Morgunblaðið - 13.09.1996, Qupperneq 42
42 FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
GLJÁMISPILL í haustlitum.
MISPLAR
(Cotoneaster)
RAUÐUR - rauður
- rauður er liturinn
á misplunum á
haustin. Þessi hóp-
ur runna skartar
sínu fegursta á
haustin þegar tími
haustlitanna og
beijanna rennur
upp. Misplar (Cot-
oneaster) eru runn-
ar sem teljast til
rósaættar og eru
flestir ættaðir frá
Kína og Himalaja-
fjöllum. Þeir eru
afar fjölbreyttir að
vaxtarlagi, allt frá
því að vera algjör-
lega jarðlægir upp í upprétta,
beinvaxna runna sem ná allt að
3 m hæð. Almennt má segja að
misplarnir séu upp til hópa afar
blaðfallegir og hefur sú stað-
reynd umfram aðrar átt hvað
stærstan þátt í vinsældum þeirra
sem garðplöntur. Þeir blómstra
afar fallegum hvítum eða bleik-
um litlum blómum sem standa
nokkur saman í klösum og fá
rauð eða svört lítil ber á haust-
in. Blómin og berin verða meira
áberandi á ókiipptum runnum.
Berin eru ekki hæf til átu. Mispl-
ar eru ýmist sígrænir eða lauf-
fellandi og virðast lauffellandi
runnarnir þrífast betur hér á
landi er þeir sígrænu.
Misplamir eru, vegna hins
fjölbreytta vaxtarlags, nothæfir
á ýmsa staði í garðinum. Upp-
réttir runnar eru mjög heppileg-
ir í limgerði eða sem stakstæðar
plöntur en jarðlægir runnar geta
hentað sem lággróður í tijábeð
eða í steinhæðir. Þeir gera ekki
sérstakar kröfur til jarðvegs en
verða að fá sæmilega góða birtu,
eigi þeir að skila sínu.
Einn þekktasti mispillinn hér
á landi er án efa gljámispillinn
(Cotoneaster lucidus). Hann hef-
ur verið notaður mikið í lág
klippt limgerði og stendur sig
einkar vel í íslenskri veðráttu.
Gljámispillinn verður eldrauður
á haustin og standast fáir aðrir
runnar honum snúning í haust-
litafegurð. Maðkur getur orðið
vandamál á gljámisplinum
snemma sumars.
Garðeigendur verða
því að vera á varð-
bergi gagnvart
þessum vágesti og
vísa honum um-
svifalaust á dyr ef
hann gerir sig
heimakominn á
misplinum.
Annar vel þekkt-
ur mispill er
skriðmispillinn
(Cotoneaster ad-
pressus). Hann
hefur jarðlægt
vaxtarlag en getur
vaxið upp með
veggjum, grind-
verkum, steinum og þess hátt-
ar. Haustlitir skriðmispils verða
nú aldrei eins áberandi og hjá
stóra bróður, gljámispli, en þess
í stað skartar skriðmispillinn
hárauðum berjum sem eru til
stakrar prýði.
Fleiri misplar sem reynst hafa
harðgerðir hér á landi eru t.d.
grámispill (Cotoneaster inte-
gerrimus), sem er lágvaxinn með
út- og niðursveigðar greinar,
loðin blöð og skrautlega gula og
rauða haustliti; ígulmispill (Cot-
oneaster bullatus), sem er 2-3 m
hár, grófgerður runni, hentar
sem stakstæður; breiðumispill
(Cotoneaster dammeri), sem er
sígrænn jarðlægur runni og af-
skaplega blómviljugur; odd-
mispill (Cotoneaster acuminat-
us), sem er uppréttur fínlegur
runni, blöðin hafa fallega bylgj-
aða blaðjaðra.
Fleiri tegundir af misplum
hafa reynst fyllilega harðgerðar
við íslenskar aðstæður en ekki
er hægt að telja þá alla til í
stuttri grein sem þessari. Eitt
er þó tilvalið að minnast á að
lokum og það er að jólakort
búin til úr pressuðum laufblöð-
um eru ákaflega skemmtileg.
Ekki er þó ráð nema í tíma sé
tekið og nú rennur upp sá tími
að blöðin eru hvað fallegust.
