Morgunblaðið - 16.08.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996 39
FRETTIR
Árbæjarsafn
Fylgst með uppbygg
ingu Lækjargötu 4
Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
Herra Suðurland
valinn í kvöld
ARBÆJARSAFN verður opið um
helgina 17.-18. ágúst frá kl.
10-18. Laugardagurinn verður eins
og áður helgaður börnum og verður
dagskrá fyrir þau frá kl. 14-15.
A sunnudeginum er 210 ára af-
mæli Reykjavíkurborgar, af því til-
efni gefst gestum tækifæri á að
skoða uppbyggingu hússins Lækj-
argötu 4, en það hús var flutt í
Árbæjarsafn árið 1988.
Eins og margir eflaust muna
tókst ekki betur til með flutninginn
en svo að húsið hrundi af vagni
flutningabílsins á mótum Banka-
strætis og Lækjargötu. Á endanum
komst húsið á safnið þó ekki væri
það í einu lagi. Ráðgert verður að
taka það að einhverju leyti í notkun
árið 1997.
Safngestum gefst kostur á að
SIN leikur um helgina skemmtilega
kráar- og danstónlist við allra hæfi.
■ HERÐ UBREIÐ SEYÐIS-
FIRÐI Hljómsveitin Þáþrá ásamt
gestum heldur fjáröflunardansleik
föstudagskvöld en öll innkoma fer
í að kaupa fleiri hljóðfæri í bæinn.
Hljómsveitina skipa: Einar Bragi,
María Gaskell, Aðalheiður Borg-
þórsdóttir, Inga Þorvaldsdóttir,
Þorsteinn Arason, Milli Breik og
Björn Hildir. Gestir kvöldsins
verða: Heiðrún Vestman, Júlli
Bank og Ásdís Bank.
■ CAFÉ ROMANCE Á föstu-
dags- og laugardagskvöld spila þeir
Richard Scobie og Birgir
Tryggva góða og þægilega tónlist.
Þeir félagar munu flytja nýtt efni
og er ætlunin að ná upp góðu
stemmningunni sem einkenndi Café
Romance, segir í fréttatilkynningu.
■ VÍÐIHLÍÐ V-HÚN. Hljóm-
sveitin Zalka leikur um helgina en
hljómsveitin er skipuð þeim Þór
Breiðfjörð, Tómasi Tómassyni,
Björgvini Bjarnasyni, Ólafi Hólm
og Georg Bjarnasyni.
■ ARI í ÖGRI Dúettinn Harm-
slag leikur laugardagskvöld frá kl.
12 á miðnætti til kl. 3 en ekki kl.
13-16 eins og sagði í frétt í gær.
■ GAUKUR Á STÖNG Á föstu-
dags- og laugardagskvöld leikur
hljómsveitin Sól Dögg og kynna
m.a. lög af nýjum geisladisk er
þeir sendu nýverið frá sér. Á sunnu-
skoða húsið frá kl. 14-17. í tengsl-
um við Lækjargötu 4 verður smíða-
verkstæðið opið en starfsmenn þess
hafa séð um uppbyggingu hússins.
Textablaði um byggingarsögu og
steinbæi verður dreift og einnig
verður sýning á torfhleðslu.
Að þessu sinni verður messa í
kirkjunni kl. 14. Leikið verður á
píanó fyrir kaffigesti í Dillonshúsi.
Einnig mun hefðarkona taka á
móti gestum í Suðurgötu 7.
Gamla þjóðleiðin verður gengin
frá Austurvelli að Árbæ. Lagt verð-
ur af stað frá Austurvelli kl. 11.
Að öðru leyti verður hefðbundin
dagskrá, s.s. harmonikuleikur, roð-
skógerð, tóvinna og lummubakstur
í Árbæ, hannyrðir og gullsmíði í
Suðurgötu 7. Mjaltir verða við
Árbæinn kl. 17.
deginum mætir síðan Olsen gengið
með þá James Olsen og Richard
Scobie í fararbroddi. Mánudag og
þriðjudag verða síðan Eyjólfur
Krisljáns og Richard Scobie með
kassagítarana.
■ SÝNING á verklegri sjóvinnu í
Sjóminjasafni Hafnarfjarðar
verður sunnudaginn 18. ágúst frá
klukkan 13-17 en þá sýnir gamall
sjómaður netabætingu. í forsal
safnsins stendur yfir sölusýning á
olíumálverkum eftir Bjarna Jóns-
son listmálara.
■ LEIKMANNAMESSA verður í
Vídalinskirkju í Garðabæ næst-
komandi sunnudag kl. 11. Hug-
vekju flytur Laufey Jóhannsdóttir
og Helga Rós Indriðadóttir syng-
ur einsöng. Leikmenn munu skipta
með sér hinum ýmsu þáttum guðs-
þjónustunnar. Örganisti er Gunn-
steinn Ólafsson og kór kirkjunnar
leiðir almennan söng.
