Morgunblaðið - 13.09.1996, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 13.09.1996, Qupperneq 14
14 FÖSTUDAGUR 13. SEFFEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ LAIMDIÐ Uppskeruhátíð á Selfossi um helgina Selfossi - Uppskeruhátíð verður á Selfossi á laugardag og sunnudag með sérstakri dagskrá sem hefst á laugardag klukkan 13.30 þegar Bakkabræður koma í kaupstaðarferð yfir Ölfusárbrú og gera víðreist í verslunum bæjarins. Dagskrá þessi er lokahnykkur á samstarfi fyrir- tækja og félaga á Selfossi sem fram hefur farið í sumar undir heitinu Sumar á Selfossi. I framhaldi af komu Bakkabræðra inn á Tryggvatorg bregða Georg og félagar á leik við íslandsbanka og þar fá börnin ís frá Kjörís. Hjólreiða- keppni verður fyrir 8-12 ára á íþróttavellinum klukkan 15.30 og handboltamenn munu mæla skot- hraða leikmanna og fólks sem kemur og viil reyna sig. Flugeldasýning verður klukkan 18.30 og síðan lýkur dagskránni með uppskerudansieikj- um í Hótel Selfossi og Inghóli. Auk tímasettra dagskráratriða verður ýmislegt við að vera. Hopp- kastali verður í miðbænum og renni- braut fyrir yngstu bömin, bílasýning frá Bílasölu Suðuriands og heimilis- iðnaðarsýning í Tryggvaskála þar sem meðal sýningarmuna verður heimsins stærsta lopapeysa. Þá verð- ur ostakynning og sýning í Mjólkur- búð MBF. Verslunarmiðstöðin Kjarninn á árs afmæli á laugardag og í tilefni af því verður gestum boðið upp á ijómatertu og kaffi milli klukkan 13 og 15. Tísku- sýning verður klukkan 15 og á sveimi í Kjarnanum verða Svalabræður og Krílið frá Kódak auk þess sem allir krakkar fá gasblöðrur. I tilefni afmæl- isins bjóða fyrirtækin í Kjamanum viðskiptavinum upp á ýmis tilboð á föstudag, laugardag og sunnudag. Morgunblaðið/Theodór Séð úr norðri yfir hið nýja og glæsilega íþróttasvæði Borgnesinga og nærsveitunga. Hlaupabraut- in og grasivaxin áhorfendastúkan setja mikinn svip á svæðið. Glæsilegt íþróttasvæði Borgarnesi - Ákveðið hefur verið að taka nýja fijálsíþróttasvæðið í Borgarnesi formlega í notkun laugardaginn 28. september næstkomandi með boðsmóti í frjálsum íþróttum. Verið er að leggja iokahönd á frágang svæð- isins og búið er að ganga frá grasivaxinni áhorfendastúku. Hlaupabrautirnar eru upplýstar og verða einnig upphitaðar. Svæðið verður opið almenningi og getur því frjálsíþróttafólk, og aðrir sem vilja hreyfa sig, æft sig þar allan ársins hring. ISÍÓIIÖLLIIY BIOKORGIV W.IAISIO FORSALA HAFIN FORSALA HAFIN KEI’L/IVÍK Frumsýnd 14. september Frumsýnd 14. september Frumsýnd 15. september kl. 3, 5 og 7 með ísl. og ensku tali kl. 3 og 5 með ísl. tali í THX Digital. í THX Digital. Morgunblaðið/Sig. Jóns. BRUGÐIÐ á Ieik i tilefni haustdaganna um helgina. SEX FYRIRTÆKI fengu viðurkenningu fyrir gott aðgengi og hér taka við þeim frá vinstri: Friðfinnur Hermannsson, f.h. Heilsu- gæslustöðvarinnar, Jónasína Skarphéðinsdóttir, f.h. Pósts og síma, Egill Olgeirsson, f.h. K.Þ. Matbæjar, Þorsteinn Jónsson, f.h. K.Þ. Naustagili, Ágúst S. Óskarsson, f.h. Verkalýðsskrifstofunnar. Á myndina vantar fulltrúa Islandsbanka. Hiólastólarall á Húsavík HJÓLASTÓLARALL var haldið á Húsavík fyrir nokkru. Markmiðið með rallinu var að vekja athygli bæjarbúa á aðgengi fyrir hreyfi- hamlaða. Einnig var lagt af stað í hjóla- stólarall á landsvísu á þann hátt að skorað var á Vopnfirðinga og Akureyringa að halda slíkt rall að ári hjá sér og síðan koll af kolli. Farið var um fyrirtæki og stofn- anir í bænum á hjólastólum og veittar voru viðurkenningar fyrir gott aðgengi og Þrándur í Götu fyrir slæmt aðgengi. Forsvars- mönnum hjólastólarallsins var vel tekið og vakti framtakið verð- skuldaða athygli meðal bæjarbúa sem fylgdust með af áhuga. SUNDLAUG Húsavíkur fékk afhentan Þránd í Götu fyrir slæmt aðgengi. Hér sést Egill Olgeirsson aðstoða Sveinbjörn Lund, bæjar- sljórnarmann upp tröppurnar að inngangi sundlaugarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.