Morgunblaðið - 13.11.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996 21
ERLEIMT
Rannsókn vegna meintra nauðgana
í Bandaríkjaher
Herinn lofar
að lögsækja
nauðgarana
Washinglon. Reuter, The Daily Telegraph.
JOHN Shalikashvili, forseti banda-
ríska herráðsins, segir að her
Bandaríkjanna hafi hafið viðamikla
rannsókn vegna ásakana um að
yfirmenn og leiðbeinendur hafi
nauðgað konum úr röðum nýliða
og áreitt aðrar kynferðislega. Shal-
ikashvili lýsti málinu sem „miklu
áfalli" fyrir herinn og lofaði að láta
lögsækja þá sem staðnir væru að
kynferðisglæpum.
„Verkefni okkar nú er að komast
að því hversu algengt þetta er og
sækja þá til saka sem eiga það skil-
ið,“ sagði Shalikashvili í morgun-
þætti ABC-sjónvarpsins á mánudag.
„En það er líka mikilvægt að setja
þetta mál í samhengi," bætti hann
við og sagði að 1,5 milljónir Banda-
ríkjamanna væru í hernum og ekki
mætti „mála þá alla með sama burst-
anum“.
20 yfirmenn og leiðbeinendur hafa
verið leystir frá störfum í stórri þjálf-
unarmiðstöð í Maryland vegna rann-
sóknar á meintum nauðgunum og
kynferðislegri áreitni. Craig Minnick
höfuðsmaður sagði að búist væri við
að fleiri yrðu ákærðir vegna málsins.
Að minnsta kosti 17 konur hafa
sakað leiðbeinendur og þjálfara í
miðstöðinni um nauðganir eða kyn-
ferðislega áreitni. Hundruð nýliða
eru í þjálfunarmiðstöðinni og læra
þar ýmis verk, svo sem meðferð
skotvopna og bílaviðgerðir.
2.000 kvartanir
Herinn hefur brugðist skjótt við
vegna málsins. Þrír menn, höfuðs-
maður og tveir liðþjálfar, hafa þegar
verið ákærðir fyrir meintar nauðgan-
ir og aðra kynferðislega glæpi.
Herinn hefur ennfremur boðið
nýliðum að hringja í sérstakt síma-
númer til að greina frá nauðgunum
og kynferðislegri áreitni. Alls hafa
um 2.000 nýiiðar hringt í þetta núm-
er síðustu fimm daga og kvartað
yfír slíku atferli. 145 þessara kvart-
ana voru taldar nógu alvarlegar til
að réttlæta frekari rannsókn. 56 til-
vikanna tengdust þjálfunarmiðstöð-
inni í Maryland. „Flestar kvartanirn-
ar koma frá þjálfunarstöðvum,"
sagði embættismaður í hernum.
The Washington Post skýrði frá
því á mánudag að ennfremur væri
verið að rannsaka slíkar ásakanir á
hendur nokkrum leiðbeinendum í
þjálfunarbúðum í Missouri. Enn hef-
ur þó enginn verið ákærður þar.
Guatemala
Friðarsáttmáli undir-
ritaður 29. desember
Guatemalaborg. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Guatemala og
vinstrisinnaðir uppreisnarmenn
hafa ákveðið að undirrita friðarsátt-
mála 29. desember og binda þar
með enda á 36 ára stríð sem hefur
kostað að minnsta kosti 100.000
manns lífið.
Alvaro Arzu, forseti Guatemala,
tilkynnti þetta á leiðtogafundi Róm-
önsku Ameríku og Iberíuskaga í
Chile í fyrrakvöld við mikinn fögnuð
leiðtoganna.
Pablo Monsanto, skæruliðaleið-
togi sem fer fyrir samninganefnd
uppreisnarhreyfingarinnar URNG,
staðfesti að friðarsáttmálinn yrði
undirritaður í Guatemalaborg 29.
desember.
Verið er að undirbúa hátíðlega
athöfn í tilefni undirritunarinnar og
ráðgert er að bjóða þjóðhöfðingjum
víðs vegar um heim að vera við-
staddir. „Þetta er besta gjöfin sem
forsetinn getur fært þjóðinni fyrir
áramótin," sagði Carlos Garcia
Regas, forseti þingsins.
Um tíu samningar, sem tengjast
friðarsáttmálanum, verða einnig
undirritaðir í desember. Vopnahlés-
samningur verður undirritaður í
Noregi, samningur um breytingar á
stjórnarskránni í Svíþjóð, og samn-
ingur um pólitíska framtíð URNG
á Spáni.
Friðarviðræðurnar höfðu staðið í
fimm ár og vonast er til þess að
sáttmálinn marki upphaf efnahags-
bata í Guatemala þar sem rúmlega
80% íbúanna eru undir fátæktar-
mörkum.
BLAÐSINS
Jólamatur, gjafír og föndur
Sunnudaginn i. desember nk. kemur út hinn árlegi blaðauki
Jólamatur, gjafir ogfóndur. Blaðaukinn verður sérprentaður á þykkan
pappír og í auknu upplagi þar sem jólablaðaukar fyrri ára hafa selst upp.
í blaðaukanum verður fjallað um hvernig menn gera sér dagamun í mat og drykk
um jólin og hvernig jólaundirbúningi og jólahaldi er háttað. Birtar verða uppskriftir
af hátíða- og jólamat, meðlæti, eftirréttum, smákökum, konfekti og fleira góðgæti,
að ógleymdri umfjöllun um jólavín og aðra jóladrykki. Einnig verður fjallað um
þýðingu jólanna í huga fólks, rætt um jólasiði, jólagjafir, skreytingar og föndur við
fólk víðs vegar um land og þá sem haldið hafa jól á erlendri grund.
Starfsfólk auglýsingadeildar veitir allar nánari upplýsingar í
síma 569 1111 eða með símbréfi 569 1110
Skilafrestur auglýsingapantana
er til kl. 12.00 þriðjudaginn 19. nóvember.
- kjarni málsins!
Til hvers að kaupa hluti sem eiga ekki að endast?
Á morgun opnar Habitat glæsilega verslun í Kringlunni, fulla af vönduðum vörum sem bregða hlýjum lit á hversdagsleikann.