Morgunblaðið - 13.09.1996, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 13.09.1996, Qupperneq 12
12 FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Akureyrarbær selur UA hlutabréf í félaginu að nafnvirði um 92 milljónir Söluverðmæti hlutabréfanna um 455 milljónír króna JAKOB Björnsson bæjarstjóri á Akureyri kynnti á fundi bæjarráðs í gær samning um sölu Akur- eyrarbæjar á hlutabréfum í Útgerðarfélagi Akur- eyringa til félagsins að nafnverði 91,8 milljónir króna. Samþykkt var á fundi bæjarráðs að mæla með því við bæjarstjórn að samningurinn yrði samþykktur, en bæjarstjórn kemur saman til fundar í næstu viku. í júlímánuði síðastliðnum náðist samkomulag meðal meirihlutaflokkanna í bæjarstjórn, Fram- sóknarflokks og Alþýðuflokks um hvernig staðið yrði að sölu á hluta af hlutabréfum Akureyrar- bæjar í Útgerðarfélagi Akureyringa. Akureyrar- bær átti fram að hlutafjárútboði fyrr í sumar 53% hlut í félaginu að nafnvirði 410 milljónir króna. Forkaupsréttur bæjarins í hlutafjárútboð- inu var framseldur til Útgerðarfélagsins. Bréfin seld á genginu 4,95 Bæjarstjórn ætlar að selja 24,6% af heildar- hlutafé í félaginu, en nafnverð þess er um 225 milljónir króna. Stjórn ÚA óskaði eftir því í fyrra vetur að kaupa 10% af hlutafé bæjarins og sam- þykkti bæjarráð í gær að verða við þeirri beiðni. Um er að ræða hlutabréf að nafnvirði tæpar 92 milljónir en bréfin eru seld á genginu 4,95 þannig að félagið greiðir tæpar 455 milij. króna fyrir hlutabréfin. Útgerðarfélagið mun greiða bænum bréfin á tiltölulega skömmum tíma. Á fundi bæjarráðs á fimmtudag í næstu viku verður gengið frá því á hvern hátt staðið verði að sölu þeirra 14,6% af hlutbréfum bæjarins sem ákveðið hefur verið að selja, en þau eru að nafn- verði um 133 milljónir króna. Þessi hlutabréf verða seld á almennum markaði. Starfsfólki ÚA og almenningi á Akureyri verður veittur for- kaupsréttur að hluta þessa hlutafjár. Skuldirnar borgaðar fyrst Söluandvirði bréfanna, sem áætlað er að nemi um einum milljarði króna, er ætlað að greiða niður skuldir Framkvæmdasjóðs bæjarins sem og bæjarsjóðs, en einnig er gert ráð fyrir að nokkuð aukið svigrúm skapist til frekari fram- kvæmda á vegum bæjarins. Samkomur í hvíta- sunnu- söfnuðum NEMENDUR og kennarar af Biblíu- skóla Hvítasunnumanna í Kirku- iækjakoti í Fljótshlíð heimsækja Hvítasunnukirkjurnar á Akureyri, Siglufirði, Ólafsfirði, Hrísey, Húsavík og Vopnafirði um helgina. Samkomur verða á Akureyri annað kvöld, laugardagskvöld kl. 20.30 og kl. 20 á sunnudagskvöld í Hvíta- sunnukirkjunni við Skarðshlíð. Einnig verður samkoma í Sæborg í Hrísey á laugardagskvöld kl. 20.30. Á sunnu- dag verður samkoma í Hvítasunnu- kirkjunni Zion við Grundargötu á Siglufirði og hefst hún kl. 16. Á laug- ardagskvöld kl. 20.30 verður sam- koma í Ljósi heimsins á Húsavík og á sunnudag kl. 14 verður samkoma í Hvitasunnukirkjunni í Vopnafirði. I i \ I ! > Árni Logi Sigurbjörnsson, meindýraeyðir Rottur víðar í bænum ÁRNI Logi Sigurbjörnsson, mein- dýraeyðir hjá Meindýravörnum íslands, segir að unnið sé að því að útrýma rottum í Krossanesi en hins vegar séu rottur mun víðar í bænum og alveg upp í nýjum íbúðahverfum. „Forsvarsmenn fyrirtækja í Krossanesi hafa gert mjög góða hluti í því að útrýma meindýrum þar en hins vegar hafa Ákur- eyringar ekki staðið sig nógu vel við að útrýma þeim annars staðar í bænum. Það er ekki nóg að stunda rottuveiðar frá kl. 8-5, því rottan er ekki á ferðinni á þeim tíma og á þetta hef ég bent hjá heilbrigðisyfirvöldum bæjarins," segir Árni Logi. Hann vildi þó ekki ræða ástandið nánar, þar sem hér sé um mjög viðkvæmt mál að ræða. Eins og fram kom í Morgunblað- inu í gær er töluvert af rottu í Krossanesi og menn sem rætt var við höfðu aldrei séð annað eins. Meindýraeyðir bæjarins sagði að embættið myndi kynna sér ástandið en eftir að fyrirtækin í Krossanesi réðu annan meindýra- eyði á svæðið, hafi embættið látið svæðið afskipt. i i L Busavígsla í VMA Morgunblaðið/Kristján I f í NÝNEMAR í Verkmenntaskólan- um á Akureyri voru teknir í full- orðinna manna tölu í gær, en um busavígsluna sáu 4. árs nemar skóians að vanda. Nýnemarnir voru teymdir frá skólanum og nið- ur á Ráðhústorg þar sem þeir voru látnir dansa hinn geysivin- sæla makkarínadans undir stjórn þeirra eldri og ekki bara einu sinni heldur þrisvar sinnum. Einnig var brugðið á leik í blíð- viðrinu en hitamælirinn á Torginu sýndi einar 16 gráður um þetta leyti. Eftir að hafa skemmt sér og öðrum bæjarbúum á Torginu var haldið í Kjarnaskóg, þar sem haldin var hejjarmikil grillveisla. I gærkvöld var svo dansleikur í skólanum. Skólahald hófst í VMA 2. september sl., en alls eru nem- endur á haustönn 1.066 talsins og þar af eru um 350 nýnemar. Fjórða árs nemarnir voru klæddir svörtum fötum og stríðs- málaðir í framan en busarnir voru alla vega til fara og margir þeirra málaðir í framan. I : c I: i Hljómborá og píaró C 505 rafpíanó fyrir heimili, skóla og samkomusali. Tilboðsverð kr. 165.000. X-línan, hljómborð og hljóðbankar fyrir hljómsveitir og tölvumenn. Verð frá kr. 46.500. i-línan, hljómborð með skemmtara fyrir atvinnumenn og heimili. Verð frá kr. 99.900. Trinity línan, toppurinn í hljómsveitarhljómborðum í dag. Verð frá kr. 228.600. Prophecy, Solo synthesizer, ólíkur öllu öðru. Verð kr. 98.900. rrr.s;- , Sunnuhlíð, Akureyri, sími 462 1415. WmBUDIN Laugavegi 163, Reykjavík, sími 552 4515. íi Hef lækningastofu í Læknaverinu, Hafnarstræti 97, Akureyri. Tímapantanir virka daga milli kl. 08.00-19.00. Qunnar friðrií^sson. Sérgrein: Taugalœkningar. \ I p® ...blabib - kjarni málsins! i í I J-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.