Morgunblaðið - 03.12.1996, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1996 43
Eru íbúðarkaup
tímasprengja?
Á ÍSLANDI hefur
lengi verið rekin sú
stefna að æskilegt sé
| að allir ættu að eiga
sína eigin íbúð.
Sjálfseignarstefnan
hefur líka marga góða
kosti í för með sér. Hún
vekur ábyrgðarkennd
um greiðslur af lánum,
hvetur til betri um-
gengni og stuðlar að
i eiginfjármyndun við-
J komandi íbúa, sem
verður jafnframt vara-
sjóður til lengri tíma lit-
ið. Séreignarkerfið er
komið til að vera en fjár-
mögnun þess mun vafa-
iaust taka breytingum í tímans rás.
Það hafa ekki allir efni á að kaupa
sér íbúð og því hefur verið nayðsyn-
legt að viðhafa félagslegt íbúðar-
kerfi við hlið hins almenna íbúðar-
, kerfis. Ríkisvaldið hefur ábyrgst lán
og niðurgreitt vexti en sveitarfélögin
ásamt nokkrum félagasamtökum
eins og Búseta, Öp'rkjabandalaginu,
Þroskahjálp og námsmannafélögun-
um hafa séð um uppbyggingu fé-
lagslegra íbúða. Ríkisvaldið hefur
niikinn kostnað af niðurgreiðslu
vaxta, sveitarfélögin og félagasam-
tökin bera hins vegar oft kostnað
vegna vanskila íbúa, kaupskyidu,
reksturs, umsýslu o.s.frv.
Hvað er í boði?
Breytinga er þörf, um það eru
allflestir sammála sem að þessum
málum koma. Fyrst þarf að meta
stöðuna, hvað er í boði:
a. Séreign á almennum
markaði
b. Húsnæðisnefndar-
íbúðir
c. Búseturéttaríbúðir
d. íbúðir annarra fé-
lagasamtaka, ýmis
eignar- og leiguform.
e. Leiguíbúðir sveitar-
félaga
f. Leiguíbúðir á al-
mennum markaði
Það er nauðsynlegt
að bjóða upp 3-4 kosti
til að tryggja viðunandi
húsnæði fyrir alla þjóð-
félagshópa. En kostn-
aður og afborgunarskil-
málar við að eignast
húsnæði er ekki í neinu samhengi
við greiðslugetu þorra launafólks.
Þessi staðreynd á ekki aðeins við
almennar eignaríbúðir heldur einnig
um sumar Búseta- og húsnæðis-
nefndaríbúðir. Fjöldi fólks lætur þó
skort á eigin fé og slaka greiðslu-
getu ekki stoppa sig í fjárfestingu
á íbúðarhúsnæði. Framboð á lánsfé
er mikið og fólk rennur í gegnum
greiðslumat með blekkingum. Niður-
staðan er því miður sú að heilu fjöl-
skyldurnar sitja á tímasprengju. Það
er ekki spurning hvort, heldur hve-
nær, greiðsluþrot blasir við.
Kostir og gallar
a. Húsbréfakerfið
Kostir: Stærri markaður - meira
úrval. Klár ábyrgð á eigninni, eigna-
myndun (við réttar forsendur). Gall-
ar: Er ekki raunhæfur fyrsti valkost-
ur nema fyrir einstaklinga með mjög
Niðurstaðan er því
miður sú að heilu
fjölskyldurnar sitja á
tímasprengju, segir
Gunnar Jónatansson.
Það er ekki spuming
hvort, heldur hvenær
greiðsluþrot blasir við.
góðar tekjur og umtalsvert eigið fé
(a.m.k. 25% af andvirði íbúðar).
b. Húsnæðisnefndaríbúðir
Kostir: Hefur stóraukið möguleika
tekjulágs fólks til að „eignast" eigið
húsnæði. Gallar: Misskilin eigna-
myndun sem oftar en ekki verður
neikvæð fyrstu árin. Dýrt fyrir sveit-
arfélögin ef þau þurfa að leysa til
sín eignir sem ekki seljast.
c. Búseturéttaríbúðir
Kostir: Afmörkuð eignamyndun á
viðráðanlegu verði. Mjög einföld
umsýsla við íbúaskipti (aðeins einu
sinni lánað til hverrar íbúðar). Gall-
ar: Takmörkuð eignamyndun.
