Morgunblaðið - 13.09.1996, Side 1
72 SÍÐUR B/C/D
208. TBL. 84. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
NÝTT LÝÐVELDI ?
Reuter
Listfengur
matreiðslu-
meistari
RÚMLEGA 1.000 matreiðslumenn
hvaðanæva úr heiminum taka nú
þátt í nítjándu „Olympíuieikunum
í matargerð", sem haídnir eru í
Berlín, og mörg gómsæt listaverk
hafa vakið verðskuldaða athygli.
Hér stendur ungverskur mat-
reiðslumeistari, Miskey Csaba, við
eitt af meistaraverkum sínum,
kringlukastara úr smjöri.
♦ ♦ ♦----
Vilja sam-
eina lesta-
fyrirtækin
Ósló. Morgunblaðið.
STIG Larsson, forstjóri sænska ríkis-
lestafyrirtækisins, hefur lagt til að
lestafyrirtækin í Danmörku, Noregi
og Svíþjóð sameinist og stofni öflugt
fyrirtæki á borð við flugfélagið SAS.
Larsson telur sameininguna nauð-
synlega vegna aukinnar samkeppni
á næstu árum þegar komið verður á
auknu frelsi í lestasamgöngum innan
Evrópusambandsins.
Magnus Stangeland, formaður
samgöngunefndar norska þingsins,
segir hugmyndina um skandinavískt
lestafyrirtæki mjög áhugaverða.
„Mikilvægt er að leita nýrra leiða til
að efla lestafyrirtækin og norræna
samvinnu," sagði hann.
Hugmyndin fékk í gær góðan
hljómgrunn hjá forstjórum lestafyrir-
tækjanna í Noregi og Danmörku.
Umberto Bossi boðar sjálfstætt ríki á Norður-Ítalíu
Þotu lent
vegna loft-
hræðslu
flugmanns
London. The Daily Telegraph.
FARÞEGAÞOTA með 50
breska ferðamenn á leið til Tór-
ínó varð að millilenda í Lyon
eftir að flugmaður tilkynnti í
33.000 feta hæð yfir Frakklandi
að hann væri lofthræddur.
„Ég er Iofthræddur," sagði
flugmaðurinn kófsveittur og
fölur við flugstjórann. Þegar
þotan lækkaði flugið leið flug-
manninum betur og aðstoðaði
við lendinguna.
Reyndur flugmaður
Atburðurinn átti sér stað í
maí en bresk rannsóknarnefnd
skýrði frá honum í skýrslu í
fyrradag og þar kemur fram
að flugmaðurinn sagði síðar
starfí sínu lausu hjá flugfélag-
inu, Maersk Air. Talsmaður
nefndarinnar sagði þetta mjög
óvenjulegan atburð og flug-
maðurinn hefði flogið farþega-
þotum án vandamála frá 1989.
Forsetinn
hylltur í
Sarajevo
STUÐNINGSMENN Alija Izet-
begovic, forseta Bosníu, hylla
hann á fundi sem haldinn var í
gær á íþróttaleikvangi í Sarajevo
vegna kosninganna á Iaugardag.
Fólkið sönglaði í sífellu „Alija,
Alija“ og „Allahu Akbar“ (Guð er
mikill) þegar forsetinn tók til
máls og lagði áherslu á að hann
vildi tryggja trúfrelsi í Bosníu og
varast öfgar i trúmálum. And-
stæðingar forsetans hafa þó gagn-
rýnt hann fyrir að aðhyllast
þröngsýna þjóðernishyggju og
sakað flokksbræður hans um að
hafa haft í hótunum við andstæð-
inga sína í kosningabaráttunni.
Flokkur Serba hélt kosninga-
fund í Pale, bæ nálægt Sarajevo,
og nokkur þúsund manna hlýddu
þar á ræður þar sem Serbum var
lýst sem hetjum er stæðu vörð um
kristinn rétttrúnað andspænis
hættunni sem stafaði af strangtrú-
uðum múslimum.
Aðskilnaðar-
áform fordæmd
Róm. Reuter.
ANDSTÆÐINGAR Umbertos
Bossis, leiðtoga Norðursambands-
ins á Italíu, brugðust í gær harka-
lega við áformum hans um að lýsa
yfir stofnun „lýðveldisins Padaníu"
í norðurhéruðum landsins á sunnu-
dag. Romano Prodi forsætisráð-
herra sagði að sömu örlög mættu
ekki bíða Ítalíu og Júgóslavíu.
