Morgunblaðið - 03.12.1996, Page 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
t
---•Stóll:
[9.975 kr. stgr.
Skemmuvegi 4 Kópavogi Sími 557 3100
♦ Nytsamleg gjöf
við öll tækifæri!
A.GUÐMUNDSSON ehf.
húsgagnaverksmiðja
r ••Tölvuborð
! með 3 hillum:
LISTIR
Morgunblaðið/Á. Sæberg
RAUÐSMÝRARMADDAMAN (Ágústa Þorvaldsdóttir), Bjartur (Jón Gíslason) og hreppsljórinn (Gísli
Einarsson) ræðast við.
STEINAR WAAGE
/" SKÓVERSLUN
Barnakuldaskór
STEINAR WAAGE
SKOVERSLUN ^
SÍMI 551 8519 sF
STEINAR WAAGE
SKOVERSLUN ^
SÍMI 568 9212 #
Bjartur í Lundarreykjadalnum
LEIKUST
Leikdcild
UMF Dagrcnningar
SJÁLFSTÆTT FÓLK
eftir Halldór Laxness. Leikgerð eftir
Þórunni Magneu, Hjalta Rögnvalds-
son og Gísla Einarsson. Leikarar: Jón
Gíslason, Guðrún Björk Friðnksdótt-
ir, Bjamheiður Jónsdóttir, Ágústa
Þorvaldsdóttir, Gísli Einarsson, Ólaf-
ur Jóhannesson, Ragnar Finnur Sig-
urðsson, Birta Sigurðardóttir, Þór
Þorsteinsson, Karí Berg, Soffía Eg-
ilsdóttir, Baldur Bjömsson, Sigurður
Oddur Ragnarsson, Jón Halldórsson,
Sigurður Halldórsson, Tómas Araa-
son, Helgi Bjömsson, Unnur Jóns-
dóttir, Þórdis Sigurðardóttir, Jónína
Sigurðardóttir og Rakel Bryndís
Gísladóttir. Leikstjóm: Þórunn
Magnea. Lýsing: Ejjólfur Hjálmsson
og Guðni Eðvarðsson. Leikmynd:
Ami Ingvarsson. Búningar: Kristín
Gunnarsdóttir og Halldóra Ingi-
mundardóttir.
Brautartunga 1. desember.
í LUND ARREYKJ AD ALNUM
hefur lífið að miklu leyti snúist um
leiklist síðustu vikur; um helmingur
íbúa dalsins hefur á einn eða annan
hátt tekið þátt í að koma á fjalirnar
þeirri leiksýningu sem frumsýnd
var á sunnudagskvöldið. Þeir sem
ekki leika í sýningunni smíða og
mála leikmynd, hanna og sauma
búninga, eða aðstoða á annan hátt.
Og þetta samstillta átak þeirra
Lunddælinga hefur skilað metnað-
arfullri og bráðskemmtilegri leik-
sýningu. Verkið er Sjálfstætt fólk
eftir Halldór Laxness í nýrri leik-
gerð eftir þau Þórunni Magneu
(sem einnig er leikstjóri), Hjalta
Rögnvaldsson og Gísla Einarsson.
Að gera leikverk upp úr þessari
miklu skáldsögu getur varla verið
áhlaupaverk, þremenningamir, sem
skrifaðir eru fyrir leikgerðinni, hafa
skilað þéttu og góðu handriti sem
gengur prýðilega upp sem leikverk.
Flest mikilvægustu atriði skáldsög-
unnar komast vel til skila og eru
atriðin vel saman fléttuð. Sjálfsagt
er gengið út frá því sem vísu að vel
flestir áhorfenda þekki skáldsöguna,
a.m.k. hafa þeir áhorfendur forskot
á hina og njóta sýningarinnar til
fulls því hvert leikatriði kallar fram
í hugann þau atriði sögunnar sem
vísað er til, kannski aðeins með
stuttri mynd eða fáum setningum.
Þó held ég að þeir sem enn eiga
eftir að lesa sjálfa söguna fái mikið
fyrir sinn snúð og upplifí vel örlaga-
sögu Bjarts og fjölskyldu hans.
