Morgunblaðið - 03.12.1996, Page 28

Morgunblaðið - 03.12.1996, Page 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1996 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Sendu jólapakkana og jólapóstinn með DHL Við gefum þér 2 auka vikur Það er engin ástæða til að láta jólapakkana og jólamatinn velkjast um í pósti í nokkrar vikur. DHL kemur jólapökkunum hratt og örugglega heim til viðtakenda. Síðasti dagur til að senda Jólagjöf er 16. desember. Við erum ódýrari en Pósturinn Það er ódýrara að senda jólakortin til útlanda með sendibréfa- þjónustu DHL en með hefðbundnum flugpósti. Ef þú ert með 20 jólakort eða fleiri sækjum við þau heim til þín endurgjaldslaust. ATH Skilið bréfunum ófrímerktum. Síðasti dagur til að senda jólakort til einstakra landa er: 13. des. til Norðurlandanna. 12. des. til Evrópu. 9. des. til Bandaríkjanna, Kanada og annarra landa. womxrwijDE expffess Víð stöndum við skuidbindingar þínar DHL HRAÐFLUTNINGAR HF Faxafen 9 -108 Reykjavlk Slmi 535 I 100 • Fax 535 I I I I Ur musteri Þorláks helga TONLIST Dömkirkjan KÓRTÓNLEIKAR Verk eftir Pálmar Eyjólfsson, Ny- berg, Þorkel Sigurbjörnsson, Hand- el, Fauré, Reger, Pál Isólfsson o.fl. Þórunn Guðmundsdóttir sópran, Loftur Erlingsson baiýton; Lárus Sveinsson & Eiríkur Öm Pálsson, trompetar; Marteinn H. Friðriksson, orgel & pianó; Skálholtskórinn, Stjónuindi: Hilmar Öm Agnarsson. Dómkirlgunni, laugardaginn 30. nóv- ember kl. 17. ÞAÐ var jólastemmning í lofti, og ekki fyrr vænna, skv. þeirri óskráðu hefð að syngja ekki jólum fyrr en kominn desember, þegar Skálholtskórinn söng stundu fyrir miðaftan á laugardaginn var á hátíð- artónleikaröð þeirri sem haldin er í tilefni af tveggja alda afmæli Dóm- kirkjunnar í Reykjavík. Til sanns vegar má þó færa, að aðeins 3 núm- er af 12 voru titluð jólalög. En kannski hnykkti á skærrauður bún- ingur kórfélaga, því sá er einn af erkilitum jóla. Fyrri hlutann söng Skálholtskór- inn uppi á orgelpalli og allan við orgelundirleik Marteins H. Friðriks- sonar, að viðbættum trompetum í tveimur lögum. Fyrst var í Skál- holti, snoturt lag eftir Pálmar Eyj- ólfsson í hægum pastorölum 6/8, og að því loknu Ave María, síðróm- antískt kyrrlátt lag eftir Hans Ny- berg. Kom þar fyrst en ekki síðast fram landlæg kvennayfirviktin í blandaðri kórstarfsemi, sem með þessu áframhaldi ætti að gera gamla 5-radda satzinn (SSATB) girnilegan viðfangs. Sérstaklega var tenóraekl- an bagaleg, en það eru engin ný tíð- indi. Hin stutta og íhugula sekvenzía Þorkels Sigurbjörnssonar úr Þor- lákstíðum, Innocentem Te Servavit, var á stöku stað pínku óörugg í inn- komum en að öðru leyti fallega sung- in. Við kyndilmessusálminn Vor raust og tunga úr Grallaranum í útsetningu Glúms Gylfasonar fyrir Skálholtshátíð 1983 bættist tromp- etblástur Lárusar Sveinssonar og Eiríks Arnar Pálssonar í svolítið skondnum viðlagskontrapunkti í hveiju versi, sem hefði að ósekju mátt varíera. Loks var „Lofsöngur" Handels - hann sker sig auðveldlegar ur hundr- uðum annarra lofsöngva undir nafn- inu Canticorum jubilo - sem ásamt orgeli og trompetum í útsetningu dr. Róberts Ottósonar myndaði upp- hafið niðurlag á fyrri hluta tónleik- anna, nema hvað