Morgunblaðið - 25.08.1996, Síða 1
120 SÍÐUR B/C/D/E
STOFNAÐ 1913
SUNNUDAGUR 25. AGUST 1996
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/Golli
Taðan tuggin að Búðum á Snæfelssnesi
Rússar hefja brottflutning heija sinna frá Grosní og S-Tsjetsjníu
Sameiginlegar friðar-
gæzlusveitir settar upp
192. TBL. 84. ÁRG.
Klæðilegar
tölvur
BANDARÍSKIR vísindamenn hafa
hannað tölvu sem er það lítil að hægt
er að gleypa hana eða fela í klæðn-
aði, án þess að fólk verði vart við hana.
Tölvan var kynnt á ráðstefnu í Se-
attle, sem Boeing-fiugvélaverksmiðj-
urnar stóðu fyrir, og á hún að mæla
líkamshita hermanna í orrustu eða við
æfingar. Bandaríkjafioti er nú að
hanna sérstakar síðar nærbuxur, sem
tölvu verður komið fyrir í, sem veitt
getur sjúkraliðum upplýsingar um
hversu særðir hermenn eru. Breskir
vísindamenn segja ekki langt í að ein-
staklingar geti klæðst tölvubúnaði
skrifstofunnar. Stærsta vandamálið sé
hvernig tryggja eigi tölvunum orku.
Rafhlöður þykja of þungar og þær
verður að endurnýja reglulega.
Óánægðir
öldungar
ÍBÚAR elliheimilisins Ysguborwen í
Glamorgan í Skotlandi voru orðnir
langþreyttir á því að horfa upp á
umferðarskilti í kringum heimiiið sem
á var að finna myndir af gamalmenn-
um, bognum í baki og með staf. Fólkið
var sammála því að hafa yrði skilti til
að minna ökumenn á að hægja á sér
en taldi skilti vegamálasljórans niður-
lægjandi. Hafa íbúarnir nú látið hanna
ný skilti, sem á eru m.a. myndir af
hressum öldungi er sýnir ökufimi sína
í hjólastól.
Beðið fyrir
móður Teresu
INDVERSKAR nunnur kijúpa til að
biðja fyrir móður Teresu, sem liggur
hjartveik á sjúkrahúsi í Kalkútta.
Læknar sögðu ástand hennar alvarlegt,
en þeim kæmi á óvart hve hraustlega
hún berðist fyrir lífi sínu. Móðir Ter-
esa, sem ættuð er frá Albaníu, var árið
1979 sæmd friðarverðlaunum Nóbels
fyrir þrotlaus störf sín í þágu fátækra.
Hún verður 86 ára á þriðjudaginn.
Starye Atagi í Rússlandi. Reuter.
RÚSSAR hófu í gær að draga hersveitir
sínar til baka frá Grosní, höfuðborg Tsjetsj-
níu. Rússar og Tsjetsjenar hófu jafnframt
undirbúning að því að setja upp sameigin-
legar friðargæzlusveitir, sem gæta eiga frið-
arins í hinu stríðshijáða sjálfstjórnarhéraði.
Síðdegis í gær, laugardag, sóru hinar
nýju friðargæzlusveitir eið sinn í rússneska
þorpinu Starye Atagi. Þar með hafa nú
rússneskir hermenn svarið þess eið að vinna
að uppbyggingarstarfi í Tsjetsjníu við hlið
manna, sem þeir hingað til hafa aðeins
þekkt sem „óþokka- og glæpalýð."
Gæzlusveitum þessum er ætlað að sjá til
þess að vopnahlé það sem gekk í gildi á
hádegi á föstudag að staðartíma verði virt.
Liðsmenn sveitanna hafa heitið að veija
hvern annan og íbúa héraðsins, án tillits til
þjóðernis.
Alexander Lebed, friðarsamningamaður
Rússa, sem Tsjetsjenar binda mestar vonir
við að geti fundið lausn á striðsástandinu
í héraðinu, sem nú hefur varað í 20 mán-
uði, lagði í gær leið sína til Tsjetsjníu í fjórða
sinn á tveimur vikum. Hann sagði sam-
komulag um pólitíska stöðu sjálfstjórnarlýð-
veldisins vera í burðarliðnum.
„Spurningin um stöðu Tsjetsjníu er erfið,
en við erum vongóðir um að finna lausn á
henni sem fullnægir hagsmunum hvort
tveggja Rússlands og tsjetsjensku þjóðar-
innar,“ hafði fréttastofan Interfax eftir
Lebed.
Samkvæmt „vel upplýstum“ heimildum
/níerfax-fréttastofunnar í Moskvu, eru líkur
á því, að báðir samningsaðilar kjósi að fresta
ákvörðunum um framtíðarstöðu Tsjetsjníu
um fimm ár til þess að leyfa ástandinu þar
að jafna sig.
Vilja sjálfstæði
Uppreisnarmenn Tsjetsjena, sem líta á
rússneska herinn sem innrásarsveitir, hafa
barizt fyrir sjálfstæði sjálfstjórnarlýðveldis-
ins við suðurlandamæri Rússlands í Kákas-
us-ijöllum.
En Borís Jeltsín, sem lýsti á föstudag
stuðningi við aðgerðir Lebeds, sagði að
pólitískt samkomulag yrði að skilgreina
Tsjetsjníu sem „óaðskiljanlegan hluta rúss-
rieska ríkjasambandsins“.
flkjosanlegar aöstæður til
rannsokna a íslandi
SÁÐ TIL
FRAMTÍÐAR
Hvert stefnir