Morgunblaðið - 03.12.1996, Page 11

Morgunblaðið - 03.12.1996, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1996 11 FRÉTTIR Morgunblaðið/Kristinn SUNNEVA Ása Weisshappel situr í fangi langömmu sinnar, Ingibjargar Einarsdóttur, sem var að skoða nýja herbergið sitt á hjúkrunarheimilinu Skjóli á sunnudaginn. Lengst til hægri er móðir Sunnevu Ásu, Jóhanna Norðdal. Rúmum fjölgað á Skjóli Hringvegurinn í Hvalfirði Mjölnir með lægsta til- boð í veg um Botnsvog V ÖRUBIFREIÐASTJ ÓRAFÉLAG- IÐ Mjölnir á Selfossi var með lægsta tilboð í gerð vegarkafla á hringveg- inum um Botnsvog í Hvalfirði. Mjölnir bauð 19.202.400 kr. í verkið sem er 62,2% af kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar, sem hljóðaði upp á 30.870.000 kr. Alls bárust 19 tilboð í verkið og reyndist Völur hf. í Reykjavík eiga næstlægsta tilboðið, sem var 19.734.100 kr. Þijú tilboðanna voru hærri en kostnaðaráætlun Vegagerð- arinnar og reyndist hæsta tilboðið vera frá Loftorku hf. í Reykjavík, sem bauð 36.689.500 kr. í verkið. RÚMUM á hjúkrunarheimilinu Skjóli í Reykjavík var fjölgað um sjö þegar ný hæð var tekin í notk- un þar og vígð á sunnudaginn. Alls eru nú 111 rúm á Skjóli. Starfsfólki verður ekki fjölgað vegna stækkunarinnar, a.m.k. ekki fyrst um sinn. Stækkunin er kostuð af hússjóði Oryrkjabanda- lags íslands og eru rúmin ætluð skjólstæðingum þess. Almannavarnaæfing á Egilsstöðum og í Fellabæ Skýrt hjá Neyðar- línunni hvernig bregðast átti við Á ALMANNAVARNAÆFINGU sem haldin var á Egilsstöðum sl. föstudagskvöld var settur á svið árekstur tveggja flugvéla og brot- lending á tveimur mismunandi stöðum, á Egiisstöðum og í Fellabæ. í frétt af æfingunni í Morgunblaðinu á laugardag var látið í veðri vaka að viðtakendur útkalls hjá Neyðarlínunni hefðu misskilið kall á slysstað þannig að um eina brotlendingu væri að ræða. Gert alveg eftir bókinni Eiríkur Þorbjörnsson, fram- kvæmdastjóri Neyðarlínunnar, segir þetta ekki rétt. „Við vissum af þessari æfingu þannig að það var alveg skýrt hjá okkur hvernig við ættum að bregð- ast við. Fyrst kom hringing þar sem tilkynnt var um fyrra tilvikið, við tókum niður allar nauðsynlegar uppiýsingar og sendum til lögreglu á Egilsstöðum, slökkviliðs og sjúkrabíla, þannig að þetta var gert alveg eftir bókinni," segir Eiríkur. Tólf mínútum síðar var aftur hringt í Neyðarlínuna. Eiríkur seg- ir að þar hafi menn alveg gert sér grein fyrir því að hringt var frá sama stað og það hafi ekki farið á milli mála að það væri út af æfingunni. Lögreglan fékk allar viðbótarupplýsingar „Aftur voru teknar niður nauð- synlegar upplýsingar og þær strax færðar til lögreglu, sem var ábyrg fyrir æfingunni. Lögreglan fékk allar þessar viðbótarupplýsingar. Þeir sögðu alveg skýrt við okkur að þeir tækju að sér að láta við- bragðsaðila vita. Lögreglan átti að vita að þetta væri á tveimur stöðum þannig að þetta væri seinna tilvikið, allir aðilar sem að þessu stóðu áttu að vita að þetta áttu að vera tvær vélar hvor á sínum staðnum," sagði Eiríkur. Hann lagði áherslu á að hjá Neyðarlínunni hefðu viðbrögðin verið hárrétt og eins og til var ætlast. Marinó Marinósson, formaður undirbúningsnefndar almanna- varnaæfingarinnar, segist sem minnst vilja tjá sig um málið að svo komnu, annað en að menn séu allir af vilja gerðir að komast til botns í því. VEGNA UMFJÖLLUNAR FERÐABLAÐS MÐL. SL. SUNNUDAG BIRTIST EFTIRFARANDI AUGLÝSING: BROTIÐ BLAÐ í LUNDÚNAFERÐUM MEÐ SÉRKJÖRUM HEIMSKLÚBBSINS: HVERGI í HEIMI ER INNGANGUR JÓLANNA MEÐ SLÍKUM GLEÐI- OG GLÆSIBRAG OG í Hér bætir Heimsklúbburinn um betur meö 4 daga frábærri skemmti-, menningar- og verslunarferö, þar sem búiö er á ROYAL GARDEN, einu fallegasta hóteli Lundúna. Dagskráin undir leiðsögn Ingólfs Guöbrandssonar, sem gjörþekkir borgina, er hreint jóla-ævintýri. í / ólaskapi á ekki sinn hka cy - 12.-15. des., moð nvium brag og gistmgu a Vissiröu, aö London er mesta heimsborgin, fjölbreyttasta, vin- sælasta og ódýrasta verslunar- borg Evrópu, samkvæmt nýlegri könnun NEWSWEEK? - Hvers vegna aö leita þá annaö? Hversu vel þekkirðu London? Fjöldi íslendinga fær einhæfa mynd af London og hefur aldrei kynnst borginni fyrir utan hótel í lægri kantinum, nokkrar verslunargötur og krár og gerir sér ekki grein fyrir hve mögnuö borgin er og afbragð annarra borga. 12. des. Flug Flugleiöa aö morgni til Heathrow flugvallar og flutningur til hins glæsilega ROYAL GARDEN viö Hyde Park, sem er nýopnað eftir 13. des. Kynnisferö um London undir leiösögn Ingólfs, sem kynnir þér borgina frá mörgum hliðum, sem þú vissir varla aö væru 14. des. Frjáls dagur í London, þar sem jólastemmningin er í algleymingi. Ensk jólaveisla meö kalkún og tilheyrandi um kvöldið, einnig söngleikir, leikhús. 15. des. Eitt merkasta listasafn heimsins meö verkum meistaranna, NATIONAL GALLERY á dagskrá kl. 11-13.30. Síðan frábærir jólatón- leikar í BARBICAN meö vinsælustu tónlistinni eftir Bach, Handel o.fl. Heimflug um kvöldið. gagngerar breytingar og endurnýjun hólf í gólf. Sumar bestu verslanir Lundúna ( næsta nágrenni. Um kvöldið stórtónleikar Philharmonia hljómsveitarinnar í Royal Festival Hall meö vinsælustu verkum Tchaikowskys og Rachmaninoffs meö stjönu- píanista undir stjórn frægasta hljómsveitarstjóra Rússa. til, frá dögum Rómverja til nútímans, gegnum London Hinriks 8., Shakespeares, Dickens, Churchills og ótal annarra. Um kvöldiö stendur til boöa hin vinsæla ópera Puccinis, Turandot í einu besta óperuhúsi heim- sins, COVENT GARDEN. ATH. SÍÐASTI PÖNTUNARDAGUR 4. DES. Austurstræti 17,4. hæð 101 Reykjavík, sími 562-0400, fax 562-6564

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.