Jólakortagerðarmenn þurfa því
að fara taka til hendinni og eru
þurrkuð misplablöð í haustlit-
unum sérlega jólaleg.
Guðríður Helgadóttir
BLOM
VIKUNNAR
342. þáttur
Umsjón Ágústa
Björnsdóttir
Sérpantanir
á húsgög^
m
Beríst fyrir
25- september til
afhendíngar fyrir jól
MÖRKINNI 3
SlMI 588 0640 - FAX 588 0641
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbi.is
Óvönduð
fréttamennska á
Stöð tvö
„MÉR mislíkaði frétt Stöðv-
ar tvö sl. mánudagskvöld
þar sem fréttamaður vitnaði
í ónafngreinda heimilda-
menn í þingflokki Fram-
sóknarflokksins og sagðist
þá efast um hæfni heil-
brigðisráðherra til að gegna
sínu starfi og væri þetta
altalað bak við tjöldin.
Að mínu mati er það
ákaflega óvönduð frétta-
mennska að bera út rætið
baktal af þessu tagi og er
ég hissa á fréttastofu
Stöðvar tvö að flytja slíka
frétt ekki síst að ráðherran-
um fjarstöddum. Ég er ekki
ein^um þá skoðun.
Ég vil taka fram að ég
er ekki stuðningsmaður
Framsóknarflokksins og
þekki ekkert til ráðherrans
en ég get ekki annað en
varið þann sem ráðist er á
á svona illkvittinn hátt.
Jórunn Viðar
Valgarðsdóttir
Tapað/fundið
Úr fannst
LÍTIÐ kvenúr fannst sl.
miðvikudag. Upplýsingar í
síma 553-6881.
Úr tapaðist
GYLLT kvenmannsúr með
gylltri og silfurlitaðri festi
tapaðist föstudaginn 6.
september sl. fyrir hádegi
sennilega í Ikea í Holta-
görðum, Kjarrhólma í
Kópavogi eða við Úthlíð í
Reykjavík. Skilvís finnandi
er vinsamlega beðinn að
hringja í síma 564-1446.
Gleraugu töpuðust
SPORÖSKJULÖGUÐ
kvenmannsgleraugu af
gerðinni Ferre í bláu hulstri
töpuðust líklega í Flugstöð
Leifs Eiríkssonar eða ná-
grenni sl. sunnudag. Skilvís
finnandi vinsamlega hringi
í síma 551-5286.
Úlpa
tapaðist
SKÆRGUL, ný, þunn
GAP-úlpa í stærðinni XL
(bamastærð) tapaðist fyrir
nokkru. Finnandi vinsam-
lega hringi í síma
565-4464.
Gæludýr
Óskilakettir í
Kattholti
ÞESSI köttur
fannst í Hafnar-
fírði 6. ágúst sl. og
er núna í Kattholti.
Velvakandi var
beðinn að láta kat-
teigendur vita, að
mjög margir
óskilakettir eru
núna í Kattholti,
og þeir sem týnt
hafa ketti ættu að
leita eftir þeim þar.
ágúst. S. Rúblevskí (2.645),
Rússlandi, var með hvítt og
átti leik, en T. Markowski
(2.540), Póllandi, hafði svart
og lék síðast 31. — Ba4—c2
til að vinna skiptamun.
32. Hc4! og svartur gafst
upp. Eftir 32. — Hxc4 33.
Hd8+ - Kf7 34. Dd5+ er
hann óveijandi mát í næsta
leik. Rúblevskí er ein nýjasta
stjarna Rússa og teflir í
Óíympíuliði þeirra í Jerevan
ásamt mun þekktari skák-
mönnum eins og Kasparov,
Kramnik og Barejev.
Islenska Ólympíuliðið í
skák heldur í dag til Frank-
furt í Þýskalandi. Á morgun
fer það ásamt flestum öðrum
landsliðum Vestur-Evrópu
með leiguflugi til Jerevan.
ÞESSIR duglegu drengir sem búa í Hlíðunum í Reykjavík,
söfnuðu 4.456 krónum til styrktar sjúkrabílum sem þakklæti
tii þeirra fyrir að hugsa vel um bömin sem þeir flytja. Þeir
heita Birkir Marinósson, Pálmi Ragnar Ásgeirsson, Ásgeir
Orri Ásgeirsson og Garðar Karl Ólafsson. Orri Freyr Gísla-
son var einnig með þeim en gat ekki verið með á myndinni.
