Morgunblaðið - 29.08.1996, Side 1
80 SÍÐUR B/C/D
Þögn Jeltsíns um Tsjetsjníju vekur furðu
Lebed óttast
frekari tafir
Moskvu, Grosní. Reuter.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti tek-
ur sem fyrr mikilvægustu ákvarð-
anir jafnt í innanríkis- sem utanrík-
ismálum, að sögn Sergeis Jastrz-
hembskís, talsmanns forsetans, í
gær. Hann vék sér þó undan því
að svara er hann var spurður hvort
hann hefði sjálfur hitt Jeltsín eftir
að forsetinn fór í leyfi. Þögn forset-
ans um friðarumleitanir Alexander
Lebeds, yfirmanns öryggisráðsins
rússneska, í Tsjetsjníju veldur æ
meiri furðu.
Vopnahléið í Tsjetsjníju er virt
og í gær streymdu hermenn og
brynvagnar Rússa frá höfuðstaðn-
um Grosní. „Við erum á leiðinni
heim, aftur til Rússlands", sagði
einn hermgðurinn.
Lebed, sem kom vopnahléinu á,
hefur frá því um helgina reynt að
fá forsetann til að samþykkja tillög-
ur um lausn á deilunum um sjálf-
stæði Kákasushéraðsins en Jeltsín
hefur ekki tjáð sig um þær enn.
Talsmaður forsetans sagði hann
vera að kynna sér skjöl um málið
frá Lebed er segir frekari tafir geta
eyðilagt friðarferlið.
Barátta um forsetaembættið?
Stjórnmálaskýrendur segja sum-
ir að þögn forsetans bendi til þess
að hann sé í litlum tengslum við
raunveruteikann, aðrir að hann
hyggist sjá hve varanlegt vopna-
hléið og friðarhugmyndir Lebeds
verði áður en hann taki skýra af-
stöðu með honum. Rússneskir
fjölmiðlar segja að barátta sé þeg-
ar hafin í innsta hring um stöðu
eftirmanns Jeltsíns.
Nýr sýningargripur
DÝRAGARÐURINN í Kaupmanna-
höfn hefur stækkað prímatadeild-
ina með tveimur eintökum af
„homo sapiens" og hefur þeim ver-
ið komið fyrir i glerbúri þar sem
gestirnir geta virt þau fyrir sér.
Eins og sjá má er reynt að hafa
umhverfið sem eðlilegast en í
næstu búrum eru apar af ýmsum
tegundum.
Reuter
UNG bedúinastúlka þvær matardiska fyrir utan skýli fjölskyldu sinnar á Vesturbakkanum. Um 50
bedúínafjölskyldum hefur verið gert að flytja á brott til þess að rýma fyrir landnámi gyðinga á
staðnum. ísraelski friðarsinninn Uri Avnery sagði að sú ákvörðun hlyti að teljast þjóðernishreinsanir.
Arafat hvetur til verkfalls á Yesturbakkanum og Gaza
Segir aðgerðir Isra-
ela stríðsyfirlýsingu
Ramallah, Jerúsalem. Reuter.
YASSER ARAFAT, forseti heima-
stjórnar Palestínumanna, hvatti í
gær til, að efnt yrði til verkfalls á
Vesturbakkanum og Gazaströndinni
í dag til að mótmæla aðgerðum ísra-
ela í Jerúsalem. Sagði hann þá
ákvörðun ísraela að stækka landnám
gyðinga á Vesturbakkanum jafnast
á við það að lýsa stríði á hendur
palestínsku þjóðinni.
Arafat lýsti þessu yfir á löggjaf-
arsamkomu Palestínumanna, setn
kom saman í gær, degi eftir að ísra-
elar jöfnuðu við jörðu samkomuhús
Palestínumanna í austurhluta gömlu
Jerúsalem.
Palestínumenn segja austurhluta
borgarinnar eiga að verða höfuðstað
framtíðarríkis síns. ísraelar segja
ekki koma til greina að skipta borg-
inni, sem sé eilíf höfuðborg ísraels-
ríkis.
Vill viðræður
„Þeir byijuðu þessa orrustu. Það
ætti að efna til allsheijarverkfalls
alls staðar á Vesturbakkanum og
Gaza vegna Jerúsalem," sagði Ara-
fat en lagði áherslu á, að hann von-
aði, að ísraelar héldu áfram frið-
arviðræðum við Palestínumenn.
I kjölfar sjálfsmorðsárása músl-
ima í Tel Aviv og Jerúsalem í mars
og apríl lokuðu Israelar austurhluta
Jerúsalem fyrir múslimum sem búa
á Vesturbakkanum og Gaza. Um
tvær milljónir Palestínumanna búa
á þessum svæðum, sem ísraelar
hertóku í sexdagastríðinu 1967.
