Morgunblaðið - 13.09.1996, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Svipuð afkoma hjá Olís fyrstu sex mánuði ársins og á sama tímabili í fyrra
Hagnaður
nam um 82
milljónum
OLÍUVERSLUN íslands hf., Olís,
skilaði alis um 82 milljóna króna
hagnaði eftir skatta fyrstu sex mán-
uði ársins samanborið við um 80
milljóna hagnað á sama tíma í fyrra.
Rekstrarafkoma félagsins batn-
aði nokkuð á tímabilinu, þar sem
rekstrarhagnaður fyrir fjármagns-
liði og skatta var 146 milljónir á
tímabilinu eða um 7% meiri en á
sama tíma í fyrra. Á móti kemur
nokkur hækkun ijármagnsgjalda,
en nánari upplýsingar úr rekstrar-
reikningi félagsins er að finna á
meðfylgjandi töflu.
Rekstrartekjur Olís námu á tíma-
bilinu 3.191 milljón samanborið við
2.941 milljón á sama tíma á sl. ári
og hafa því aukist um 9%. Hinn 30.
júní var eigið fé bókfært á alls 2.089
milljónir og eiginfjárhlutfall var
40%.
verið unnið að uppsetningu nýrra
og fullkominna dælu- og kassakerfa
á flestum stöðvum félagsins á
Reykjavíkursvæðinu ásamt upp-
setningu skyggna. Þessar stöðvar
hafa einnig verið innréttaðar að
nýju og eru almennar dagvörur nú
ráðandi í vöruúrvali þeirra.
Á næstunni opnar félagið tvær
sjálfvirkar ómannaðar bensínstöðv-
ar undir heitinu „ÓB - ódýrt bens-
ín“. Önnur verður hjá Fjarðarkaup-
um í Hafnarfirði en hin við verslun-
ina Engjaver í Grafarvogi. Áformað
er að opna síðar á árinu tvær ÓB-
stöðvar til viðbótar en markmiðið
með stöðvunum er að bjóða við-
skiptavinum Olís nýjan kost og að
vera samkeppnisfær við ódýrasta
bensínið á markaðnum.
pwp OLÍUVERSLUN rtr] ÍSLANDS hf.
Úr milliuppgjöri 1996 Jan.-júní Jan.-júní
Rekstrarreikningur Miiijónir króna 1996 1995 Breyting
Rekstrartekjur 3.191 2.941 9%
Rekstrargjöld 3.045 2.804 9%
Rekstrarhagn. f. fjármagnsliði og skatta 146 137 7%
Fjármagnsgjöld (36) (13) 177%
Reiknaðir skattar (28) (44) -36%
Hagnaður tímabilsins 82 80 2%
Efnahagsreikningur Míiijónir króna 30/6 '96 30/6 '95 Breyting
I Eignir: \
Veltufjármunir 2.709 2.212 22%
Fastafjármunir 2.455 2.224 10%
Eignír samtals 5.164 4.436 16%
[ Skuldir oo eigid fé:<\
Skammtímaskuldir 1.940 1.718 13%
Langtímaskuldir 1.135 780 46%
Eigið fé 2.089 1.938 8%
Skuldir og eigið fé samtals 5.164 4.436 16%
Kennitölur 1996 1995
Eiginf járhlutfall 1,40 1,29
Veltufjárhlutfall 0,40 0,44
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 169 145 17%
Nýjar og endurbættar
þjónustustöðvar
Eignarhald spænsku saltfiskverksmiðjunnar La Bacaladera
Fram kemur í frétt frá Olís að á
þessu ári hefur verið ráðist í um-
fangsmestu nýframkvæmdir og
endurbætur á þjónustustöðvum fé-
lagsins í sögu þess. Nú þegar er
lokið byggingu nýrrar þjónustu-
stöðvar við Sæbraut i Reykjavík og
i þessum mánuði lýkur byggingu
veitingaskála á sama svæði. Um
þessar mundir stendur yfir endur-
bygging á þjónustustöð fyrirtækis-
ins við Álfheima. Þá hefur á árinu
SÍFmeð fleiri
kosti til skoðunar
Skandia hf.
Viðskipta-
vakt með
ríkisverð-
bréf
SKANDIA hf. hefur gerst viðskipta-
vaki með fjóra flokka ríkistryggðra
skuldabréfa á Verðbréfaþingi ís-
lands. Viðskiptavaktin felur í sér að
fyrirtækið skuldbindur sig til að setja
fram daglega kauptilboð í bréf í
hverjum flokki að fjárhæð 10 millj-
ónir króna. Heildarfjárhæð tilboða
Skandia í þessa verðbréfaflokka
nemur því 200 milljónum á viku.