■ FURÐULEIKHÚSIÐ verður
með leiksýningu í Ævintýrakring-
unni á laugardag klukkan 14.30
en Ævintýrakringlan er barna-
gæsla og listasmiðja fyrir börn á
aldrinum 2-8 ára á 3. hæð Kringl-
unnar í Reykjavík. Furðuleikhúsið
mun sýna Mjallhvíti og dvergana
sjö í nýrri leikgerð leikhússins.
Leikarar eru Margrét Pétursdótt-
ir og Ólöf Sverrisdóttir en Gunn-
ar Gunnsteinsson aðstoðaði við
uppsetninguna. Miðaverð er 500
krónur.
Hveragerði. Morgunblaðið.
ÚR þessum gjörvulega hópi
verður Herra Suðurland valinn
á dansleik á Hótel Örk, Hvera-
gerði, í kvöld. Er þetta í fyrsta
sinn sem keppni um þennan titil
fer fram á Suðurlandi. Þátttak-
endur sem eru tíu talsins koma
víða að og hafa þeir æft stíft
fyrir keppnina.
SAMTÖKIN Lífsvog ítreka nauðsyn
þess að sett verði á stofn embætti
umboðsmanns sjúklinga, er uppfylli
kröfur um hlutlausa málsmeðferð
kvörtunarmála sjúklinga. Leggja
samtökin áherslu á að þau mál sem
til þeirra berast þurfi úrlausnar við
hvort sem þar er um að ræða sið-
ferðileg úrlausnarmál eða tæknileg.
í fréttatilkynningu frá samtök-
unum segir að samtökin anni ekki
þeim fjölda kvartana er berst til
þeirra og vonast til að umboðsmað-
ur líti dagsins ljós hið fyrsta.
Samtökin Lífsvog eru stofnuð af
fólki er telur sig hafa orðið fyrir
læknamistökum og hefur starfsem-
in beinst að aðstoð við sjúklinga við
að afla gagna, s.s. sjúkraskýrslna
og aðstoð við að setja fram kvartan-
ir skriflega til Landlæknisembættis-
ins, svo og sitja fundi með land-
lækni og aðstoðarlandlækni um ein-
stök mál.
Benda talsmenn Lífsvogar á að
næstum 60% kvartanamála fái ekki
undirtektir af hálfu Landlæknis-
Stúlkurnar sem þátt tóku í
keppninni um Ungfrú Suðurland
munu aðstoða keppendur í ýms-
um atriðum sem öll bera keim
áranna 1950-1970. Það er
hljómsveitin Hunang sem leikur
fyrir dansi að keppni lokinni og
verður húsið þá opnað almenn-
ingi.
embættis og hátt í 80% umkvartana
er berist til embættisins árlega,
hafi engar aðgerðir í för með sér
samkvæmt tölum frá embætti land-
læknis. Talsmenn samtakanna segja
þessar tölur aðeins ná til ársins
1993 og samtökin hafi spurst fyrir
um nýjar tölur frá Landlæknisemb-
ættinu en ekki fengið svör. Þess
vegna sé ekki hægt að styðjast við
opinberan tölulegan samanburð.
„Um 300 félagar eru í samtökun-
um Lífsvog og þeim fer sífellt fjölg-
andi. Stjórnarmenn samtakanna
sinna verkefnum í sjálfboðavinnu
einu sinni í viku sem er engan veg-
inn nægilegt. Hið gífurlega órétt-
læti er enn ríkir í læknamistakamál-
um, þar sem sjúklingurinn er allt í
einu staddur á „eyðieyju kerfisins“
eyðieyju sem landlæknir þekkir og
telur tilkomna vegna úreltrar laga-
setningar í þessu efni. Samt sem
áður þokast lítið áfram þrátt fyrir
vitund heilbrigðistyfirvalda um
þennan vanda,“ segir í fréttatil-
kynningu frá samtökunum Lífsvog.
Leitinni að
öndvegis-
súlunum lýkur
HAFNARGÖNGUHÓPURINN lýk-
ur í kvöld, föstudaginn 16. ágúst,
þriðja áfanga gönguferðar úr Foss-
vogi út með ströndinni og niður í
Grófina. Gönguferðin er farin til
að minna á sögnina í Landnámu
um leit Vífils og Karla að öndvegis-
súlum Ingólfs.
Mæting er við Miðbakkatjaldið
við Hafnarhúsið kl. 20. Þaðan verð-
ur farið í SVR út á Seltjamarnes.
Gangan hefst við Gróttu en val er
um að stytta gönguleiðina. í lok
göngunnar um kl. 21.30 mætir
Þórður með nikkuna í Miðbakka-
tjaldið og leikur til kl. 23. Ekkert
þátttökugjald er og allir eru vel-
komnir. A laugardaginn kl. 14 kem-
ur víkingaskip siglandi inn Engeyj-
arsundið inn á gömlu leguna fram-
undan Grófinni og setur endapunkt-
inn á leitinni að öndvegissúlunum.
