Morgunblaðið - 29.08.1996, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 29.08.1996, Qupperneq 8
8 FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 1996 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Samtök herstöbvaandstœbinga mótmcela harölega komu herskipa Nató: Aldamótafundur á Þingvöllum undirbúinn Ráðstefna um sjálf- bæra þróun á 21. öld FYRIRHUGAÐ er að halda fund á Þingvöllum árið 2000 með for- ystumönnum í umræðunni um framtíð mannkyns, þ.e. völdum þjóðarleiðtogum, andlegum leið- togum, aðilum úr atvinnulífi og fulltrúum ungs fólks. Til þess að undirbúa þennan fund hefur verið boðað til undirbúningsráðstefnu, sem haldin verður í Reykjavík og á Þingvöllum dagana 13.-14. sept- ember næstkomandi. Ráðstefnan ber yfirskriftina „Ráðstefna um sjálfbæra þróun á 21. öld, hlutverk íslands". Þar verður m.a. rædd staðan í um- hverfis- og fólksfjölgunarmálum, hvað gera þurfi til þess að bæta hana og hvernig það skuli gert. Ennfremur er spurt hvers vegna aldamótin séu mikilvæg í þessu sambandi og hvort ísland geti orð- ið vettvangur alþjóðlegrar umræðu um framtíð mannkyns. Undirbún- ingsráðstefnan er liður í því að skapa grundvöll fyrir ákvörðun stjórnvalda um hvort slíkur fundur verði haldinn, eins og segir í frétta- tilkynningu. Að ráðstefnunni standa Fram- tíðarstofnunin, The Millenium Inst- itute og The Gandhi Foundation í samstarfi við umhverfisráðuneytið. Formaður undirbúningsnefndar ráðstefnunnar er Steingrímur Her- mannsson, seðlabankastjóri. Meðal þátttakenda á ráðstefn- unni eru Páll Skulason, prófessor í heimspeki við HÍ, Guðrún Péturs- dóttir, forstjóri sjávarútvegsdeildar HÍ, Vigdís Finnbogadóttir, fyrrver- andi forseti íslands og Magnús Magnússon, sjónvarpsmaður og formaður skosku náttúruminja- samtakanna. Templarahöll- in til sölu Tæpar fimm milljónir á Hvolsvöll Hellu. Morgunblaðið. DREGIÐ var í svokölluðum Heitum potti hjá Happdrætti Háskólans á þriðjudag. Að- eins er eitt númer dregið út og að þessu sinni gekk einn einfaldur vinningur út, en alls geta fimm manns átt sama númerið, þ.e. einn trompmiða sem er fimmfaldur og fjórir einfalda miða. Vinningsupphæðirnar sem komu á óseldu miðana bætast við Heita pottinn í næsta mánuði. Vinningur þriðju- dagsins, kr. 4.896.995,- kom á miða í umboðinu á Hellu, sem heppinn miðaeigandi á Hvolsvelli reyndist eiga. TEMPLARAHÖLLIN við Eiríks- götu 5, hefur verið auglýst til sölu. Að sögn Arna Norðfjörð, fram- kvæmdastjóra hússins, er ekki rekstrargrundvöllur fyrir húsinu eins og er. Árni sagði að ein hæð hússins hafi staðið auð frá því í vor þegar Sjúkrahús Reykjavíkur hætti að reka þar göngudeild. „Það er dýrt að eiga svona hús og þarf heil- miklar tekjur til að standa undir því,“ sagði hann. „Það er einnig inni í myndinni að leigja þann hluta hússins, sem við notum ekki og ef til þess kæmi munum við skoða hvort grundvöllur er fyrir áframhaldandi rekstri. Ég er þeirrar skoðunar að samkomu- hald af okkar hálfu eins og dans- leikir og annað sé liðin tíð. Við vit- um að áfengissala er í flestum húsum og það mikil samkeppni að menn bjóða húsnæðið leigufrítt. Væntanlega af því að þeir ná inn tekjunum í veitingasölu. Við höfum enga möguleika á að keppa við slíkt. Við verðum að selja inn en menn vilja fá frítt inn og eyða öllu á staðnum." Hentugra húsnæði Árni sagði að ef húsið seldist yrði leitað að öðru húsnæði sem hentaði betur starfseminni. „Við þyrftum um 400 fermetra fyrir fé- lagsstarfsemina og það sem okkur fylgir en með okkur er stórstúkan og ritstjóm Æskunnar," sagði hann. Benti hann á að lóðin væri ágæt, vel staðsett og næg bílastæði auk þess væri hugsanlegur byggingar- réttur neðan við húsið næst Bar- ónsstíg samkvæmt skipulagi. Leikmynda- og búningahönnun Ástfangin í rauðu Rebekka A. Ingimundardóttir EBEKKA A. Ingi- mundardóttir hefur farið ótroðnar slóðir I nátni sínu á er- lendri grund og til marks um það lét hún nám sitt lúta þeim hugmyndum, sem hún gerði sér um leik- hús. í lok námsdvalar í Amsterdam setti Rebekka upp sýningu, sem hún kallaði Fylgd, en í þeirri sýningu var hún hvort í senn leikstjóri og leik- mynda- og búningahönn- uður. Fyrir Fylgd fékk Rebekka viðurkenningu fyrir góða leikstjórn og fallega hönnun eftir að