fyrrver- andi sjómenn vinnu við lóðir og net. Vinsæl sjómannalög og gamlir slagarar verða leiknir á harmonikku meðan á opnun stendur. Verkleg sjóvinna hefur verið fastur liður í starfsemi safnsins í sumar og verð- ur áfram á dagskrá alla sunnudaga í júlí og ágúst. í forsal Sjóminjasafnsins stendur nú yfír sýning á 15 olíumálverkum eftir Bjarna Jónsson listmálara. Allt eru þetta myndir um sjó- mennsku og sjávarhætti fyrir daga vélvæðingar og má því segja að um hreinar heimildarmyndir sé að ræða. Allar myndirnar eru til sölu. t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk- ar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓNTÓMASSON fyrrverandi stöðvarstjóri Pósts og síma í Keflavík, sem lést í Borgarspítalanum laugar- daginn 13. júlí síðastliðinn, verður jarð- sunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 22. júlí kl. 13.30. Ragnheiður Þ. K. Eiríksdóttir, Margrét Jónsdóttir, Sæmundur Benediktsson, Eirikur Jónsson, Ingibjörg M. Kjartansdóttir, Tómas Jónsson, Þórunn E. Sveinsdóttir, Bjarni Ó. Jónsson, Sveinbjörn Jónsson, Július G. Bjarnason, Birna Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs bróður okkar, mágs og frænda, EINARS INGA EINARSSONAR, Varmahlíð, Eyjafjöllum. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sjúkrahúss Vestmannaeyja. Þóra Dóra Einarsdóttr, Hólmfríður Einarsdóttir, Sigríður Einarsdóttir, Ásmundur Guðmundsson, Svana Einarsdóttir, María Sigurjónsdóttir, Ingibjörg Bjarnadóttir, Einar Sigurjón Bjarnason, Arndís Bjarnadóttir, Guðrún Björk Bjarnadóttir, Ásmundur Bjarnason, Sigurður Jakob Jónsson, Einar Eysteinn Jónsson, frændsystkini og vinir. t Innilegar þakkir viljum við færa ykkur öllum er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför móður okkar, eiginkonu, systur og systurdóttur, MÁNEYJAR KRISTJÁNSDÓTTUR, Auðbrekku 2, Kópavogi. Rósa Kristin Garðarsdóttir, Sigmundur Bjarki Garðarsson, Garðar H. Guðmundsson, Björk Kristjánsdóttir, Stefanía Kristjánsdóttir, Guðlaug Stefánsdóttir. t Innilegar þakkirtil allra þeirra, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför BÖÐVARS B. SIGURÐSSONAR bóksala, Hafnarfirði. Sérstakar þakkir viljum við færa öllu starfsfólki á deild A-7 Borgarspítalanum fyrir alla þeirra hjálp í veikindum hans. Hjördís Ágústsdóttir, Ingibjörg Böðvarsdóttir, Gunnlaugur Magnússon, Böðvar Böðvarsson, Bjarney Sólveig Gunnarsdóttir, Hulda Böðvarsdóttir, Þórarinn Böðvarsson, Sigrún Ögmundsdóttir, Ágúst Böðvarsson, Þorgerður Nilsen, Elísabet Böðvarsdóttir, Oddur Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.