Morgunblaðið - 07.08.1996, Qupperneq 40
40 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Tommi og Jenni
HERE'5 TME WORLP WARI
FLYING ACE CR05SING
NO MAN'S LANO TO
V/ISIT HIS BROTHERIN
THE TRENCHE5..
Hl, SPIKE! H0U)'S
EVERVTHIN6 60IN6?
U/ELL, I HAVETO 6ET
BACKTOTHE AERODROME..
HAVE A NICE OM..
NEVER TELL AN
INFANTRVMAN TO
HAVE A NICE PAY..
Hér er flugkappinn í fyrri Sæll, Sámur! Hvernig Jæja, ég verð að fara aftur Segðu aldrei við fót-
heimsstyrjöldinni að fara hefurðu það? Ég er I út á flugvöll ... gangi þér gönguliða: „Gangi þér
yfir einskis manns Iand til fótgönguliðinu. allt í haginn ... allt í haginn."
að heimsækja bróður sinn í
skotgröfunum...
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
• Netfang: Iauga@mbl.is
Konur, jafnrétti, forsjá
Frá Helgu Dögg Sverrisdóttur:
JÆJA, konur. Hafið þið lesið grein-
arnar í Degi 11. og 23. júlí sl.
Hvað finnst ykkur? Höfundur gefur
í skyn að feður séu jafnir okkur að
ala upp börn. Hann leyfír sér meira
að segja, að draga í efa að réttlæti
felist í því að okkur mæðrum sé
nær alltaf falin forsjá barna okkar.
Hvemig vogar höfundur greinanna
sér að ryðjast svona inn í okkar
reynsluheim.
Eigum við konur ekki börnin?
Hver skiptir best á barninu - við!?
Hver kann að gefa því að borða eins
og á að gera - við!? Hver gælir við
barnið - við!? Hver kann að klæða
bamið - við?! Hver veit hvað barninu
er fyrir bestu - við!?
Nei, dokum aðeins við. Hver held-
ur þessu fram. Eru það við kynsyst-
ur góðar. Að þessari „vitleysu"
slepptri. Mér krossbrá við að lesa
þessar greinar. Er jafnréttinu í for-
sjármálum komið eins og raun ber
vitni. Erum við komin svo skammt
á veg, ný öld nálgast. Hafa konur
ekki barist nóg fyrir jafnræði í for-
sjármálum? Nei. Hví ekki? Er barátt-
an okkur ekki að skapi, eða njótum
við þessara forréttinda í hefnd-
arskyni fyrir ójafnræðið. Þora dóm-
arar, sýslumenn og aðrir þeir sem
hafa með forsjármál að gera ekki
að koma sér upp úr þeim gömlu hjól-
förum að vera hliðhollir mæðrunum
í forsjárdeilum? Hvað óttast þessir
opinberu aðilar? Kvenréttindasam-
tök!
Konur góðar. Það er langt frá því
að nokkur skynsemi felist í þessum
úrelta hugsunargangi. Börn eiga rétt
á samvistum við báða foreldra sína,
svo segja lögin. Hví er þeim ekki
framfylgt? Spyr sá sem ekki veit.
Hvaða réttlæti er í því að þegar hjón
geta ekki lifað í sátt og samlyndi
að annar aðilinn eigni sér börnin og
kerfið segir: Þetta er bara svona.
Hvaða lög/sáttmála er verið að bijótá
á bömunum. Hvaða yfirvöld eiga að
sjá um að lögum/sáttmálum sé fram-
fylgt? Hvaða réttlæti er það að faðir-
inn þurfi að beijast með öllum tiltæk-
um ráðum til að umgangast börn
sín. Móðirin telur sinn rétt svo vísan
að hún getur beitt honum gegn föð-
urnum. Virtir lögfræðingar segja
feðram að það sé útilokað fyrir þá
að sækja um forsjá barna sinna.
Hefðin er svo sterk, þeir eiga enga
möguleika. Eingöngu kostnaður og
sárindi. í nær öllum forsjárdeilum
sem faðrinn sækir rétt sinn er
þrautargangan of erfið, faðirinn
gefst upp. Kerfið er konum hliðhollt
og við konur virðumst ekki vilja jafn-
ræði á þessu sviði, það er ljóst.
Oflugri barátta hefði annars átt sér
stað. Konur geta í forsjármálum ekki
sagt, karlmennirnir eiga að beijast
sjálfir fyrir þessum rétti sínum. Barn
á sér tvö foreldri karl og konu.
