Morgunblaðið - 13.11.1996, Side 2
2 MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Ásdís
VERIÐ er að leggja lokahönd á framkvæmdir við suðurhluta Kringlunnar sem verður opnaður á morgun.
Kringlan stækkar
VERSLUNARMIÐSTÖÐIN Kringl-
an í Reykjavík stækkar um þriðj-
ung á morgun en þá verður tekinn
í notkun nýr hluti sem áður var
Borgarkringlan. Stækkunin nær
yfír um 6.400 fm svæði á tveimur
hæðum auk kjallara en bygging-
arnar tvær verða samtengdar und-
ir yfírbyggðu þaki. Nýr aðalinn-
gangur verður settur á norðurhlið
Kringlunnar en inngangurinn á
vesturhliðinni hverfur.
í nýja hlutanum svokölluðu suð-
urhúsi verða um 20 verslanir auk
veitingastaða og þjónustuaðila.
Þrír kvikrnyndasalir munu rúm-
ast í viðbyggingu sem verið er
að reisa og verða þeir teknir í
notkun um áramót.
Að sögn Erlu Friðriksdóttur,
framkvæmdastjóra Kringlunnar,
mun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri opna suðurhús
Kringlunnar kl. 9 í fyrramálið við
hátíðlega athöfn. „Verið er að
leggja lokahönd á framkvæmdir
og því allt á fleygiferð," sagði
Erla.
I tilefni opnunarinnar bjóða
verslanir Kringlunnar tilboð á vör-
um til laugardags. Einnig verður
ýmislegt gert til skemmtunar við-
skiptavinum, breskir götulista-
menn sýna töfrabrögð, tónlistar-
menn koma fram, efnt verður til
Kringlugetraunar og fleira.
Pilturinn sem ráðist var á er úr lífshættu
Mál árásarmann-
anna ekki í gegn-
um dómskerfið
PILTURINN sem stunginn var með
hnífi í hálsinn í grennd við Bústaða-
kirkju í fyrrakvöld er úr allri lífs-
hættu, að sögn læknis á gjörgæslu-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur. Að-
gerð sem hann gekkst undir tókst
vel, en hann hlaut nokkurra sentí-
metra langa hnífstungu vinstra meg-
in á hálsinn og fóru nokkrar stórar
æðar í sundur. Pilturinn var útskrif-
aður af gjörgæsludeild í gær og ligg-
ur nú á barnadeild sjúkrahússins.
Drengirnir þrír, sem handteknir
voru vegna árásarinnar, voru yfir-
heyrðir hjá Rannsóknarlögreglu rík-
isins í gær í samvinnu við barna-
verndaryfirvöld þar sem þeir eru
aðeins 14 ára gamlir og því ósakhæf-
ir. Af þeim sökum fer mál þeirra
ekki áfram í gegnum dómskerfíð,
að sögn Harðar Jóhannessonar, yfir-
lögregluþjóns hjá RLR. Hann vildi
ekki tjá sig um það sem fram hefði
komið við rannsókn málsins þar sem
það samræmdist ekki markmiðum
laga um vemd bama og ungmenna
að fjalla nánar um málið opinber-
lega.
Pilturinn sem ráðist var á hafði
verið ásamt öðrum unglingum í fé-
lagsmiðstöðinni Bústöðum, sem
starfrækt er af íþrótta- og tóm-
stundaráði í kjallara Bústaðakirkju,
þegar drengimir þrír réðust á hann.
Tveir þeirra sem réðust á piltinn
hafa áður komið við sögu hjá lög-
regtunni vegna minniháttar líkams-
meiðinga, að sögn lögreglunnar.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar var fjórði drengurinn með í
hópnum en hann hafði sig ekki í
frammi.
Ofbeldi kemur í bylgjum
Pilturinn sem áverkana hlaut er
nemandi í Réttarholtsskóla og sömu-
leiðis einn þeirra sem réðust á hann.
Að sögn Haraldar Finnssonar, skóla-
stjóra Réttarholtsskóla, hefur hann
orðið var við aukið ofbeldi meðal
unglinga upp á síðkastið, en það
komi gjarnan upp í bylgjum. Hann
segir að hins vegar sé aðeins um
fámennan hóp unglinga að ræða og
yfirvöld grípi jafnan seint til að-
gerða, en þessir unglingar þurfi á
viðeigandi endurhæfingu og meðferð
að halda.