Skandia mun jafnframt leitast við
að setja fram jafnhá söluboð í þessa
flokka, eins og kostur er.
Um er að ræða spariskírteini í
flokkunum 95/1D10 og 95/1D20,
húsbréf í flokki 96/2 og ríkisbréf í
flokki 1010/00.
Að sögn Árna Odds Þórðarsonar,
forstöðumanns hjá Skandia, er við-
skiptavakt fyrirtækisins mun öflugri
en verið hefur hingað til hjá öðrum
verðbréfafyrirtækjum. Þau hafi til
þessa skuldbundið sig til að setja
fram daglega kauptilboð í fimm við-
skiptaeiningar eða sem svarar til um
einnar milljónar króna á dag.
Árni Oddur segir jafnframt að nú
um skeið hafi Skandia leitast við að
setja inn kaup- og söluboð í fjóra
virkustu flokka ríkistryggðra
skuldabréfa að upphæð 10-30 millj-
ónir kr. daglega í hvern flokk. Tilboð
þessi séu gerð í eigin reikning og
leitast við að endurnýja þau þegar
viðskipti hafi átt sér stað. Skandia
hafi verið mjög virkur þátttakandi á
frum- og eftirmarkaði í kaupum og
sölum ríkistryggðra langtímabréfa,
þannig að hlutdeild fyrirtækisins
hafi aukist verulega í miðlun verð-
bréfa.
GUNNAR Örn Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri SÍF, segir að fyrir-
tækið hafí ýmsa aðra kosti sem
verið sé að skoða, verði ekki af
kaupum fyrirtækisins á spænsku
saltfiskverksmiðjunni La Bacalad-
era. Hann segir hins vegar að
áhersla verði lögð á að knýja í
gegn þann kaupsamning sem fyr-
irtækið hafi þegar gert.
Eins og fram hefur komið virð-
ist sem eigendur spænsku verk-
smiðjunnar hafi tvíselt hana, fyrst
SÍF og síðar norska fyrirtækinu
Troms Fisk. Framkvæmdastjóri
Troms Fisk lýsti því hins vegar
FRÉTTIR um hugsanlegar árásir
Bandaríkjamanna á írak urðu til
að hækka heimsmarkaðsverð á
olíu í gær og gengi dollarans
hækkaði ganvart þýska markinu.
Verulegar hækkanir urðu á
Brent-hráolíu þegar skýrt var frá
viðbúnaði Bandaríkjahers eftir að
írakar skutu eldflaugum að
bandarískum herþotum. Er al-
mennt búist við, að Bandaríkja-
menn hefni þessara árása, annað-
hvort með flugskeytum eða með
öðrum loftárásum.
„Við búumst við, að Banda-
ríkjamenn muni láta til skarar
skríða í dag og það mun strax
segja til sín í verðinu,“ sagði einn
miðlarinn en miðað við þá samn-
inga, sem gerðir voru í október
og renna út í dag, hækkaði Brent-
olían um 72 sent fatið og fór í
24,30 dollara.
Hæsta olíuverð frá 1990
Olíuverð hefur ekki verið hærra
síðan írakar réðust inn í Kúveit
árið 1990 en þá fór Brent-verðið
í 40,95 dollara fatið.
Gengi dollarans hækkaði veru-
yfir í Morgunblaðinu í gær að fyr-
irtækið hefði einungis nýtt sér
forkaupsrétt sem það hefði haft á
þessum bréfum.
Þá sagði hann jafnframt að sér
skildist sem aðeins hefði verið um
viljayfirlýsingu af hálfu spænsku
aðilanna að ræða, gagnvart SÍF,
en enginn eiginlegur kaupsamn-
ingur hefði verið gerður.
Fleiri kosta völ
Gunnar Örn segir að fyrirtækið
muni áfram vinna að því að knýja
í gegn þann kaupsamning sem það
hafi gert. Þetta sé gott fjárfesting-
lega í gær gagnvart þýsku marki
og er hækkunin rakin til þeirrar
yfírlýsingar Klaus-Dieter Kúh-
bachers, forseta seðlabankans í
Berlín og Brandenburg og stjóm-
armanns í þýska seðlabankanum,
að aukið svigrúm væri til að lækka
vexti í Þýskalandi.
Stuart Thomson, aðalhagfræð-
artækifæri. Þarna sé verksmiðja
sem gefi mikla möguleika og fáist
fyrir lítið fé einfaldlega vegna
þess búið hafi verið að offjárfesta
í henni. Ef það náist ekki komi
ýmsir aðrir kostir til greina.
