Morgunblaðið - 13.11.1996, Qupperneq 55
11111111111111 ii 11111111 ii 11.11111111 n 11 rrm
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 1996 55
FRUMSYNING: KORFUBOLTAHETJAN
Damon Wayans Daniel Stern and Dan Aykroyd
DAUÐASOK
CELTIC PRIDE
_
Far- eöa Gullkortshafar VISA og Námu- og Gengismeðlimir Landsbanka fá 25% AFSLÁTT. Gildir fyrir tvo.
SAMJRA BULLOCK SAMUEL L. JACKSON
M.VITIIEW MCCONAUGIIEV KEVIN SPACV
„Myndin er byggð
á sterkri sögu
sem gott
hefur verið
mjög vel leikin." jj|l
★ ★★ A.I.Mbl W
„Mynd sem vekur umtal."
|tILBOÐ KR. 300)
PHEl^O'tófNON
Stórbrotin mynd efftir
leikstjóra While You
Were Sleeping og Cool
Runnings.
SÍÐUSTU SÝNINCAR!
Axel Axelsson FM 9!
Ómar Friðleifsson X-ið
DIGITAL
TIN CUP
Gamanmynd sem kemur öllum í gott skap. Jimmy og Mike, áhangendur
körfuboltaliðs Boston Celtics, eru ekki ánægðir með Lewis Scott, hetju
andstæðinganna og taka á það ráð að ræna honum.
Aðalhlutverk: Damon Wyans (Last Boy Scout, Major Payne), Dan
Akroyd (Ghostbusters I og II) og Daniel Stern (Home Alone I og II,
City Slickers).
Stórskemmtileg gamanmynd frá leikstjóranum Ron Shelton
(Bull Durham). Stórstjörnurnar Kevin Kostner, Rene Russo og
Don Johnson fara á kostum í mynd sem er full af rómantík,
kímni og góðum tilþrifum.
„Tin Cup" er gamanmynd sem slær i gegn!!!
GULLEYJA PRÚÐULEIKARANNA
■’iímon
Nýjar plötur
Messa ekki
yfirþjóðinni
Stefán Hilmarsson hefur gefíð út
plötuna, eins oger sem er önnur
___ - ^
sólóplata hans. A plötunni sækir Stefán
áhrif í smiðju breskrar danstónlistar og
sýnir, að eigin sögn, á sér nokkuð nýja
hlið. Textar hans hafa tekið stakkaskiptum
og í samtali við blaðamann Morgunblaðsins
segir hann sér hafa vaxið ásmegin í
textasmíð í gegnum tíðina.
STEFÁN vann plötuna á skömm-
um tíma og fékk til liðs við sig
tónlistarmanninn Mána Svavars-
son, sem hefur verið framarlega
í tölvutónlist á íslandi um árabil,
og Friðrik Sturluson félaga sinn
úr hljómsveitinni Sálinni hans Jóns
míns. „Við sömdum tónlist og
texta, tókum upp, bjuggum til
umslag og annað á um það bil
þremur vikum. Þetta var töluvert
skammur tími sem sannar að góð-
ir hlutir þurfa ekki endilega að
taka langan tíma. Ég er nú vanur
því að hanga yfir þessu von úr
viti, jafnvel svo mánuðum skiptir,"
sagði Stefán. „Það flýtti mjög fyr-
ir að ég hafði undirbúið þetta allt
saman mjög vel í huganum og
vissi vel hvað ég vildi gera. Ég,
Máni og Friðrik fórum í sumarbú-
stað saman, dvöldum þar í þrjá
sólarhringa og unnum átta lög á
plötuna í einni lotu en tvö voru
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
STEFÁN Hilmarsson tónlist-
armaður. „... finnst nánast
eins og ég hafi keypt plötuna
óti í búð.“
til fyrir. Ég tel mig vera að sýna
á mér nokkuð nýja hlið á þessari
plötu." Hann sagði þessi hröðu
vinnubrögð gera það að verkum
að platan sé ferskari fyrir honum
en ella því þegar vinna við plötur
tekur marga mánuði þá er oft lít-
il elja eftir á lokasprettinum. „Mér
fínnst nánast eins og ég hafí keypt
plötuna úti í búð og hlakki til að
fara heim til að hlusta á hana, ég
er ekki búinn að lifa það lengi
með henni.“
Stefán hefur verið önnum kaf-
inn allt þetta ár. Hann hefur sung-
ið með hljómsveitunum Sálinni
hans Jóns míns, Milljónamæring-
unum og Spookie Boogie, einmitt
þegar hann ætlaði að taka því
rólega eins og hann orðar það.
