Morgunblaðið - 03.12.1996, Page 48

Morgunblaðið - 03.12.1996, Page 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1996 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ + Helgi Eiríksson fæddist 28. febrúar 1954. Hann lést í Reykjavík 24. nóvember síðastlið- inn. Foreldrar Helga eru Vaka Sigurjónsdóttir, f. 25.6.1933, og Eirík- ur Helgason, f. 25.6. 1927. Systkini Helga eftirlifandi eru Anna Eiríks- dóttir, Jóhanna Ei- ríksdóttir og Jó- hannes Eiríksson. Helgi Eiríksson lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólnum við Tjörnina árið 1974 og uppeldis- og sagnfræðinámi í Háskóla íslands. Hann var kennari við Fjölbrautaskóla Suðurnesja frá 1979 til 1989. Kenndi hann sagnfræði, skipu- lagði tölvukennslu í skólanum og hafði umsjón með félagslífi nemenda. Helgi var fram- kvæmdastjóri Bandalags ís- lenskra skáta frá 1989-1991. Starfsmaður Reylg'avíkurborg- ar frá 1991, síðast innkaupa- stjóri Vatnsveitu Reykjavíkur. Hann var var virkur félagi í skátahreyfingunni og gegndi þar öllum helstu trúnaðarstörf- Helgi Eiríksson var fágætur maður, hugsjónamaður, listfengur og viðkvæmur. Hann mátti ekkert aumt sjá og lét sig hvergi ef honum þótti réttum málstað hallað. Hann var að mörgu leyti meiri smiður en kennari, sem naut þess að skapa hluti með höndunum og vinna að störfum, sem sýndu áþreifanlegan árangur. Samt naut hann kennara- starfsins, var meiri kennari en fræðimaður og oft betri kennari fyrir bragðið. Hann lauk stúdents- prófí árið 1974 og stundaði sagn- fræðinám og nám í uppeldisfræð- um. Hann hóf kennslu í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja árið 1979 og starfaði þar í réttan áratug. Kenn- arastarfið var honum ævinlega hug- leiknast og hann sinnti því víðar en í framhaldsskólakennslu, en ekki síst á foringjanámskeiðum skáta- hreyfingarinnar en sömuleiðis í Björgunarskóla Landsbjargar og á námskeiðum á vegum Ferðafélags íslands. Helga Eiríkssyni kynntist ég 10 ára gömlum er hann gekk í skáta- um. Var félagsfor- ingi skátafélagsins Skjöldunga í Reykjavík, sat um skeið í stjórn Banda- lags íslenskra skáta, var yfirmaður fræðslumála skáta- hreyfingarinnar og átti sæti í Úlfljóts- vatnsráði, stjórn skátamiðstöðvar- innar að Úlfljóts- vatni. Leiðbeinandi og stjórnandi nám- skeiða á vegum skátaheyfingarinn- ar, Björgunarskóla Landsbjarg- ar og Ferðafélags íslands. Hann var félagi í Hjálparsveit skáta í Reykjavík. Hann var einn for- vígismanna fijálsiþróttadeildar Ungmennafélagsins í Keflavík. Helgi Eiríksson tók þátt í stjórnmálum og var formaður Málfundafélagsins Óðins og átti sæti í stjórn hverfafélags Sjálf- stæðisflokksins í Laugarnes- og Vogahverfi. Hann sat í stjóm Starfsmannafélags Reykjavík- urborgar. Útför Helga verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 10.30. hreyfinguna. Snaggaralegur strák- ur dálítið feiminn en oft með gam- anorð á vör. Hann naut skátastarf- anna sem barn og unglingur, bæði funda og föndurs, smíðaði skápa og seinna heila skátaskála. En úti- vistin var honum unun, það var heilög stund að standa á fjallstindi og líta yfir landið. Njóta þess og festa þá örskotsstund á mynd. Hann var afar samviskusamur ungur skátaforingi, sem ávallt var fyrir- mynd sinna manna. Reynslan úr skátstarfi varð honum gott vega- nesti í kennslu og öðrum félags- málastörfum. Liggja eftir Helga ágæt fræðslurit um útilíf og ferða- mennsku. A fullorðinsárum sinnti hann trúnaðarstörfum fyrir skátahreyf- inguna, var ungur maður erindreki Bandalags íslenskra skáta og síðar framkvæmdastjóri þess frá 1989- 1991. í skátafélagi sínu Skjöldung- um í Reykjavík gegndi hann öllum foringjastörfum, var um hríð fé- lagsforingi og