Varar Palestínumenn við
„Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, verður að gera sér
grein fyrir því að það er heimsku-
legt af honum að hafa byijað þessa
orrustu," sagði Arafat fyrir troðfullu
húsi á löggjafarsamkomunni.
Netanyahu brást við verkfallsboð-
un Arafats og sagði að ísraelar
myndu „taka alvarlega á hvers kon-
ar tilraun til að auka ofbeldi sem
gæti komið illa við friðarumieitanir,"
að því er sagði í yfirlýsingu frá for-
sætisráðuneytinu.
Þriðja kólesteróltegundin fundin
Hugsanlega megiu-
ástæða hjartaáfalla
OF mikið kólesteról í blóði veldur
æðaþrengslum og hjartaáföllum
og lengi hefur verið greint á milli
„góðs“ kólesteróls, HDL, og
„slæms“ kólesteróls, LDL. Nú hafa
vísindamenn uppgötvað briðju kól-
esteróltegundina og bendir flest
til, að hún sé meginsökudólgurinn
þegar hjartaáföll eru annars veg-
ar.
Kemur þetta fram í bandaríska
tímaritinu Time og er vitnað í grein,
sem birtist nýlega í tímariti banda-
rísku læknasamtakanna. Segir þar,
að finnist mikið af þessari þriðju
kólesteróltegund, lipoprotein(a),
Lp(a), í blóði manna geti það tvö-
faldað líkurnar á að þeir fái hjaita-
áfall fyrir 55 ára aldur. Skýringin
á því að Lp(a) hefur ekki verið
þekkt er hins vegar sú að það kem-
ur ekki fram við venjulegar mæl-
ingar.
Aspirín og rauðvín
Það hefur lengi vakið furðu
lækna og vísindamanna, að stund-
um fær fólk, sem hefur eðlilegt
kólesterólmagn í blóði samkvæmt
mælingum, hjartaáfall engu að síð-
ur. Samkvæmt rannsókninni er
ástæðan sú, að sé Lp(a)-magnið
mikið, skipti litlu þótt „góða“ kól-
esterólið, HDL, sé mikið og það
„slæma", LDL, lítið.
Ekki er vitað hvernig á að draga
úr Lp(a)í en hugsanlegt er talið,
að aspirín geti mildað áhrif þess.
Bráðabirgðaniðurstöður benda þó
til, að rauðvín vinni gegn Lp(a) og
gæti það verið skýringin á því, að
Frakkar virðast geta borðað mikið
af feitum mat án þess að vera ofur-
seldir hjartasjúkdómum.
Reykingar slá öllu við
Einn vísindamannanna, dr.
Andrew Bostom við Tufts-háskól-
ann í Massaehusetts, sagði að rann-
sóknirnar hefðu einnig sýnt, að
reykingamenn þyrftu næstum
„'engar" áhyggjur að hafa af kólest-
erólinu. Þeir væru hvort eð er fjór-
um sinnum líklegri til að fá hjarta-
sjúkdóma en þeir, sem ekki reyktu,
og skipti þá einu hvert Lp(a)-magn-
ið væri.
Utanríkisráðherra Belgíu á frétta-
mannafundi í Stokkhólmi
Boðar alþjóðleg-
ar ráðstafanir
Stokkhólmi. Morgunblaðið.
UNDIR venjulegum kringumstæðum
hefði blaðamannafundur belgísku
sendinefndarinnar á alþjóðaráðstefn-
unni í Stokkhólmi um kynferðislega
misnotkun barna í gróðaskyni vart
vakið mikla athygli. En eftir upp-
ljóstranir í Belgiu undanfarnar vikur
var salurinn troðfullur af áköfum
blaða- og fréttamönnum þegar Erik
Derycke utanríkisráðherra gekk í
salinn.
„Þið verðið að skilja að þetta er
viðkvæmt augnablik fyrir Belga að
ávarpa ykkur,“ sagði hann. „Það sem
gerðist í Belgíu gæti líka gerst ann-
ars staðar."
Derycke sagði að belgíska stjórnin
myndi á föstudaginn kynna bæði al-
þjóðlegar ráðstafanir, sem hún áliti
nauðsynlegar til að stemma stigu við
söiu barna og barnakláms, og auk
þess aðgerðir, sem hún ætlaði sjálf
að grípa til.
Upplýsingasöfnun
Alþjóðlegar aðgerðir væni meðal
annars upplýsingasöfnun um belgiska
ríkisborgara sem hefðu brotið af sér
gagnvart börnum á erlendri gi-und
og ráðstafanir til að lögsækja þá. Á
evrópskum vettvangi myndu Belgar
beita sér fyrir því að lög er snertu
dreifingu eiturlyfja yrðu einnig látin
ná til barnasölu og barnakláms.
■ Misbeiting/24