Morgunblaðið - 16.08.1996, Side 12

Morgunblaðið - 16.08.1996, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI A Iþrótta- og tómstundaráð Akureyrar Samið verði við Þór um byggingu knattspyrnuhúss ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Akureyrar sam- þykkti á fundi sínum í vikunni að mæla með því að gerður verði samningur við Iþróttafélagið Þór um byggingu og rekstur knattspyrnuhúss. Jafnframt var lagt til að formaður ráðsins, íþrótta- og tómstundafulltrúi og formaður fram- kvæmdanefndar bæjarins verði skipaðir í við- ræðunefnd til að fylgja málinu eftir og ræða við fulltrúa Þórs. Þórarinn Sveinsson, formaður íþrótta- og tóm- stundaráðs, segir að hugmyndin sé að byggja yfir hálfan knattspymuvöll, hús sem sé um 40x70 metrar. Hins vegar eigi eftir að útfæra hugmyndina nánar og eins liggi ekki fyrir nein- ar kostnaðartölur. „Við stefnum að því að hægt verði að hefja æfingar í húsinu í október, án þess að ég geti sagt til um hvaða ár það verður, enda veitir Akureyrarliðunum ekki af,“ sagði Þórarinn. Gríðarlegt hagsmunamál Guðmundur Sigurbjörnsson, formaður Þórs, segir að hér sé um gríðarlegt hagsmunamál að ræða fyrir framtíð knattspyrnunnar á Akureyri og reyndar á öllu Norðurlandi. „Þetta þýðir að hægt verður að líta á knattspyrnu sem heils árs íþrótt og það er forsenda þess að hægt sé að ná árangri." Guðmundur sagði að enn hafí ekki verið rætt af alvöru um stærð hússins en ljóst sé að menn verði að sníða sér stakk eftir vexti. „Þörfin er fyrst og fremst fyrir æfingahús og það verður byggt á félagssvæði okkar við Hamar. Hér er um brýnt mál að ræða og því er mikilvægt að hægt verði að vinna því framgang eins fljótt og mögulegt er,“ sagði Guðmundur. Hætt við hugmyndir um hlutafélag Uppi voru hugmyndir um að stofna hlutafélag um rekstur knattspyrnuhúss á Akureyri en Þór- arinn segir að þær hugmyndir séu ekki lengur uppi^ á borðinu. „Eg treysti mér ekki til að halda áfram með þessa hugmynd um hlutafélag um reksturinn. Það kom m.a. fram í úttekt sem gerð var í Háskólanum að sveitarfélög og fyrirtæki sýna þessu mjög takmarkaðan áhuga og KSÍ mun heldur ekki koma að þessu af sama þunga og maður vonaði. Þannig að þetta yrði þá einungis Akureyrarbær og svo einhver skiptimynt annars staðar frá,“ sagði Þórarinn. Hringrás ehf. kaupir færanlega brotajárnspressu Morgunblaðið/Kristján NYJA brotajárnspressan er á öflugum dráttarvagni og því er mjög auðvelt að fara með hana á milli staða. BÍLFLÖK og annað brotajárn eru orðin mun fyrirferðarminni eftir að hafa farið í gegnum brotajárnspressuna. Líflegt í Lista- gilinu VIGNIR Jóhannsson sýnir veggverk úr tré og eir ásamt frístandandi skúlptúr í Deigl- unni á Akureyri laugardaginn 17. ágúst kl. 16.00. Vignir býr og starfar í Reykjavík um þessar mundir og hefur ekki sýnt áður á Akureyri. Við opnun sýning- arinnar leikur Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari nokkur verk. I kvöld og annað kvöld mun hópur akureyrskra listamanna fremja gjörninga í Ketilhús- inu. Gjörningarnir verða af ýmsum toga, m.a. myndlist, tónlist og dans. Dagskráin hefst kl. 21 bæði kvöldin og stendur eitthvað fram eftir kvöldi. Aðgangur er ókeypis. Svava Bernharðsdóttir ví- óluleikar og Kristinn Örn Kristinsson píanóleikari halda tónleika í Deiglunni sunnu- daginn 18. ágúst kl. 20.30. Á efnisskránni eru verk eftir Bach, Ramovs, Hindermith og Brahms. Svava er búsett í Slóveníu og leiðir víólur í slóvensku fíl- harmoníunni. Hún lauk dokt- orsnámi frá hinum heims- þekkta tónlistarskóla, Juilliard í New York. Kristinn Örn er Akureyringum að góðu kunn- ur en hann var m.a. skóla- stjóri Tónlistarskóla Akur- eyrar um hríð. Nemendur sem dvalið hafa á þverflautunámskeiði sl. viku kynna