nú er hann lést um- sjónarmaður með skálum félagsins. Hann átti um hríð sæti í stjórn Bandalags íslenskra skáta og var fyrirliði alþjóðastarfs skátanna, hann var og formaður foringjaþjálf- unar Skátsambands Reykjavíkur og síðan Bandalags íslenskra skáta auk þess að vera einn helsti máttar- stólpi Gilwellskólans alþjóðlegs for- ingjaskóla skáta. Hann hafði sjálfur lokið alþjóðlegri foringjaþjálfun á vegum skátahreyfingarinar. Og átti ríkan þátt í að endumýja skipulag og inntak foringjanámskeiða skáta- hreyfingarinnar og skilaði þar dijúgu verki. Hann var nú síðast fullur áhuga í starfi sínu í Úlfljóts- vatnsráði að stuðla að uppbyggingu og vexti skátamiðstöðvarinnar að Úlfljótsvatni. Þær eru margar persónulegar minningar eftir meira en þrjátíu ára kynni, ég þekkti Helga fyrst sem yngri skáta í skátastarfi, síðan sem öflugan skátaforingja í nýstofnuðu skátafélagi þá sem nemanda minn í menntaskóla. Ég kenndi honum jarðfræði og kynntist þá nýrri hlið á vini mínum, áhuga hans á landinu og virðingu sem hann hafði alið með sér eftir nokkur sumur í sveit á Suðausturlandi, þar sem fjallasýn er mikilfengleg og mest um fagra steina í náttúrunni. Síðar vomm við kollegar í sögukennslu og sam- starfsmenn í skáthreyfingunni. Mér er minnisstætt hve vináttan var traust. Þótt oft væri deilt og þrætt um mikilvæg mál var það án þess að skugga bæri á vináttuna en væri Helgi órétti beittur voru þau sár djúp og greru seint, því að hann var viðkvæmur maður. Helgi var dásamlega þijóskur og þver þegar sá gállinn var á honum, en aldrei ósanngjam og lagði ekki illt til manna að fyrra bragði. Hann var svo öfundarlaus maður að hann skildi ekki þann löst hjá öðrum. Hann var afar tónelskur, hafði mik- ið yndi af klassískri tónlist, söng vel og lék á hljóðfæri, setti saman texta og samdi fáein lög sem gam- an var að syngja. Hann var mikill húmoristi, leikari ágætur og hvers manns hugljúfi. Helgi var í eðli sínu dálítill bóhem, það átti við hann að vinna í skorpum að eldheitum áhugamálum sínum, tímabundnum, og hann hafði oft í frammi skemmti- lega sérvisku. Hann hvatti menn ávallt til dáða með starfí sínu, leiddi þá oft af mikilli atorku stóran hóp til sameinaðra átaka og lyfti mörgu grettistaki. Hann var ávallt viðbú- inn og lagði fram liðveislu sína til björgunarstarfa og dró hvergi af sér í æfingum. Hann var að sönnu viðbúinn á Landsmóti skáta í sumar þar sem hann tók að sér fyrirvara- laust erfítt starf og lauk því af stakri prýði. En Helgi leitaði ekki eftir vinsæld- um og það var óhugsandi að hann léti af sannfæringu sinni. Það mátti hliðra til um alla hluti aðra. Hann var því ekkert lamb að leika sér við ef hann hafði málstað að veija. Þá gustaði af pilti og hann setti nokkuð í brýnn. Það er enginn vafi að þeir sem kynntust staðfestu Helga um málefni báru mikla virðingu fyrir honum. Ég er viss um að þessir eig- inleikar og kostir Helga Eiríkssonar hafa ekki farið fram hjá samstarfs- fólki hans á vettvangi stjómmála og stéttarfélags. Hann var valinn til trúnaðarstarfa sakir mannkosta og hæfíleika. Skátahreyfingin sýndi honum nokkum sóma í verki og hann var sæmdur heiðursmerkjum hennar fyrir störf sín. i áratugi hafa leiðir legið saman og nú er skarð fyrir skildi við óvænt fráfall Helga Eiríkssonar. Þegar hlauparinn mikli frá Maraþon kom á leiðarenda með sigurtíðindi féll hann í valinn. Helgi hafði komið ár sinni vel fyrir borð síðustu árin, var einkar ánægður með starfsvett- vang sinn á framkvæmdasömum stað hjá Vatnsveitu Reykjavíkur og bjó á æskuheimili sínu í Laugarási þar sem hann undi sér best, lengi í ástríku skjóli afa og ömmu, hann bar því sigurtíðindi er hann lauk lífshlaupi