kórinn hefði líklega mátt vera aðeins kraftmeiri í þessu dæmigerða sýnishorni af tiginni bar- okk-sigurvissu. Vera kann þó, að kvef og pestir hafi sett sín grályndu strik í heildarhljóminn hér á miðri aðal veiruvertíðinni. Þegar kom að Heill þér himneska orð eftir Gabriel Fauré, flutti kórinn sig um set niður fyrir framan alt- ari, enda þar statt undirleikspíanóið. Söngur var hinn þokkalegasti, nema hvað sópraninn gerðist hniggjörn á efstu tónum. Undirleikstríólur pían- ósins voru full þurrar í pappaakústík Dómkirkjunnar og hefði e.t.v. mátt nota meiri pedal. Annars var lofs- vert hvað píanistinn sýndi kórnum mikla tillitsemi í styrkvali. Þá voru sungin tvö austurrísk jólalög í útsetningu dr. Róberts. Fyrst söng Skálholtskórinn a capp- ella Kom vor Immanúel, en þarnæst Jólaljóð hirðingjanna með píanóund- irleik og sætum týrólskum tvísöng Aðalheiðar Helgadóttur og Berglind- ar Sigurðardóttur. Var hvort tveggja ákaflega jólalegt, og enn sterkar lagði jólatrésilminn af enska laginu Þar sátu hirðar (úts. David Wiilcocks) við píanóundirleik og trompetblástur í 3. og 5. versi. Komu þessi barnslega einföldu en klið- mjúku lög einna bezt út allra í túlk- un Skálholtskórsins, og hér mátti, sem reyndar víðar, heyra marga fallega hendingamótun kórstjórans. Vögguljóð Maríu eftir Max Reger var greinilega byggt á gamla hirð- ingjasöngnum In dulci jubilo. Söng þar Þórunn Guðmundsdóttir fallegan forsöng, er féll auk þess mjög vel að blæ kórsins. Hún söng einnig í síðasta atriðinu, Þáttum úr Skál- holtskantötu Páls ísólfssonar (1956) ásamt kór og hljómmiklum barýtoni Lofts Erlingssonar. Töluverður munur virtist vera á stíl þessa verks og hinnar 26 ára eldri Alþingishátíðarkantötu, eink- um í undirleik, en þó minni en gera hefði mátt ráð fyrir, hefði höfundur staðið í miðri hringiðu evrópskra meginstrauma. Á svipuðum tíma og Stockhausen semur Gesang der Junglinge, er farið öllu hægar í sakirnar hér í útnorðri, en þó mótar fyrir viðleitni til nýrra tónamáls. Báðir þættirnir, ísland og Ljóða- lok, einkenndust af epískri andante con moto-gönguáferð, og þó að ein slagharpa og tveir trompetar séu óneitanlega varla nema skugginn af hljómsveit, mátti vel heyra endur- óminn af upphöfnum glæsileika Páls í flutningi þeirra Skálhyltinga, þrátt fyrir eilítið þreytulegan kórhljóm. Einsöngvarakvartett kom einnig við sögu og stóð sig með ágætum. Ríkarður Ö. Pálsson Nína Margrét, Mozart & Mendelsohn TONLIST III j 6 m d i s k a r NÍNA MARGRÉT GRÍMSDÓTTIR, PÍANÓ W.A. Mozart, sónata í B-dúr K 333 (315C). Tólf tilbrigði í C-dúr K 265 (300E). F. Mendelssohn, Variations sérieuses í D-molI, óp. 54. Rondo Capriccioso í E-moiI, óp. 14. Hljóðrit- að í Digraneskirkju í Kópavogi í ágúst 1996. Upptaka og hljóðvinnsla: Halldór Víkingsson. mjóðfæri: Bös- endorfer. SKREF, íslenskir tónlistar- menn. Dreifing: Japis. NÍNA Margrét Grímsdóttir hefur komið fram sem einleikari með Sin- fóníuhljómsveit íslands, Kamm- ersveit Reykjavíkur og Sinfóníu- hijómsveit æskunnar undir stjórn Pauls Zukofskys. Einnig haldið ein- leikstónleika (m.a. í New York, London og París) og tekið þátt í flutningi kammertónlistar í Evrópu, Bandaríkjunum og Kanada, þ.