Gunnar segir að það muni hins
vegar ekki verða neitt áfall fyrir
SÍF, verði ekki af kaupunum á
verksmiðjunni. Það hafi m.a. verið
fyrirsjáanlegt að kaupin drægju
úr hagnaði SÍF á þessu ári, enda
hefði fyrirtækið þurft að taka þar
við töluvert miklu rekstrartapi.
ingur Nikko Europe í London,
sagði, að þessi yfirlýsing myndi
áreiðanlega ýta undir þá þróun,
sem verið hefði í gangi, það er að
segja gengishækkun dollarans.
Hann kvað þó ekki víst, að um-
mæli Kúhbachers endurspegluðu
skoðanir meirihlutans í þýska
seðlabankanum.
Veruleg hækkun á olíuverði
London. Reuter.
Danyard á
barmi
gjaldþrots
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
ENN ein dönsk skipasmíðastöð
rambar á barmi gjaldþrots. Dan-
yard í Frederikshavn á Norður-
Sjállandi. Á fyrri hluta ársins var
tapið 460,2 milljónir danskra
króna, en var á sama tíma í fyrra
72,3 milljónir. Áætlað tap í ár
er 560 milljónir. Þetta kom fram
er Lauritzen samsteypan lagði
fram reikninga sína fyrir fyrri
hluta ársins, en Danyard er í
eigu J. Lauritzen Holding hf.,
sem er hluti samsteypunnar.
1.500 manns vinna hjá stöðinni
en að minnsta kosti tvöfalt fleiri
munu finna fyrir lokuninni í
þessu litla bæjarfélagi.
Stöðin er að byggja 7 tank-
skip og 2 ferjur, svo verkefnin
vantaði ekki og framtíðin virtist
björt. Við smíðarnar hefur verið
þróuð ný tækni og aðferðir, svo
báðar skipsgerðirnar eru merkar
nýjungar á sínu sviði. Áætlanir
um smíðarnar hafa ekki staðist
og skipin því orðið mun dýrari
en ætlað var.
Lauritzen samsteypan hefur
þegar þurft að leggja umtals-
verðar upphæðir í skipasmíða-
stöðina. I yfirlýsingu samsteyp-
unnar segir einnig að ef mark-
aðsaðstæður og gengi Banda-
ríkjadals verði ekki hagstæðari
megi búast við að hætt verði
smíði stálskipa 1998, þegar yfir-
standandi verkefnum lýkur.
Gjaldþrot vofir því yfir stöðinni
ef aðrir fjárfestar koma ekki til
skjalanna.
Avöxtunar-
krafa ríkis-
bréfa hækkar
ÁVÖXTUNARKRAFA ríkis-
bréfa hækkaði lítillega í útboði
Lánasýslu ríkisins, sem fram fór
á miðvikudag. Alls bárust 10
gild tilboð í ríkisbréf að íjárhæð
310 milljónir króna og var tilboð-
um tekið í ríkisbréf til 3 ára fyr-
ir 70 milljónir króna að nafn-
verði og í 5 ára ríkisbréf fyrir
140 milljónir að nafnverði.
Meðalávöxtun tekinna tilboða
í 3 ára ríkisbréf var 7,75%, sem
er 0,35% hærra en í útboði Lána-
sýslunnar á ríkisbréfum í júlí.
Engum tilboðum var hins vegar
tekið í ríkisbréf í síðasta útboði,
sem fram fór þann 7. ágúst.
Meðalávöxtun tekinna tilboða
í ríkisbréf til 5 ára var hins veg-
ar 8,85%, sem er 0,01% hækkun
frá útboðinu í júlí.
Svissneskir
bankar rann-
sakaðir
Zíirich. Reuter
SVISSNESK yfirvöld hafa fallist
á að aðstoða frönsk stjómvöld
við að kanna hvort átt hafi sér
stað svokölluð innheijaviðskipti
með hlutabréf í Eurotunnel áður
en hlutafé fyrirtækisins var auk-
ið á árinu 1994.
Þetta mál er nú til rannsóknar
hjá saksóknurum i París og tals-
maður svissnesku lögreglunnar
staðfesti einnig, að Frakkar
hefðu farið fram á aðstoðina í
júní sl. Sagði hann, að saksókn-
arar í Genf hefðu málið til með-
ferðar.
Rannsóknin snýst um þijá
banka í Genf og Zúrich að sögn
tímaritsins Facts og þar kemur
fram, að frönsk yfirvöld gruni
þá um að hafa notfært sér vitn-
eskju sína um yfirvofandi hluta-
fjáraukningu og selt hlutabréf
sín í Eurotunnel eða Ermar-
sundsgangafyrirtækinu áður en
þau féllu um helming í verði.