Stundum óljós skil milli leigu- og
eignarréttar.
d. íbúðir annarra félagasamtaka
Kostir og gallar: Aðeins fyrir
þröngan hóp, oft í skamman tíma.
e. Leiguíbúðir sveitarfélaga
Kostir: Afar ódýrt húsnæði fyrir
leigjandann. Gallar: Mjög dýrt fyrir
eigandann, takmörkuð ábyrgð leigu-
taka.
Gunnar
Jónatansson
f. Leiguíbúðir á almennum mark-
aði
Kostir: Ekki er gerð krafa um
eigið fé, lítill kostnaður. Gallar: Lítið
úrval af aivöru leiguíbúðum, mikið
óöryggi. Afleitur kostur fyrir fjöl-
skyldur með börn á skólaskyldualdri.
Hvað er til ráða?
Fyrsta skrefið er að viðurkenna
þá staðreynd að ekki hafa allir ráð
á kaupum á eigin húsnæði.
í stað þess að kollvarpa því sem
við höfum í dag ætti að velja það
besta úr öllum kerfum.
Búseturéttarkerfið má þróa þann-
ig að það henti frjálsum félagasam-
tökum sem og sveitarfélögum. Sveit-
arfélögin ættu að gerast aðilar að
húsnæðisfélögum með möguleika á
kaupum á búseturétti fyrir þá skjól-
stæðinga sem ekki hafa ráð á slíkri
fjárfestingu.
Lægri
húsnæðiskostnaður
Góð reynsla er komin á þetta
form. Hagkvæmni stærðarinnar nýt-
ur sín vel í magnkaupum á trygging-
um og ýmsum viðhaldsverkefnum.
Góður árangur hefur náðst í sparn-
aði í rekstri, t.d. hitakerfa. Fræðslu-
starf með námskeiðahaldi og miðlun
í gegnum fréttabréf er með ágætum.
Markmið félagsins er að lækka hús-
næðiskostnað enn frekar. Fjölmargir
nýta sér búseturéttarformið sem
fyrsta skrefið að kaupum á íbúð á
almennum markaði. Aðrir horfa á
Búseta sem góðan kost fyrir þá sem
eru að flytja í sína síðustu íbúð.
Kostir þessa forms eru að það
nást að hluta til fram meginkostir
séreignarstefnunnar. Rekstrar- og
viðhaldskostnaður verður lægri og
með hagkvæmni stærðarinnar næst
einnig fram fagmennska í rekstri
sem leiðir til lægri húsnæðiskostnað-
ar til lengri tíma.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Búseta.
>
I
I
Islensk jÓI í VltlÖM^VSVM
Vinir og ættingjar erlendis fá jólamatinn á réttum tíma
• Þú kemur í Hagkaup og kaupir
jólamatinn og jólagjafirnar.
• Við búum tryggilega um
sendinguna og sendum með
DHL Hraðflutningum.
• Starfsmaður DHL fer heim til
móttakanda og afhendir honum
jólapakkann persónulega.
Sending til Evrópu tekur 1-2 daga
en 2-4 daga til annarra landa.
Sendu íslenskan jolamat
- því að leiðin að hjartanu liggur í gegnum magann
waKomae exfmu
Við stöndum við skuidbíndingar þínar
HAGKAUP
Njjttoilferslg
KALIMAR
MYNDAYÉLAR OG
SJÓNAUKAR
35 mm myndavél, sjálfvirkt
flass. Fæst i fjórum litum.
Verð kr. 1.590.
AUTO 35
Alsjálfvirk 35 mm myndavél,
engin rauð augu.
Verð kr. 2.995.
SUPER VIEW
35 mm myndavél alsjálfvirk,
engin rauð augu. Gleiðlinsa.
Verð kr. 3.595.
8x30 WIDE ANGLE
Sjónauki með tösku.
Verð kr. 3.495.
SB
8x21 RUBY
Sjónauki með beltistösku.
Verð kr. 4.995.
7x35 WIDE ANGLE RUBY
Sjónauki með tösku.
Verð kr. 7.995.
Vandaðar
myndavélar og
sjónaukar
á góðu verði.
flRMÚlA 38
SÍMI5531133