ám. með Blásarakvintett Reykjavíkur. Að framansögðu má ætla að hér sé á ferðinni góður píanisti enda reynist svo vera, hljómdiskurinn veldur ekki vonbrigðum. Leikur Nínu Margrétar er mjög vandaður, í erfiðu en fallegu og áhugaverðu prógrammi. Píanósónötur Mozarts leyna ansi mikið á sér, ekki síst í tækni og túlkun, þó að „áferðin" virðist oft kristaltær og næsta sak- leysisleg. Svo er um þessa sónötu og þrátt fyrir að hún sé vel leikin sakna ég meiri þéttleika og skarp- ari uppbrota hugmyndanna, ef svo mætti að orði komast. Yfír spila- mennskunni er lína og þokki, sem mætti kenna við kvenleika, en næg- ir ekki alveg til að túlka til hlítar „intelektúala" þáttinn og tilfinn- ingahitann sem undir býr. Allt er fallegt sem hún gerir og segir, en kannski ekki alveg nóg (nema í „kadensunni í síðasta þætti); verk- urinn er hvernig hægt er að koma þessum hugmyndum heim og saman án þess að beita „straujárninu". Mozart getur verið býsna flókinn hvað þetta varðar og ekki öllum gefið að leysa þann galdur. Leikur Nínu Margrétar í ABCD- tilbrigðunum (byggð á franska bamalaginu Ah, vous dirai-je Ma- man), er framúrskarandi góður, og svo er um seinni verkin eftir Mend- elssohn, Variations sérieuses og Rondo capriccioso, sem eins og áður segir mynda fallega tónleikaskrá með verkum Mozarts. Tilbrigði Mendelssohns eru þó snöggtum al- varlegri (eins og nafnið gefur til kynna) en Mozarts, sem virðast meira samin af fíngrum fram. Verk- ið var, eins og píanóleikarinn segir í bæklingi, mikilvægt framlag til til- brigðaformsins á nítjándu öld. Fylgir tilurð þess og útgáfíi lítil saga, sem skýrir skyldleikann við Beethoven, sem kunngerði snilld sína ekki hvað síst í tilbrigðaforminu. Verk Mend- elssohns er vissulega sannfærandi tónsmíð og án efa meistaralega sam- in og „verðugur minnisvarði um Beethoven". í seinna verkinu, sem upphaflega var samið sem etýða án hæga upphafskaflans, en honum var bætt við seinna, höfum við þann Mendelssohn sem flestir kannast við, að hluta syngjandi laglína og að hluta n.k. skerzo a la Draumur á Jóns- messunótt. Nína Margrét leikur þessi verk frábærlega vel, ekki síst tilbrigðin, sem ég á eftir að kynna mér betur (hef ekki heyrt þau áður). Hljóðritun er mjög góð (eins og vænta má þegar fara saman Digra- neskirkja og Halldór Víkingsson). OddurBjörnsson JátaMaðÉmd <€1 Skúta 3taru>en á SkdtaðHÚ JÓLAHLAÐBORÐ SKÚLA HANSEN, MATREIÐSLU- diciíctcix til nmDCTTi iay uaiitatiiucii ocvytaai ái uamoiiact octa t - VlO ClÁUM MEISTARA Á SKÓLABRÚ, ER LÖNGU ORÐIÐ LANDSÞEKKT FYRIR GÆÐI OG GLÆSILEIKA, EN HANN ER EINN AF FRUMKVÖÐLUM ÞEIRRA HÉR Á LANDI. Á MEÐAL RÉTTA Á JÓLAHLAÐBORÐI SKÚLA MÁ TELJA KALKÚN, SÆNSKA JÓLASKINKU, | t -•*■'■*—■ . ■ , cnn, i.cv/ in ■ ni- . ninn " *-> i,nn w . i»». . , OG ÁBÆTISRÉTTI, AUK FJÖLDA ANNARRA HEITRA OG KALDRA KRASA. Skúli Hansen 0G STARFSLIÐ hans bjóða ykkur velkomin Á Skólabrú Á aðventunni. Það FER vel um einstaklinga og hópa í þessu GAMLA, GLÆSILEGA HÚSI í HJARTA BORGARINNAR. UM KJOTIÐ .. Wl)L UðraNNSU Skólabni ‘Ve.’íð: 3 hádetfinu ht. 7.050 á hnötdin fct. 2.S5C BORÐAPANTANIR í SÍMA 5624455 I > > I > > l \ I ! I I I I »

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.