Morgunblaðið - 03.12.1996, Side 18

Morgunblaðið - 03.12.1996, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Banka i Japan sagt að hætta viðskiptum Tókýó. Reuter. JAPONSK yfirvöld skipuðu nýlega bágstöddum banka að hætta við- skiptum og hefur það ekki gerzt í hálfa öld. Rástöfunin var sögð nauðsynlegur liður í því að hreinsa til í lánamálum og binda enda á ófremdarástand á því sviði. Tölur japanska íjármálaráðu- neytisins sýndu að Hanwa Bank Ltd er að hruni kominn vegna óinn- heimtanlegra lána að upphæð 190 milljarðar jena eða 1,71 milljarður dollara, en eigið fé bankans var 20,3 milljarðar jena í september- lok. Ráðuneytið hefur skipað bank- anum að hætta viðskiptum í Vest- ur-Japan að öðru leyti en því að afgreiða úttektir því að bankinn geti ekki innheimt skuldir og ekki sé hægt að reka hann áfram. Hiroshi Mitsuzuka fjármálaráð- herrra sagði þó á blaðamanna- fundi að gjaldþrotið ætti ekki að vekja ugg um fjármálakerfi Jap- ans fí heild. Ráðuneytið sagði að sparifjár- eigendur yrðu verndaðir og skjót- ar ráðstafanir til að bregðast við gjaldþrotum banka mundu hleypa nýju lífi í japanska fjármálakerfið. Bankastjóri Japansbanka, Yasuo Matsushita, tók í sama streng. Hanwa starfar aðallega í Osaka og nágrenni og starfsmenn bank- ans eru um 900. Þriðja bankagjaldþrotið Aðeins tvisvar sinnum áður hafa bankar í Japan orðið gjald- þrota síðan heimsstyrjöldinni lauk — annar í fyrrá og hinn á þessu ári. Mál þeirra voru leyst með stofnun nýrra banka. Ellefu smærri lánastofnanir hafa einnig orðið gjaldþrota síðan í desember 1994. Yfirvöld segja að nýr banki verði einnig stofnaður á rústum Hanwa, en aðeins til að leysa upp fyrirtækið, sem var stofnað 1941. Bankinn er ekki meðal 20 helztu viðskiptabanka Japans. Eins og fleiri varð Hanwa fyrir barðinu á mikilli lækkun verðs á fasteignum í byijun áratugarins. Bankinn segir að fjárhagslegt tap hans hafi numið 33,72 milljörðum jena á sex mánuðum til sept- emberloka. Fyrir hálfum mánuði spáði bankinn aðeins 280 milljóna jena tapi á tímabilinu. Sérfræðingar fagna fréttinni, sem er talin vísbending um að hreinsað verði til í fjármálakerfi Japans. Fréttinni var tekið með ró á mörkuðum og verð á hluta- bréfum í Tókýó var stöðugt. Frakkarreka ríkisforstjóra París. Reuter. FRANSKA ríkistjórnin hefur rekið yfirmann ríkisstryggingafélagins GAN, Jean-Jacques Bonnaud, vegna áhrifa ákvörðunar um að hætta við einkavæðingu. Jean Arthuis fjármálaráðherra hefur skipað Didier Pfeiffer frá keppinautinum UAP nýjan yfir- mann GAN (Groupe des Assuranc- es Nationales GAN). Sjaldgæft er að ríkisforstjórar séu reknir í Frakklandi. Brottvikn- ingin á rætur að rekja til nýlegrar ákvörðunar ríkisstjórnarinnar um að hætta við tilboð um einkavæð- ingu dótturfyrirtækis GAN, bank- ans CIC, og ásakana Arthuis um að Bonnaud og stjórnarformanni CIC, Bemard Yoncourt, hafi láðst að kynna söluna. Bonnaud hélt því fram að ef hann gengi að kröfu ríkisstjórnar- innar um að segja af sér mundi það jafngilda því að hann játaði sig sekan og hann vissi ekki til þess að hann hefði gert nokkuð af sér. Talið er að Pfeiffer muni reka Yoncourt, sem reitti Arthuis til reiði í október þegar hann lýsti því yfir í sjónvarpi, þegar enn var auglýst eftir tilboðum í CIC, að yfirtaka gæti leitt til hruns CIC, sem er hópur 11 svæðisbanka. Fyirætlun um að selja 67% í CIC (Credit Commercial et Industriel) mætti harðri mótstöðu stjórnmála- manna á landsbyggðinni og