sýningin var valin til þátt- töku á leiklistarhátíðinni Amsterdam Theater Scho- ol Festival. Viðurkenning- in var Rebekku mikilvæg- ur áfangi, sem veitti henni möguleika á að starfa við Hollan- dia Location Theater, en starf innan þess leikhúss verður metið að hluta til meistaraprófs svo ekki sé minnst á þá mikilvægu starfreynslu sem hún hlýtur þar að lútandi. - Hvernig komstu að Sumri á Sýrlandi? „Ég hringdi í Valgeir Skag- fjörð leikstjóra og spurði hann hvort hann vildi ekki sjá leikhús- bókina mína sem í er að finna yfirlit yfir störf mín á sviði leik- húss. Honum leist svona ljómandi vel á það sem ég hafði upp á að bjóða og úr varð að ég tók að mér leikmynda- og búningahönn- un í sýningunni. - Hvað einkennir vinnuhrögð þín? „Ég vinn á afar ódýran og ein- faldan hátt en þau vinnubrögð lærði ég af Tékítunum. í Sumri á Sýrlandi notast ég aðallega við plast og stál en einnig nota ég akrýlmálningu, þakrennur og blikksúlur frá Vegagerðinni. Ég leitaði um alla borgina að stál- þakrennum en þær virðast ekki vera til þannig að ég varð að nota plast í staðinn sem annan kost. Leikmyndin hefur fjölþætt notkunargildi, t.d. er sami hlutur- inn notaður sem sjúkrarúm og bekkur í lystigarði. Hilla heima hjá Stínu stuð breytist líka í bar í öðru atriði og þaðan yfir í fang- elsi og mér fannst leikstjóri og leikendur vinna skemmtilega með þessa einföldu hluti. Vanalega smíða ég alla leik- myndina sjálf en að þessu sinni gekk ég frá teikningum og fékk þá hjá Isóstáli til að smíða hlut- ina.“ - Varst þú búin að gera þér einhverjar hugmyndir um útlit sýningarinnar áður en þú hyrjaðir? „Nei, ég byijaði eftir að ég kom í hús og fór yfir handritið og þá fóru hjólin að snúast. Nafnið sjálft, Sumar á Sýrlandi, eiturlyf og samtölin í handritinu minna mig samstundis á plast og stál, en það fellur saman við hina ut- análiggjandi fegurð sögunnar. Heildaryfirbragð sýningarinnar er dregið skýrum dráttum með hreinum litum sem er í samræmi við boðskapinn um að menn eigi ekki að taka dóp.“ - Þú hannaðirlíka búningana, sem ekki eru fáir. Hvernig barstu þig að? „Búningarnir eru rúmlega ljörutíu og það fór dijúgur tími ► Rebekka A. Ingimundar- dóttir leikhúsgerðarmaður er fædd 12. júlí árið 1967. Eftir stúdentspróf frá MH árið 1989 stundaði hún nám í Tékklandi í KLAMU-skólanum og lauk prófi í leikmynd- og búninga- hönnun. Síðan hélt hún til Amsterdam þar sem hún nam í MlM-skólanum og Object Theater og útskrifaðist hún að því loknu sem leikhúsgerðar- maður. Rebekka er nú búsett í Amsterdam, en hefur nýlokið vinnu við Sumar á Sýrlandi sem sýnt er í Loftkastalnum. í þá en ég naut dyggrar aðstoðar við þá vinnu. Ég byijaði á því að kljúfa allan hópinn niður í smærri hópa og paraði saman þá sem voru ástfangnir eða vinir og hugsaði um hvað þessi og hinn gera saman í sýningunni. Að því loknu fór ég að finna til litina. Stína stuð og Höddi Geirs eru vitaskuld bæði I rauðu af því þau eru svo ástfangin og dópsalarnir eru bláir sem vísar til kuldans. Blái liturinn hefur svo aðra skír- skotun þegar kynsvallsatriðið hefst. Hvað er annað hægt að hugsa um nema bláar myndir? Kalli á Kagganum er í grænu sem vísar til feigðar hans og hvítu sem undirstrikar sakleysi hans. Ég hanna útlit hvers leikara alveg frá toppi til táar þar með talið hárgreiðslu og ég held að það sé frekar sjaldgæft hér á lndi.“ - Nú virðist sem fatatískan í sýningunni vísi ekki endilega til ákveðins ártals þó við vitum að þetta gerist allt árið 1975. Hvern- ig hugsaðirðu þann kafla? „Það sem mér fannst svo gaman við þessa sýningu var að ég gat leyft mér að nota anda frá miðjum áttunda áratugnum með keim af nútíma- stemningu. Tíðarandinn í dag er einfaldlega þannig að við getum notfært okkur nánast alla tísku- söguna. Þetta hefði verið mun erfiðara fyrir nokkrum árum af því að tískuhringurinn var ekki alveg_ búinn að bíta í skottið á sér. Ég breyti öllu því sem vísar strax að einhveijum fasta. Til dæmis mála ég græn börð á stúd- entshúfuna sem strákurinn henn- ar Stínu stuð setur upp við út- skriftina. Það þadrf enginn að vera hissa á því vegna þess að stykkið heitir Sumar á Sýrlandi — þetta er bara sýra.“ Kalli á Kagganum er feigur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.