Morgunblaðið - 21.08.1996, Side 34
34 MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Hvad mundir þú
gera ef þú ynnir
rúmlega 44 milljónir
í Víkingalottóinu?
V I K I N G A
LÓTT9
Til mikils að vinna!
Alla miðvikudaga fyrir kl. 16.00.
ÍDAG
BRIPS
Umsjön Guömundur Páll
Arnarson
BRIDS er eins og lífíð sjálft.
Athafna- og ævintýraþráin
einkennir ungviðið, en þeir
sem eldri eru fara sér hæg-
ar og vilja hafa vaðið fyrir
neðan sig. Pass er til dæm-
is illa þokkuð sögn í hópi
yngri spilara. I opnum
flokki hefðu fáir keppendur
vakið á suðurhöndina og
AV hefði fengið frítt spil
til slemmurannsókna. En
ekki á Evrópumóti yngri
spilara. Fimmlitur er lang-
litur í þeim hópi.
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ 74
V D93
♦ 9765
♦ G962
Vestur Austur
♦ G6 ♦ KD32
▼ Á52 11 tK76
♦ ÁD842
♦ D74 ♦ ÁK1053
Suður
♦ Á10985
f G1084
♦ G103
♦ 8
Bæði sex lauf og sex
grönd vinnast auðveldlega
í AV, en það er ekki vanda-
laust að komast í slemmu.
Ekki síst eftir opnun suðurs
á hindrunarsögn. í leik ís-
lands og Noregs gengu
sagnir þannig:
Lokaður salur:
Vestur Norður Austur Suður
Kristoss. Sigurbjöm Mathisen Magnús
2 spaðar*
Pass Pass 2 grönd Pass
3 grönd Pass Pass Pass
* Veikir tveir. Sexlitur, ef hann er til, annars ...
Opinn salur:
Vestur Norður Austur Suður
Stefán Saur Ljösbrá Brogeland
2 tíglar*
Pass 2 hjörtu 2 grönd Pass
4 grönd**Pass 6 lauf Pass
Pass Pass
* Veikt með minnst 4-4 í hálitum (fimmti spaðinn
er ójiarfur).
** Askorun í slemmu.
Tvcggja granda innákoma
bakhandar getur verið allt
niður í 14 punkta, svo það
er engan veginn sjálfsagt að
reyna við slemmu með spil
vesturs. En Stefán lætur sig
hafa það, og Ljósbrá er ekki
höndum seinni að stökkva í
sex lauf. 11 IMPar til Is-
lands.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
HVÍTUR leikur og vinnur
Staðan kom upp á öflugu
opnu móti í Antwerpen í
Belgíu í byijun ágúst, í
viðureign tveggja stór-
meistara. Hollendingurinn
Jeroen Piket (2.580) hafði
hvítt og átti leik gegn Igor
Novikov (2.585)
37. Hxf8+! - Kxf8 38.
Dxh6+ - Ke7 (38. - Kg8
39. Rg5 - De7 40. Bb5! er
unnið á hvítt vegna hót-
unarinnar Rh7 og Rf6+)
39. Dh4+ - Kf8 40. Rg5
- Bg8 41. Df4+ - Kg7
42. Df6+ - Kh6 43. Be8
- Dg7 44. Rf7+ og svartur
gafst upp því hann verður
að gefa drottninguna til að
forða máti.
Piket sigraði á mótinu
ásamt landa sínum Loek
Van Wely og Kín-
veqanum Ye
Rongguang. Þeir
hlutu 7 v. af 9 mögu-
legum. Næstir komu
Ivan Sokolov, Bosn-
íu, Miezis, Lettlandi,
Van der Sterren,
Blees og Nijboer,
Hollandi, 011, Eist-
landi, Novikov,
Úkraínu, Suba,
Rúmeníu, Mikhail
Gurevich, Belgíu og
Lobron, Þýskalandi
með 6‘A v.