banka- fólks og stjórnin fékk aðeins tvö tilboð — frá frönsku bönkunum BNP og Societe Generale. Boð Societe Generale var ekki talið gilt, því að það fullnægði ekki skilyrðum ríkisstjórnarinnar, meðal annars um að svæðisein- kenni CIC og tryggingasölutengsl við móðurfyrirtækið GAN verði virt. Canadian Airreynir að bjarga félaginu Vancouver. Reutcr. CANADIAN Airlines Corp. reynir að komast hjá gjaldþroti vegna mikils taps og hyggst halda áfram björgunaraðgerð þrátt fyrir and- stöðu tveggja verkalýðsfélaga. Félagið hefur lagt framt björg- unaráætlun eftir margra vikna samningaviðræður og er þar gert ráð fyrir ríkisaðstoð og launatilsl- ökun starfsmanna sem á að spara félaginu 70 milljónir Kanadadoll- ara á ári í fjögur ár. Kevin Benson forstjóri hefur skorað á verkalýðsfélög þau sem vilja ekki samþykkja áætlunina að bera hana undir atkvæði félags- manna, því að hann kveðst viss um að hún yrði samþykkt. Canadian er annað stærsta flug- félag Kanada og hafði lýst yfir að það mundi hætta rekstri í byijun næsta árs ef sex verkalýðsfélög samþykktu ekki endurskipulagn- ingu. Félagið skuldar 2,8 milljarða Kanadadala eða 2,1 milljarð Bandaríkjadal og hefur ekki skilað hagnaði í tíu ár. Gert er ráð fyrir endurskipu- lagningu á áætlunarflugi Canadian og ívilnunum frá AMR Corp., sem á einn þriðja í því og er móðurfyrir- tæki American Airlines. ÚR VERIIMU Morgunblaðið/Jón Svavarsson Aðstaðan bætt ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ Eim- skipa í Hafnarfirði hefur tekið í notkun nýtt hreyfanlegt vinnuskýli til notkunar við löndun á fiski úr frystitogur- um. Jóhann Guðmundsson, þjónustustjóri, segir að mikil bót sé að þessu skýli, sem not- að sé til flokkunar á fiskinum. Áður hafi menn þurft að brasa við þetta undir berum himni í hvaða veðri sem er, en nú sé komi prýðileg aðstaða fyrir þessa vinnu. Hann segir enn- fremur að nú fái kassarnir með frysta fiskinum miklu betri meðferð en áður, en þeir séu viðkvæmir bæði fyrir mikilli sól og rigningu. Á þriðja tug erlendra frystitogara eru í við- skiptum við þjónustumiðstöð Eimskipa 1 Hafnarfirði og fjöl- margir innlendir togarar. Fyr- irhugað er að byggja fleiri skýli af þessu tagi, en mjög öflugan lyftara þarf til að flytja það til. Allir markaðir í sam- tök uppboðsmarkaða REIKNISTOFA fískmarkaða hf. (RSF) og íslandsmarkaður hf. (ÍM) og fiskmarkaðir þeim tengdir hafa stofnað félag, Samtök uppboðs- markaða (SUM). Félaginu er ætlað að fjalla um sameiginleg málefni aðildarfélaga og standa að fundum og ráðstefnum um þau. „Það er löngu ljóst að fiskmark- aðir eru orðnir snar þáttur í ís- lenskum sjávarútvegi og farnir að hafa veruleg áhrif á þróun og mótun stefnunnar í greininni. For- svarsmenn fiskmarkaðanna töldu því tlmabært að koma fram sem ein heild þegar þeir óska eftir, eða leitað er til þeirra, um álit á mál- um er þá varða,“ segir meðal ann- ars í frétt frá hinum nýstofnuðu samtökum. I stjórn samtakanna voru kosn- ir: Ólafur Þór Jóhannsson, Suður- nesjum, formaður; Andrés Helgi Hallgrímsson, Islandsmarkaði, ritari, Grétar Friðriksson, Hafnar- firði, og Egill Jón Kristjánsson, Hornafirði, meðstjórnendur. Heimilisfang SUM verður á Hafnarbakka 13, 260 Njarðvík. Færir um að selja allan fisk „Vegna mikillar umræðu um að allur fiskur fari á fiskmarkað vill SUM leggja áherslu á að fisk- markaðir eru vel færir um að taka við því viðamikla verkefni að selja allan fisk. Fiskmarkaðir eru þegar komnir á margar hafnir