HELGA DÖGG SVERRISDÓTTIR,
sjúkraliði og fjögurra barna móðir.
Eru siðalög’mál lækna-
stéttarinnar á reiki?
Frá Guðrúnu Maríu Óskarsdóttur
og Ásdísi Frímannsdóttur:
HVE mörg mál fær siðanefnd lækna-
félagsins til umfjöllunar á ári hveiju?
Eru það alvarleg mál, eða aðeins
smávægileg siðferðileg brot? Sam-
kvæmt Alþjóðasiðareglum lækna, er
hlutu samþykki á allsheijarþingi
þeirra í Feneyjum í október 1993,
virðast því miður ýmsar þeirra siða-
reglna lítt sýnilegar í raun í dag.
Þar segir meðal annars: „Lækni
ber að koma heiðarlega fram við
sjúklinga sína og starfsbræður, hon-
um ber að leggja sig fram um það,
að fletta ofan af læknum, þeim sem
áfátt er í skapgerð, eða í færni, eða
viðhafa svik og blekkingar."
Þetta tiltekna atriði höfum við
ekki getað séð í framkvæmd hér á
landi ennþá. Þvert á móti þorir eng-
inn læknir að staðfesta skriflega
misferli annars.
I þessum sömu alþjóðlegu siða-
reglum segir einnig:
„Lækni ber að staðfesta það eitt
sem hann hefir sjálfur sannprófað."
Hvemig getur læknir staðfest, (sann-
prófað) sjúkdómsgreiningu gegnum
síma? Slíkt er þó mjög algengt hér á
landi, þ.e. lyf era símsend eftir eitt
samtal. Sjúklingar eru gerðir þátttak-
endur í tæknilegri tilraun, er kostar
tilheyrandi peninga, og skýtur raun-
veralegri sjúkdómsgreiningu á frest.
Ennfremur segir um almennar
skyldur lækna í alþjóðasamþykkt-
inni. „Læknir á ekki að leyfa hagn-
aðarhvöt að hafa fáhrif á fijálsa og
óháða beitingu fagmannlegs álits í
þágu sjúklings."
Þetta tiltekna atriði má síðan bera
saman við tilvísanaskrif lækna á sín-
um tíma, er nokkrir læknar fóru ham-
föram yfir hugsanlegri tilkomu tilvís-
ana. Fróðlegt væri til dæmis að vita
hvort þeir hinir sömu hafi talist sið-
ferðilega brotlegir, í skrifum þessum.
Einnig má nefna Lissabonyfírlýs-
inguna, um réttindi sjúklingsins, er
var samþykkt á 34. heimsþingi
lækna, grein c, en þar segir:
„Sjúklingurinn á þann rétt, að
vænta þess að læknir hans virði trún-
að um allar upplýsingar er varða
læknisfræðileg atriði og einkahagi".
Má í því sambandi nefna dæmi þess
að mynd tekin af áverkum í kjölfar
aðgerðar á sjúklingi, er sýnir einnig
kynfæri, virðist ekki höfða nægilega
til siðferðisvitundar viðkomandi lækn-
is, þannig að sú mynd sé tekin frá
sem gagn í áframhaldandi málsmeð-
ferð fleiri aðila utan læknastéttar.
Samkvæmt starfsreglum siða-
nefndar Læknafélags Islands, skulu
félagsmenn er bregðast skyldum sín-
um, fá áminningu og sekt ef um ítrek-
að brot er að ræða. Sektarfé þetta
rennur í Ekknasjóð, og er innheimt
af LÍ.
‘ Spyija má hvort álíka ráðstöfun
hvað varðar opinberar áminningar,
gæti ef til vill verið á þann hátt, að
sektir væra viðhafðar, ef ítrekuð brot
væra til staðar, og þeir fjármunir
myndu þá renna í hinn tóma sjúkl-
ingatryggingasjóð, er virðist fjárvana.
Ef vilji er til þess að viðhalda hér
samfélagi siðmenningar, þá er fyrir
það fyrsta að virða og fara eftir þeim
reglum, er hver hefur mótað, og því
miður er þar stórlega mjög „víða
pottur brotinn".
F.h. Lífsvogar,
GUÐRÚN MARÍA ÓSKARSDÓTTIR,
ÁSDÍS FRÍMANNSDÓTTIR.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
tii birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.