Piket verður ekki í hol-
lenska Ólympíuliðinu í Jere-
van. Það verður skipað þeim
Jan Timman, Loek Van
Wely, John Van der Wiel,
Paul Van der Sterren, Friso
Nijboer og Gena Sosonko,
sem jafnframt er liðsstjóri.
íslandi hefur yfirleitt vegn-
að vel gegn Hollandi í inn-
byrðis viðureignum á
Ólympíumótum, þótt Hol-
lendingarnir hafi ávallt ver-
ið stigahærri. Síðast mætt-
ust sveitimar í Manila 1992
og þá sigraði ísland 2 'A-
1V*
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Víkverja
svarað
ERLA Bjamadóttir
hringdi í Velvakanda með
eftirfarandi athugasemd:
„Eg var að lesa Vík-
veija á laugardaginn og
trúði ekki mínum eigin
augum þegar ég las að
Víkveija datt sauðir í hug
þegar hann á hjóli mætti
gangandi fólki á gang-
stéttinni. Skyldi hann
ekki vita hvað orðið gang-
stétt þýðir?
Það væri gaman að
lesa á hvaða dýrategund
svipurinn á Víkveija
minnir þegar hann hjólar
niður Laugaveg undir öll-
um skiltunum sem banna
hjólreiðar á gangstéttum.
Það hefur oft legið við
árekstrum þarna því þar
er keyrt á hjólum upp og
niður gangstéttina á full-
um hraða.“
Óskar
eftir texta
SIGURBJÖRG hringdi
frá Sauðárkróki og sagð-
ist vera svo hrifin af lagi
sem oft heyrðist í útvarp-
inu í flutningi Sverris
Guðjónssonar söngvara
ásamt karlakór og byijar
eitthvað á þessa leið:
„Fann ég á fjal'i, haldið
að alla ...
Hún óskar eftir að fá
textann, þó ekki væri
nema fyrsta erindið.
Fótarbein
úr fugli
SNEMMA í sumar fannst
fótarbein úr fugli með
áfestu merki á s.n.
Áfangafelli vestan Blönd-
ulóns. Merkið var sent
Náttúrafræðistofnun og
nú hefur dr. Ævar Peters-
en greint það og kveður
það af tamdri dúfu.
Dúfnaeigendur sem
kynnu að vilja kanna
þetta betur, geta séð
merkið hjá Ævari. Vilji
þeir frekari upplýsingar
um fundarstaðinn, geta
þeir haft samband við
Þorkel Guðbrandsson, hs.
453-5421, fs. 853-5421.
Saknar afmælis-
peninganna
HELGA Diljá varð 12 ára
nú nýverið og fékk 1.500
krónur í afmælisgjöf. Kát
og glöð fór hún í Kringl-
una með aurana til að
versla. Hún gat ekki
ákveðið hvað réttast væri
að kaupa svo hún hringdi
í móður sína og lagði
veskið frá sér á meðan.
Er símtalinu lauk var
veskið hennar horfið. Hún
bar sig upp við öryggis-
vörð og hafði hann fengið
veskið í sína vörslu, en
þá var það tómt. Helga
Diljá biður þann sem tók
aurana að skila þeim í
Reyrengi 41, svo hún geti
tekið gleði sína aftur.
Tapað/fundið
Barnavagn
tapaðist
GRÆNN Simo kerru-
vagn tapaðist frá Bólstað-
arhlíð 50 fimmtudaginn
15. ágúst sl. Skilvís
finnandi er vinsamlega
beðinn að hafa samband
í síma 553-7514.
Gæludýr
Kettlinga vantar
heimili
ÞRÍR 11 vikna gamlir
kettlingar þurfa að eign-
ast góð heimili sem fyrst.
Einn er gulbrúnn hinir
tveir svartir og hvítir.
Kettlingarnir eru kassa-
vanir og blíðir. Áhuga-
samir dýravinir eru vin-
samlega beðnir að hringja
í síma 564-3313.