og þar sem þeir eru ekki komnir, eru fisk- markaðir reiðubúnir að miðla af reynslu sinni og taka þátt í að byggja upp fiskmarkaði um allt land. Nú hafa fiskmarkaðir starfað í rúm níu ár. Margt hefur þróast til hins betra á þeim tíma, sem má þakka starfsemi þeirra. Utflutningur á ferskum óunn- um fiski var 145.000 tonn árið 1990 þegar hann var mestur, en var 43.000 tonn síðasta ár og minnkar enn á þessu ári. Það þýð- Markmiðið að stuðla að auknum gæðum fisksins ir að meira af fiski er unnið á íslandi af íslensku verkafólki og skilar meiru í þjóðarbúið. Nýting hefur aukizt Nýting á fiskinum hefur stór- aukist vegna þess að til þess að vera samkeppnishæfur á markaði og geta keypt fiskinn gildir að nýta allt sem nýtanlegt er. Sífellt minna fer til mjölvinnslu og má nefna að nú er sundmaginn, lund- inn, kinnfiskurinn o.fl. verðmæt vara, en fór í mjölverksmiðjuna áður. Fisktegundir sem lítt eða ekki voru nýttar áður eru nú mikilvægt og eftirsótt hráefni enda dýr af- urð. Þar má nefna keilu, steinbít, löngu, flestar kolategundir o.fl. sem áður fóru í ódýrar afurðir s.s. skreið eða var hreinlega hent í hafið. Nýjasta dæmið er tindaskata en á þessu ári er búið að selja 747 tonn af henni á fiskmörkuðum á íslandi. Henni var til skamms tíma hent. Þrátt fyrir að aðeins 25% af botnfisktegundum hafi farið um fiskmarkaði í fyrra fóru 80% af tindaskötu um þá. Gæðin hafa aukist Frá því að fiskmarkaðir byijuðu hafa gæði fisks aukist. Gagnstætt því sem margur heldur fram þá hafa fiskmarkaðir átt stóran þátt í því. Fiskur hefur komið og kem- ur enn mjög misjafn að gæðum að landi hvort sem hann kemur til sölu á fiskmarkað eða ekki. Fiskmarkaðir eru til að finna verð á þann fisk sem þar er til sölu. Hátt verð á góðan fisk og lágt verð á lélegan fisk. Til þess að auka gæði þess fisks sem kem- ur til sölu verða þeir að geta treyst á seljendur og kaupendur ásamt því að standa sig sjálfir. Mikil ábyrgð Þegar fiskverð var gefið fijálst fól það í sér mikla ábyrgð þeirra sem versla með fisk eins og allt frelsi gerir. Flestir voru aldir upp í forsjárhyggju þar sem verðið var ákveðið af verðlagsráði og afurða- verðið af einhveijum einum ákveðnum aðila og aldrei skipt um þó í boði væri hærra verð annars staðar. Við frelsið gátu og/eða þurftu menn að þefa uppi tækifærin sjálf- ir. Það leiddi síðan til hærra verðs á hráefninu. Flestir hafa aðlagað sig þessum aðstæðum en aðrir eru þess fullvissir að fiskmarkaðurinn bjargi því sem þeir ekki bjarga sjálfir, þ.e. haldi forsjánni áfram. Það eru slíkir aðilar sem kvarta mest yfir lélegum gæðum og slæmum upplýsingum. Seljendur þurfa líka að vera vakandi yfir því að bæta meðferð þegar at- hugasemdir eru gerðar. Frá upp- hafi hefur markaður með fisk hérlendis verið seljendamarkaður með fáum undantekningum. Það slævir seljandann í vöku sinni yfir að efli gæðin. Ábyrgð seljenda, kaupenda og fiskmarkaða er mik- il og brýnt að þessir aðilar vinni saman að eflingu gæða. Sem bet- ur fer axla flestir þessa ábyrgð en því miður ekki allir og það þarf að laga. Það er markmið fiskmarkaða í SUM að stuðla að batnandi gæð- um og sýna fordæmi í gæðamálum og standa framarlega í þeim efn- um í greininni. Það ætlum við að gera m.a. með því að efla innra eftirlit og er það starf þegar byij- að á nokkrum markaðanna," segir í fréttinni um stofnun samtak- anna. I I > i i I i í i t. í I { i t l l' m t i. t ( í (

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.