sínu, langt fyrir aldur fram. Mikill er söknuður hjá því unga fólki í skátahreyfingunni sem Helgi starfaði með nær daglega, leið- beindi og fræddi og hvatti til dáða. En hann átti líka flársjóð minninga og fjöld vina að launum fyrir þessi stöf sín. Helgi Eiríksson var sannar- lega gæfumaður í lífínu. Hann átti góða ævi og hafði ekki kennt sér meins um dagana fyrr en á þeirri stundu sem hann var kvaddur heim. Við skulum sól sömu báðir hinsta sinni við haf líta. Létt mun þá leið þeim, er ljósi móti vini studdur af veröld flýr. (Jónas Hallgrímsson) Ég flyt ástvinum Helga Eiríks- sonar, einlægar samúðarkveðjur skátahreyfingarinnar á íslandi og fjölskyldu minnar og þakka honum samfylgdina._ Ólafur Ásgeirsson. Allt eins og blómstrið eina upp vex á sléttri grund fagurt með fijóvgun hreina fyrst um dags morgunstund, á snögp augabragði af skorið verður fljótt, lit og blöð niður lagði, líf mannlegt endar slqótt. Þessi orð Hallgríms Péturssonar komu strax í huga minn þegar ég frétti andlát Helga Eiríkssonar sem óvænt og skyndilega féll frá í blóma lífsins. Kynni okkar Helga hófust í skátafélaginu Skjöldungum árið 1968. Og urðu þau mjög mikil og náin á næstu árum, einkum innan vébanda skátahreyfíngarinnar. Við áttum einnig samleið í skóla bæði í Menntaskólanum við Tjömina og síðar í Háskóla íslands. Á þessum árum sannreyndi ég mannkosti Helga. Hann var góður félagi, traustur og hjálpfús. Helgi átti sannarlega erindi í skátahreyfing- una enda skipaði hann sér fljótlega í forystusveit félags síns og var um skeið æðsti foringi þess. Hann var óbilandi í að vinna að öflugu skáta- starfi í Sundum og Vogum, fyrst í kjallara Vogaskóla og síðar í timb- urhúsi, gamalli kennslustofu við Sæviðarsund, og að lokum í Skáta- heimilinu í Sólheimum. Hann naut sín best þegar taka þurfti til hend- inni. Hvert sem viðfangsefnið var, að skipuleggja útilegu eða endur- byggja skála, þá lagði hann tíma sinn, krafta og hug allan í verkið. Helgi valdist jafnframt ti! margra trúnaðarstarfa fyrir landssamtök skáta og á þeim vettvangi starfaði hann alla tíð af elju og óeigingimi. Helgi var mikill náttúruunnandi, það lá í eðli hans. Hann unni listum og miðlaði af þekkingu sinni og list- skynjun á góðri stund. Helgi leiddi mig fyrstur inn í heima sígildrar tónlistar. Á undanförnum árum hafa leiðir okkar Helga sjaldan leg- ið saman en í hvert skipti sem við hittumst hvarf tími aðskilnaðar eins og dögg fyrir sólu. Eftir þétt hand- tak Helga og bros, skipti á upplýs- ing^urn um hvað á daga hefði drifið síðan síðast, tókum við upp þráðinn þar sem frá var horfið. Nú er sá þráður endanlega rofínn, þráður sem ég sá fram á að yrði tekinn upp aftur á gömlum slóðum. „Líf mannlegt endar skjótt" Hinsta trimmferðin runnin. Helgi var góður drengur og munu margir sakna hans sárt. Nánustu ættingj- um og vinum Helga votta ég samúð mína. Eiríkur G. Guðmundsson. Það hefur orðið slys. Hann Helgi bróðir ykkar er látinn. Þær fáu sekúndur sem ómur þessara orða barst til okkar virtust sem heil eilífð. í huga okkar hljóma þau jafn óraunveruleg nú og þau gerðu þegar við heyrðum þau. Eftir fylgdi sársauki og vanmáttarkennd. Helgi sem var svo fullur af lífi hefur nú verið frá okkur tekinn. Það skarð verður aldrei fyllt. Eftir stendur minningin um heil- steyptan dreng sem reyndist okkur góð fyrirmynd í lífinu. Stóri bróðir sem vildi hafa vit fyrir systrum sín- um. Oft reyndist tilefnið ærið. Hann á prýddi allt það sem einn mann gat prýtt; drenglyndi, yfírvegun, um- burðarlyndi og mikil staðfesta. Hann átti traust allra sem kynntust honum. Síðustu dagar hafa fært okkur heim sanninn um það hversu Helgi hefur verið ríkur að vinum og vel