Snuðra er týnd
SNUÐRA er heimakær
kisa, en hefur ekki komið
heim til sín í Birkihvamm
13, Kópavogi, síðan 13.
ágúst sl. Hún er brönd-
ótt, en hvít í andliti,
bringu og framfótum,
með hvíta sokka á aft-
urfótum. Hún er með
rauða endurskinsól og er
eyrnamerkt R3H255.
Þeir sem geta veitt upp-
lýsingar um Snuðra eru
beðnir að hringja í síma
554-4091.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI verður greinilega
var við það í umhverfi sínu
að áhugi á göngum og hjólreiðum
fer stöðugt vaxandi. Þeim fjölgar
stöðugt sem skilja bílinn eftir
heima þegar fara á styttri vega-
lengdir og njóta hreyfmgar og
útivistar.
Það er ekki síst ánægjulegt að
sjá hversu margir nýta sér reið-
hjólin til að fara í og úr vinnu.
Varla er hægt að hugsa sér betri
bytjun á vinnudegi en að hjóla eða
ganga nokkra kílómetra. Maður
fer betur með sjálfan sig að ekki
sé minnst á að maður mengar
ekki umhverfið á meðan.
Það kemur þó fyrir að Víkverji
freistast til að nota bifreiðina á
morgnana, ekki síst þegar við hon-
um blasir rok og rigning er hann
lítur út um gluggann. Þegar hann
hefur hins vegar ekki látið það
aftra sér heldur haldið ótrauður
út í „vonda veðrið“ hefur hann
samt komist að því að veðrið er
alls ekki svo slæmt og oftar en
ekki einungis hressandi ef réttur
hlífðarfatnaður er fyrir hendi. Nú
er svo komið að samviskubitið
nagar Víkveija í hvert skipti sem
hann keyrir í vinnuna.
xxx
VÍ miður eru ekki mörg ár frá
því að hjólreiðar fóru að
breiðast út fyrir alvöru á íslandi
og hættu að vera tómstundaga-
man eins konar sérvitringa. Þetta
hefur leitt til þess að skipulag
allt tekur nær eingöngu mið af
þörfum ökumanna en ekki reið-
hjólagarpa.
Það er samt mesta furða hversu
greiðlega er hægt að komast milli
borgarhluta á reiðhjóli og veltir
Víkveiji því stundum fyrir sér
hvort það sé í raun ekki óþarfi
að eiga bifreið. Vegalengdir á
Reykjavíkursvæðinu eru ekkert
tiltökumál þegar upp er staðið og
eiginlega hreinasti óþarfi að nýta
sér bifreið í þessa skottúra, ekki
síst í ljósi þess gríðarlega rekstr-
arkostnaðar er fylgir bifreið.
Þessi liður vegur mjög þungt í
heimilisbókhaldi venjulegrar fjöl-
skyldu og má velta því fyrir sér
hvort ekki sé hreinlega skynsam-
legt að stroka hann út, leggja á
sig smá líkamlega fyrirhöfn og
nýta peninginn sem ella færi í
bílinn í aðra hluti.
xxx
YNDISLEGASTA hjólaleið höf-
uðborgarsvæðisins er líklega
göngustígurinn frá Ægisíðu upp
í Heiðmörk. Þar er iðulega mikið
af fólki á öllum aldri á sveimi,
hvort sem er hjólandi, gangandi,
skokkandi, röltandi með barna-
vagn eða jafnvel á línuskautum.
Væri óskandi að fleiri slíka stíga
væri að finna í Reykjavík. Vík-
veiji undrast hins vegar frágang
á köflum á stígnum til dæmis við
austurenda stígsins í Skeijafírði
þar sem skyndilega tekur við mal-
arkafli og merkingum er ábóta-
vant. Það ætti ekki að vera tiltöku-
mál að ráða bót á því.