SKÁK
Umsjón Margcir
Pétursson
HVÍTUR leikur og vinnur
STAÐAN kom upp á minn-
ingarmótinu um Rubinstein
í Polanica Zdroj í Póllandi í
HÖGNII4REKKVÍSI
Pennavinir
TUTT.UGU og sex ára
Ghanastúlka með áhuga
á ferðalögum, tónlist
o.fl.:
Mary Grant,
P.O. Box 802,
Cape Coast,
Ghana.
ÁTJÁN ára sænsk stúlka
með áhuga á bréfskrift-
um, dansi, tónlist og
fólki:
Gabriella Simic,
Sandstensvagen 80,
136 51 Haninge,
Sweden.
SAUTJÁN ára japönsk
stúlka með áhuga á bréfa-
skriftum og tónlist:
Atsuko Kajiwara,
6-lB Hada,
Oita-shi,
Oita-ken,
870 Japan.
Víkveiji skrifar...
ISLENZKA sjávarútvegssýningin
er nú haldin í Reykjavík í
fimmta sinn. Sýningin er haldin á
þriggja ára fresti og hefur vaxið
og dafnað frá upphafi. Nú verður
hún 20% stærri en fyrir þremur
árum og búizt er við fleiri gestum
en nokkru sinni. Sýningin hefur
fyrir löngu fest sig í sessi sem ein
hinna stóru og mikilvægu sýninga
í heiminum. Þátttaka í henni þykir
nauðsynleg hveijum þeim, sem
framleiðir vörur fyrir sjávarútveg-
inn eða þjónustar á einhvern hátt.
Upphaf sýningarinnar var hugsjón
fárra einstaklinga fyrir meira en
áratug, sem af mikilli þrautseigju
ýttu þessu farsæla fleyi úr höfn.
Nú er þessi sýning ein sú stærsta
sinnar tegundar í heiminum og
umsvifin í kringum hana eru gífur-
leg.
Búast má við allt að 10.000 til
15.000 gestum, þar af miklum
ijölda útlendinga. Erlendir sýnend-
ur eru fjölmennir og því er sýning-
in mikilvæg fyrir fyrirtæki eins og
Flugleiðir, skipaféiögin, hótel og
gistihús og veitingahús. Reikna má
með því að útlendingar veiji tugum
milljóna alls í ferðir, gistingu og
veitingar meðan á dvölinni í Reykja-
vík stendur. Það er þáttur sem taka
verður með í dæmið.
I þessu sambandi má einnig
minnast á ýmsa aðra þætti. Nú eru
hafnir landsins farnar að kynna sig
á sýningunni, en mikil samkeppni
er á milli þeirra um viðskipti, eink-
um erlendra skipa. Landanir er-
lendra fiskiskipa hér á landi hafa
aukizt mikið undanfarin ár og skiia
þær miklum tekjum til viðkomandi
hafna og þjóðfélagsins í heild eins
og fram hefur komið í vandaðri
skýrslu Aflvaka.
Reykjavíkurhöfn tekur þátt í sýn-
ingunni nú á mjög myndarlegan
hátt, en hún er stærsta botnfisk-
höfn landsins. Stjómendur hafnar-
innar reyna að laða til sín erlend
skip til að auka viðskiptin, en fram
hefur komið sá misskilningur að
þjónusta hér á landi sé dýrari en
alls staðar annars staðar. Svo er
hins vegar ekki og þarf að vinda
að því bráðan bug að kynna erlend-
um útgerðum þá kosti sem hér eru
í boði og verðlag á vörum og þjón-
ustu svo við missum ekki spón úr
aski okkar.
Islenzka sjávarútvegssýningin
er einnig gott dæmi um það, hve
framarlega íslenzk fyrirtæki
standa í samkeppnni við þau er-
lendu. Vörur fyrir sjávarútveg frá
íslenzkum fyrirtækjum eru þekktar
um allan heim og þykja bæði vand-
aðar og góðar. Þátttaka á sýning-
um af þessu tagi er ein leiðin til
að koma okkur á framfæri erlendis
og það er fullvíst að Islenzka sjáv-
arútvegssýningin hefur átt mikinn
þátt í að kynna íslenzkan sjávarút-
veg út á við.