Það er Jón Gíslason sem fer með
hlutverk Bjarts og passar hann vel
í hlutverkið. Jóni tekst vel að sýna
okkur hina óbifandi þtjósku bónd-
ans sem trúði á sjálfstæði, getu og
frelsi einstaklingsins hvað sem yfir
hann dundi. Og sérstaklega vel
tókst honum, þegar á leið verkið,
að koma til skila harmi Bjarts eftir
að hann hefur rekið frá sér lífsblóm
sitt, Ástu Sóllilju. Það eina sem var
nokkuð ábótavant hjá Jóni var
framsögnin í byijum leiksins, en
líklega má þar um kenna frumsýn-
ingarkvíða, því þetta lagaðist eftir
því sem leið á.
Auk Jóns Gíslasonar eru tuttugu
aðrir leikarar í þessari sýningu (og
einn hundur) og því miður ekki
fært að geta um frammistöðu þeirra
allra. Þó vissulega mætti merkja
að fæstir væru skólaðir eða vanir
leikarar verður þó ekki annað sagt
um frammistöðu þeirra í heild en
að vel hafí tekist til. Hópsenur voru
nokkrar skemmtilegar, t.d. þegar
bændur sveitarinnar hittust. Þar
mátti sjá margan skemmtilegan
karakterinn. Ágústa Þorvaldsdóttir
var sköruleg Rauðsmýrarmaddama,
alveg í anda sögunnar. Hreppstjór-
ann, bónda hennar, lék Gísli Einars-
son á skoplegu nótunum og var það
eitt af þremur hlutverkum hans.
Ólafur Jóhannesson var frábær í
hlutverki séra Guðmundar og mátu-
lega aumingjalegur í hlutverki
barnakennarans. Guðrún Björk
Friðriksdóttir lék Rósu og Ástu
Sóllilju eldri. Hún náði ágætum tök-
um á bæði stolti og eymd Ástu
Sóllilju undir lok leiks, en túlkun
hennar á Rósu hefði mátt vera til-
finningaríkari. Karí Berg leikur
Hallberu gömlu og uppskar hún oft
hlátra þegar hún trítlaði kengbogin
og skrefstutt yfír sviðið. Gervi
hennar hefði þó að ósekju mátt
vera ellilegra. Nokkur börn taka
þátt í sýningunni og gerðu þau flest
afar vel og voru ekki í vandræðum
með línurnar sínar.
Vert er að minnast á sviðsmynd
og búninga því hvort tveggja var
afar vel unnið og höfundum sínum
til sóma. Eftirtektarvert var hversu
fallegt pijónles bændurnir báru,
hvort sem um var að ræða peysur
eða sokka og aðrir búningar voru
mjög vel valdir. Baðstofan í Sumar-
húsum var vel hönnuð og staðsett
fyrir miðju sviði og beggja vegna
við hana var rúmgott rými þar sem
aðrar senur leiksins fóru fram.
Þessi sýning var í alla staði hin
besta skemmtun og einhvern veginn
fannst manni að Bjartur og hans
fólk væri hreinlega fætt og uppalið
þama í Lundarreykjadalnum.
Soffía Auður Birgisdóttir
Nýttúti-
listaverk
í Garðabæ
TILLAGA Brynhildar Þorgeirs-
dóttur myndlistarmanns fór með
sigur af hólmi í samkeppni sem
bæjarstjórn Garðabæjar efndi til
um gerð útilistaverks í tilefni af
því að tuttugu ár eru liðin frá því
að Garðarbær fékk kaupstaðar-
réttindi. Verður verkið staðsett á
mótum Vífilsstaðavegar og Hafn-
arfjarðarvegar.
Þijátíu og Qórir listamenn tóku
þátt í forvali samkeppninnar en
menningarmálanefnd, sem jafn-
framt var dómnefnd, valdi úr þeim
hópi fimm listamenn til að taka
þátt í samkeppni um tillögu að
listaverkinu. Voru þeir Anna Sig-
ríður Sigurjónsdóttir, Hallsteinn
Sigurðsson, Jóhanna Þórðardóttir
Morgunblaðið/Kristinn
BRYNHILDUR Þorgeirsdóttir veitir verðlaunum sínum viðtöku.
og Þórir Barðdal, auk Brynhildar.
Um helgina var opnuð sýning á
tillögum listamannanna fimm í
yfirbyggðum miðbæ Garðabæjar.
Verður hún opin á opnunartíma
verslananna við Garðatorg og
stendur til 12. desember næstkom-
andi.
)
i
i
i
l
I
I
I
Í
ft
I
r
ft
I
í
i
4-
mm