------♦ ♦ ♦
LEIÐRÉTT
Riga er í Lettlandi
í frétt á baksíðu Morgunblaðsins á
fimmtudag var borgin Riga sögð
vera í Rússlandi en hið rétta er að
Riga er höfuðborgin í Lettlandi.
Rangt nafn
í myndatexta við frétt um myndlist-
arsýningu á Vopnafirði var rangt
farið með nafn Geirþrúðar Ástu
Jónsdóttur. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
Ofaukið
í inngangi í Gæðastjórnunarpistli
viðskiptablaðs í gær um Innskyggni
stóð í upphafi að „Líkön að stöðu-
mati sta.rfsma.nna í fyrirtækjum..."
var orðinu starfsmanna ofaukið eins
og sést af lestri greinarinnar. Inn-
skyggnir er líkan sem beitt er til
stöðumats á fyrirtækjunum sjálf-
um. Er beðist velvirðingar á þessum
pennaglöpum.
Litabækur - líta bækur
í vinnslu á Víkverja í fimmtudags-
blaði breyttist punktur í kommu í
sögu sem sögð var af ummælum
Jacks Kemps varaforsetaefnis
bandaríska Repúblikanaflokksins
um Bob Dole forsetaefni flokksins.
Rétt er sagan þannig, að Kemp
sagði að nýlega hefði bókasafn
Doles brunnið. Báðar bækurnar í
safninu hefðu eyðilagst og Dole
hefði ekki verið búinn að lita nema
aðra þeirra.
■ KRINGL UKRÁIN Hljómsveitin
Lífsvog ítrekar nauðsyn
á umboðsmanni sjúklinga
RAÐAUGIYSINGAR
FR
Samkeppni um
skipulag á Hraunsholti
vestan Hafnarfjarðarvegar
Garðabaer efnir til samkeppni um skipulag
íbúðabyggðar á Hraunsholti, vestan Hafnar-
fjarðarvegar, í samstarfi við Arkitektafélag
íslands. Þátttaka í samkeppninni er öllum
heimil.
Veitt verða verðlaun að fjárhæð 2,6 millj. kr.
og til innkaupa 0,4 millj. kr.
Stefnt er að því, að höfundur tillögu, sem
dómnefnd velur í 1. sæti, verði ráðinn til
áframhaldandi skipulagsvinnu á samkeppn-
issvæðinu í samvinnu við skipulagsnefnd og
tæknideild Garðabæjar.
Keppnislýsing verður afhent endurgjalds-
laust hjá bæjarverkfræðingi Garðabæjar frá
og með 16. ágúst 1996. Önnur gögn verða
afhent á sama stað gegn 5.000 kr. skilatrygg-
ingu.
Skiladagur f samkeppninni er 1. desember
1996. Áætlað er að dómnefnd Ijúki störfum
í fyrri hluta janúar 1997.
Bæjarverkfræðingurinn
í Garðabæ.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Hörðuvöllum 1,
Selfossi, þriðjudaginn 20. ágúst 1996 kl. 10.00 á eftirfarandi eignum:
Bjarg, (65% eignarhl. E.H.) Stokkseyri, þingl. eig. Edda Hjörleifsdótt-
ir, gerðarbeiðendur Stokkseyrarhreppur, sýslumaðurinn á Selfossi
og Tryggingamiðstöðin hf.
Smáratún 11, Selfossi, þingl. eig. Guðrún Steindórsdóttir, gerðar-
beiðandi Byggingarsjóður ríkisins.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
15. ágúst 1996.
immmmimmmmmmmmmmm
| FÉIAGSÚF
FERÐAFÉLAG
@ ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Dagsferðir
Laugardaginn 17.ágúst
kl. 09.00 Stóra-Björnsfell sunn-
an Þórisjökuls. Góð fjallganga.
Verð 2.300 kr.
Sunnudaginn 18. ágúst
kl. 08.00 verða farnar dagsferð-
ir f Þórsmörk og á Hveravelli
og kl. 13.00 verður gönguferð
á Jórutind í Grafningi.
Brottför frá BSÍ, austanmegin
(Mörkinni 6).
Helgarferðir 16.-18. ágúst eru
Árbókarferðin, Þórsmörk og
Þórisdalur (gist í helli). Sjá aug-
lýsingar undanfarna daga.
Nánari upplýsingar á skrifst.,
Mörkinni 6, sími 568 2533.
Ferðafélag Islands.
Förðunarskóli íslands
MAKEUP FOREVER
Námskeið í Ijósmynda- og tísku-
förðun, 6 til 12 vikur (grunnur
1 & 2) hefjast 10. september.
Morguntímar og kvöldtímar.
Skráning stendur yfir í símum
551 1080 og 588 7570.