Garðabær á kost á 33 hektara byggingarlandi við Vífilsstaði
Dæmdur í
Ríkið vill selja 811 hektara
í SAMNINGAVIÐRÆÐUM bæjar-
stjórnar Garðabæjar og Ríkisspítal-
anna er gert ráð fyrir að spítalam-
ir haldi eftir 164 hekturum af landi
Vífilsstaða og það verði notað und-
ir framtíðaruppbyggingu heilbrigð-
isþjónustu á svæðinu. Rætt er um
að Garðabær kaupi 811 hektara af
landi Vífilsstaða.
Af þessum 811 hekturum eru
aðeins 33 hektarar byggingarland.
Um 700 hektarar af Vífílsstaða-
landi eru skilgreindir á aðalskipu-
lagi Garðabæjar sem skógræktar-
svæði. Hluti af skógræktarlandinu
er innan Heiðmarkar og á því hvíla
stöng skilyrði um nýtingu.
Ekki ágreiningur
um frestun
í viðræðum bæjarstjórnar og
Ríkisspítalanna hefur verið gengið
út frá að Garðabær greiði sama
verð fyrir byggingarlandið og það
hefur verið að greiða fyrir land sem
tekið hefur verið eignarnámi. Verð
á skógræktarlandinu er miklu
lægra enda um annars konar nýt-
ingu að ræða. Samningaviðræður
um sölu landsins eru langt komn-
ar.
Jónas Magnússon, yfírlæknir á
skurðdeild Landspítala, sagði ekki
ágreining innan Ríkisspítalanna um
að ljúka bæri byggingu bamaspít-
ala áður en haldið yrði áfram með
framkvæmdir við K-byggingu. „Það
er vissulega þörf fyrir K-bygging-
una því að starfsemin er búin að
sprengja af sér öll bönd, en ég held
að það sé skynsamlegt að gera þetta
í þessari röð, að byggja fyrst bama-
spítalann og klára svo K-bygging-
una. Aðstaðan á bamadeildunum
er gjörsamlega óboðleg og afar
brýnt að bæta þar úr,“ sagði Jónas.
Búið er að byggja þriðjung K-
byggingarinnar, en krabbameins-
deild er í þeim hluta hússins sem
lokið er við. Sá hluti byggingarinn-
ar sem ólokið er við er m.a. ætlað-
ur undir skurðdeild. Jónas sagði að
fyrir fáum árum hefði verið mörkuð
sú stefna að bæta úr aðstöðu skurð-
deildar með því að taka eina legu-
deild úr notkun og breyta henni í
þijár skurðstofur. Þessar fram-
kvæmdir hefðu tekið þijú ár.
Vífilsstaðávatn
Hestamenn
Verndað
svæði
skógrækt
UrrHfakotsvatn
Byggingaland selt Garðabæ
og útivistarsvæði á Hnoðraholti
Landutan
samnings
umsölu ,
Ætiað fvrir x
framtíðar-
uppbyggingu
heilbrigðisst.
Golfvöllur
/ Skogræktar-og
' náttúruverndar-
svæði selt Garðabæ
500 m
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga fyrstu 9 mánuði ársins
Lánsfjárþörf
hefur aukíst
HALLI ríkissjóðs var 17,6 milljarðar
kr. á greiðslugrunni fyrstu níu mán-
uði ársins, samkvæmt skýrslu Ríkis-
endurskoðunar um framkvæmd fjár-
laga. Er þetta 6,4 milljarða kr. lak-
ari afkoma en ráðgerð var í fjárlög-
um. Skýrist munurinn aðallega af
auknum vaxtagjöldum vegna
ákvörðunar um innlausn spariskír-
teina en á móti kemur að tekjur eru
meiri en ráðgert var.
Þetta gerir það einnig að verkum
að heildarlánsfjárþörf ríkissjóðs er
16,7 milljörðum króna meiri en
greiðsluáætlun fjármálaráðuneytis-
ins gerði ráð fyrir, eða 55 milljarðar
fyrstu 9 mánuði ársins í stað 38,3
milljarða. Þar af fóru 26,6 milljarðar
til greiðslu afborgana af lánum, 17,6
milljarðar til að mæta rekstrarhalla
og 6,3 milljarðar voru endurlánaðir.
