Morgunblaðið - 25.08.1996, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996 9
FRÉTTIR
Góður frágangur á lóð
SPRON fær
viðurkenningu
SPARISJÓÐUR Reykjavíkur
og nágrennis hlaut nýlega
viðurkenningu frá Reykjavík-
urborg fyrir vel útfærðan,
smekklegan og hagnýtan frá-
gang á lóð sinni að Skóla-
vörðustíg 11.
Það var Ragnhildur Skarp-
héðinsdóttir landslagsarkitekt
sem hannaði lóðina og var
framkvæmdum lokið síðari
hluta síðastliðins sumars.
Að sögn Baldvins Tryggva-
sonar, fyrrverandi sparisjóðs-
stjóra, hefur umgengni um
lóðina verið mjög góð, og
kveðst hann hafa trú á því að
fólk gangi mun betur um þar
sem vel er vandað til umhverf-
isins.
Umhverfisráðherra heimilaði
gjallnám í Seyðishólum
Valin sú leið að
takmarka vinnusvæði
GUÐMUNDUR Bjarnason um-
hverfisráðherra segir að tekin hafi
verið ákvörðun um að afmarka
fremur með skýrum hætti hvar
gjallnám í Seyðishólun megi fara
fram en tiltaka með nákvæmum
hætti hversu mikið magn af gjalli
megi taka úr námunni, enda skipti
ef til vill meira máli að vel verði
gengið um námuna og frá henni
að verki loknu en hvort tekið verði
einhveijum tonnum meira eða
minna. Valdór Bóasson, talsmaður
sumarbústaðaeigenda í Grímsnes-
inu, hefur gagnrýnt umhverfisráð-
herra fyrir að tiltaka ekki hversu
mikið magn af gjalli megi taka
úr hólunum.
Guðmundur tók fram að ekki
væri verið að hefja gjallnám í
Seyðishólum heldur halda því
áfram og því miður hefði um-
gengni um hólana verið nær
óásættanleg. Hluti af fyrirhugaðri
vinnu myndi felast í því að lag-
færa sárið.
„Við höfum farið mjög ítarlega
yfir málið í umhverfisráðuneytinu
og styðjumst við álit stofnana okk-
ar við frágang úrskurðarins. Þarna
er leyft takmarkað efnisnám og
gagnrýni á að við skyldum ekki
ákveða magnið nákvæmlega svara
ég með því að taka fram að vinnu-
svæðið er skýrt afmarkað. Ef til
vill skiptir meira máli að svæðið
sé skýrt afmarkað, umgengnin sé
góð og vel sé gengið frá því að
ioknu verki heldur en hvort gjall-
námið sjálft er einhvetjum tonnum
meira eða minna.“
Hugað að umferð og
hávaðamengun
Guðmundur segir að hugað hafi
verið að umferð og hávaðameng-
un. „Hávaðamælingar hafa sýnt
fram á að hávaði fari ekki fram
yfir sett mörk bæði í mengunar-
varnar- og byggingarreglugerð-
um. Við reynum að takmarka
vinnslutímann og minn úrskurðiir
takmarkar hann enn frekar. Ég
vil að flutningum sé hætt um há-
degi á föstudögum. Flutningarnir
fari því aðallega fram frá mánu-
degi til fimmtudags. Náma-
vinnslutíminn er styttur á föstu-
dögum. Engin vinnsla og keyrsla
verður um helgar þegar umferðin
er langsamlega mest,“ segir hann
og tekur fram að fyrir sé umferð
um Grímsnesið afar þung og aldr-
ei verði um fleiri ferðir þungaflutn-
ingabíla en 150 að ræða.
Umgengni í efnisnámum
víða í ólestri
Hann sagði sjálfsagt rétt að
ekki þyrfti jafnmikið gjallnám til
að ganga snyrtilega frá sárunum
í hólunum. „Þarna mætti eflaust
fara með jarðýtur og ganga frá
án nokkurs náms. Nýtingarsjón-
armiðið kemur hins vegar þarna
inn og tekjurnar gefa mönnum
tækifæri til ganga frá og skilja
vel við,“ sagði Guðmundur. Hann
lýsti því yfir að umgengni um efn-
isnámur væri því miður víða á
landinu í ólestri. í væntanlegri
endurskoðun á lögum um náttúru-
vernd yrði tvímælalaust tekið á
námumálunum.
Valdór hefur ennfremur gagn-
rýnt Náttúruverndarráð fyrir að
hafa veitt sumarbústaðaeigendum
afar lítinn stuðning. Fram-
kvæmdastjóri ráðsins kaus í sam-
tali við blaðið í gær að svara ekki
gagnrýni Valdórs.
veisla Heimsferða í vetur
39.932
frá
Opið í dag Fb14-17
. - - ■■
...
Heimsferðir kynna nú glæsilega
vetraráætlun sína með spennandi
ferðatilboðum í vetur, þar sem þú
getur valið um ævintýraferðir til
Brasilíu, Venezuela og Kanaríeyja
og nú í fyrsta sinn bjóðum við vikuleg flug til
Kanaríeyja í vetur. Við fljúgum flesta þriðjudaga í beinu flugi til að
tryggja þér þá ferðatilhögun sem hentar þér best. Beint flug með
glæsilegum Boeing 757 vélum án millilendingar og góðir, nýir
gististaðir í boði og verðið hefur aldrei verið lægra en nú í vetur.
Spennandi dagskrá í vetur
Sigurður Guðmundsson
verður með spennandi
dagskrá fyrir
Heimsferðafarþega
\Íu í vetur.
H Sérft irðir: 7. janúar og 4. mars
Fáðu bæklingin sendan
Verðfrákr. 39.932
Vikuferð til Kanarí 19. nóv., hjón nieð 2 börn, Australia.
Corona Blanca
54.132
ars, m.v. hjón með 2 böm, Ausi
69.260
V/SA
Verð frá kr.
Ferð í 2 vikur, 4. mars, m.v. hjón með 2 böm, Australia.
HEIMSFERÐIR
mm m
Verð frá kr.
M.v. 2 í íbúð, Sonncnland, 4. mars, 2 vikur. Innifalið f verði:
Flug, gisting, ferðir til og frá flugvelli, íslensk fararstjóm.
Austurstræti 17, 2. hæð • Sími 562 4600
Umboðsmenn Heimsferða: Keflavik: Akureyrí: Selfoss: Egilsstaðir:
Opið kl 14 - 17 Aðalstöðin hf., Hafnargötu 86, Gísli Jónsson, Geislagötu 12, Háland, Eyrarvegi 1, Okkar á mllli, Tjarnarási 8,
sími 4211518.
sími 4611099.
sími 482 3444.
sími 471 2078.