„Það var nú hugmyndin. Ég ætl-
aði að gefa mér góðan tíma í sóló-
plötuna en á tímabili leit út fyrir
að ég yrði að fresta henni."
Var ekkert skólaskáld
Stefán hefur verið afkastamikill
textasmiður og ekki einungis sam-
ið texta við lög hljómsveitar sinnar
Sálin hans Jóns míns heldur einn-
ig fyrir aðrar hljómsveitir. „Ég
byijaði að semja texta af illri
nauðsyn árið 1989 þegar vantaði
texta við lag hjá Sálinni. Laga-
smiðurinn, Guðmundur Jónsson
gítarleikari, sagði: „Þú ert söngv-
arinn og þá skalt þú semja texta.“
Margir segja það eiga að vera í
verkahring söngvarans að semja
textana því hann stendur og er
að tjá textann á sviðinu. Ég hafði
aldrei gert neitt þessu líkt áður.
Ég var ekkert skólaskáld í
menntaskóla eða þannig og lít í
sjálfu sér ekki á mig sem neitt
ljóðskáld. Ég er frekar dægur-
ljóðasmiður og mér finnst mér
hafa vaxið ásmegin í gegnum tíð-
ina. Það er ákveðið þjálfunaratriði
að semja texta við lög og í dag
er það hálfgert áhugamál hjá
mér.“ Stefán segist ekki endilega
vera neitt alvarlega þenkjandi í
textunum, þeir eru alltaf í stíl við
lögin sem hann syngur. „Maður
er kannski að semja texta við létt-
leikandi lítil popplög og þá hentar
ekki að vera með þunga ádeilu-
texta, þó stundum hafí ég samið
texta með smá undiröldu. I raun
er ég ekkert hrifinn af texta með
þungum boðskap, mér fínnst það
einfaldlega ekki henta mér. Ég
leitast frekar eftir því að hafa
textana eins og litlar myndir sem
falla að viðfangsefninu hveiju
sinni. Ég vil síður setja mig á stall
og reyna að vera einhver sem
þykist vita betur en aðrir og mess-
ar yfír þjóðinni." Þegar blaðamað-
ur spyr hvort hann geti hugsað
sér að gefa út ljóðadisk dregur
hann seiminn og svarar: „Það er
aldrei að vita, ég samdi reyndar
tvo texta fyrirfram, sem ég hef
aldrei gert áður, og því má segja
að þetta hafi verið ljóð sem ég
síðan endursamdi og sneið að lag-
línum sem fæddust. “
Stefán segir að við textagerðina
hafi hann notað nýjan stíl. „ Ég
lagði mig fram um að sleppa alveg
stuðlum, höfuðstöfum og rími,
sem hefur einkennt texta mína
hingað til.“
íslenskan á betur við mig
Fyrri plata Stefáns var meira á
persónulegum nótum og segir
hann að mörgum hafi þótt hún
vera of persónuleg. „Nýja platan
átti að verða almennari en varð
töluvert persónuleg sem kannski
er meira hægt að lesa á milli
línanna.“ Allt efni hans er á ís-
lensku en hann segist ekki gera
það til að vera þjóðhollur. „ís-
lenskan á bara betur við mig,“
segir hann.
Það sem gefur starfí hans í tón-
list gildi að hans sögn er það að
vera skapandi listamaður og búa
til eigið efni. „Það er ekkert heill-
andi við það að þvælast um landið
illa sofínn, fjarri fjölskyldunni.
Draumurinn er auðvitað að vera
minna í harkinu og gefa sér meiri
tíma í sköpunina, en það verður
ekki á allt kosið.“
Utgáfutónleikar disksins verða
í Borgarleikhúsinu 2. desember
næstkomandi.