liðinn í þeim hópi. Við erum þakk- , látar að vita til þess að bróðir okk- ar hefur átt slíka vini og hefur það reynst okkur huggun á erfiðum | stundum. Perlur góðra minninga er hinn ósvikni auður. Það er hans arfur til okkar sem eftir lifum. Guði þökkum við fyrir að hafa átt Helga fyrir bróður og þau ár sem við fengum að eiga með honum. Takk fyrir allt sem þú varst okk- ur, elsku bróðir. Megi kærleikur t Guðs umvefja þig. Nú legg ég augun aftur, i ó, Guð þinn náðarkraftur mín veri vöm í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil svo ég sofi rótt. (Þýð. S. Egilsson) Þínar systur, Anna og Jóhanna. I Vinur okkar og samstarfsmaður, Helgi Eiríksson er látinn, langt um * aldur fram. Nú síðustu árin vann Helgi að mestu hjá Vatnsveitu Reykjavíkur, fyrst í útiflokkum, þá sem flokksstjóri og eftir stutt hlé frá okkur kom hann aftur til starfa sem innkaupastjóri Vatnsveitunnar. Á þeim vettvangi hafði hann tekið þátt í mörgum mikilvægum skipu- lagsbreytingum og margt var enn á döfinni. Helgi hefur víða starfað ötullega að félagsmálum og var auðvelt að fá hann til starfa fyrir starfsmanna- félag okkar. Hann tók að sér for- mennsku í stjórn ferðaklúbbs starfsmannafélags Vatnsveitunnar og undir hans stjórn var safnað fyrir ferð til Lundúna og fóru yfir 50 manns í þá ferð, sem farin var núna í lok október. Þar nutu marg- ir góðrar leiðsagnar hans um borg- ina, enda þekkti hann vel til þar. Helgi var vandvirkur í sínum störfum og lagði áherslu á að gera vel það sem hann tók sér fyrir hend- ur. Helgi hafði fallega rithönd og gott var að leita til hans þegar þörf var á hverskonar skrautritun vegna afmæla og við önnur sérstök tækifæri. í garðinum heima á Laugarásveginum mátti síðastliðið sumar oft sjá Helga taka til hend- inni. Hann var með mikil áform um endurskipulag lóðarinnar og fólu þau meðal annars í sér gerð göngu- stíga um garðinn og raflýsingu hans. Þessum verkefnum sinnti hann stundum langt fram á nótt. Helgi tók virkan þátt í íþrótta- starfi starfsmanna, m.a. körfubolta, fótbolta og einnig var hann í óform- legum skokkaraklúbbi starfs- manna. Starfsemin fólst einkum í því að mismargir starfsmenn fóru út að hlaupa í hádeginu og var Helgi oftast í þeim hópi og ævin- lega allra manna sprækastur. Það er kaldhæðni örlaganna að á hans hinsta degi var hann úti að hlaupa í Laugardalnum þegar kallið kom. Nú þegar við starfsmenn Vatns- veitunnar kveðjum Helga hinsta sinni er ekki úr vegi að hafa með fallegt erindi úr Hávamálum. Deyr fé, dejja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamáium) Starfsmenn Vatnsveitu Reykjavíkur. Helgi Eiríksson hringdi til mín á föstudagskvöldið hress og kátur, fullur af hugmyndum, bjartsýni og lífsþrótti. Við spjölluðum lengi sam- an um sameiginlegt áhugamál, upp- byggingu á landi skáta að Úlfljóts- t Okkar ástkæri sonur, eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR ÍSFELD FRÍMANNSSON, Hraunbæ 158, andaðist á Landspítalanum þann 1. des- ember. Útförin verður auglýst síðar. Marta Sigurðardóttir, Erla Sigurðardóttir, Guðrún Marta Sigurðardóttir, Frímann Már Sigurðsson, Wimonrat Srichkham, Óskar ísfeld Sigurðsson, Sólveig Ágústsdóttir, Helga Sigurðardóttir, Ágúst Óskarsson, Erlendur ísfeld Sigurðsson, Fanney Kristjánsdóttir og barnabörn. t Minningarathöfn um ástkæran son okk- ar og bróðir, GUÐJÓN KJARTAN VIGGÓSSON, Bogaslóð 10, Höfn, sem fórst með mb. Jonnu SF-12 13. október, verður haldin í Árbæj- arkirkju laugardaginn 7. desember kl. 14.00. Kristrún Harpa Kjartandóttir, Viggó Steindórsson, Ingvar Pétursson, Jerry Dwayne Williams og aðrir vandamenn. HELGI EIRÍKSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.