Þá var staða á viðskiptareikningum
neikvæð um 4,4 milljarða.
Gjöld ríkissjóðs námu alls um
108,4 milljörðum króna fyrstu níu
mánuði ársins. í greiðsluáætlun fjár-
laga var gert ráð fyrir 96,9 milljarða
kr. útgjöldum á þessu tímabili. Gjöld-
in eru því 11,5 milljörðum kr. hærri
en áætlað var, eða sem nemur 11,9%,
að því er fram kemur i skýrslu Ríkis-
endurskoðunar.
Frávikið skýrist að mestu leyti
af ákvörðun fjármálaráðherra fyrr
á þessu ári um sérstaka innlausn á
spariskírteinum ríkissjóðs. Hún olli
því að vaxtagjöld jukust um 10,1
milljarð kr. á þessu ári en á móti
standa vonir til að innlausnin muni
spara ríkissjóði vaxtakostnað í
framtíðinni. Ef áhrif innlausnarinn-
ar eru undanskilin kemur í ljós að
útgjöld ríkissjóðs fyrstu níu mánuði
ársins eru um 1,4 milljörðum meiri
en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þessi
aukning skýrist að verulegum hluta
af umframgreiðslum í almanna-
tryggingakerfinu eins og mörg und-
anfarin ár.
Tely'ur 5 miHjörðum hærri
Tekjur ríkissjóðs í janúar til sept-
ember námu 90,8 milljörðum kr.
Fjárlög gerðu ráð fyrir 85,8 milljarða
kr. tekjum á þessum tíma og eru
tekjumar því 5,1 milljarði kr. hærri
en reiknað var með í fjárlögum.
Tekjuaukinn á, samkvæmt Ríkisend-
urskoðun, fyrst og fremst rætur í
meiri atvinnutekjum og innflutningi
en flárlög gerðu ráð fyrir. Þannig
voru tekjuskattar einstaklinga um 2
milljarðar kr. umfram áætlun eða
sem nemur 17,5% og innflutnings-
og vörugjöld voru 788 milljónir kr.
yfír áætlun. Þá er nefnt í skýrslunni
að eignarskattar einstaklinga hafí
verið 444 milljónum kr. meiri en ráð-
gert var og skattar af einkasöluvör-
um um 840 milljónum hærri.
3 ára fang-
elsi fyrir
amleta-
mínsmygl
TUTTUGU og sjö ára gamall karl-
maður, Axel Karlsson, var í gær
dæmdur til að sæta þriggja ára
fangelsisvist og til greiðslu alls
sakarkostnaðar fyrir að hafa flutt
inn tæpt kíló af amfetamíní í des-
ember á seinasta ári.
Málavextir eru þeir að þriðja
desember síðastliðinn leituðu toll-
yfírvöld í farangri sakbornings
þegar hann kom flugleiðis frá
Amsterdam í Hollandi, vegna
gruns um að hann væri með ólög-
mæt efni í farangrinum. Við leit
fundust um 990 grömm af amfeta-
míni falin í koníaksflösku og
kexboxi í farangri mannsins.
Reiknaði með 2-3 milljóna
króna hagnaði
Hinn ákærði viðurkenndi að
hafa keypt efnið ytra og greitt á
milli 370 og 380 þúsund krónur
fyrir í hollenskum gyllinum. Hann
viðurkenndi að hafa flutt inn efnið
í því skyni að selja það í heildsölu
með hagnaði og reiknað með að
hagnast um 2-3 milljónir króna á
innflutningnum. Smásöluvirði svo
mikils magns amfetamíns er mun
meira.
Hann vildi ekki tjá sig um hvort
fleiri aðilar stæðu að innflutningi
fíkniefnisins og væntanlegri sölu
þess.
Braut skílorð
Við ákvörðun dómsins var tekið
tillit til að maðurinn hafði brotið
skilorð með innflutningi efnisins
og hversu mikið magn af hættu-
legu eiturlyfi um var að ræða, flutt
inn í ágóðaskyni. Einnig var litið
til þess að sakborningurinn játaði
brot sitt undanbragðalaust. Til
frádráttar refsingu koma fjórtán
dagar sem hann sat í gæsluvarð-
haldi.