Andstæðingar Bossis höfðu
reynt að gera lítið úr ráðagerðum
hans og hæddust að þeim í fyrstu
en tónninn breyttist í gær. Aðrir
stjórnarandstöðuleiðtogar samein-
uðust stjórn mið- og vinstriflokk-
anna í orrahríðinni gegn Bossi, sem
stefnir að því að „lýðveldið Padan-
ía“ öðlist fullt sjálfstæði ári eftir
stofnunina. Helstu iðnaðarsvæði
Ítalíu eru í norðurhlutanum, sem
er mun auðugri en suðurhéruðin.
Bossi hyggst í dag hefja þriggja
daga göngu meðfram fljótinu Pó
að Adríahafi og lýsa síðan yfir stofn-
un lýðveldisins í Feneyjum. Hann
vonast til þess að milljón manna
fari að fljótinu af þessu tilefni.
Prodi sagði að þótt stjórnin myndi
heimila friðsamleg mótmæli gæti
hún ekki látið lögbrot og ógnun við
einingu Ítalíu viðgangast. „Þetta er
stórfenglegt land og það má ekki
hljóta sömu örlög og Tékkóslóvakía
eða jafnvel Júgóslavía," sagði for-
sætisráðherrann.
Forsætisráðherrann
gagnrýndur
Prodi hefur verið gagnrýndur
fyrir að bregðast ekki af meiri hörku
við áformum Bossis. Þeir sem gagn-
rýna hann segja hann hafa hunsað
óánægju margra í norðurhéruðun-
um með háa skatta og skriffinnsk-
una í Róm, sem Bossi hafi hagnýtt
sér með góðum árangri.
Gianfranco Fini, leiðtogi Þjóðar-
bandalagsins, lýsti Bossi sem „við-
bjóðslegum“ stjórnmálamanni og
líkti honum við „eiturlyfjasjúkling
sem þarf að auka skammtinn af
skömmum og ögrunum á hveijum
degi“. Fini kvaðst vonast til þess
að andstæðingar aðskilnaðar Norð-
ur-ítalíu fjölmenntu á göngu sem
flokkur hans ráðgerir í Mílanó
sama dag og Bossi hyggst lýsa
yfir stofnun lýðveldisins.
Umberto Bossi, leiðtogi
Norðursambandsins,
hyggst lýsa yfir
stofnun
„lýðveldisins
Padaniu"
á sunnudag
Repúblikanar
gagnrýna Clinton
Reutcr
William Perry, varnarmáiaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði að
Bandaríkjamenn myndu grípa til
harðra hernaðaraðgerða ef þörf
krefði til að vetja hagsmuni sína
á svæðinu. Bill Clinton, forseti
Bandaríkjanna, sætir nú harðri
gagnrýni repúblikana fyrir að sýna
Irökum linkind og margt bendir
til þess að hann hyggist grípa til
mun harðari aðgerða en í vikunni
sem leið þegar stýriflaugum var
skotið á suðurhluta íraks.
Spennan varð til þess að olíu-
verð hækkaði í gær meira en
nokkru sinni fyrr frá Persaflóa-
stríðinu en lækkaði aftur þegar
leið á daginn.
Washington. Reuter, The Daily Telegraph.
BANDARÍKJAHER hélt í gær
áfram að undirbúa hugsanlegar
árásir á írak og sendi átta herflug-
vélar af gerðinni F-117 til Kúveits
þrátt fyrir að íraksstjórn hefði lýst
því yfir að það myndi jafngilda
stríðsyfirlýsingu af hálfu Kúveita
ef þeir heimiluðu árásir frá flugvöll-
um í Kúveit. Ennfremur var ákveð-
ið að senda annað flugvélamóður-
skip til Rauðahafs og viðbúnaður
Bandaríkjahers á svæðinu er sá
mesti frá stríðinu fyrir botni Persa-
flóa árið 1991.
Flugvélamóðurskipið Enterprise
verður sent til Rauðahafs með 75
flugvélar sem gætu gert árásir
þaðan á skotmörk í írak. Flugvéla-
móðurskipið Carl Vinson er þegar
undan strönd íraks með 70 flugvél-
ar.
F-117 flugvélarnar, sem voru
sendar til Kúveits, eiga ekki að
sjást á ratsjám og voru skæðasta
vopn bandamanna í Persaflóastríð-
inu 1991. Þær geta eyðilagt allar
stjórnstöðvar íraska hersins og ráð-
ist á hallir Saddams Husseins, leið-
toga íraks, verði slíkt fyrirskipað.
Tariq Aziz, forsætisráðherra ír-
aks, sagði að sú ákvörðun Kúveita
að heimila flugvélunum að gera
árásir frá Kúveit jafngilti stríðsyfir-
lýsingu. Hann hótaði þó ekki hern-
aðaraðgerðum gegn Kúveit í refs-
ingarskyni.
Bandaríkjaher undirbýr hugsanlegar árásir á írak
Mesti viðbúnað-
urinn frá stríðinu