bæjarbúum árangur starfs síns í Deiglunni sunnu- daginn 18. ágúst kl. 13. Að- gangur að tónleikunum er ókeypis. Messur Bylting í endur- vinnslu málma hérlendis ENDURVINNSLUFYRIRTÆKIÐ Hringrás ehf. hefur fest kaup á mjög öflugri færanlegri brota- járnspressu og var hún formlega vígð í gær á brotajárnssvæðinu við Krossanes á Akureyri. Það var Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for- maður Sambands íslenskra sveitar- félaga, sem vígði þessa færanlegu endurvinnslustöð. Með brotajárnspressunni og af- kastamiklum klippum á beltagröfu er mögulegt að fullvinna brotajárn á landsbyggðinni f framtíðinni. Vinnslugeta stöðvarinnar er um 100 tonn á dag og því er hér um byltingu að ræða í endurvinnslu málma hérlendis. Markmiðið er að starfsmenn Hringrásar komi á hvern söfnunar- stað með reglulegu millibili til að vinna brotajárnið og minnka þann- ig ummál efnisins margfalt, sem auðveldar birgðahald. Efninu er síðan skipað beint út frá hveijum stað og skapar þannig vinnu og hafnargjöld á svæðinu. Þetta ætti að geta falið í sér verulegan sparn- að fyrir bæjarfélög, segir í fréttatil- kynningu frá fyrirtækinu. Brautryðjandi í söfnun brotamálma Hringrás er í dag mjög sterkt endurvinnslufyrirtæki og byggir á nær 50 ára grunni, lengri tíma en nokkurt annað fyrirtæki í endur- vinnslu hér á landi. Fyrirtækið er brautryðjandi í því að safna saman brotamálmum, vinna þá og flytja út. Áður hafði það viðgengist að urða brotajárn. Aðferðir og tæki við vinnslu brotamálma hafa verið þróuð mjög mikið gegnum árin, enda hefur fyrirtækið flutt út um 350.000 tonn af brotajárni. GLERÁRKIRKJA: Kvöldguðsþjón- usta í kirkjunni sunnudaginn 18. ágúst kl.21.00. Athugið breyttan tíma. HJÁLPRÆÐISHERINN: Almenn samkoma á sunnudaginn kl. 20.00. Níels Jakob Erlingsson talar. Allir hjartanlega velkomnir. HVÍTASUNNUKIRKJAN: Sam- koma í umsjá unga fólkins laugar- daginn 17. ágúst kl. 20.30. Safnað- arsamkoma sunnudaginn 18. ágúst kl. 11.00 og vakningasamkoma kl. 20.00. Bæn og lofgjörð kl. 20.30 föstudaginn 23. ágúst. Allir hjartan- lega velkomnir. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa laugardaginn 17. ágúst kl. 18.00 og sunnudaginn 18. ágúst kl. 11.00. e CABHONT Fisléttir gönguskór • Leður og Cordura nælon. • Dempun í sóla • Stærðir 38-47 • Vatnsvarðir • Aðeins 1160 gr. parið Stgr. k..7.S9C FÁLKINN Suðurlandsbraut 8, sími 581 4670. Þarabakka 3, Mjódd, sími 567 0100. Þórey sýnir á Hótel Hjalteyri ÞÓREY Eyþórsdóttir opnar mynd- listarsýningu á Hótel Hjalteyri á Hjalteyri kl. 14 laugardaginn 17. ágúst. Þórey út- skrifaðist frá Myndlista- og handíðaskólanum 1965 og Handa- vinpudeild Kenn- araskóla Islands síðar. Hún hefur lengi fengist við myndlist og þá einkum myndvefnað ásamt öðrum viðfangsefnum og er þetta önnur einkasýning hennar. Þórey sýnir einkum myndvefnað og textilverk sem hún hefur unnið að á þessu ári. Hún rekur Gallerí AllraHanda í Grófargili á Akureyri og kaffihúsið í Hótel Hjalteyri ásamt fjölskyldu sinni. Þórey hefur staðið fyrir fjölmörgum sýningum og kynn- ingum á verkum myndlistaramanna. Þórey Morgunblaðið/Kristján Handverks- sýningin opnuð H ANDVERKSSÝNIN GIN Handverk ’96 var opnuð form- lega að Hrafnagili í Eyjafjarðar- sveit í gær en sýningin er opin fram á sunnudagskvöld. Hand- verksfólk víðs vegar af landinu tekur þátt í sýningunni, auk handverksfólks frá Færeyjum, Grænlandi og Norður Noregi. Fjölbreytni handverks og hrá- efnis á sýningunni er ótrúleg. Systurnar Elín og Heiðrún Jónsdætur úr Reykjavík, komu við í básnum þjá Dóru Sigfús- dóttur, sem hér sýnir þeim hand- bragðið við pinnavefstól. Dóra starfar sem leiðbeinandi hjá fé- lagsstarfi aldraðra í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.